Morgunblaðið - 09.10.1960, Síða 5
r
Sunnudagur 9. olEt. 1960
ntORCUNBLAÐIÐ
5
!
MFNN 06 A
= mŒFNlú
I ÞJÓÐVILJANUM hinn 11.
sept. sl. stendur eftirfarandi;
„Það' væri efnj í sérstakan
þátt .að reyna að gera sér
grein fyrir orðanotkun þeirra
sem helzt berjast fyrir her-
stöð í landinu. Niðurstaðan
yrði þó sennilega sú að þar
væri síður um að ræða ranga
notkun orða en hugtakarugl.
ing, annaðhvort viljandi eða
þá áunninn og vanabundinn“.
í sama pistli er lögum orða-
vaðli eytt í að afsaka það
rangnefni, þegar ganga sunn-
an úr Njarðvíkum inn til
Reykjavíkur er nefnd Kefia-
vikurganga. HáJfvegis er við-
urkennt, að gagnrýni á þess-
ari nafngift eigi rétt á sér, en
eftir langt hjal komizt að
þeirri niðurstöðu, að „Kefla-
víkurganga“ hafi engu að síð
ur verið réttnefni, því að „við
Keflavíkurgönguna var her-
stöðin þar í grennd aðal-
atriði“. Ef þessi rök væru
rétt, hefði gangan átt að
nefnast „herstöðvarganga-,
en ekki að vera keond við
útgerðarbæ á Suðurnesjum,
sem aldrei var komið til.
Göngur eru jafnan kenndar
við ákvörðunarstað á ís-
lenzku, sbr. Rómarganga og
Jórsalaganga, en eftir liinni
nýstárlegu kenningu Þjóð-
viljans ættu hinar siðar-
nefndu að hafa heitið „sálu-
hjálparganga“ eða þ. u. 1.
Svipuð fölsun er að halda
fund á Brúsastöðum og kalla
hann Þingvallafund.
Stofnuð hafa verið „Samtök
hernámsandstæðinga", þótt
landið sé alls ekki hernumið.
Hernám er „occupatio", taka
lands. Herinn. ,sem hér sitiur,
gerir það .samkvæmt beiðni
löglegra kosinna stjórnar-
valda. Að kalla það hernám,
er þvi hugtakafölsun af versta
tagi. Hvaða orðs eigum við að
gripa til, ef landið verður
raunverulega hernumið, og
orðið hernám hefur verið út-
jaskað og látið breyta um
merkingu? Vilja kommúnistar
í raun og veru nota sama orð
um hernáim Þjóðverja í Nor-
egi, Hollandi og Fóllandi, svo
að dæmi séu tekin, og hersetu
varnarliðsins hér?
En hvernig væri að láta
einn hinna nytsömu sakleys-
ingja hafa orðið? Orðfæri
hans ætti væntanlega að vera
óaðfinnanlegt. í Tímanum birt
ist fyrir skömmu fréttabréf
frá Rússlandi eftir Vigfús Guð
mundsson gestgjafa. Hann er
náttúrlega barnslega hrifinn,
svona álíka og hann varð af
stjórnarfarinu í Suður-Afríku
á dögunum. Hann segir sig og
samferðafólk „alfrjáls að fara
allra okkar ferða og skoða
hvað sem okkur langaði til án
nokkurra hamla .... þykir
mér vænt um og sjálfsagt aö
segja þetta eftir allt það lyga-
slúður í þessum efnum, sem
stöðugt hefur bergmálað
í okkar kæra vestræna heimi'.
Það hefur aldrei verið neitt
leyndarmál, að stór landsvæði
í Sovétrikjunum enu alger-
Iega lokuð útlendingum, enda
hafa sovézk yfirvöld ekki
dregið neina dul á það. Vigfús
segir lika á öðrum stað, að
hann hafi áður gert tvær at-
rennur til þess að komast inn
í Iandið, en ekki tekizt. Nú
ferðazt hann hins vegar á veg
um sovézku ferðaskrifstofunn
ar, og „þarf ekki að borga
nema rétt sem svarar fargjöld
in á milli Islands og Moskvu".
Undarlega hlýtur sú stofnun
að vera rekin!
Vigfús segir ennfremur:
„Enda er ég alltaf fyrst og
fremst íslendingur, sem virði
margt gott hjá báðum þessum
aðilum, (þ.e. Bandaríkjamönn
um og Rússum), þótt ekki
vilji ég vera bandingi hvorugs
þeirra“.
Þessi „fyrst-og-fremst-íslend
ingur“ vill ekki vera bandingi
hvorugs, svo að hann vill þá
vera bandingi annars. Hann
virðist líka vera á góðum vegi
með það.
