Morgunblaðið - 23.10.1960, Síða 22
22
MORCVNRLAÐtÐ
Sunnudagur 23. okt. 1960
Úrslit Bikarkeppninnar í dag
FRAM og KR keppa í dag til
úrslita i Bikarkeppninni. Leikur-
inn fer fram á Melavellinum og
hefst kl. 2 síðd.
Það kom mörgum á óvart sl.
sunnudag, er Fram sigraði hina
nýbökuðu íslandsmeistara Skaga
manna, því flestir héldu að þeir
aettu eftir að sjá KR og Akranes
í úrslitaleiknum, en Frammarar
hafa náð aftur leikgleði sinni,
sem þeir höfðu í vor og hafa í
tveim síðustu leikum verið sterk-
ir, ákveðnir og hreyfanlegir, og
ekki hvað síst hafa þeir sýnt
betri tilþrif en aðrir við mark-
skot. —
K.R.-liðið mun vel búið undir
leikinn og hafa fullan hug á að
vinna „Bikarinn“ þar sem það
misisti af íslandsmeistaratitlinum.
Framliðið vantar mikið þar
sem Guðjón Jónsson verður ekki
með þeim í dag. Hann meiddist
á æfingu í fyrrakvöld. Guðjón
hefir verið einn styrkasti maður
liðsins.
Þegar litið er á liðin finnst
mörgum að það hljóti að liggja
ljóst fyrir hverjir vinni leikinn.
í KR-liðinu eru 9 menn, sem
hafa leikið í landsliðinu á móti
tveimur hjá Fram.
Það eina, sem skyggir á þessa
von manna er að KR-liðið hefir
í síðari leikum og mörgum leik-
um í sumar reynzt afar sundur-
tætt lið og keppnisviljalaust. Ef
slíkur svipur verður á liðinu á
morgun, er ekki nokkur vafi á
því að Frammarar verða þeim
erfiðir keppinautar. Einleik éða
þröngt spil upp miðjuna ræður
Rúnar & Co. vel við og því ekki
sigurstrangieg leikaðferð fyrir
KR í dag.
KR-liðið hefir brugðist því að
sýna hina réttu mynd af styrk-
leika liðsins að undanförnu og ef
svo fer enn einu sinni, er víst
að styrkleiki Framliðsins, sem
byggist frekar á samtakamætti
leikmannanna, heldur en persónu
legum styrkleika, mun nægja
þeim til sigurs í leiknum í dag.
Alla vega má búast við góðum
og fjörugum leik og ættu menn
að fjölmenna á völlinn.
í raun og veru er keppt um
þrjá bikara í þessum leik. Það
er fyrst og fremst bikar keppn-
innar sem Tryggingamiðstöðin
hefur gefið. Þann bikar geymir
sigurvegarinn í eitt ár. Auk þess
fær félagið afsteypu af þeim bik-
ar og hana til eignar. í þriðja
lagi eru KR-ingar og Framarar í
keppni innbyrðis. Hún er þannig
að allir flokkar félaganna beggja
fá stig fyrir unna sigra yfir hin-
um. Sú keppni stendur nú þannig
eftir sumarið að félögin eru með
nákvæmlega jafnmörg stig og
þessi leikur ræður því úrslitum
um það hvert félagið vinnur
þann bikar sem gefinn var til
þessa skemmtilega samanburðar
um mátt allra liða félaganna.
Heimsmet
MOSKVU, 19. okt.: — Olympiu
gullverðlaunahafinn Petr Boloti-
kov hefir sett nýtt heimsmet í
10.000 m. hlaupi og er nýja metið
28. mínútur 18.8 sek. Metið var
sett á íþróttamóti í Kive og er
það 1.6 sek betra en gamia heims
metið sem Rússinn Vladimir Kuts
setti í Moskvu 1956.
fyrir yðtir...
býður hin nýja KENWOOD CHEF hrærivél nú aila þá hjálparhluti, sem
hugsanlegir eru, til hagræðis fyrir yður, og það er ekkert erfiði að koma
þeim í samband, engar skrúfur, aðeins smellt úr og í með einu handtaki.
