Morgunblaðið - 01.03.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 1. marz 1961
MORGUWBLAÐIÐ
5
fer^Ch^Cr^Q^fT^Q^cT^Cb^CP^Cirs’íí/^Qs^C
| „Instinktið
k sem blífur"
8
I
I
I
I
!
i
I
I
I
'I
©
ÞEGAR við nálguðumst Skáta
heimilið við Snorrabraut á
föstudagrskvöldið var, bárust
okkur óp mikil og óhljóð, svo
að kaldur hríslingur fór nið-
ur með mænunni. En þegar
nær var komið, reyndust þetta
aðeins fimm til tíu smástúlkur
á aldrinum 10—15 ára og þær
voru í boðhlaupi. Og eins og
allir vita garga stelpur alveg
ógurlega, þegar þær eru í boð-
hlaupi.
Eftir nokkra leit að einhverj
um fullorðnium hittum við fyr-
ir Guðmund Pétursson, for-
mann húsnefndar heimilisins,
og sögðum erindið. — Jú vissu
lega voru skátarnir að undir-
búa ársskemmtun sína og í
kvöld var generalprufa. Sýn-
ingar voru um helgina og
næsta sýning á að vera á
sunnudaginn kem’ur.
Við læddiumst hljóðlega inn
f sýningarsalinn til þess að
ónáða ekki leikendurna. Á
sviðinu voru hjónakorn að ríf-
ast — út af framhjáhaldi. Bæði
höfðu hlaupið dálítið út und-
an sér og hin meðseku voru
einnig hjón. Við vorum svo
gamaldags að láta okkur detta
í hug, hvort þetta væri bein-
línis heppilegur boðskápur
fyrir börn — hvort ekki væri
nóg fyrir þau að brjóta heil-
ann um hvað væri réttlætan-
legt og ekki réttlætanlegt í
þeim efnum, þegar lengra
væri liðið á ævina. En í ljós
kom, þegar allt var fallið í
ljúfa löð, að tilgangiurinn var
að sýna fram á að reyndar
borgaði sig ekki að halda fram
hjá — hinn löglegi maki væri
reyndar sá bezti þegar á allt
var litið.
Þegar þannig var búið að
gera ungum rómantískum
stúlkum til geðs með „Happy
ending“, kallaði Guðmundur
á ungan mann, Pálmar Óla-
son, sem hann sagði vera pott-
inn og pönnuna í þessari árs-
skemmtun og hefði hann
reyndar komið þar áður við
sögu. Pilturinn var all víga-
legur, kvaðst vera í önnum,
en leysti þó úr nokkrum sp'urn
ingum í flýti.
— Jú, skátarnir halda^ slíka
skemmtun á hverju ári — ég
veit ekki til þess, að þær hafi
nokkru sinni fallið niður,
nema kanske einhverntíma í
stríðinu. Við reynum að miða
skemmtunina við hæfi allra,
yngstu skátanna jafnt sem
hinna elztu og þeirra velunn-
ara. Sumum atriðum sleppum
við á sýningium fyrir litlu
krakkana, það er engin ástæða
til að hrella þau.
— Hver stjórnar?
— Hún Emilía Jónasdóttir
— hún Emilia hefur stjórnað
okkur í fimmtán ár, að
minnsta kosti.
Og þar með þýtur Pálmar
til að sminka sig fyrir næsta
atriði.
Á meðan leika skátarnir „f
biðsal dauðans“ — dramatík,
sem endar á þrjá vegu.
Þegar dramanu er lokið,
læðumst við bak við, — þar
er venjulega eitthvað að sjá
og ung blómarós hefur skotið
því að okkur, að næsta atriði
heiti Saumaklúbburinn og þar
leiki eintómir strákar.
Jú, mikið rétt. — Emilia
hamast við að bera smurning
á strákana.
— Pálmar var að segja mér,
Emilia, að þér hefðuð stjórn-
að þesíium skemmtunum í
fimmtán ár.
— Já, að missta kosti það.
Eg er orðin hálfgerð próventu
kerling hjá þeim — er orðin
svo gömul, að þeir þora ekki
að segja mér upp. Annars voru
þeir nú svo elskulegir að
segja liérna um daginn, að þeir
skyldu sækja mig í hjólastól,
ef með þyrfti.
— Hlýða þeir?
— Já, mikil ósköp, alltaf
viljugir og glaðir, hvað sem
á gengur. Þetta eru yndisleg
börn.
