Morgunblaðið - 30.08.1960, Page 3

Morgunblaðið - 30.08.1960, Page 3
Þriðjudagur 30. ágúsl 1960 MORGVISBLAÐIÐ 3 ' 5 Knud Enemark frá Árósum 23 ára. ardag, en áður hafði Jörgen Jörgensen, sá hjólreiðarmann- anna sem fyrstur gafst upp, einnig fengið snert af sólsting og verið fluttur ,á sjúkrahús. Kista Knuds Enemarks var því ekki flutt til Danmerkur á laugardag, eins og ákveðið hafði verið. Líkið var flutt yf- ir í Réttarlæknisstofuná í Róm, þar sem átti að ákveða hvort kryfning færi fram til að ganga úr skugga um hvort hið upprunalega dánarvottorð væri rétt eða hvort önnur or- sök iægi til dauða hjólreiðar- mannsins. ■h k '"'■ ‘ •v. - „ ::::: J0 km vegalend hélt Enemark áfram, studdur af félögum sínum. Hér sést Niels Baunso halda honum uppi, meðan Vagn Bangsborg reynir að hressa hann með kaldri vatnsgusu. mSm Wm/m !»*v»-, li 3§Éɧ ***?: f'a'WÍ. , ■ , , , - „l , STAKSTINAR Iljólreiðamaðuriiiii Knud Enemark fellur af hjólinu á þjóðveginn, eftir að hafa lengi barizt við að halda afram 1 36 hita. Felagi hans, Niels Bauns0 horfir á. Hættu, Knud, fietta endar með skelfingu eftir að marki, þegar hann ffc'll á brennandi heitan þjóðveg- inn. Sjúkrabifreið frá Rauða krossinum flutti hann umsvifa laust í sjúkrahús þar sem hann lézt nokkrum klukkustundum síðar. Dönsku hjólreiðamennirnir tveir, sem eftir voru í keppn- inni, hjóluðu með saman- klemmdar varir áfram þessa 10 km, sem ekki gátu komið liðinu að neinu gagni eftir þetta. En Danir eru hættir þátttöku í hjólreiðakeppnun- um á Olympíuleikunum. Allir dönsku hjólreiðamennirnir vilja bara komast heim eins fljótt og auðið er, og áttu að fljúga til Danmerkur kl. 2,30 í gær. • Örvandi Jyf? Þessi hörmulegi atburður er ekki þar með úr sögunni. í einkaskeyti til Mbl. í gær, seg- ir: „Extrablaðið skýrir frá því að dönsku hjólreiðamönnun- um í Róm hafi verið gefin örvandi ]yf áður en þeir lögðu af stað í 100 km hjólreiða- keppnina á föstudaginn, þegar Knud Enemark veiktist og dó skömmu seinna úr sólsting, samkyæmt dánarvottorðinu. Þjálfari Olympíufaranna, Oluf Jörgensen, sem kom í gærkvöldi til Kastrupflugvall- ar, viðurkenndi í morgun í við tali við Ekstrablaðið, að hann hefði gefið hverjum þátttak- anda tvær ronicol-töfi- ur, þrátt fyrir aðvörun fyrir- liða hjólreiðarmannanna. Roni col verkar örvandi á blóðrás- ina, víkkar út blóðæðarnar, en leggur um leið mikla auka- vinnu á hjartað. Ronicol er því mjög hættulegt fyrir íþróttafólk, þar sem íþróttin sjálf leggur þegar mikið á hjartastarfsemina. Sérfræðing ar segja það óverjandi að gefa hraustri manneskju, sem legg- ur á sig mikla líkamiega á- reynslu, ronicol í miklum hita. En Jörgensen segist ekki hafa vitað hversu hættulegar töfl- urnar eru, læknir í Kaup- mannahöfn hafi ráðlagt þær“. Önnur dönsk blöð hafa að sjálfsögðu skrifað mikið um þetta mál, ekki sízt eftir að Vagn Bangsborg og þjálfarinn Olaf Jörgensen veiktust á laug Utanríkisráðherra- fundurNorðurlanda — HÆTTU, Knud, þetta endar með skelfingu, sagði Niels Bansö. Hann og félagi hans, Vagn Bandsborg, hjóluðu í 38 stiga hita eftir kappakstursveg inúm í nánd við Róm, og reyndu að halda þriðja félaga sínum, Knud Enemark, á hjól- inu. Fjórði maðurinn í liði Dana í þessari 100 km hjól- resðakeppni á Olympíuleik- unum, Jörgen B. Jörgensen, hafði gefizt upp eftir fyrstu 60 km. Þrír úr liðinu að minnsta kosti verða að ná að marki og Danir höfðu enn góða möguleika til að verða nr. 4, á eftir ítölum, Þjóðverj um og Rússum, ef þeir lykju þessari þriðju og síðustu um- ferð. • 10 km hálfmeðvitundarlaus Það var því ekki undarlegt þó þeim félögunum væri kapps mál að komast að ' marki. 