Morgunblaðið - 01.03.1961, Page 23
Miðvikudagur 1. marz 1961
MORGUIVBLAÐIÐ
23
I ENN EIN lægðin er nú á leið-
• inni norðaustur eftir Græn-
y landshafi. Nokkuð stórt úr-
komusvæði fylgir hitaskilum
5 hennar, og var byrjað að
rigna í Reykjavík um kl. 2 í
j gærdag.
^ Mikið háþrýstisvæði er suð-
ur af Bretlandseyjum. Það
S stöðvar alla hreyfingu lægða
S þvert austur yfir Atlantshafið
'I og beinir þeim norðaustur á
i bóginn í áttina að íslandi.
j
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi S
SV-land til Vestf jarða og ■
miðin: SA eða sunnan storm- ^
ur og rigning í nótt, hvass SV s
og skúrir á morgun. b
Norðurland til Austfjarða •
og miðin: Vaxandi sunnan- ^
átt víða hvasst og rjgning s
þegar líður á nóttina, léttir í
til með allhvassri sunnanátt •
síðdegis. s
SA-land og miðin: Hvass S
SA og siðar sunnan, rigning 1
í nótt, skúrir á morgun. ^
s
Rögnvaldur Sigurjónsson
efnir til píanóhljómleika
NÆSTKOMANDI föstudag, 3.
marz, mun Rögnvaldur Sigur-
jónsson, píanóleikari halda hljóm
Ieika í Þjóðleikhúsinu. Á efnis-
skránni eru verk eftir Beethoven
(Túnglskinssónatan), Fr. Schu-
bert, C. Debussy, A. Scriabine og
in með sinfóníuhljómsveitinni.
Rögnvaldur Sigurjónsson er sá
íslenzkra hljómlistarmanna sem
hefur haldið flesta hljómleika er-
lendis. Hann kom fyrst fram er-
lendis í Washington 1945. Hann
NÆSTI málfundur Verkalýðs
ráðs Sjálfstæðisflokksins og
Málfundafélagsins Óðins verð
ur í Valhöll í kvöld kl. 8,30.
Einar Fálsson hefur leiðbein-
ingar á framsögn. Þátttakend
ur eru beðnir að mæta stund-
víslega.
Haínaríjörður
STEFNIR, fél. ungra Sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði,
heldur málfund í Sjálfstædis-
húsinu í kvöld kl. 8,30. Um-
ræðuefni er: Hin ríkisstyrktu
happdrætti. Frummælendur
verða þeir Illugi Óskarsson og
Kristján Loftsson.
Stefnis-félagar fjölmennið.
* Færeyingar
vilja semja
Þórshöfn, Færeyjum, 28. feb.
Einkaskeyti til Mbl.
FRÉTTIN um samkomulag ríkis-
stjórna Bretlands og íslands kom
öllum að óvörum í Færeyjum.
Boðaður hefur verið fundur um
málið á fimmtudag og verður þá
væntanlega lagt til að Færey-
ingar taki upp viðræður við ís-
lendinga um að fá sömu réttindi
fyrir færeysk skip og gilda fyrir
brezk skip til 1964.
Liszt.
! Fimm ár eru liðin síðan Rögn-
valdur hélt síðast sjálfstæða
hljómleika, en á því tímabili hef
ur hann spilað talsvert með hljóm
sveitum og núna síðast fyrir jól-
— Ólafur
Jóhannesson
Framh. af bls. 1
úrlausnar hjá alþjóðadómstól-
um. Ef það er rétt, þá hefur
verið haldið á annan veg á þessu
máli heldur en var gert 1952,
því að ef ég man rétt, og það
leiðréttist þá hér á eftir, ef ég
fer með rangt mál, þá var það
boð Islendinga þá, að leggja það
mál og þá deilu, sem þar af
spratt, undir úrlausn alþjóða-
dómstólsins, þegar fjögurra sjó-
mílna fiskveiðilandhelginin var
ákveðin. Og vissulega er það
svo, að smáþjóð verður að var-
ast það að ganga svo langt, að
hún geti ekki alltaf verið við
því búin að leggja mál sín undir
úrlausn alþjóðadómstóls, því að
sannleikurinn er sá, að smáþjóð
á ekki annars staðar frekar
skjóls að vænta heldur en hjá
alþjóðasamtökum og alþjóða-
stofnunum, af því að hún hefur
ekki valdið til að fylgja eftir
sínum ákvörðunum eins og stór-
veldin. Og þess vegna hefði, að
mínu viti, hvert eitt spor í þessu
máli átt að vera þannig undir-
búið, að við hefðum verið við
því búnir að leggja það undir
úrlausn alþjóðadómstóls“.
Rögnvaldur Sigurjónsson
nam í Bandaríkjunum á stríðs-
árunum, en áður hafði hann
dvalið tvö ár í París við nám.