Hrærararnir eru þannig að það má segja að þeir þoli allt — jafnvel þykk-
asta deig. — Þeir hræra, blanda, þeyta og hnoða, en þér horfið aðeins
undrandi á hve skemmtilega þeir vinna.
Engin önnur hrærivél getur létt af yður
jafnmörgu leiðinda erfiði, — en þó er
hún falleg og stílhrein.
Ef yður vantar hrærivél, þá . . .
Lítib á Kenwood — Lausnin er. Kenwood
Verð kr. 4.340.-
Tfekla
Austurstræti 14
Sími 11687
Liðin í dag
KR
Heimir Guðjónsson
Hreiðar Ársælsson Bjarni Felixson
Hörður Felixson
Reynir Smith Helgi Jónsson
Sveinn Jónsson Ellert Schram
Örn Steinsen Þórólfur Beck Gunnar Guðmansson
•
Þorgeir Lúðviksson Grétar Sigurðsson Reynir Karlsson
Baldur Scheving Guðmundur Óskarsson
Hinrik Lárusson Ragnar Jóhannesson
Rúnar Guðmansson
Birgir Lúðvíksson Halldór I.úðvíksson
Geir Kristjánsson
FRAM
(Þrír bræður, synir Lúðvíks í Lúllabúð, leiká í dag með Fram)
Löðrungurinn var
vindhögg
GREININ um starf Alberts Guð-
mundssonar í Hafnarfirði og
hinar köldu kveðjur íþrótta-
bandalagsins þar til hans, sem
fram komu í bréfi til Knatt-
spyrnuráðs staðarins fyrir
skömmu, vakti að vonum mikla
athygli.
Framkvæmdastjóri ÍSÍ, Her
mann Guðmundsson, lét málið
þegar til sín taka. Hann hefur
nú upplýst íþróttasíðuna um
það, að hvergi muni að finna
í lögum ÍSÍ bókstaf fyrir þvi,
að maður búsettur t. d. i
Reykjavík megi ekki vera í
stjórn sérráðs annars héraðs
t. d. í Hafnarfirði.
Afmstrong
Perfex *
* R.M.
Kork Parkett
Fyrirliggiandi
Hlý,
'endmgargóð
og þægileg
GÚLF
þ. þORGRIMSSON &
Borgartúni, 7
Sími 2 22 35
Þessi yfirlýsing framkvæmda-
stjórans er athyglisverð. Hún er
alvarleg fyrir Iþróttabandalag
Hafnarfjarðar. Hvað getur ekki
farið aflaga hjá æðstu stjórn
íþróttamála í héraði, þegar hún
í bréfum sínum krefst þess að
fylgt sé lagabókstöfum sem
ekki eru til — og ber fyrir sig
sjálft íþróttasamband íslands?
Hvorki Knattspyrnuráðsmönnum
í Hafnarfirði né blaðamönnum
Morgunblaðsins datt í haug, að
þessi möguleiki gæti átt sér stað.
Það verður fróðlegt að sjá,
hvernig ÍBH bætir fyrir þessi
mistök sín, sem vægast sagt eru
mikil gönuhlaup. — A. St.
Knud £ne-
rrtark reist-
ur minnis-
varði
JÓTLANDSDEILD d a n s k a
hjólreiðaambandsins hefur
nú beitt sér fyrir því að
danska hjólreiðamanninum,
Knud Enemark, sem lézt
í keppni Olympíuleikanna,
verði reistur minnisvarði.
Hafa Jótarnir skrifað bréf
til allra hjólreiðafélaga í
Danmörku og beðið þau
um að leggja sinn skerf
í sjóðinn. Er málið svo langt
á veg komið, að gerður heíur
verið uppdráttur minnisvarð
ans og á hann að kosta 2600
d. kr. eftir því sem blaða-
fréttir segja.
F ermingarskeytasímar
ritsímans eru 2-20-20
*
MELAVÖLLUR
Bíkarkeppni K.S.Í
ÚRSLITLALEIKUR í dag kl. 14 keppa
Fram og KR
Dómari: Haukur Óskarsson.
Línuverðir: Ragnar Magnússon og lngi Gnnnarsson.
MÓTANEFNDIN.