Morgunblaðið - 09.10.1960, Side 24
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
0¥0!tttMðftiÍ$
231. tbl. — Sunnudagur 9. október 1960
ÍÞRÓTTIR
eru á bls. 22.
>v- / y.-p — WW
BARNASKÓLI Húsavíkur
verður vígður í dag: og við þá
ithöfn verða meðal annars við
itaddir: Menntamálaráðherra,
fulltrúi fræðslumálastjóra,
oámsstjórar, auk framámanna
hér heima í héraði.
Skólahúsið, sem í eru tvær
álmur, vinkiibyggðar, er að
grunnfleti 1068 fermetrar, gólf
flötur alls 2283 fermetrar og
rúmmál byggingarinnar allrar
um 7000 rúmmetrar. í bygg-
ingunni eni 10 kennslustofur,
vel búnar og bjartar og rúm-
góðar fyrir 30 nemendur. í
álmunni til vinstri (sjá mynd)
er 200 fermetra íþrottasalur
tneð hækkandi bekkjum fyrir
180 áhorfendur. Þá er í skól-
>num góð verknámsaðstaða,
bæði fyrir stúlkur og pilta,
ívo og myndarlegt kennslueld
hús. Þórhallur B. Snædal var
yfirsmiður við bygginguna en
teikningu gerði Hákon Sig-
íryggsson, bæjariðnfræðingur,
raflögn annaðist Arnljótur
Sigurjónsson, pípulögn Arnvið
ur Ævar Björnsson, múrhúð-
un og jámalögn Friðgeir Ax-
fjörð og málningu Haraldur
Bjömsson, allt búsettir Hús-
víkingar.
f vetur verða i skólanum
300 börn, og verða kennslustof
ur þeirra allar á neðri hæð-
inni en gagnfræðaskólinn fær
fyrst um sinn aðstöðu á efri
hæð, svo að þetta menntasetur
Húsvíkinga verður í vetur set
ið af um 400 nemendum. Nýr
>kólastjóri, Káiri Arnórsson,
tekur við stjóm Barnaskólans
sn skólastjóri gagnfræðaskól-
*ns er Sigurjón Jóhannesson.
Húsvíkingar fagna því í dag
nerkum degi i menningarmál-
im staðarins. — Fréttaritari.
Stdrþjdfnaöur
Verðmætum fyrir á 2. hundrað
þusund kr. stolið úr Kjorgarði
í FYHRINÓTT var framið
eitthvert stærsta innbrot til
þessa í Reykjavík. Var brot-
izt inn í Kjörgarð við Lauga-
veg og hafði þjófurinn eða
þjófarnir komið við í 13 verzl-
unarfyrirtækjum þar í hús-
inu.
Mestu var stolið í úra- og
skartgripaverzluninni Men-
inu, sem er á fyrstu hæð
hússins. Voru tekin þaðan
milli 50 og 60 úr og nemur
verðmæti þeirra um 100 þús-
und krónum. Úr hinum verzl-
ununum var stolið peningum
í innlendri og erlendri mynt
að upphæð 32 til 33 þúsund
krónum.
Enginn vörður var í húsinu
í fyrrinótt. Mál þetta var í
rannsókn, en þjófarnir voru
enn frjálsir ferða sinna, er
blaðið fór í prentun.
Kommúnistar andvígir
kjarabótum iðnvtrkafólks
Iðjufólk vill atvinnuöryggi og kýs B-listann
FULLTRÚAKJÖRINU í Iðju held
ur áfram í dag. Er kosið í skrif-
stofu félagsins í Skipholti 19 (3.
hæð) frá kl. 10 árdegis til kl. 10
síðdegis.
Listi lýðræðissinna er B-list-
inn.
Kommúnistar og Framsóknar-
menn ganga nú berserksgang í
Safnað til björgunar-
skútu Austfjarða
Kafíisala í Breiðfirðingabúð í dag
AUSTFIRINGAFÉLAGIÐ í R-vík
hefur um árabil rekið myndar-
lega félagsstarfsemi hér í borg-
inni. Fjölsótt spilakvöld hafa ver-
ið haldin einu sinni í mánuði
auk Austfirðingamótsns í febrú-
ar. >á hefur félagið rekið útgáfu
starfsemi og m. a. gefið út Ættir
Austfirðinga.
Vetrarstarfsemi félagsins er að
hefjast um þessar mundir og verð
ur með sama sniði og áður.
