Morgunblaðið - 01.03.1961, Qupperneq 6
6
MORGV1SBLAÐ1Ð
Miðvilcudagur 1. marz 1961
Stórfellt hags-
munamál sjávar-
útvegsins
FRUMVARP ríkisstjórnarinn
ar um stofnlánadeild sjávar-
útvegsins var til 2. umr. í
neðri deild Alþingis í gær.
Fjárhagsnefnd deildarinnar
hafði klofnað um málið, og
skilaði hvor hluti nefndarinn
ar sínu áliti.
Jóhann Hafstein hafði fram
sögu fyrir áliti meirihluta
nefndarinnar. f upphafi ræðu
sinnar skýrði hann frá því, að
nokkuð hefði far
ið að bera á
greiðsluerfiðleik
um hjá útgerð-
inni, þegar líða
tók á sl. ár, og
strax á miðju
sumri hafði rík-
isstjórnin hafið
viðræður v i ð
bankana um það,
a hvern hátt mætti greiða úr
þessum erfiðleikum. Landsbank-
inn og Útvegsbankinn hefðu svo
rætt þessi mál ýtarlega sín á
milli og ríkisstjórnin skipað
nefnd til þess að gera tillögur um
lausn málsins. Upp úr þessum at-
hugunum öllum hefði svo orðið
til það frumvarp, sem hér er til
umræðu, sagði ræðumaður.
Stuttum lánum breytt í löng
Aðalatriði frumvarpsins, kvað
Jóhann Hafstein vera það, að
stuttum lánum væri breytt í löng
lán, en í raun og veru væri ekki
neitt nýtt fé sett í deildina. —
Seðlabankann, er nefnxst Stofn-
lánadeild landbúnaðarins. Sú
deild skuli veita lán til þess að
bæta fjárhagsaðstöðu bænda og
fyrirtækja, er eiga vinnslustöðvar
fyrir landbúnaðarafurðir og skort
ir fé til greiðslu á lausaskuldum,
er á þeim hvíla.
Lög frá Alþingi
Á FUNDI efri deidar í fyrra-
dag var frv. til laga um breyt-
ing á lögium um Fiskveiða-
sjóð islands afgreitt sem lög
frá Alþingi.
Aðalefni frumvarpsins er
það, að ábyrgð ríkissjóðs á lási
um sjóðsins hækkar úr 50
millj. kr. í 150 millj. kr., og
fiskveiðasjóði er heimilað að
áskilja, að ný Ián úr sjóðnum
endurgreiðist með breytilegri
f járhæð, sem nemi gengisbreyt
ingu ísl. krónu á lánstímanum,
þegar sjóðurinn endurlánar
erlent lánsfé.
*
Alit þingnefnda
• LISXASAFN ÍSLANDS
Menntamálanefnd efri deildar hefur skilað áliti um frv. til
laga um Listasafn íslands. Nefndin flytur nokkrar breytingar-
tillögur við frv. og einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til
þess að fylgja öðrum breytingartillögum, sem fram kunna að
koma.
• BRYTAR OG MATREIÐ SLUMENN
Iðnaðarnefnd neðri deildar flytur nokkrar breytingartillögur
við frumvarp til laga um bryta og matreiðslumenn á farskipum og
fiskiskipum.
• LANDSBANKI OG ÚTVEGSBANKI
Minni hluti fjárhagsnefndar neðri deildar (Skúli Guðmunds-
son) leggur til, að frumvörpin um Landsbanka íslands og Út-
vegsbanka Islands verði felld.
• KORNRÆKT
Minni hluti landbúnaðarnefndar efri deildar (Páll Þorsteins-
son og Daníel Ágústínusson) leggur til, að frv. til laga um korn-
rækt verði samþykkt óbreytt.
• BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Minni hluti allsherjarnefndar neðri deildar (Gunnar Jóhanns-
son), leggur til, að frv. til laga um löggildingu bifreiðaverkstæða
verði vísað til ríkisstjórnarinnar, þar sem hann telur augljóst,
að stór hluti bifreiðaeigenda sé frumvarpinu mótfallinn.
Varanleg
D A N í E L Ágústinusson, Jón
Skaftason og Ingvar Gíslason
flytja í sameinuðu þingi svo
hljóðandi tillögu til þingsálykt-
unar um varanlega gatnagerð í
kaupstöðum og kauptúnum:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni:
1. Að láta fara fram rannsókn
sérfróðra manna á því, úr hvaða
efni sé heppilegast að gera var-
anlegar götur í kaupstöðum og
kauptúnum.
2. Að undirbúa löggjöf — að
gatnagerð
þeirri rannsókn lokinni — um
fjárhagslegan stuðning ríkissjóðs
við varanlega gatnagerð í kau.p-
stöðum og kauptúnum landsins“.
Fyrr á þinginu hafa þeir Bene
dikt Gröndal og Jón Árnason
flutt þingsályktunartillögu um
steinsteypingu gatna, þar sem
skorað er á ríkisstjórnina að
greiða fyrir því, að bæjar- og
sveitafélög geti keypt sement til
gatnagerðar af Sementsverk-
smiðjunni með hagkvæmum
kaup- og lánskjörum.
