Morgunblaðið - 09.10.1960, Qupperneq 23
Sunnudagur 9. olcf. 1960
MORCTJNBLAÐ1»
23
Frá fundi Norðurlandaráðherranna Harpsund. Talið frá vinstri: X. Sukselainen, forsætisráðherra
Finnlands, Einar Gerhardsen frá Noregi, Viggo Kampmann frá Danmörku, Tage Erlander frá
Svíþjóð og Emil Jónsson félagsmálaráðherra frá Íslandi. — Myndin tekin í garði sænska for-
sætisráðherrabústaðarins í Harpsund. —
— Noröurlandaráð
Frh. af bls. 1
Finnlands, Einar Gerhardsen for
sætisráðherra Noregs, Tage Er-
lander forsætisráðherra Svíþjóð-
ar og Emil Jónsson félagsmala-
ráðherra fslands. Þar voru einn-
ig forsetar Norðúrlandaráðsins,
Gísli Jónsson frá fslandi, Erik
Eriksen frá Danmörku, Fager-
holm frá Finnlandi, Nils Höns-
vald frá Noregi og Bertil Ohlin
frá Svíþjóð.
Það var almennt talið áður en
fundurinn hófst að forsætisráð-
herrar Noregs, Danmerkur og
Svíþjóðar ætluðu að setja fram
tillögu um að draga verulega úr
starfsemi Norðurlandaráðsins. Á
fundi ráðsins í Reykjavík í sum-
ar var samþykkt að endursk'oð-
un skyldi fara fram á starfsemi
þess og var einkum búizt við
því, að fram kæmu tillögur um
að taka efnahagsmálin út af dag-
skrá þess og haida fundi annað
hvert ár í stað árlega.
En fulltrúar Finna spyrntu
kröftulega við broddunum. Það
var sýnilega m. a. af því að dag-
inn áður en ráðherrafundurinn
hófst, ákváðu Finnar að koma á
fót sérstakri ráðherranefnd. sem
skyldi fara með málefni í sam-
bandi við Norðurlandaráðið. —
Sjálfur Sukselaínen er formað-
ur þessarar ráðherranefndar, en
í henni eiga einmg sæti Törngren
utanríkisráðherra, Karjalainen
viðskiptamálaráðherra, Hanni-
kainen dómsmáiaráðherra og
Hosia menntamálaráðherra.
A ráðherrafundinum í Harp-
sund tóku Finnarnir up öfluga
vörn fyrir Norðuriandaráðið og
voru studdir af öllum forsetum
ráðsins. Varð niðurstaðan síðan
að ekki skyldi á neinn hátt draga
úr starfsemi ráðsins. Fundir
skyldu haldnir árlega eftir sem
áður og heimilt skyldi að ræða
mikil ágreiningsmál.
Undir forustu Finna var á-
kveðið að endurskipulagníng
skyldi ekki felast í því að draga
úr starfseminni, heldur gera
hana virkari. Það var aðeins
samþykkt að takmarka umræð-
ur um heit deilumál, þannig, að
ekki skyldu rædd deilumál sem
yllu hita milil einstakra landa
í ráðinu, eða væru deilumál í að
eins einu ríki. Hinsvegar var
það talið mikilvægt til að gera
ráðið virkara að rædd væru mál-
efni sem deilur stæðu um í öll-
um ríkjum, t: d. efnahagsmál.
Merkjasöludagur skáta
KOMMÚNISTAR
Frh. af bls. 24
heldur aðeins að láta í ljós van-
þóknun á verðhækkunum að und
anförnu. Hin pólitíska ásjóna er
þó ekki hulin betur en svo, að
kosningaskrifstofur A-listans eru
í aðalbækistöðvum kommúnista
í Tjarnargötu 20 og í Framsóknar
húsinu.
En sporin hræða. Fortíð komm-
únista í félagsmálum Iðju er slíkt,
að Iðjufólk tekur lítið mark á
fjálglegum yfirlýsingum þeirra
um nauðsyn bættra kjara iðn-
verkafólks.
Þjóðviljinn segir i gær, að eng
in stétt búi við eins lágt kaup
og iðnverkafólk.
Sá maður, sem lengst hefir
farið með stjórn félagsins er
Björn Bjarnason, efsti maður á
A-listanum. Þetta er þungur dóm
ur um hans forustu.
Kaldhæðnislegast er þó það að
þegar núverandi stjórnendur
Iðju fengu með samningum við
vinnuveitendur — án verkfalls
— verulegar kjarahætur handa
þessu láglaunafólki, snerust
kommúnistar og Framsóknar-
menn harðlega á móti, sökuðu
stjórn Iðju um skemmdarstarf-
semi, hótuðu iðnrekendum refsi-
aðgerðum og sjálfur forseti Al-
þýðusambandsins, Hannibal
Valdemarsson kallaði þessar
kjarabætur „mútur“ vinnuveit-
enda. . f
Þetta man Iðjufólk og veit, að
það á ekkert að þakka þeim mönn
um, sem nú vilja fá liðsinni þess
ti 1 þess að stuðla að upplausn I
þjóðfélaginu.
Iðjufólk veit, að með því að
efla kommúnista til áhrifa, er
það að hindra sínar eigin kjara-
bætur.
Iðjufólk veit, að ef stefna
kommúnista fær að ráða, skell-
ur yfir þjóðina flóðbylgja dýr-
tíðar og efnahagslegrar upp-
lausnar, sem leiða mun til sam-
dráttar og atvinnuleysis.
Iðjufólk felur ekki þeim mönn-
um trúnað, sem skildu við félag
þess í rúsíum.
