Morgunblaðið - 23.10.1960, Síða 9
Sunnu3agUr 23. okt. 1960
niORCVNBf 4¥>l»
9
Geðvernd og sállækningar barna
Samtal við Sigurjón Björnsson,
sálfræðing, forstöðumann Geðverndar
j deildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur |
GEOVERNDARDEILD Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur hef-
ur nýlega tekiö til starfa. —
Morgunblaðið hafði af því tilefni
tal af hinum unga forstöðumanni
deildarinnar, Sigurjóni Björns-
syni, sálfræðingi.
Sigurjón Björnsson er fœdd-
ur og uppalinn á Sauðárkróki.
Hann varð student frá Mennta-
skólanum á Akureyri vorið
191(9 og hélt þá um haustið til
Frakklands. Þar lagði hann
stund á sálfrœði og heimspeki
við háskólana í Grenoble og
Parts og lauk kandidatsprófi í
þeimgreinutn sumariö 1953.
Nœstu tvö árin dvaldist Sigur-
jón í Reykjavík, kenndi í gagn-
frœðaskólum og vann að stuðl-
un greindarprófa dr. Matthías-
ar Jónassonar, prófessors, á
börnum.
Sumarið 1955 hélt Sigurjón
til Kaupmannahafnar, til þess
að afla sér þekkingar og
reynslu í kliniskri sálarfrœði og
lagði hann þar stund á sál-
frœðilegar rannsóknaraðferöir
og meðferö á hugsýkissjukling-
um. Þar dvaldist hann í fimm
ár, eða þangað til nú í sumar.
Fyrstu tvö árin vann harni sem
nemandi við Barnasálfrœðistöð
Hafnarháskóla, en seinustu 3
árin vann við ýmsar stofnanir,
svo sem barnasjúkrahús og
lœkningáhœli fyrir taugaveikl-
uð börn. Jafnhliða þessu lagði
hann einnig stund á að lœra
sállcönnun, en þaö er einmitt i
fimm ára nám. Sálkönnun lærði j um ,ækningati|n*unir, þótt bata-
„. .. ... , , , horfur virðist litlar, og frá vis-
Stgurjon hja kennslustofnun ^ inda1egu sjónarmiði getur oft
Danska sálkönnunarfélagsins, yc- ið réttlætanlegt að reyna
sem er deild úr Alþjóðafélagi lækni. þó að óvíst sé um
sálkö.iiiuOa, (International d.s- ; árangur.
Freuds, og þess vegna taldi ég
rétt að læra þá aðferð til fulln-
utu og þær kenningar, sem henni
fylgja, enda þótt ég geri ráð
fyrir, að ekki muni nema örlítill
hluti þess fólks, sem ég mun fást
við hér heima, hafa þörf fyrir
þess háttar lækningu. En þessar
aðferðir eru undirstöður sál-
lækninga.
★
— Er mikið brugðið út af
hinni klassísku eða sigildu að
ferð Freuds?
— Já, í fjölda tilvika. Það fer
alveg eftir manninum, sem til
iækningar er hverju sinni, og
sjúkdómi hans. Segja má, að sín
aðferð henti hverjum sjúklingi.
★
— Hverja reynslu hefurðu
haft af slíkum lækningum, og
hvern árangur hafa þær borið?
— Sjúklingar við þær stofn
anir, sem ég hef unnið við, hafa
haft margvísleg vandræði við að
etja.Oft vill verða svo, að þótt
læknirinn viti fyrirfram, að lít
ils árangurs er að vænta, þá er
samt reynt að liðsinna sjúklingn-
um eitthvað. Þess vegna getur
verið örðugt að slá nokkru föstu
um batalíkur, ef miðað er við
ákveðinn sjúklingafjölda, sem
sállækDÍnga nýtur. Annars er
reynslan sú yfirleitt, að góður
bati fæst í um það bil helming
tilvika, þegar folk, sem á við
huglæg vandamál að stríða, leit-
ar sér lækninga. En ef geðfræð-
ingur er sjálfráður um sjúklinga.
val, þá getur hann valið sér
sjúklinga til meðferðar þannig,
að bati fáist í allt að 100% til-
vika. Nú orðið er svo mikil
reynsla fengin í þessum efnum,
að oftast má segja fyrir um
batalíkur, en erfitt er að neita
s< ion of Psycho-Analysts).
Kennslustofnanir alþjóðafélags
ins eru hinar stœrstu og viður-
kenndustu slkra skóla, og eru
aöferðir þeirra kenndar við Sig-
rnund Freud. Mjög erfitt er að
fá aðgang afi þessum skólum
og námið strangt. Er námið
fólgið í rœkilegri sálkönnun
nemans, lækningu sjúkra undir
eftirliti og leiðsögn og kennslu
í geðfrœöi, einkum hugsýkis-
fræöi. Aðalkennari Sigurjóns í
þessum frœöum var dr. med.
