Morgunblaðið - 23.10.1960, Page 24
Seyðisfjörður
Sjá bls. 17.
243. tbl. — Sunnudagur 23. október 1960
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13.
— ■
i
Háskólahá-
tíðin í gær
784 studentar við nám
Skyndihappdrœtfiö
HAPPDRÆTTI SjálfstæðisfJokks
ins býður að vanda glæsilega
vinninga. Að þessu sinní tvo
Volkswagen-bíla. Það vakti
mikla athygli, er bilarnir voru
dregnir um götur bæjarins í gær,
niður á Hótel íslandslóðina. Þa;
stóðu þeir i gær. Geysimikil miða
sala var við bílana. í dag verða
þeir líka í miðbænum — og er
ekki að efa, að margir kaupa
miða. Bilarnir verða ekki hreyfð
ir af vögnunum þar til dráttur
hefur farið fram. Eigendur fá þá
í hendur beint úr kassanum.
En hverjir verða eigendur
bílanna? Þér eruð einn
þeirra, sem til greina koma.
Tryggið yður miða strax í
dag — og lítið á bílana i
leiðinni.
Kviknar í frystihúsi
Búðardal, 22. október.
KL. rúml. hálfníu í gærkveldi
kviknaði í frystihúsinu hér í Búð-
ardal, en það er fyrst og fremst
matvælageymsla og til þess að
taka á móti háustmat. Fyrsti-
húsið er eign Kaupfélags
Hvammsfjarðar. Veður var kyrrt
og úrkomulaust. Var því aðstaða
til slökkvistarfsins góð. Vélknú-
in vatnsdæla er hér á staðnum
í eigu hreppsins. Var hún fengin
hingað fyrir um ári, og hefur
reynzt mjög vel. Eru þess dæmi,
að hús hefðu brunnið til kaldra
koia, ef ekki hefði verið hægt að
grípa til hennar. Skömmu eftir
að eldsins varð vart, dreif að
margt manna, og var niðurlöguni
hans skjótlega ráðið með því að
dæla sjó á hann. Skemmdir hafa
orðið nokkrar á húsinu, en engar*
á matvælum, þótt nokkuð af
keti væri flutt úr frystiklefum
um stundarsakir. Talið er að elds
upptök stafi frá skammhlaupi í
tróði miili veggja. — í>ess má
geta, að hér var í gær kveikt á
götuljósum kauptúnsins í fyrsta
sinni, en ekki liggur fyrir, að
eldsupptökin standi í sambandi
við það. — Fréttaritari.
XVIII. þi^n Iðn-
nentasambandsiiis
XVIII. þing Iðnemasambands ís.
lands var sett í gær í Iðnskól.
anum. Þingíð sitja 40—50 fulltrú-
ar víðs vegar að af landinu.
Helztu mál þingsins eru: iðn-
fræðsla, kjaramál og skipulags-
mál samtakanna.
VETUR konungur tók völdin
í hinu fegursta veðrl, logni
og glampandi sólskini. Meira
að segja voru kýr á beit hér
í útjaðri bæjarins. Að baki
þeim rísa stórhýsin í Háloga
iandshverfinu. Slík öndvegis
tíð hefur verið um land allt
undanfarið, að það mun ekk-
ert einsdæmi vera að kýr
séu látnar út á daginn.
Smyglvara seld
„af óaðgæsdu44
í KE4
EINS og kunnugt er af fyrri frétt
um, varð þess vart fyrir hálfum
mánuði, að vindlingar, sem ekki
báru merki Tóbakseinkasölunnar,
voru seldir í Hótel KEA á Ak-
ureyri. Toilgæzlunni var skýrt
frá þessu, og við leit fundust í
hótelinu nokkrar lengjur af toll-
sviknum vindlingum.
Hótelstjóri KEA hefur nú lýst
yfir því, að vindlingana hafi hann
fengið um í skipi, sem kom til
Akureyrar skömmu áður. Hafi
vindlingabirgðirnar verið ætlað.
ar til þess að reykja á heimili
hans, þótt geymdar væru í birgða
skáp hótelsins. Hafi hann síðan
tekið þessar vindlingabirgðir „af
óaðgæzlu“ til þess að selja í veit-
ingasal hótelsins.
J GÆR var Háskólahátíð'.n 1960
haldin í hátíðasal háskólans. —
Eins og jafnan áður var hún hald
in 1. vetrardag, að þessu sinni í
21. skipti.
Leikin var hátíðakantata skól-
ans eftir PáJ ísólfsson við ljóð
Þorsteins Gíslasonar. Dómkirkju
kórinn söng undir stjórn höfund-
ar, og Þorsteinn Hannesson söng
einsöng.
Þá hélt rektor skólans, dr. Þor-
kell Jóhannesson, ræðu, gaf yfir-
lit yfir störf skólans síðastliðið
skólaár og ávarpaði nýstúdenta.
Hann gat þess, að þetta væri
væntanlega í seinasta sinni, sem
hátíðin yrði haldin á þessum
stað, enda salurinn fyrir löngu
orðinn of lítill til þeirra hluta;
Ungverjaland
vann Island
LEIPZIG, 22. okt.: — Ungverja-
land vann ísland með 3% gegn
%. Arinbjörn gerði jafntefli við
Szabo, Portisch vann Ólaf, Barz-
ea vann Kára og Bilek vann Guð-
mund.
