Morgunblaðið - 01.03.1961, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 1. marz 1961
Lflj fagnar lausn
fiskveiöideilunnar
MORGUNBL.AÐINU barst í gær eftirfarandi ályktun, sem
samþykkt var á stjórnarfundi L..Í.Ú. í gaer:
Landssamband ísienzkra útvegsmanna telur, aff útfærsla
fiskveiðiiandhelginnar fyrst í 4 sjómílur og síðan í 12 sjó-
mílur með því sem Iokatakmarki að allt landgrunnið verði
innan islenzkrar fiskveiðilögsögu, eftir því sem það sam-
rýmist alþjóðalögum, sé eitt þýðingarmesta hagsmuna-
mál íslenzku þjóðarinnar.
Vegna mótmæla margra þjóða og mótaðgerða Breta var
þetta fjöregg þjóðarinnar í hættu.
Starfsmönnum landhelgisgæzlunnar og íslenzkum sjó-
mönnum var hvað eftir annað stofnað í bráðan lífsháska
og íslendingar urðu fyrir þungum búsifjum vegna þess að
eðlileg viðskipti islendinga og Breta stöðvuðust að miklu
leyti vegna deilunnar.
L.I.Ú. vUl því lýsa ánægju sinni yfir því, að nú skuli
vera horfur á að takast megi að binda endi á þessa hættu-
Iegu deilu á mjög hagkvæman hátt fyrir íslendinga, með
því:
1) Ríkisstjórn Bretlands fellur frá mótmælum sínum
gegn 12 mílna fiskveiðilögsögu við ísland.
2) Grunnlínur eru nú leiðréttar þannig, að fjögur þýð-
ingarmikil hafsvæði bætast nú þegar við íslenzka
fiskveiðilandhelgi.
3) Bretar skuldbinda sig til þess að hlíta úrskurði ai-
alþjóðadómstóls um frekari útfærzlu fiskveiðilögsög-
unnar, þegar hún er tilkynnt með áskildum fyrirvara.
Gegn því að viðurkenna þennan rétt íslendinga, fá Bret-
ar takmarkaðan rétt til veiða á vissum svæðum upp að 6
mílna landhelgi um 9 mánaða til 2 ára timabU á næstu
3 árum.
Þótt aðeins sé miðað við næstu 3 ár, er stækkun land-
helginnar á hinum 4 nýju veiðisvæðum, sem bætast við
vegna grunnlínubreytinganna þýðingarmeiri fyrir fiskveið-
ar landsmanna, heldur en hinn takmarkaði réttur Breta til
veiða á tilteknum svæðum í íslenzkri landhelgi þennan
tíma, einkum þegar haft er í huga, að viðbótarsvæðin
eru að mestu leyti á fiskisælustu miðum landsmanna.
En umfram þetta kemur hinn mikli vinningur að fá
rétt vorn í landhelgismálinu viðurkenndan um alla fram-
tíð, bæði þá útfærzlu, sem þegar hefur verið framkvæmd,
grunnlinubreytingarnar, sem nú hafa verið gerðar og trygg-
ingu fyrir, að frekkari útfærzla verði ekki hindruð með of-
beldi, heldur dæmt um gildi hennar að alþjóðalögum.
L.Í.Ú. skorar því á Alþingi að samþykkja heimild til rík-
isstjórnarinnar til þess að leysa landhelgisdeiluna við Breta
á þeim grundvelli, sem fram kemur í tillögu til þingsálykt-
unar um lausn fiskveiðideilunnar við Breta, og fagnar því
ef takast má að leysa þessa hættulegu deilu á svo farsælan
hátt fyrir oss íslendinga.
Flytur L.Í.Ú. öllum þeim, sem unnið hafa að þessari
Iausn deilunnar hinar beztu þakkir í nafni íslenzkra út-
vegsmanna.
Tvær
með vítum
Akranesi, 28. febrúar.
TÆPLEGA 90 konur í kvenna-
deild Slysavarnaféagsins hér á
Akranesi, sátu á fundi í gær-
kvödi. — Allt í einu kvaddi ein
fundarkona sér hljóðs og las upp
tillögu, sem hún vildi láta þenn-
an fund taka afstöðu til. Efnis-
lega var hún á þá leið, að víta
bæri ríkisstjórnina fyrir að hafa
tekið upp S'amninga við Breta
um lausn fiskveiðideilunnar.
Tvær konur greiddu tillögunni
atkvæði sitt, en allur þorri fund
arkvenna greiddi atkvæði gegn
henni, nokkrar sátu hjá.
