Morgunblaðið - 27.01.1961, Qupperneq 1
24 slður
Bylting í
El Salvador
Guatemala, City, Guatemala,
! 26. jan. — (Reuter) —■
SAMKVÆMT fréttum frá E1
Salvador, geysa þar nú harð-
ir bardagar, eftir að hægri-
sinnaðir foringjar úr hernum
veltu ríkisstjórninni þar úr
sessi. —
Segja fréttirnir að í höfuð-
borginni San Salvador logi
allt í uppþotum og grip-
deildum.
Allar samgöngur milli E1
Salvador og nágrannaríkj-
anna í Mið-Ameríku lögðust
niður í gær, og eru fréttir
óljósar um það hvað gerist
f landinu. Sumar fregnir
herma að foringjum upp-
reisnarinnar hafi tekizt að
fullu að velta stjórn Miguel
Angel Castillos, en aðrar
segja að uppreisnarmenn hafi
enn ekki náð fullum yfirráð-
um í landinu.
Stjórn Castillos tók völdin
í landinu með byltingu 26.
október sl. og flýði þá Jose
Maria Lemus, fyrrverandi
forseti, til Guatemala. EI
Salvador er minnsta og þétt-
býlasta landið í Mið-Amer-
íku. Þar búa um 2% milljón
manna.
Flug-
slys
Washington, 26. ja». (NTB).
ÓTTAZT er að bandarísk
flotaflugvél með 23 mönn-
um hafi hrapað í Atlants-
hafið skammt undan strönd-
um Nýfundnalands. Vélin
var á leið frá Azoreyjum
og átti að lenda í Nýfundna-
landi kl. 10,15 í morgun.
Klukkan 10,14 var síðast
haft samband við vélina, en
eftir það hefur ekkert frétzt.
Önnur flugvél úr banda-
ríska flotanum var á flugi
skammt fyrir sunnan flug-
völlinn í New Foundland, og
aegist áhöfnin hafa séð
sprengingu um 28 sjómílum
fyrir sunnan völlinn um það
leyti er týnda vélin átti að
lenda.
Þriðjungur Kongúhers
SÞ kvaddur heim
New York og Leo'poldville,
26. jan. — (NTB-Reuter)
DAG Hammarskjöld, aðalrit-
ari Sameinuðu þjóðanna,
sagði í dag að ákvörðun rík-
isstjórnanna í Marokkó, ara-
biska Sambandslýðsveldinu
og Indónesíu um að kalla
heim herlið sín úr eftirlits-
her SÞ í Kongó, sé það al-
varlegs efnis að nauðsynlegt
sé að vísa málinu til öryggis-
ráðsins.
• 4900 HERMENN
Hammarskjöld gaf öryggis-
ráðinu skýrslu um ástandið í
Kongó og benti á að 1150 indó-
Fyrsfa sporið til
betri sambúðar
London, 26. jan. — (Reuter) —
FKEGNIN um að bandarísku
flugmennirnir tveir hafi ver-
Ið látnir lausir úr haldi í
Sovétríkjunum hefur vakið
feikna athygli í Evrópu, og
er almennt litið á þetta sem
fyrsta sporið til batnandi
sambúðar í heiminum. Flug-
mennirnir eru nú í Goose
Bay í Labrador, en eru vænt
anlegir til Washington á
föstudag og mun Kennedy
forseti taka á móti þeim á
flugvellinum.
TEFJAST VEGNA SNJÓKOMU
Flugmennirnir tveir, höfuðs-
mennirnir Freeman Olmstead og
John McKone eru þeir einu eft-
irlifandi af áhöfn bandarískrar
flugvélar af gerðinni RB-47, sem
rússneskar orustuvélar skutu
niður yfir Barentshafi 1. júlí
sl. Hafa þeir verið í haldi í
Sovétríkjunum síðan. Ætlunin
var að þeir kæmu til Washing
ton í dag, en vegna mikillar
snjókomu eru flugvellir borgar
innar lokaðir.
Dagblöð Evrópu fagna ákaft
frelsun flugmannanna. Þannig
segir Daily Express í London í
fyrirsögn á forsíðu í dag: Frið
arvonir aukast um allan heim
við að Rússar senda RB-47 menn
ina heim. Og í ritstjórnargrein
Frh. á bls. 23
nesiskir hermenn verði kvaddir
heim þaðan „eins fljótt og unnt
er“, að Marokkó óskar eftir að
3240 hermenn landsins verði
sendir heim fyrir lok mánaðarins
og að Arabiska Sambandslýðveld
ið hefur óskað að hermenn þess,
510 menn, verði sendir heim fyr-
ir 1. febrúar.