Thorkil Vanggaard. lektor í
geðlœkningum við háskó/ann t
Kaupmannahöfn. Nám4 þessu
lauk Higurjón með prófritgerð,
sem fjállaði um sérstakt fyrir-
bœri innan geðfrœðmnar. („Om
M asochismen“).
Sigurjón er kvnætur Mar-
gréti Margeirsdóttur, og eiga
þau 2 börn, dreng og telpu. ——
Stundaði Margrét nám í félags-
fræðum í Kaupmannahöfn með-
an þau hjón dvöldust þar, og
vinnur hún ásamt Stgurjóni við
Geðverndadei Id Hetlsuverndar-
stöövarinnar.
— Er enn stuðzt við aðferðir
Freuds í sálkönnun?
— Flestar iækningaaðferðir
við hugsýki byggjast að din-
liverju ieyti á sálkönnunaraðferð
— Hvers 1 r vandamálum
býstu helzt vió að mæta hér
heima?
— Það eru ákveðin mál, sem
liggja njér ofarlega í huga. Það
er ákaflega ánægjulegt, að við
skulum vera komnir svo langt
hér í Revkjavík að hafa stofn-
sett stöð, sem foreldrar geta
leitað til, um leið og fer að
brydda á taugaveiklun eða geð-
veilu hjá börnum þeirra. Þessi
stöð hér í Reykjavik er hin fyrsta
sinnar tegundar á íslandi, og
gleðilegt til þess að vita, að yfir-
völd bæjatins skuii gera sér ljósa
nauðsyn hennar.
Ég vil nota tækifærið til þess
að taka það fram. að foreldrar
verða aldrei nógsamlega hvattir
til að leita stöðvarinnar nægi-
lega snemma, jafnvel þótt vanda-
málið virðist smávægilegt í byrj-
un, því að með því er hægt að
koma í veg fyrir, að erfiðleik-
arnir aukist svo, að örðugt eða
ókleift verði við þá að ráða. Þeir
Vilja hlaða utan á sig. — Annað
mál er það, að þótt þessi deild
taki til starfa þá er hún ekki
nema fyrsta skrefið í geðvernd-
armálum okkar. Þótt við höfum
ekki starfað hér nema u. þ. b.
mánuð, þá er okkur þegar Ijóst,
hve mikið vantar. Einkum vant-
ar tilfinnanlega lækningaheim-
ili fyrir alvarlega taugaveikluð
og geðveil börn, þar sem þau
geta dvalizt eitt til þrjú ár og
fengið viðeigandi lækningu og
enduruppeldi. Nauðsynin ó, að
heimili af þessu tagi verði kom-
ið upp hið allra fyrsta, er ákaf-
lega brýn. Þó að fjöldamörgum
börnum megi hjálpa með því að
gefa þeim vikulega lækninga-
tíma á geðverndarstöð, eru vand
kvæði margra annarra af því
tagi, að ekkert dugir annað en
hafa bæði haft í för með sér
gríðarþungt álag á eldri kynslóð-
ina, og svipt hana því' jafnvægi,
sem ella myndi ríkja í nokk-
urn veginn kyrrstæðu þjóðfélagi.
Þær hafa kippt fótunum undan
þeim uppeldislegu hefðum, sem
til skamms tíma voru næstum
einráðar. Af þessu leiðir almennt
jafnvægisleysi, bæði í íjöls*yldu
og þjóðlífi, og ekkert eðlilegra
en að það komi illilega fram á
þeim börnum, sem nú alast upp.
Að sjálfsögðu er þetta ekki svo
ýkja uggvænlegt fyrirbæri; það
á sér hliðstæður annars staðar
og er óhjákvæmilegt stundarfyr-
irbrigði. Engu að síður er mjög
mikil þörf fyrir aðstoð til handa
börnunum. — Það er kannske
ekki mikil aðgerð að kippa í lið-
inn, en ef það er ekki gert í
tíma, getur það haft örlagaríkar
að allt umhverfi barnsins verði afleiðingar fyrir einstaklinginn.
Sigurjón Björnsson, sálfræðingur.
sérstaklega skipulagt í lækninga-
skyni. Danir eiga 3 heimili af
þessu tagi og þykja þau til
mestu fyrirmyndar. í öðru lagi
vantar litla sjúkradeild fyrir
börn, sem þarfnast sjúkrahúss-
vistar af geðrænum ástæðum. í
þriðja lagi væri mjög æskilegt,
ef hægt væri að koma upp dag-
heimili fyrir afbrigðileg börn.
Fram að þessu hefur verið til-
gangslítið að hugsa um að koma
þessum stofnunurr. upp, því að
þær eru gagnslitlar nema til sé
rannsóknarmiðstöð, sem getur
valið börn á þessi hæli og haft
yfirumsjón með þeim.
★
— Heldur þú, að mikið sé um
geðræn vandkvæði meðal barna
hér á landi, miðað við önnur
lönd?