Bryðja nesti breiðir kjálkar,
blakta á tjöldum glæstir fálkar,
boppa um völlu heftir jálkar.
Bpp er runnin auglýst stundin,
innan skamms má setja fundinn
til að leysa langa blundinn.
Kringum „búðir4* kappar sitja,
kyrrlátlega nestið brytja,
styrkja sig til starfs og nytja.
Breiðleitt glottir bergið aldið
bliki morgunsólar faldið,
horfir fast á fundartjaldið.
Svífur mý um horska hausa
heilög foldin hvílir dausa.
Heyrist foss í fjarska rausa.
Hæglát Iygnir augum gljáin.
Opnum munni starir gjáin
upp á við, og út í bláinn.
Mjúkur blær, úr suðri svifinn,
sýnist standa á öndu hrifinn.
Harður fiskur heyrist rifinn.
Hundar hvíla hausa* á löppum,
hljóta roð og bein hjá köppum.
Náð er úr með tönnum töppum.
Álfar Ijóss á léttum fótum
leita að nýjum frelsis-rótum
niðrí fornum gjám og gjótum.
Fulltrúar með eld f æðum
í sér kreista feikn af ræðum;
rifja upp orð úr ættlandskvæðum.
•
I*á í svip um foldu friða
fölur gestur sýndist ríða;
sló á alla ógn og kviða.
Engum kom hann eftir vegi
ólánsboðinn raunalegi,
hnakk né ístöð hafðP ann eigi.
Fótastokkinn fast hann skeliti,
fákurinn var sleginn heltL
Furðu magurt folald elti.
•
Voru að þukla á þjóðarkaunum,
þungbúnir í hugarraunum
lentu úti í hrjóstur-hraunum.
Hoppa um völlu heftlr Jálkar.
Hundum bætast roð og dálkar.
Vfir blakta frelsis-fálkar.
Ur kvæðinu ..Morgunn á Þingvöllum"
eftir Hannes Hafstein.
Flugfélag íslands hf.: — Gullfaxi er
væntanl. til Rvíkur kl. 16:40 1 dag.
Hrímfaxi fer til Glasgow og Khafnar
kJ 8 1 fyrramálið.
lnnanlandsflug: I dag til Akureyrar
og Vestmannaeyja. A morgun til Ak-
ureyrar, Egilsstaða, Hornafjarðar, Isa-
fjarðar, Siglufjarðar og Vestmanna-
eyja.
Loftleiðir hf.: — Leifur Eiríksson er
væntanlegur kl. 6:45 frá New York,
íer til Glasgow og Amsterdam kl. 8.15
Edda er væntanleg frá New York kl. 9
íer til Gautaborgar, Khafnar og Ham-
borgar kl. 10.30.
H.f. Eimskipafélag íslands. — Detti
foss er á Hólmavík. Fjallfoss er í Hull
Goðafoss er á leið til Aberdeen. Gull
foss er á leið til Rvíkur. Lagarfoss er
á leið til New York. Reykjafoss er í
Ventspils. Selfoss er á leið til Rvíkur.
Tröllafoss er á Norðfirði. Tungufoss
er á Akureyri.
Hafskip hf. — Laxá er á leið frá
Riga til Vestmannaeyja.
Jöklar hf. — Vatnajökull er í Lenin
grad. Langjökull er á leið til A-Þýzka
lands.
Skipadeild SÍS.í — Hvassafell er í
Gdynia. Arnarfell er í Rvík. Jökulfell
er á Vopnafirði. Dísarfeíl er á Þórs-
höfn. Litlafell kemur til Rvíkur á
morgun. Helgafell er í Onega. Hamra
íell er á leið til Batumi.
60 ára er á morgun Þorvaldur
Ásgeir Kristjánsson, málari, Lauf
ásvegi 65 hér í hæ.— Á afmælis-
daginn mun Þorvaldur Ásgeir
divelja að heimili dóttur sinnar
og tengdasonar að Breiðagerði 4.
I gær voru gefin saman i
hjónaband ungfrú Erna Valdís
Viggósdóttir, Mávahlíð 43 og
Steinar Hallgrímsson stud. jur.
Heimili ungu hjónanna verður
að Mávahlíð 41.
Nýlega hafa opinberað trfilof-
un sína, ungfrú Vilhelmína
Steinunn Elíasdóttir, Vesturgötu
69, Akranesi og Jón Sigurðsson,
stýrimaður, Kirkjubraut 7, Akra
nesi.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af sr. Jóni Thoraren-
sen ungfrú Oiga Ragnarsdóttir
og Kristján Grétar Valdi-mars-
son, flugvirki. Heimili un-gu
hjónanna verður að Þórsgötu 1.
