Morgunblaðið - 27.01.1961, Síða 24
Sjávarútvegurinn
Sjá blaðsíðu 13.
MfgttttMa&ifr
íþróttir
Sjá bls. 22.
21. tbl. — Föstudagur 27. janúar 1961
Öldur eins og
sex hæða hús
AUSTAN hvassviðri gekk
yfir landið í gær. í Vest
mannaeyjum var stórsjór og
á veðurskipinu India, sem er
tæpa 500 km. suður af Dyr-
hólaey voru 12 vindstig og
öldurnar 17 m háar eða álíka
og sex hæða hús.
Kl. 17—20 í gær gerði mikið
þrumuveður á Kirkjubæjar-
klaustri og hefur vafalaust náð
víðar. Og kl. 8 í gærkvöldi var
hvassast í Vestmannaeyjum og á
Hornlbjargsvita. Hvassvirðrið
mun hafa náð um allt land.
Heill á húfi
SÍÐDEGIS í gær lét rannsóknar
lögregilan lýsa mjög nákvæmlega
eftir manni héðan úr bænum,
sem efakert hafði spurzt til í
eina sex sólarhringa eða þar um
biil.
Nokkru eftir að tilkynningin
hafði verið lesin barst rannsókn
arlögreglunni tilkynning um að
maðurinn, sem heitir Steinþór
Steingrímsson, væri heill á húfi,
og vœri gestur í hótelinu á Akra
nesi.
Innanlandsflug lá að mestu
niðri í gær. Douglasflugvél Flu%-
félagsins tepptist á Akureyri
vegna veðurs. Einnig tafði veðrið
stærri flugvélar frá útlöndum.
/ó/o-
kross-
gátan
Jólakrossgáta Morgunblaðs
ins átti miklum vinsældum að
fagna meðal lesenda blaðsins.
réttar ráðningar skiptu hundr
uðurn en ýmsir flöskuðu á
minni háttar atriðum og höfðu
allmargir eina villu og sum-
ir örfáar.
En í gærdag var dregið um
það hver skyldi hljóta verð-
launin sem voru: 1. verðlaun
500 kr., 2. verðlaun 300 kr.
og 3. verðlaun 200 kr.
1. verðlaun hlaut Sigurpáll
Helgason, Ráðhústorgi 1, Ak-
ureyri.
2. verðlaun hlaut Þorsteinn
Jakobsson, Borgarholtsbr. 30,
Kópavogi.
3. verðlaun hlaut Nína Is-
berg, Sörlaskjóli 70, Reykja-
vík.
Verðlaunin verða send hin
um heppnu í dag.
lin-1
upp a
samninga á
ALÞYÐUSAMBAND Vestfjarða
sendi í gær í samráði við stéttar-
félög sjómanna í nágrenni Isa-
fjarðar, tilkynningu til allra
verkalýðsfélaganna á sambands-
svæðinu, þar sem þeim var heim
iiað að hefja róðra frá og með
deginum í dag upp á væntanlega
samninga.
Var þessi heimild tekin fyrir
i hinum ýmsu félögum og sagði
Björgvin Sighvatsson, forseti Al-
Fellt á
Akranesi
AKRANESI, 26. jan. — 1 kvöld
var fundur hjá sjómannadeild
Verkalýðsfélags Akraness og
greidd atkvæði um heildarsamn
inginn um kaup og kjör sjó-
manna. Var samningnum hafn-
að með 74 atkvæðum, einn seð-
ill var auður.
Einnig var í dag fundur í
skipstjóra- og stýrimannafélag-
inu Hafþóri. Var ræ'tt um kjör
yfirmanna á bátaflotanum, en
engin ályktun gerð, enda standa
yfir samningsviðræður.
— Oddur.
... og í Nes-
kaupsstaö
NORÐFIRÐI, 26. jan. — f fyrra-
kvöld var fundur í verkalýðs- og
vélstjórafélaginu hér á Norðfirði
og heildarsamningsuppkastið bor
ið upp. Var það fellt með 32 at-
kvæðum gegn 5.