10 km vegalengd voru Niels og Vagn búnir að ýta og draga Knud meðvitundarlítinn með sér, og aðrir 10 km voru F U N D U R Utanríkisráðfherra Norðurlanda hófst í Osló í gær. Af hálfu íslands sitja fundinn þeir Guðmundur í. Guðmundsson utanrikisráðherra, Henrik Sv Björnsson, ráðuneytisstjóri, og Haraldur Guðmundsson. sendi- ráðherra í Noregi. Þögn Þjóðvíljans l'm fátt var meira raett í frétta stofufregnum og blöðum um helg ina en ágreining þann, sem kom- inn er upp milli kommúnista- stjórna Kína og Ráðstjórnarríkj- anna. Þessi ágreiningur er orð- inn svo djúpstæður, að litlar lík- ur eru taldar til, að Ieiðtogunum muni reynast kleift að jafna hann. Opinberlega er rætt um ágrein ingsatriðin í kommúnistarikjun- um og ýmist tekin afstaða með Rússum eða Kínverjum. í komm únistaflokkunum utan járntjalds mun þetta nýja vandamál einnig rætt og varla getur farið hjá því, að íslenzkir kommúnistar ræði það nú sín á milli. En athyglisvert er að Þjóðvilj- inn virðist alls ekki vita um þenn an ágreining. Hingað til hefur blaðið ekki dregið af sér að skýra frá mikilvægum atburðum í kommúnistaríkjunum en nú er eins og það hafi gjörsamlega misst málið. Verst verður þó fyrir blaðið, ef íslenzki kommúnista- flokkurinn klofnar í áhangendur Moskvuvaldsins annars vegar og Pekingvaldsins hins vegar. Virð- ist þá ekki annað til bragðs að taka fyrir Þjóðviljann en að birta kínverska síðu við hliðina á þeirri rússnæsku. Enn um „innrásinaf< Þjóðviljinn hitti naglann á höfuðið á laugardaginn. þegar hann nefndi ritsjórnargrein sína „hlægilegt". Þar er enn fjallað um „innrásarliðið“ á Digramúla og segir m. a.: „íslenzkur bóndi vaknar við það að morgni dags að erlent her skip er komið upp í fjöru fyrir framan land hans. Hann fylgdist síðan með því allan daginn, hvernig þyrla flytur mann og út- búnað inn í landareign hans og á örstuttum tíma er búið að koma upp erlendri bækistöð skammt frá heimili hans, radarstöð og óðrum annarlegum útbúnaði". Morgunblaðið veit ekki, hvort bóndanum í Höfnum hefut fund- izt tilburðir mælingamannanna hlægilegir en svo mikið er víst, að blaðalesendum fannst innrás- arfrétt Þjóðviljans með því allra spaugilegasta, sem lengi hefur sézt í íslenzkum blöðum. Rússar = íslendingar Þjóðviljinn ræðir á sunnudag- inn um ályktun Alþingis 1956, er vinstri flokkarnir samþykktu að reka varnarliðið úr landi sællar minningar. Blaðið telur mikinn árangur hafa orðið af þeirri yfir lýsingu og samstarfinu í vinstri stjórninni. Segir það þann árang ur hafa verið hagkvæman íslend ingum, en betur skilst, hvað við er átt, ef skipt er á orðinu íslend- ingar og Rússar, þar sem blaðið heldur áfram: „Uggðu Bandaríkjamenn þá mjög um hag sinn hér á landi og hættu við ýmsar framkvæmdir, sem afráðnar höfðu verið að fullu, hernámshöfn í Njarðvík, en í staðinn juku þeir mjög bæki- stöðvar sínar á Grænlandi. Varð þessi samdráttur í athöfnum her- námsleiðsins hér á landi mjög i mikilvægur fyrir íslendinga; hann hafði það í för með sér að stöðvarnar hér úreltust og „gildi“ íslands sem bandarískrar útvarðsstöðvar minnkaði mjög ört“. „Friðarstefna Krúsjeffs" Menn hrukku við á sunnudag- inn, þegar hið hlutlausa ríkisút- varp talaði um „friðarstefnu Krúsjeffs. En þeir, sem vel fylgjast með fréttum í blöðum eða erlendum útvarpsstöðvum, eru hættir að kippa sér upp við það, þó að fréttastofa útvarpsins haldi stundum kynlega á málum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.