Læknar fjarveiandi
Erlingur Þorsteinsson læknir verður
fjarverandi til áramóta. Staðgengill;
Guðmundur Eyjólfsson Túngötu 5.
Haraldur Guðjónsson um óákv. tíma.
Staðg.: Karl Jónasson.
Katrín Thoroddsen frá 17. sept. fram
yfir miðjan okt. Staðg.: Skúli Thor-
oddsen.
Olafur Jóhannsson um óákv. tíma.
Staðg. Kjartan R. Guðmundsson.
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund ....... Kr. 107,00
1 Bandaríkjadollar ...... — 38.10
1 Kanadadollar .......... — 39,03
100 Danskar krónur ......... — 553,85
100 Norskar krónur ....... — 534,90
100 Sænskar krónur ....... — 737,70
100 Finnsk, mörk ......... — 11,90
100 Austurrískir shillingar — 147,30
100 Belgiskir frankar ... — 76,35
100 Svissneskir frankar .. — 884,95
100 Gyllini .............. — 1010,10
100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45
100 Vestur-þýzk mörk _____ — 913.65
1000 Lírur ............... — 61,39
100 N. fr. franki ....... — 777,45
100 Pesetar ............. — 63,50
Fámálugur maður er hygginn, en
geðrór maður er skynsamur.
Arfur, sem í upphafi var skjótfeng
inn, blessast eigi að lokum.
Það er manni sómi, að halda sig frá
þrætu, en hver afglapinn yglir sig.
— Orðskviðirnir.
Sjálfstæðiskvennafélagið HVÖT. —
Fundur verður haldinn annað kvöld
(mánud.) kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu.
Rætt verður um félagsmál og vetrar-
starfsemina. Tekið verður á móti nýj-
um félagskonum og ef félagskonur
myndu vilja greiða árgjöld sín á fund
inum yrði það þegið með þökkum.
Skemmtiatriði: Fegurðardrottningin
Sigrún Ragnarsdóttir syngur einsöng.
Kaffidrykkja. Allar sjálfstæðiskonur
velkomnar meðan húsrúm leyfir.
Tannlæknar óska eftir að gerast aðstoð arstúlka hjá tannlækni. — Uppl. í síma 24679 milli kl. 3—5 e.h. Góð íbúð óskast til leigu hálfs eða eins árs fyrirframgr. (Reglusemi). Uppi. í síma 12956 eða 33793.
Or gel - h armon í um fallegt og vandað, þýzkt orgel-harmoníum til sölu og sýnis nú þegar að Laug arásvegi 51, rishæð. Sími 34500. Til leigu 2 herb. og eldhús á hita- veitusvæðinu fyrir mið- aldra barnlaus hjón. Reglu sepii- Tilb. á afgr. Mbl., merkt: „Hæglát — 1065“
Okkur vantar reglusaman meiraprófsbíl- stjóra. Bifreiffastöð Steindórs Sími 11588 Bíll óskast Óska að kaupa lítinn bíl, vel með farinn. Má vera Station eða sendiferðabíll. Uppl. í síma 19682.
Sníð kjóla og þræði saman.. Tek á móti pöntunum aðeins — þriðjud. og föstud. Petra Christíansen. Kapla- skjói 7. (Vinsml. geymið auglýsinguna). Verzlun í Hálogalandshverfi, 80 ferm. á góðum stað í Há- logalandshverfi til leigu. — Tilb. sendist Mbl. fyrir 12. okt. merkt. „Hálogalands- hverfi — 1063.“
Ó D Ý R T
Skólaúlpur
Verð frá kr. 220.- 390.—
k Smásala — Laugavegi 81.
ATVINNA
Saumastúlkur óskast. Upplýsingar í verk-
smiðjunni Brautarholti 22.
Verksmiðjan Dúkur hf.
í Dodge Weapon '53
Millibilsstöng, gírkassalok og ýmistegt
fleira í undirvagn óskast. Uppl. í sima l
32637 og 36000.
"■■■■. 111 1 —■ ■ ■ ■ ■ ■ n i i •:
BÓKHALD
Óskum eftir að taka að okkur bókhald fyrir verzl-
unarrekstur eða útgerð. Þeir sem vildu sinna þessu
sendi tilboð merkt: „Heimabókhald — 1050 fyrir
13. þ.m.
Kynningar-
sala
Allar tegundir af
mjóJkur- og rjómaís
seldar á
verksmiðjuverði
út þennan mánuð
ÍSBORG
við Miklatorg
íaíSm