— Oddur
„Jötunn66 í Eyjum
tók ekki afstöðu
Vestmannaeyjum, 28. febrúar
FUNDUR var haldinn í dag í
Sjómannafélaginu Jötni og kom
þar fram í fundarbyrjun tillaga
frá Jónatan Aðalsteinssyni þess
efnis að fundurinn lýsti ánægju
sinni yfir lausn fiskveiðideii-
unnar. Borin var fram frávístm-
artillaga við þessa. En þá kom
fram þriðja tillagan. Formaður
félagsins, Sigurður Stefánsson,
kom fram með tillögu um það að
félagið ítrekaði fyrri samþykktir
sínar í máli þessu um það, að
ekki skyldi gengið til samninga
við Breta um lausn fiskveiðideil-
unnar.
Þegar hér var komið málum,
var á það bent að menn hefðu
ekki enn haft tóm til þess að
kynna sér þingályktunartillöguna
um lausn deilunnar og þvi ekki
rétt að fundurinn taki afstöðu til
málsins. Var öllum tillögunum
vísað til aðalfundar félagsins.
Þess skal getið að Jötunn hefur
á undanförnum árum verið talið
eitt sterkasta vígi kommúnista.
Hefur stjórn þess jafnan verið
óspör á hverskonar ályktanir ef
þær mættu verða kommúnistum
til stuðnings á einn eða annan
hátt.
Ný frímerki
PÓST- og símamálastjórnin mun
hinn 11. apríl n.k. gefa út tvö
ný frímerki kr. 1,50, blátt og kr.
3,00, rauðbrúnt, með mynd af
Stjórnarráðshúsinu (sama mynd
og á útgáfu frá 9 desember 1958)
Sjómannafélagið
fagnar þýðingar-
miklum áfanga
FUN.DtJR stjórnar Sjómanna-
félags Reykjavíkur haldinn 28.
febrúar 1961, skorar á hæst-
virt Alþingi að samþykkja
framkomna tillögu til þings-
ályktunar, um Iausn fiskveiði-
deilunnar við Breta, á grund-
velli þess samkomulags sem
nú liggur fyrir að hægt sé að
ná. Stjóm félagsins fagnar
því, að tekizt hefur að fá
Breta til að viðurkenna 12
mílna fiskveiðilögsögu okkar
og að hinni hættulegu deilu
geti verið lokið.
Sérstaklega fagnar stjórn-
in þeim aukna og þýðingar-
mikla áfanga um friðun svæða
umhverfis landið, sem nú fást
með grunnlínubreytingum.
Stjórnin bendir á að hin auknu
svæði innan fiskveiðilögsög-
unnar verða íslenzk héðan í
frá og að partur úr þrem ár-
um, sem Bretum verður leyft
að veiða á takimörkuðum svæð
um, er ekki nema augnablik
úr sögu þjóðar.
Þá skorar stjóm Sjómanna-
fólagsins í ríkisstjórn og Al-
þingi að halda áfram tilraun-
um til þess að fá viðurkenn-
ingu þjóða á rétti íslenzku
þjóðarinnar til landgrunnsins
alls í samræmi við samhljóða
samþykkt þingsályktunartil-
lögu Alþingis frá 5. maí 1959.
f ^
Ufvegsmenn í Eyjum
fagna lausn deilunnar
Vestmannaeyjum, 28. febrúar
STJÓEN- og trúnaðarmannaráð
Útvegsbændafélags Vestmanna-
eyja, kom saman til fundar í dag.
1 upphafi þess fundar tók for-
maður félagsins, Bjöm Guð-
mundsson til máls og ræddi um
hina framkomnu ályktun á Al-
FÍB mælir með
þingsályktunar-
tillögum
FÉLAG íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda fagnar framkominni
tillögu til þingsályktunar um
lausn fiskveiðideilunnar við
Breta og telur að með samþykkt
hennar yrði stigið heillarikt spor
í þessu þýðingarmikla hagsmuna
máU þjóðarinnar.
Félagið skorar þvi á Alþingi
að samþykkja þingsályktunartil-
löguna. Jafnframt færir það öll-
um þeim, sem unnið hafa að
hinni farsælu lausn deilunnar,
. þakkir sínar.
þingi um lausn fiskveiðideilunn-
ar við Breta.
Gerði fundurinn síðan svohljóð
andi ályktun: Fundur haldinn í
stjórn og trúnaðarmannaráði Út-
vegsbændafélags Vestmannaeyja
lýsir ánægju sinni yfir þeirri
bagkvæmu lausn á fiskveiðideil-
unn við Breta, er fram kemur í
þingsályktunartillögu þar um og
er lögð hefur verið fyrir yfirstand
andi Alþingi.
Þessi fundur var fjölmennur.
Umræður urðu allmiklar um
þetta mál, en allir lýstu ræðu-
menn yfir ánægju sinni yfir
þeirri lausn þessa vandamáls;
sem þingsályktunin gerir ráð fyr-
ir.