Græna lyftan er í síðasta sinn í kvöld kl. 8,30 og er það 40.
sýning á þeim vinsæla gamanleik. — Myndin: Helga Bach-
man og Steindór Hjörleifsson í hlutverkum sínum.
Hversu langt þessar ráðstafanir
næðu, yrði svo reynslan að skera
úr, en að óreyndu væri ekki á-
stæða til þess að ætla annað en
að þessar ráðstafanir reyndust
farsælar. Þetta væri leið, sem
sjálfsagt væri að reyna, og þetta
væri mikið hagsmunamál sjávar-
útvegsins, enda þótt ekki sé um
það að ræða að veita nýtt fé til
stofnlánadeildarinnar.
Stofnlánadeild
sjávarútvegsins
Skúli Guðmundsson gerði grein
fyrir breytingartillögum, sem
hann flytur við frumvarpið. Sagð
ist hann þó ekki flytja þessar
breytingartillögur vegna þess að
hann efaðist um, að sjávarútveg-
inum sé mikil þörf á þessari laga-
setningu eða vegna þess, að hann
greini á um aðalatriði málsins
við meirihluta fjárhagsnefndar.
Sagði Skúli, að mikil þörf væri
svipaðra ráðstafana fyrir landbún
aðinn, og þess vegna legði hann
til, að stofnuð yrði sérstök lána-
deild við Landsbanka íslands,
•^eiðbeinmgar
til^aðjles^jiær^
Fyrir skömmu varð hér í
bænum bruni sem eflaust má
rekja til þess að menn gátu
ekki lesið leiðbeiningar utan
á dós með efni, sem þeir
þurftu með að fara. í þessu
tilfelli var aðvörunin um að
innihaldið væri mjög eldfimt
og einnig að dunkurinn
mætti alls ekki verða fyrir
hnjaski, á frönsku, og
kannski varla hægt að ætlast
til að allir gæti lesið hana. En
ég þykist hafa orðið var við
það í fleiri tilfellum, þegar
um aðvaranir eða leiðbein-
ingar á ensku eða á Norður-
landamálunum er að ræða, þá
geta menn ekki eða hirða
ekki um að lesa þær,
Nú á dögum er fjölbreytnin
orðin svo mikil á hinum
ýmsu gerviefnum, sem notuð
eru, og vélum og áhöldum,
að varla er hugsanlegt að
einn maður jafnvel þó fag-
maður sé, þekki það allt. Og
til þess eru leiðbeiningarnar
utan á umbúðunum, að menn
viti hvað þeir hafa í höndun-
um. Annað er alveg ótækt.
Jafnvel þó ekki sé hætta á
að efnin valdi sprengingu eða
bruna, þá eru alltaf mögu-
leikar á því að viðkomandi
tæki séu skemmd ef ekki er
rétt með þau farið eða a.m.k.
að notagildi efna eða tækja
sé ekki eins og það á að vera,
ef það er ekki notað rétt.
^^æ^legjnálakunn-
áttajnauðsynle^
Og þá vaknar spurningín:
— Eru íslenzkir fagmenn
ekki nægilega vel að sér í al-
gengustu tungumálum, eins
og ensku og Norðurlanda-
málum, til að geta lesið leið-
beiningar í sínu fagi í leiðar.
vísum með vélum, tækjum og
efnum, og fylgst með í er-
lendum fagtímaritum í sinni
grein? Yonandi að svo sé, því
þessum mönnum verður mað
ur að treysta fyrir dýrmæt-
um vélum sínum og tækjum
til viðgerðar, og fyrir því að
efni séu notuð eins og til er
ætlast af framleiðanda, því í
öllum stórum verksmiðium
er búið að þrautprófa alla
framleiðslu og vitað hvernig
hún gefur bezta raun.
Auðvitað væri bezt ef leið-
'beiningar væru á íslenzku,
en meðan við verðum að
flytja nær allar kemískar
vörur og vélar inn, er varla
því að heilsa. Og ekki höfum
við bolmagn til að gefa út
fagtímarit í hverri grein á ís-
lenzku. Aftur á móti mætti
kannski skylda þá, sem selja
vörur með leiðbeiningum á
öðrum málum en þeim sem
kennd eru hér í öllum skól-
um, til að þýða þær og láta
fylgja á íslenzku. En jafn-
framt þyrfti að vera tryggt
að enginn útskrifaðist úr iðn-
skóla, nema hann hafi góða
þekkingu á þeim tungumál-
um, sem þar eru kennd.
• Úr sparibauknum
Tveir litlir drengir, Gunn-
ar og Birgir, komu til Mbl.
fyrir helgina með bréf. Gunn
ar er 8 ára gamall og hefur
vafalaust skrifað það, þvi
ára. Bréfið var svohljóðandi:
„Viljið þið vera svo góð að
láta þessa aura í tómu tösk.
una, þeir eru úr sparibaukn.
um okkar.“
Og með fylgdi úrklippa úr
Mbl., myndin af tösku gömlu
konunnar, sem stolið var
og fannst tóm og auk þess 35
kr. í peningum, sem við höf„
um komið til skila.