Þá var borin upp tillaga um að
leyfa róðra meðan á samningum
stæði, en hún var einnig felld.
Sjómenn hér eru því enn í verk-
falli. — S.L.
★
Einnig var heildarsamningur-
inn borinn undir atkvæði á Eski-
firði og felldur.
Vinna má fiskúr-
gang með hverahita
*
og tá fiskivökva r skepnufóður, góð-
fiskafœðu og áburð
í NÝÚTKOMNU hefti af Iðn
aðarmálum setur Loftur
Loftsson verkfræðingur fram
tillögur um hagnýtingu fisk-
úrgangs öðruvísi en í fiski-
mjöl, sem nú hefur mjög
fallið í vérði á heimsmarkað-
inum, sem kunnugt er. M. a.
segir hann að vel geti komið
til greina að hagnýta hinn
mikla og ódýra hverahita til
vinnslu á alls konar fiskúr-
gangi, bæði með svokallaðri
lútarmeltingaraðferð eða ger-
hvatameltingaraðferð. Má fá
Ný röntgentœki
á Vífilsstööum
Ahald til greinilegri skyggningar kemur
UM þessar mundir er verið að
taka í notkun ný og fullkomin
röntgentæki á Vífilsstaðaspítala,
og seinna á árinu kemur einnig
áhald til að gera skyggningar
bjartari og greinilegri en áður
hefur verið. Fara slík áhöld allt-
af batnandi í framleiðslu og er
beðið eftir þessu tæki með nokk-
urri eftirvæntingu, að því et'
væntanlega
Vestfjörðum
þýðusambands Vestfjarða í sam-
tali við blaðið i gærkvöldi, að
hún hefði alls staðar verið sam-
þykkt, þar sem hann hafði haft
spurnir af nema á Þingeyri, þar
var þetta fellt.
Utvegsmenn á Isafirði sam-
þykktu einnig á fundi sínum í
gær að láta hefja róðra, og munu
Isafjarðarbátar því halda á veið-
ar strax og veður lægir.
A Flateyri eru róðrar þegar
1 hafnir.
Helgi Ingvarsson, yfirlæknir á
Vífilsstöðum tjáði blaðinu í gær.
Röngentækin, sem komin eru,
eru tvenns konar, önnur sérstak-
lega til rannsóknar á lungum,
og hin til rannsóknar á öðrum
sjúkdómum.
Sagði Helgi að meiri þörf væri
fyrir slík tæki nú en áður, þar
sem nú er á Vífilstöðum miklu
meira af sjúklingum öðrum en
berklasjúklingum. Mun um þriðj
ungur sjúklinga þar nú þjást af
öðrum lungnasjúkdómum, ashma
og fleiru.
Nýju röntgentækin eru dýr og
vönduð, munu kosta um 1 millj.
\kr. og skyggningatækið, sem
væntanlegt er um 100 þús. kr.
Aður voru á Vífilstöðum aðeins
til gegnumlýsinga og venjulegrar
lungnamyndunar.
Undanfarið hefur verið unnið
að uppsetningu á nýju tækjun-
um. Hafa tveir íslenzkir menn
unnið verkið. — Okkur var boð-
inn erlendur sérfræðingur, en
treystum Þórði Þorvarðarsyni og
Gunnlaugi frá Akureyri svo vel,
að það var afþakkað, sagði Helgi
I Ingvarsson að lokum.
úr þessu þykkan fiskivökva
með 50% föstum efnum, sem
vel má geyma.
ií Búpeningsfóður
Að því er Loftur segir, ætti
vökvi þessi að vera prýðileg
fóðurblanda fyrir búpening og
mink, enda sé hann bæði nær-
ingarríkur og fullkomlega melt-
anlegur, þar sem hann er í raun
inni formeltur. Einnig yrði þetta
ágætis áburður til notkunar með
öðrum áburðartegundum á tún
og garða, og jafnvel mætti
setja hann í fiskitjarnir, ásamt
öðrum áburði, til að rækta og
auka lifandi fæðu fyrir góðfiska
í þeim. Þá segir í grein Lofts
að athugandi sé hvort ekki megi
framleiða eins konar manneld-
ismjöl úr þessum næringarríka
og vel uppleysanlega fiskivökva
með því að úða eða froðuþurrka
vökvann.