— Ef dæma má eftir aðsókn-
inni, sem þegar er orðin, myndi
ég telja, að svo væri, og að
þörfin fyrir þessa stofnun hafi
verið orðin mikil.
— Hvernig getur staðið á því?
— Þótt við hófum losnað við
hörmungar stríðsms, sem valdið
hafa einna mestum örðug’.eikuin
hjá öðrum þjóðum, þá eru aðrar
ástæður fyrir hendi hér, sem eru
fullt eins þungar á metunum. í
stuttu.máli sagt: Hinar gífurlegu
breytingar, — víðtækar og skjót-
virkar —, sem orðið hafa á þjóð-
lifinu á nærfellt öllum sviðum,
IMAUÐUIMGAKIJPPBOÐ
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingarblaðinu á eign-
inni Hrauntungu 7 (áður V.-Lindarveg), eign Jóhanns
Siguiðar Gunnsteinssonar, fer fram samkvæmt kröfu
Eggerts Kristjárissonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn
24. þ. m. kl. 14
Bae jarfógetinn í Kópavogi.
sú sjúkdómsmynd e. t. v. stafaS
af því, hve málið ei erfitt), er
haldið hræðslu, vætir rúmið eða
þjáist af einhverjum öðrum hug-
sýkiseinkennum. Aðalatriðið er
að gera sér grein fvrir því, að
kyrkingur hefur komizt í tilfinn-
ingalegan þroska þess, og nauð-
synlegt er að skapa því æski-
legri vaxtarskilyrði.
★
— Heldurðu, að erfiðleikarnir
stafi aöallega af mistökum for-
eldra?
— Að sumu leyti kann ég illa
við að tala um mistök, því að
flestir munu skilja það sem
meira eða minna vísvitandi af-
glöp í uppéldinu. Um það er
sjaldnast að ræða. Það, sem sól-
læknirinn verður oftast var við,
er, að erfiðleikar barnsins eru
ekki annað en bein afleiðing
erfiðleika foreldranna, og þess
vegna er sjaldan - beinlínis um
það að ræða að leiðbeina for-
eldrum — gefa þeim reglur og
ráð —, heldur að aðstöða þá
við að finna lapsn við sínum eig-
in vandamálum.
★
— Hvort telur þú, að foreldr-
ar eigi að banna börnum eða
ekki, eftir reynsiu þinni í þess-
um efnum?
— Mér er vel ljóst, að í þess-
um efnum hefur verið talsverð-
ur ruglingur meðal foreldra.
Margir hafa skilið nútíma upp-
eldisfræði þannig, að alls ekki
ætti að banna börnum, heldur
láta þau að mestu sjálfráð. Þetta
er reginmisskilningur. Til þess að
börn geti þroskazt eðlilega, þarfn
ast þau fastrar umgerðar um til-
veru sína, — ákveðinna hegð-
unarreglna. Þau þurfa að vita,
hvað þau mega, og hvað þau
mega ekki, og foreldrar þurfa
að vera þess umkomnir að fylgja
sannfæringu sinni eftir af festu.
Þar með er ekki sagt að ég mæli
— Hver virðist þér einna al- með líkamlegum refsingum.
gengastur sálrænna kvilla meðal ^irra_ _er he]d
barna hér?
—• Sjálf sjúkdómsmyndin
skiptir í rauninni afarlitlu máli,
og oft er tilviljunum og alls kon-
ar atvikum háð ,nvaða endanlega
mynd hugsýkin tekur. T. d.
skiptir það ekki miklu máli,
hvort 5—6 ára gamalt barn stam-
ar (en stam virðist mér vera
furðulega algengt hér, og gæti
En leggja ber áherzlu á, að allt
formleysi í uppeldi og umgengn-
isvenjum er börnum mjög skað-
legt.
Það er í þessum efnum, sem
við syndgum hvað mest upp á
náðina í þjóðfélagi okkar. Þetta
formlevsi sést t. d. glöggt á því,
að við vitum eiginlega aldrei
nú orðið, hvort við eigum að
þéra eða þúa.
— M. Þ.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 73., 76., og 81. tbl. Lögbirtingablaðsins
1960 á eign við Kleppsmýrarveg, hér í bænum, talin eign
Björgvins Bjarna'-onar fer fram eftir kröfu bæjargjald-
kerans í Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 26.
október 1960 kl. 31/? síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 74., og 77. tbl. Lögbirtingablaðsins
1960 á húseignir.ni nr. 34 við Gnoðarvog, hér í bænum,
talin eign Sverris Erlendssonar o. fl. fer fram eftir kröfu
bæjargjaldkerans í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 25. október 1960 kl. 3% síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Dyrasímar
Útvegum cg setjum upp Vestur-þýzka dyrasima
í ibúðarhús af óllum stærðum. Örfá sett fyrirliggj-
andi. Önnumst einnig viðgerðir á dyrasímakerfum.
Gjörið svo vel og hafið samband við okkur sem fyrst.
Fr. MÁKIJSSON
Kaplaskjólsvegi 11.