Helzta áhugamál félagsins og
Austfirðinga nú, er björgunar-
skútan, en fjársöfnun til hennar
stendur yfir bæði hér syðra og
fyrir austan. Fyrir ári síðan höfðu
félagasamtök Austfirðinga hér í
borginni kaffisölu í Breiðfirðinga
búð til styrktar þessu nauðsynja-
máli og bar sú fjáröflunartilraun
góðan árangur.
í dag efna félögin aftur til
kaffisölu í Búðinni til styrktar
björgunarskútunni. Er þess að
vænta að Austfirðingar fjöl-
menni í kaffið til að rifja upp
gömul kynni um leið og þeir
leggja lið einu mesta velferðar-
máli fjórðungsins.
félaginu og reyna að læða þvi
inn hjá Iðjufólki, að með því að
kjósa kommúnistalistann sé það
alls ekki að efla kommúnista,
Framh. á bls. 23.
Móðurmiilsverð-
laun veitt
Matthíasi
Johannessen
BLAÐINU barst í gær eftirfar-
andi tilkynning frá stjórn „Minn
ingarsjóðs Björns Jónssonar,
móffurmálssjóðnum:
Stjórn Minningarsjóðs Björns
Jónssonar, Móðurmálssjóðsins,
ákvað á fundi sínum 6. þ. m. að
veita á þessu ári Matthíasi
Johannessen ritstjóra við Morg-
unblaðið, verðlaun úr sjóðnum.
Verðlaun þessi eru veitt n'önn-
um, sem hafa aðalstarf við blað
eða tímarit, fyrir góðan stíl og
vandað mál, og skal þeim að
jafnaði varið til utanfarar.
Veitt eru að þessu sinni kr.
10 þús. Verðlaumn voru afhent
í gær, 8. okt., á afmælisdegi
Björns Jónssonar.
Sjóðstjórnina skipa nú:
Dr. Einar Ól. Sveinsson, próf.
í íslenzkum bókmenntum, dr.
Halldór Halldórsson, próf. í ís-
lenzkri máifræði, Tómas Guð-
mundsson skáld, Bjarni Guð-
mundsson, blaðafulltrúi, og Pét-
ur Ólafsson, forstjóri.
B -1 i sti j Iðju og
T résmiðafélaginu
Nokkrir
Bretanna
fara utan
Lélegt skeyta-
samband tefur
viðræður
VIÐRÆÐUR brezku og íslenzku
nefndanna munu halda áfram í
þessari viku. Enn fást engir
nefndarmanna til aff skýra frá
því hvaff rætt hefur veriff á fund-
unum.
En Sir Patrick Raílly formaff-
ur nefndarinnar skýrffi Mbl. svo
frá í gær, að tveir effa þrír
brezku nefndarmannanna myndu
fljúga til Englands í dag, sunnu-
dagsmorgun, til þess aff ráðgast
viff brezku stjórnina. Sagði Sir
Patrick, að þaff hefffi valdiS
brezku viðræðunefndinni erfiff-
leikum, hve skeytasamband viS
Bretland hefði veriff slæmt að
undanförnu og væri það m. a.
þess vegna sem nokkrir nefnd-
armannanna þyrftu að fara til
London.
Skeytasambandið viff England
er mjög slæmt um þessar mund-
ir vegna þess, að sæsíminn slitn-
aði fyrir rúmri viku við Aust-
urland. Hefur orðiff að senda
skeyti meff radíó en radíóskil-
yrffin veriff óvenjulega siæm
vegna sólbletta.
Fyrir hádegi í gær var hald-
in ríkisráffsfundur í forsætisráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu
og gátu viðræffunefndirnar þá
ekki ræðst viff. Hins vegar héldu
þær stuttan fund eftir hádegi.
Mun næsti fundur verffa á morg-
un. —
Æskulýðsróð
Kópovogs
STARFSEMI Æskulýffsráffs
Kópavogs hefst um miðjar.
þennan mánuð meff námskeið
um í ýmiskonar föndurgrein-
um svo sem bast, tágum, perl-
um, filti, beini, hornum, leff-
uriðju, smíðaföndri, frímerkj-
um, tafli o. fl.
Innritun fer fram í bæjar-
skrifstofunni Skjólbraut 10
þriffjudag og miðvikudag 11.
»g 12. okt. ki. 5—7 báöa dag
ana.
Þetta hafði áhrif i Múnchen 1938, en ekki í New York 1960.
(tarantel press)