Þarna sjáum við kunnugt
andlit — þetta er þó ekki hann
Maggi, þessi myndarlega kona
í peysufötunum.
- Ójú — er ég ekki líkur
henni mömmu?
Víst er hann líkur henni
mömmu sinni, drengurinn sá,
ef til vill heldur stórskornari
— en peysufötin klæða hann
ágætlega.
— Guð minn góður, kallar
Emilia, rassinn er alltof síður
á þér Maggi, hann lafir aldrei
svona.
— Ég reyndi að festa hann
eins vel upp og ég gat segir
„peysufatakonan“ heldur aum
Iega. Og með hjálp Emiliu er
botninn settur á sinn stað. Það
er kallað og hrópað — Emilia,
Sússa — mig vantar sokka-
böndin. Og Guðmundur skýtur
því að okkur, að bjáti eitt-
hvað á í þessum hóp sé alltaf
kalað Emilia — Sússa — þær
séu hægri og vinstri hendur
skátanna.
Púlli hamast við að laga á
sér lífstykkið — vesalings
kvenfólkið að þurfa að ganga
í svona klemmu. — Er ég ekki
sexy? spyr hann. Emilia full-
vissar hann um að svo sé —
svona þegar allt sé komið. Og
hann lagfærir brjóstin, —
þeim hættir svo til að síga.
—^ Einhver sagði mér Púlli,
að þú hefðir samið textann við
sjóræningjaóperuna, sem þið
sýnið.
— Já, já, og lauk við síð-
asta þáttinn í dag.
— Eruð það nú vinnubrögð
sem hæfa skáta?
— Já, einmitt — það er in-
stinktið sem blífur.
i
i
))
i
i
}
1
í
f
n
í
I
f
f
1
f
i
i
5
ÁHEIT og GJAFIR
Áehit á Strandakirkju, afh. Mbl.: •—
In.^ólfur 100 kr.t SF 50, ónefndur 15, SH
250, UJ 200, SE 50, GG 100, ÞG 100, NN
100, EE 150, Asta 100, g. áh. SHE 300,
FG 25, NN 1000, VG 200, SJ 15, Eí» 500,
GB 5, G + G 100, NN 10, GGÁ 150, ÁE
50, GB 50, NN 100, gömul kona 100,
!ÞÞ 100, IJ 100, SPGHF 200, RJ Árholti
100, KÁ 100, NN 100, Gt 110, X/2 125,
IG 100, HH 100, GGB 500, ónefnd kona
25, KS 50, JÞ 50, ES 50, Rúna 30, MS 25,
NN 250, IÞ 20, Þröstur 200, AE 100, SBG
200, Hrngur 50, KD 25, HB 20, VV 20,
ómerkt í bréfi 100, SL 20, ÞH 100, GH
10, BS 200, Vagn Ákason 100, Á og G
100, GÁ 50, RÁ 100, Kemp 200, DT 100,
KN 25, Hrefna 100, Siddý 100, Anna 50,
SO 50, Anna 30, VG 50, U&PW 200,
LJ 300, KE 500, JÁ 500, Ingveldur 30,
Ingibjörg 100, Ragna 200, SS 220, Vil-
borg 200, IJ 50, ES 120, ES 100, EE 100,
HJ 2000, Kristjana Guðmundsdóttir 50,
BG 50, Ingigerður Jóhannsdóttir 25,
ónefnd 50, MJ 50, NJ 50, GJ 200, HS 25,
ON 150, SK 60, HH 500, KÖ 100, HS 50,
FM 100, Lúðvík 100, SÁ 40, VÞ Akra-
nesi 150, VS 100, JB 10, SK 50, Gunnar
100, AM 100, Erla Gígja 50, JP 50, NN
100, sjúklingur 50, X 25, Jón Leifur 50,
SS 200, EP 100, JJ 100, NN 50, Kristinn
Sveinsson 100, NN Canada 192,20, NN
25. KS 8, KjS 250, Margrét 50, X-10 10,
J.G. 120, Sgurður 22, ÞSG 100, GG 500,
WO 300 krónur.
Áheit og gjafir til Hallgrímskirkju í
Saurbæ: — Hefi nýlega móttekið 500
kr. áheit. Kom til mín raeð sendibréfi
frá S.G. — Mathías Þórðarson.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Hlédís Guðmunds-
dóttir (Gíslasonar læknis), og
Ásgeir Guðnason (Ásgeirssonar).