Ingi R. efstur
NÚ ER lokið 8 umferðum af 9 á
skákþingi Reykjavíkur og er
Ingi R. Jóhannesson efstur með
7 vinninga. 2. Lárus Johnsen 6,
4.—4. Gylfi Gíslason og Benóný
Benediktsson 5% vinning
Síðasta umferð verður tefld á
föstudagskvöld kl. 8 e.h. í Sjó-
mannaskólanum.
Sex menn stöðva rœkju
vertíðina á Bíldudal
BÍLDUDAL, 28. febr. — Fyrir
nokkrum dögum skall hér á verk
fall meðal manna á rækjuveiða-
bátunum þrem. Nær verkfallið
til sex manna, en af því leiðir að
nú um hávertíð rækjuveiðanna,
er rækjuverksmiðja Kaupfélags
Arnfirðinga hér óstarfhæf.
Rækjuveiðamennirnir hafa
fengið 16 krónur fyrir hvert kg.
af skelflettri rækju. Þeir taka á
Dagskró Alþingis
DAGSKRÁ sameinaðs Alþingis I dag
kl. 1,30: 1. Fyrirspumir: a. Vistheimili
fyrir stúlkur. Ein. umr. b. Lánveiting-
ar úr ræktunarsjóði og byggingarsjóði.
Ein umr. 2. Lausn fiskveiðideilunnar
við Breta, þáltill. Hvernig ræða skuli.
3. Vantraust á ríkisstjónina, þáltill.
Hvenig ræða skuli 4. Gatnagerð í kaup
stöðum og kauptúnum. Hvernig ræða
skuli. 5. Heildarskipulag Suðurlands-
undirlendis, þáltill. Frh. einnar umr.
(Atkvgr. um nefnd). 6. Brottflutningur
fólks frá íslandi, þáltill. Frh. einnar
umr. (Atkvgr. um nefnd). 7. Hagnýting
skelfisks, þáltill. Frh. fyrri umr. (At-
kvgr.) 8. Vaxtakjör atvinnuveganna,
þáltill. Frh. einnar umr. 9. Skóli fyrir
fiskmatsmenn o. fl„ þáltill. Ein umr.
10. Héraðsskóii á Snæfellsnesi, þáltiil.
Ein umr. 11. Alþingishús, þáltill. Fyrri
umr. 12. Jarðboranir að Leirá i Borg-
arfirði, þáltill. Ein umr. 13. Innlend
komframleiðsla, þáltill. — Fyrri umr.
14. Gatnagerð úr steinsteypu, Þáitill.
Ein umr.
sig alla áhættu í sambandi við á-
stand rækjunnar, er hún kemur
til vinnslu. Þeir krefjast nú kr.
21,60 fyrir kílóið af rækjunni
skelflettri. Geta má þess að á fsa
firði fá rækjuveiðasjómenn kr.
3,25 fyrir kílóið og er þá miðað
við rækjuna upp úr sjó.
1 rækjuverksmiðjunni hafa 30
til 40 stúlkur starfað við fram-
leiðsluna og nokkrir verkamenn.
Kaupfélagið sem á tvo rækju-
bátanna og helming ívþeim þriðja
mun ekki hafa í hyggju að ganga
að kröfum rækjumannanna, að
því er kaupfélagsstjórinn hefur
sagt. Sjómennirnir eru nú komn-
ir í aðra atvinnu. — Hannes.
Rúml. 327 þús.
kr. til Eyja
BLAÐINU hefur borizt fréttatil-
kynning frá fjársöfnunarnefnd
Alþýðusambands íslands. Segir
þar að nú hafi safnazt alls kr.
466,083,00 og að af þessari fjár-
hæð hafi farið rúmlega 327 þús.
krónur til styrktar verkfallsfólki
í Vestmannaeyjum.
s
s
s
s
s
s
v
s
s
s
s
-----OTP------—
VIÐ BIRTÚM þessa mynd af
forsíðu Tímans í gær til þess
að þeir, sem ekki sjá málgagn
Framsóknarflokksins, g e t i
kynnzt því, hver sturlun hef-
ur gripið þá, sem þar ráða
ríkjum. Tímminn var í gær
mun róttækari og ofsafengn-
ari en sjálfur Þjóðviljinn og
einnig að sínu leyti óheiðar-
legrl, því að þetta bla®, sem
þykist vera lýðræðissinnað,
birti mynd af gömlu land-
helginni við lsland, en alls
ekki nýju fiskveiðitakmörkun
um, sem kommúnistablaðið
lét sig þó hafa að gera, þrátt
fyrir upphrópanir og fordæm
ingu.
Skyldi ekkl fara að líða
að því, að meirihluti Fram-
sóknarmanna geri sér grein
fyrir því, að verið er að gera
flokk þeirra að fullkomnu
handbendi heimskommúnism-
ans, þar sem staurblint of-
stæki yfirgnæfir alla skyn-
semd og heilbrigða íhugun.
C
)
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s