Staðan í C-riðlinum er nú
þessi: Ungverjaland 14%, Tékkó-
slóvakía 14, England 13%, Sví-
þjóð 12%, Túnis 11%, Mongolia
10, ísland 9%, Danmörk 8%,
Grikkland 5 og Bolivia 1. ísland
þarf að ná sjötta sæti til þess að
komast í B-úrslitariðil.
— Freysteinn.
Vorbi>ðafundur
HAFNARFIRÐI: — Annað kvöld
kl. 8,30 heldur Sjálfstæðiskvenna
félagið Vorboðinn fyrsta fund
sinn á vetrinum. Eru Vorboða-
konur hvattar til að f jölmenna og
taka með sér gesti.
rúmaði með naumindum ný-
stúdenta haust hvert. Næsta
haust yrði hátíðin haldin að öllu
forfallalausu í hinu nýja sam-
komuhúsi skólans við Melatorg,
þar sem Tjarnarbíó verður til
húsa.
Þessu næst flutti rektor
skýrslu um störf háskólans á síð-
asta skólaári, tengsl hans við er-
lenda skóla. Níu háskóiakennar-
ar fengu styrk til að fara utan.
Sóttu þeir mót í greinum sínum
og fluttu fyrirlestra. Um 20 gest-
ir frá útlöndum fluttu erindi við
skólann. Þá skýrðí rektor frá
breytingum á kennaraliði skól-
ans. —
61 nemandi lauk prófi frá há-
skólanum, 3 í guðfræði, 14 í
læknisfræði, 3 í tannlækningum,
2 í fyrra»hl. lyfjafræði, 10 i lög-
fræði, 8 í viðskipafræði, 1 meist-
araprófi í ísl. fræðum, 1 kandí-
datsprófi í ísl. fræðum, 6 í B.A.,
11 í fyrra hl. verkfræði og 2 er-
lendir stúdentar luku prófi í ís-
lenzku.
Selma Jónsdóttir varði doktors
ritgerð á árinu.
Alls hafa 210 nýir stúdentar
skráð sig til náms, en alls eru þá
skráðir 784 nemendur. Af hinum
nýju leggja 3 stund á guðfræði,
37 á læknisfræði, 45 á laga- eða
viðskiptafræði, 109 nema í heim-
ipekideild og 16 í verkfræðideild
Hefurðu
seinkuð
klukkunni ?
í NÓT^ sem leið var klukk-
unni seinkað um einn tíma.
Þegar klukkan sló tvö, átti
að færa vísana aftur til
klukkan eítt.
37 býli í Cnup-
verjahreppi fá
Sogsratmagn
ORKUSVÆÐI Sogsvirkjunarinn-
ar hefur enn stækkað að mun á
þessu hausti, en þá var rafmagm
hleypt á flestöll bændabýli í
Gnúpver j arhr eppi.
Steinþór Gestsson oddviti á
Hæli, leit sem snöggvast inn á
ritstjórn Mbl. í gær, og skýrði
hann frá þessu. Það er mikill
munur að hafa öruggt rafmagn
og víst er að Gnúpverjar hafa
fullan hug á að nota það til fleiri
hluta en nú er gert, til þess að
létta störfin og auka vinnuaf-
köstin, sagði Steinþór.
Það var byrjað að leggja há-
háspennulínuna sumarið 1959 og
hún komst að efsta bænum, sem
fær rafmagn að þessu sinni, Haga
í júnímánuði síðastl. Þá var byrj-
að á að leggja heimataugarnar og
tengja. Btóndur höfðu áður lokið
við að láta leggja rafmagn í bæj-
arhúsin, og önnur þau útihús sem
þeir þurfa að hafa Ijós við vinnu
sína.
Síðasti. bærinn fékk svo raf-
magn nú i byrjun októbermánað-
ar.
Viðast hvar var ófullkomið raf
magn áður. Á 12 bæjum höfðu
bændur látið setja upp dieselraf
stöðvar fyrir súgþurrkun í hlöð-
um sínum. Eins höfðu bændur
smámótora fyrir mjaltavélar. Það
mun yfirleitt hafa verið eitt
fyrsta verk okkar allra að fá raf
magnsmótora fyrir mjaltavélarn-
ar.
Steinþór á Hæli nefndi býlin
öll sem fengið hafa rafmagn nú
í sumar og haust en þau eru
þessi: Háholt, Ásbrekka, Geldinga
holt (3 býli), Hæll (2), Hlíð (2),
Lækjarbrekka, Steinsholt, Aust-
urhlíð, Ásaskóli, Ásar (2), Stóra
Mástunga (3), Minni Mástunga,
Hamarsheiði Hamarsholt, Viði-
hlíð Fossnes, Hagi, Stóri Núpur,
Minna Hof, Stóra Hof, Bólstaður,
Miðhús 2 býli), StÖðulfell, Þránd
arholt, Þrándarlundur, Skarð,
Sandlækjarkot (2)., og Ásaskóli
Alls eru þetta 37 bændabýli
sem hafa fengið rafmagn. Víst er
að fáu hafa húsmæðurnar fagn-
að eins, í sambandi við störf sín
og heimilishald, sagði Steinþór
á Hæli að lokum.