Okkar sérstaða nýtt
Eins og fyrr segir yrði þessi
vinnsla á fiskivökva að mestu
byggð á hagnýtingu ódýrs og
mikils hverahita. Yrði þetta gert
með því að hakka slor og ann-
an nýjan fiskúrgang vandlega
og dæla í geyma, upphitaða með
hverahita, en geymarnir væru
Síðdegis í gær varð harður
árekstur á Miklubrautinni.
Fólksbíl var ekið austur göt
una og innundir pall á vöru-
bíl sem stóð kyrr á götunni.
Rigning var er þetta gerðist.
Farþegi í framsæti, Hall-
grímur Pétursson, lærbrotn
aði og skrámaðist í andliti,
en ökumaður slapp ómeidd-
ur. Hinn slasaðí var fluttur
í sjúkrahús. Bíllinn stór-
skemmdist. Myndina tók
Sveinn Þormóðsson á
árekstrarstaðnum.
útbúnir með góðum hræritækj-
um. Með þessu yrði farið inn á
aðrar brautir en gert er í Perú,
og nýtt til fullnustu okkar sér-
staða, svo að við getum staðið
betur að vígi í samkeppninni.
í annan stað ræðir Loftuy
þann möugleika að nota fiskúr-
gang hakkaðan og frystan 1
minkabú og segir að líklega
þyrfti 75 þúsund tonn af fisk-
úrgangi og einhvern úrgang frá
sláturhúsum og hvalveiðistöðv.
um í minkabú, sem gæfi af sér
ein milljón skinna, en þau gæfu
með núverandi verðlagi, minnst
Frh. á bls. 23
Jökulfellið
rakst á
bryggju
NORÐFIRÐI, 26. jan.: —
Það óhapp vildi til í morgun
þegar Jökulfellið ætlaði að
leggjast að bryggju að skip-
ið rakst á bryggjuna og
gekk stefni þess um 3 m. inn
í bryggjuna, sem er úr tré.
Tjónið hefur ekki verið met-
ið ennþá, en það mun tölu-
vert, að því er hafnarstjóri
tjáði fréttamanni blaðsins.
Allhvasst var er þetta skeði
og mun það hafa valdið ein-
hverju um þetta. — S.L.
Bílslys á Akureyri
AKUREYRI, 26. jan. — Um kl.
2 í dag varð fjögurra ára dreng
ur fyrir jeppabifreið í Glerár.
þorpi. Mun litli drengurinn hafa
hlaupið út á götuna rétt í því
bili sem bíldnn bar að. Var
hann þegar fluttur í sjúkrahúa,
Meiðsli hans eru ekki að fullu
könnuð enniþá, en hann mun hafa
fengið slæmt höfuðhö.gg.
— St.E.Si«.
Búa sig undir
fárveður
SÍÐDEGIS í gær áttj Mibl. sím-
tal við séra Sigurð Einarsson í
Holti undir Eyjafjöllum, Eyja-
fjöllin eru einmitt á því svæði
sem spáin um ofsaveður, í gær
morgun nær til.
Sagði Sigurður að ofsarok
væri þar þá, en ekki taldi hann
þó veðurihæðina það mikila að
um háskaveður væri að ræða.
Hefði meira veður komið þar um
slóðir í haust. Tók þá af þak á
húsi í smíðum að Miðslkála.
Þegar við iheyrum svona veður
spá, sagði séra Sigurður, þá er
það vani manna hér að líta eftir
öllu, — ekki aðeins utan húsa'
heldur innan húss lika. Þá eigia
allir von á hinu versta.
— Nei, það er ekki neitt fár.
viðri komið. Það bíða al'lir eftir
að það sikelli á þá og þegar, sag<M
séra Si-gurður í Holti, að iokum.