Morgunblaðið - 01.03.1961, Side 22
22
MORGVVBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 1. marz 1961
island og Danmörk
keppa í Karlsruhe
Leikurinn hefst kl. 18,50 i kvöld
í KVÖLD kl. 18:50 eftir ísl.
tíma gengur íslenzka lands-
liðið í handknattleik til lands
leiks við Dani og fer leikur-
inn fram í Swartswaldshalle
í Karlsruhe. Leikur þessi er
liður í lokakeppni heims-
meistarakeppninnar í hand-
knattleik. 12 lið keppa um
titilinn og er í upphafi skipt
í þrjá riðla. Island er í riðli
með Danmörku og Sviss. Eitt
þessara landa fellur úr keppn
inni í fyrstu lotu. Hin tvö
halda áfram og keppa um 1
—8 sæti í keppninni.
íslenzka liðið fór utan á sunnu
daginn og er ekki vitað annað
en að allt sé í lagi hjá piltunum.
Þeir eru vel undir úrslitin búnir,
vel þjálfaðir um margra mánaða
skeið og nú síðustu daga vel hvíld
ir fyrir átökin.
f KVOI.D
Sólmundur Jónsson, Val
Hjalti Einarsson FH
Gunnl. Hjálmarsson ÍR
Einar Sigurðsson FH
Fétur Antonsson FH
Ragnar Jónsson FH
Birgir Björnsson FH
Karl Jóhannsson KR
Karl Benediktsson Fram
Örn Hallsteinsson FH
Hermann Samúelsson ÍR
Það er sem sagt allir liðs-
menn nema Erlingur og Krist
ján Stefánsson.
Fram höfðu komið raddir
um það að kænni leikaðferð
væri að geyma einn eða tvo
af okkar beztu mönnum gegn
Dönum. Var sú hugsun grund-
völluð á því að sáralitlar sigur
líkur væru gegn Dönum en ó-
heppilegt að leikmenn Sviss,
sem aðalorustan stendur við,
fengju tækifæri til að grand-
skoða leikaðferðir íslendinga,
en Svisslendingarnir sitja hjá
fyrsta leikkvöldið. Landsliðs-
nefndin hefur ekki verið á
þessari skoðun, en ráðamenn
HSl sem eftir sitja heima, fara
þó ekki leynt með það að
„geyma“ eigi Hjalta markvörð
nema meiðsli komi til hjá Sól-
mundi.
Dómari í leiknum í kvöld verð-
ur þýzkur, Singer að nafni. Línu
verðir eru Frakki og Þjóðverji.
, Landslið fslands í
i Ieik. Fremri röð frá vinstri:!
\ Karl Jóhanns., Birgir, Hjalti, >
^ Sólmundur, Örn, Erlingur. —\
< Aftari röð frá vinstri: Karl^
’ Ben., Hermann, Gunnlaugur, <
1 Pétur, Kristján, Einar og’
\ Ragnar. 1
\ (Ljósm.: Sv. Þormóðsson). ^
☆
i Að neðan: Schwartswalds-^
? halle í Karlsruhe, þar semt
) landsleikurinn verður í kvöld..’
Innanhiíssknatt-
spyrna í kvöld
í KVÖLD hefst að Háloga- innanhúss. Er mót þetta liður
landi knattspyrnumót Vals í afmælishátíðahöldum Vals-
■-------------manna í tilefni 50 ára af-
Tveir
lands-
leikir
HIÐ nýstofnaða körfuknatt-
leikssamband hefur nú tekið
við bréfaskriftum út af vænt-
anegum landsleikjium í körfu-
knattleik. Hefur miðað vel í
þeim viðskiptum. Er nú svo
komið að ákveðnir hafa verið
tveir landsleikir í körfuknatt-
leik og fara þeir báðir fram í
Kaupmannahöfn. Hinn fyrri
verður við Dani og fer fram 2.
apríl og hinn síðari verður 4.
apríl gegn Finnum sem verða
í Höfn á heimleið eftir leiki
við Austur- og Vestur-Þjóð-
verja. '
Þá er og staðið í bréfaskrift
um við sambandið í Svíþjóð
um landsleik við Svía í sömu
ferð. Endanlegt svar hefur
ekki borizt en KSÍ telur nær
ðullvíst að það svar verði já-
kvætt.