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Helga Sveinsdóttir,
Þykkvabæ, Rang. og Sigfinnur
Sigurðsson, stud. rer pol. frá
Stykkishólmi.
Sl. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Árelíusi
Níelssyni, ungfrú Halla Daníels-
dóttir frá Akureyri og Jón Ás-
björnsson, íþróttakennari. Heim-
ili þeirra er á Nýlendugötu 29,
Reykjavík.
LæVnar fiarveiandi
Arinbjörn Kolbeinsson til 16. marz.
(Bergþór Smári).
Gunnar 9 Guðmunðsson um óákv.
tíma (Magnús Þorsteinsson).
Gunnlaugur Snædal fjarverandi frá
9. febrúar um mánaðartíma. Staðgeng-
ill: Tryggvi Þorsteinsson.
Haraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl
Jónasson).
Oddur Ólafsson óákv. tíma. (Árni Guð
mundsson).
Sigurður S. Magnússon óákv. tfma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
Víkingur Arnórsson um óákv. tfma. —
(Olafur Jónsson, Hverfisg. 106, sími
18535).
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund ....... Kr. 106,66
1 Bandaríkjadollar ...... — 38.10
1 Kanadadollar ......... — 38,64
100 Danskar krónur ........ — 551,00
100 Norskar krónur ........ — 532,45
100 Sænskar krónur ........ — 736,80
100 Finnsk mörk ........... — 11,88
100 Austurrlskir shillingar — 147,30
100 Belgiskir frankar ..... — 76,20
100 Svissneskir frankar ... — 880,90
100 Franskir frankar ...... — 776,44
100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45
r w
2H113
SENDIBÍLASTÖÐIN
Sölmenn
Vörulager til sölu. Góðir
greiðsluskilmálar. — Tilb.
sendist Mbl. merkt: ,,Vör
ur — 1671“
Bílkrani til leigu
með þremur lengingum, —
ekki vökvadregnar í góðu
lagi. Uppl. í síma 32525.
Góð atvinna
Maður óskast til að sjá
hænsnahúsi í Austurbæn-
um forstööu. Uppl. í síma
17485.
Keflavík
Til sölu Necchi-saumavél,
einnig svefnherbergishús-
gögn. Uppl. í síma 1344.
íbúð óskast
Óska eftir 3ja—4ra herb.
íbúð. Fullorðið í heimili.
Uppl. í síma 34036.
íbúð óskast
Óska eftir 2ja herb íbúð til
kaups. Uppl. í síma 16227
milli kl. 1—7.
Viðtækjavinnustofan.
Laugavegi 178 —
Símanúmer okkar er
nú 37674.
Smurt brauð
Snittur, brauðtertur. Af-
greiðum með litlum fyrir-
vara.
Smurbrauðstofa
Vesturbæjar
Hjarðarhaga 47 Sími 16311
Stúlka óskast
Matstofa Austurbæjar
Laugavegi llo.
Píanó
mjög hljómgott til sölu. —
Sími 19178.
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Silver Cross barnavagn
vel með farinn til sölu. —
Uppl. í síma 34086 milli
kl. 5—7.
Til sölu
Barna rimlarúm með dínu
Uppl. í síma 38261 á kvöld
in eftir kl. 7.
Til sölu
G.M.C. trukkur með fram-
drifi. Uppl. .í síma 34517
milli kl 7—9.
T I l S i) L II
kjólföt á meðalmann og ný
hollenzk dragt (grá). Uppl.
í síma 35377.
Hafnsafjörður og nágrenní
Pökkunarstúlkur óskast strax.
Hraðfrystihúsið FROST HF.
Uppl. í síma 50165.
Handklœði nýkomin
mikið og gott úrval.
Ó.V. Jóhannsson & CO
Hafnarstræti 19 — Símar 12363 og 17596.
IMýtízku 5 herb. íbúðarhæð
við Skaftahlíð til sölu. Bílskúrsréttindi.
IMýja fasteignasalan
Bankastræti, 7 sími 24300
og kl. 7,30—8,30 e.h. sími 18546.
Veiðijörð
Til sölu er ágæt sauðfjárjörð í Dýrafirði með góðri
silungsveiðiá sem mikla möguleika hefur til laxa
ræktunar. Áin er 8—9 km löng. Til mála gæti einnig
komið sala á góðum fjárstofni (250 ær) og búvélum.
IMýja Fasteignasalan
Bankastræti 7 — Sími 24300
kl. 7,30—8 30 e.h. sími 18546.
y