í símskeytum, sem Hammar-
skjöld sendi ríkisstjórnum þess-
ara þriggja landa í gaer, benti
hann á að heimköllun hermann-
anna mundi veikja verulega eftir
litslið SÞ í Kongó, sem er alls um
16.000 manns, og að ábyrgðin
hvíldi algjörlega á herðum
þeirra, sem af einni eða annarri
ástæðu hafi talið nauðsynlegt að
taka slíka ákvörðun.
• BROTTFLUTNINGUR
HVÍTRA
Frá aðalstöðvum SÞ í Leo-
poldville er símað að þar hafi
verið samþykkt að sveitir SÞ
skyldu aðstoða við brottflutning
Frh. á bls. 23
Mávurinn kann aldeilis að 1
nota vængina og láta vind-
inn bera sig. — Þarna er
hópur af mávum niður við
höfn í miklu roki.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Góð þjónustu
Giessen, Vestur-Þýzkanldi,
26. jan. (Reuter).
LÆKNASTÚDENTAR í Giessen,
eru eins og aðrir stúdentar, oft
í peningavandræðum. Til að
leysa eigin vandræði og um leið
annarra, hafa þeir tekið upp
nýja þjónustu við illa fyrirkall.
aða ökumenn, og nefna þeir þjón
ustuna „bjargið ökuskírteini
yðar“. Hver sá, sem situr við
skál, getur hringt í þjónustuna
frá kl. 11 að kvöldi til kl. 3 að
morgni og fengið ökumann til
að aka bifreið sinni heim. Taka
læknanemar fimm mörk (kr.
47,—) í „start" gjald og svo eitt
mark (kr. 9,14) á hvern ekinn
kíiómeter.
Santa Maria er á leið til
Cape Verde eyja
San Juan, Puerto Rico, 26. jan.
— (NTB-Reuter) —
S V O virðist nú sem upp-
reisnarmenn á portúgalska
skipinu Santa Maria stefni
til Cape Verde eyja, sem
liggja út af vesturströnd Af-
ríku. Bandaríski flotinn hef-
ur tilkynnt að stefna skips-
ins hendi til þess að það sé
á leið til Dakar, Senegal. En
Cape Verde eyjar eru um 300
mílum fyrir vestan Dakar.
Yfirmenn bandarísku flota
deildarinnar, sem leitar að
Santa Maria, bíða enn svars
við ósk um að fá að ræða
við Galvao, foringja upp-
reisnarmanna um borð í
skipinu.
Matarskömmtun.
Tekin hefur verið upp matar-
og vatnsskömmtun um borð í
skipinu, en hún er rífleg og líð-
ur farþegum vel, að því er segir
í fréttum. Því er bætt við að far
þegarnir hafa ekki hugmynd um
hvar sé ákivörðunarstaður skips-
ins.
Meðal skipa þeirra er leita
Santa Mária er bandaríski kjarn
orkukafbáturinn Seawolf, og hef
ur hann haft loftskeytasamband
við sikipið. Talsmaðuir banda-
ríska flotans sagði í dag að ó-
gjörningur væri að umskipa far
þegunum á rúmsjó, og að banda
ríski flotinn hefði engin fyrir-
mælí um það að hindra skipið í
að leita hafnar.
Ræddi við Galvao.
Seint í gærkvöldi fann banda
risk flugvél skipið og var það
þá statt um 960 bm. fyrir norð
an mynni Amazonfljótsins í
Brasilíu. Flugmennirnir höfðu
samiband við Galvao og hvöttu
hann til að snúa aftur til Puerto
Rioo, en hann svaraði því til að
hann vildi setja fanþegana á
land í hlutlausri höfn. Kvaðst
Galvao reiðubúinn til að taka
Frh. á bls. 23
Njósnari í
Svíþjóð
STOKKHÓLMI, 26. jan. (NTB/
Reuter) — Tilkynnt var í Stokk.
hólmi í dag að finnskur ríkis-
borgari hafi verið handtekinn
þar fyrir njósnir. Hefur Finninn
játað að hafa gefið erlendu ríki
hernaðar- óg stjórnmálalegar
upplýsingar um annað erlent
ríki.
Aftonbladet skýrir frá þvi að
Finni þessi hafi á stríðsárunum
verið starfandi nazisti í Finn-
landi, og m. a. verið meðlimur
í SS-sveitum Hitlers. Hann hef.
ur verið lengi búsettur í Sví-
þjóð og starfaði í Gautaborg. —
Hann hefur undanfarna tvo mán
uði verið undir eftirliti öryggis-
lögreglunnar og var handtekinn
fyrir viku.