Um þetta mál verður nánar
fjallað hér á síðunni síðar. En
þess má geta að íslendingar
hafa leikið Iandsleik við Dani
og unnu þá Danir með 41 stigi
gegn 38. Má telja þjóðirnar
mjög svipaðar að styrkleika
í þessari grein. Framfarir hafa
þó orðið greinilegar og mikl-
ar hjá ísl. leikmönnunum. Sví
ar hafa nýlega sigrað Dani en
sterkastir Norðurlandaþjóð-
anna eru Finnar, sem unnu
Svía fyrir stuttu með nokkr-
um mun.
# Enska knaftspyrnan
SJÖTTA umferð ensku bikar-
keppninnar fer fram n.k. laugar-
dag, og leika þá þessi lið saman:
Sheffield W. — Burnley
Leicester — Barnsley
Sunderland — Tottenham
Newcastle — Sheffield U.
Reikna má með að leikurinn
milli Sheffield W. og Burnley
verði harður og jafnframt
skemmtilegastur. Bæði liðin hafa
átt góða leiki 1 vetur og hafa þau
bæði t.d. tekið stig af hinum ó-
krýnda konungi, Tottenham. Bú-
ast má við að Sunderland eigi
erfitt með Tottenham, en þó ber
þess að gæta að í síðustu 20 leikj
um hefur Sunderland aðeins tap
að einu sinni.
Mikill áhugi er fyrir leiknum
í Evrópukeppninni milli Ham-
burg og Burnley. Fyrri leikur lið
anna fór fram á heimavelli Burn
ley og sigruðu Englendingarnir
3:1. Forráðamenn þýzka liðsins
hafa farið fram á að liðið þurfi
ekki að leika í deildarkeppninni
þýzku þann 5., 11. og 19. marz,
en leikurinn fer fram 18. marz.
Einnig hafa þeir farið fram á að
enginn úr liðinu verði valinn til
að leika unglingalandsleik þann
7. marz.
12 met
y
XA SUNDMÓTl Armanns
•{•gærkvöldi setti Hrafnhildurf
$Guðmundsdóttir ÍR tvö ný|
Xlsl. met. Synti hún 100 m|
♦{•bringusund á 1:22,5 mín ogf
‘jlmillitími á 50 m var 38,0.|
’X Gömlu metin átti hún 38,7 og|
•{•1:23,6. |
Hrafnhildur vann meðf
's'þessu bezta afrek mótsins og|>
•{•hlaut bikar fyrir. Nánar síð-|
far.
mælis félagsins. Er skemmti-
legt að sjá nú aftur innan-
hússknattspyrnu hér. Hún á
vinsældum að fagna erlend-
is og átti það einnig hér áð-
ur, þó gera verði nokkrar
breytingar frá venjulegum
leikreglum vegna smæðar
okkar íþróttasalar.
• Liðin
Það eru 16 lið sem taka þátt f
þessari keppni. Valur sendir 3
lið, KR, Fram, Þróttur og Vík-
ingur 2 hvert og auk þess er
þátttaka utanbæjarmanna, 2 lið
frá ÍBK, 1 úr Kópavogi, 1 frá
Sandgerði og lið Vestmar.ney-
inga. í upphafi mótsins fer fram
aukaleikur milli Vals og KR f
4 aldursflokki.
Dregið hefur verið um leikröð
og fór dráttur þannig:
1. leikur: Fram A — KR A.
2. leikur Valur A — Vík. A
3. leikur Breiðablik — V.-eyjar
4. leikur Sandg. — ÍBK A
g. Þróttur A — Valur C
6. leikur Þróttur B — ÍBK B
7. leikur Valur B — Fram B
8. leikur KR B — Vík. B.
Það lið er tapar einum leik er
úr keppninni. Úrslit fást annað
kvöld. Leiktími er 2x7 mínútur
og mínútúhlé milli hálfleikja.
• Leikurinn
Innanhússknattspyrna er byggð
á flestum. sömu reglum og úti<
knattspyrna. Erlendis eru 4
menn á leikvelli í senn en hafa
má ótakmarkaðan fjölda skipti-
manna. Hér verður að gem þá
breytingu á að 3 menn leika i
senn og liðsmannafjöldi er tak-
markaður við 5. )<
Ef menn brjóta af sér verða
þeir að víkja af veili um stund.
Ekki má skjóta á mark nema
innan vítateigs. Enginn leikur sér
staklega í marki og engin má
verja með höndum -— jafnvel
ekki þegar vítaspyrna er tekin.
Frh. á bls. 23