Iðjufólk veitir ekki þeim mönn
um stuðning, sem hafa spillt þvi,
að það gæti fengið hagstæð lán
til þesS að byggja yfir sig og af-
salað milljónum króna, sem
vinnuveitendur hefðu ella greitt
í lífeyrissjóð félagsins vegna for-
göngu núverandi forustumanna
Iðju.
Iðjufólk vill ekki skipa sér í
sveit upplausnaraflanna í þjóð-
félaginu heldur styðja þá stefnu,
sem leggur grundvöll að raun-
hæfum kjarabótum, eflingu iðn-
aðarins og allsherjar uppbygg-
ingu í þjóðfélaginu.
Iðjufélagar, eldri og yngri. —
Farið á kjörstað í dag, ef þið haf-
ið ekki þegar kosið — og kjósið
B-listann.
Sigur B-listans er sigur atvinnu
öryggis og viðreisnar en ósigur
einræðis og upplausnar.
Schannong’s minnisvurðar
0ster Farimagsgade 42,
Kþbenhavn 0.
Skátamerkin eru seld í dag —
Vlerkið er kringlótt pappa-
merki, gult og blátt, og á það
sr prentað kvenskátasmárinn
ag inn í honum skátaliijan.
>au kosta 10 kr. stykkið.
Agóðinn af merkjasölunni
;r eina verulega tekjulind
ikátahreyfingarinnar og því
mikið í húfi að sala gangi vel.
E>au verða til sölu um land
illt.
Kominúnistar
tapa íulltrúa
N Ý L E G A fór fram full-
trúakjör í félagi íslenzkra kjöt-
iðnaðarmanna. Fulltrúi lýðræðis
sinna, Kristján Kristjánsson var
kjörinn. Kommúnistar áttu full-
trúann áður.
Einnig var kosið í félagi sýn-
ingarmanna í kvikmyndahúsum.
Kjörinn var Óskar Steindórsson,
fulltrúi lýðræðissinna.
Kosningaskrifstofa
B-listans
í Iðju
er í Vonarstræti 4 (Verzlunarinannahúsinu) 3. hæð.
Símar: 23331 og 23332.
Stuðningsfólk B-listans er beðið að hafa samband
við skrifstofuna.
- íþróttlr
Framh. af bls. 22
þrístökkinu og Rússana báða,
Goriajev og Kreer.
Þá var það íslendingur sem
var óheppinn. Hann átti jöfn
ustu stökkseríuna, tvö stökk
fram yfir gamla Olympíumet
ið og það síðara þó hann
stykki aftan við plankann J
10—15 cm aftar en leyfilegt
frC. Aðeins ef það stökk hefði
heppnast hefði bronspening-
uiinn í þrístókkinu lent á ís-
ie> -’i.
Flestir íslendinganna voru
lélegri en þeirra er venja. En
flest eða öll lönd geta sagt
þá sögu að svo og svo margir
af þeirra mönnum voru langt
frá sínu bezta. Aðstæðurnar
voru svo framandi fyrir Norð
urlandabúa að það er kannski
eins mikil heppni að þeir nái
sínu bezta og það er mikil ó
heppni (að sumra dómi) að
þeir geri það ekki.
Norðurlöndin öll fengu einn
verðlaunapening. Það var
Landström Finnlandi í stang-
arstökki. Nokkrir fengu stig
— þ. e. a. s. voru 4. 5. eða 6.
sæti. Þannig fengu Svíar 14 st.
Finnar 9, Norðm., Islending-
ar 2 og Danir eitt. Þetta á
aðeins við um frjálsar íþrótt-
ir.
Heppni og óheppni, geta og
getuleysi eru orð sem alltaf
verða ofarlega á baugi
við íþróttakeppni. Skoðanii
manna eru svo misjafnar að
sitt sýnist hverjum. Svo mun
og verða um frammistöðu ís-
lendinga.
— A. St.
Innilegar hjartans þakkir, sendi ég vinum og vanda-
mönnum, sem á einn og annan hátt, glöddu mig, og
sýndu mér hlýhug á, 70 ára afmæli mínu.
Lifið öll heil.
Rebekka Jónsdóttir, Kambsvegi 15
Hjartanlegar þakka ég öllum ættingjum og vinum, fjær
og nær, er giöddu mig með ógleymanlegum gjöfum,
skeytum og heimsóknum á 70 ára afmæli mínu 26. sept.
sl.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Jónsdóttir
Hjarttmlegar þakkir færi ég börnum mínum og öllu ætt-
fólki og vinum nær og fjær, sem sýndu mér vinarhug á
sjötugsafmæli minu 29. sept. s.l. með heimsóknum, gjöf-
um og skeytum. — Guð blessi ykkur öll.
Pálína Pálsdóttir,
Strandgötu 83, Hafnarfirði.
Jarðarför
BJÖRNS JÖNASSONAR
frá Hámundarstöðum í Vopnafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju 10. þ.m. kl. 10,30 f.h. Blóra
afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er bent á björg-
únarskútusjóð Austurlands. Uppl. í síma 14894. Athöfn-
inni verður útvarpað.
Fyrir hönd ættingja.
Þorbjörg Björnsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GLDRLN AR ÁRNADÓTTUR
Árni Linarsson, börn, tengdabörn og barnabörn
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og útför bróður okkar
JÓAKIMS EINARSSONAR
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Einar Einarsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
ELfNBORGAR JÓNSDÓTTUR
Bogi Halldórsson,
Inga Ingólfsdóttir,
Sigurður B. Sigurðsson