Rögnvaldur hefur haldið hljóm-
leika á öllum Norðurlöndunum,
í Þýzkalandi, Austurríki og Rúss-
landi.
Þegar Rögnvaldur kom heim
frá námi 1945 hóf hann kennslu
í píanóleik við tónlistarskólann
og er nú yfirkennari við píanó-
deild hans.
Hljómleikarnir á föstudags-
kvöldið hefjast kl. 8,30 og eru að-
göngumiðar seldir í Þjóðleikhús-
inu.
r
A mettíma
Á MÁNUDAGINN flaug Hrím-
faxi Flugfélags ísands frá Glas-
gow til Kaupmannahafnar á met
tíma eða 1 klst. 52 mín. Er þetta
fljótasta ferð fugvélar í áætlun-
arflugi, sem vitað er um milli
þessara tveggja borga. Vegalengd
in er 1075 km. og var meðalhraði
Hrímfaxa því rúmlega 590 km.
á klst. Flugstjóri í þessari ferð
var Sverrir Jónsson.
— Ást j Rússlandi
Frh. af bls. 1
1960 til framhaldsnáms í píanó-
Ieik. Kynni þeirra hófust með
því að þau fóru saman á tónleika
— svo urðu þau ástfangin.
Þórunn Tryggvason hefur bú-
ið um 15 ára skeið í Englandi,
þar sem faðir hennar er tónlist-
arkennari. Eiginmaðurinn hefur
haldið hljómleika erlendis og er
nú á hljómleikaferð um Sovét-
ríkin. Þórunn kveðst munu
faalda áfram námi við tónlistax-
háskólann og vonast að því
loknu til þess að geta haldið
hljómleika í Rússlandi og er-
lendis.
Hvað sem verður, segir hún,
ætla ég að búa í Rússlandi hjá
manninum mínum.
Tilkynning
— Ihróttir
Framh. af bls. 22
Erlendis tíðkast að hafa meters-
háan vegg við vallarhliðar og má
sparka í þaer og fá knöttinn aft-
ur. Hér vannst ekki tími til að
setja slíkt upp þó slíkur vegg-
ur gefi mikið skemmtilegri svip.
Keppt er um bikar er Albert
Guðmimdsson hefur gefið. Er það
fagur og stór bikar til þess félags
er vinnur en hver hinna 5 liðs-
manna hljóta aðra minni til eign
ar. Er þetta veglegasta gjöf frá
Alberti til síns gamla félags.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð á gasolíu og gildir verðið hvar sem er á landinu:
Heildsölu, hver smálest ......... Kr. 1415.00
Smásöluverð úr geymi, hver lítri Kr. 1,37
Heimilt er að reikna 5 aura á lítra fyrir útkeyrslu.
Heimilt er einnig að reikna 16 aura á lítra í af-
greiðslugjald frá smásöludælu á bifreiðar.
Sé gasolía afhent í tunnum, má verðið vera 2 % eyri
hærra hver lítri.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 28. febrúar 1961.
Verðlagsstjórinn
Nr. 2/1961
Unglinga
vantar til blaðburðar v/ð
Fálkagötu
Hagamel
Camp Knox
Hverfisgötu II.
Skipasund
JHovgltttÞI&fetfr
Elsku litli drengurinn minn
INGVI ÓMAR HAUKSSON
andaðist 27. febrúar af slysförum. Jarðarförin auglýst
síðar.
Inga Ingimarsdóttir og aðstandendur.
Bróðir minn
EYJÓLFUR ÞÓRÐARSON
frá Laugabóli,
andaðist 28. febrúar.
Systkinin.
Faðir minn .tengdafaðir og bróðir
GARÐAR HÓLM STEFÁNSSON
andaðist að Landakotsspítala þann 27. þessa mánaðar.
Einar Þór Garðarsson, Kristín Guðlaugsdóttir,
Geir Stefánsson, Hjálmar G. Steindórsson.
Útför mannsins míns,
GUÐJÓNS GUNNARSSONAR
framfærslufulltrúa,
fer fram fimmtudaginn 2. marz frá Þjóðkirkjunni í Hafn-
arfirði kl. 2 e.h. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Arnfríður Jónsdóttir.
Útför föður okkar
ELlASAR HÁLFDÁNARSONAR
frá Flateyri
verður frá, Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. marz kl.
1,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Maria Elíasdóttir,
Guðjón Elíasson
Einar Elíasson
Útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa
SIGURÐAR EGILS KRISTJÁNSSONAR
Skúlagötu 66,
er andaðist þann 23. f.m. fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 2. marz kl. 3 e.h. — Blóm afbeðin.
Jónína Hermannsdóttir,
Hjalti S. Sigurðsson, Daníel Sigurðsson,
Elínborg H. Eggertsdóttir, Martina Sigurðsson,
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
mannsins míns og föður okkar
ÁMUNDA JÓNSSONAR
Minna-Núpi
Guðrún Sveinsdóttir og dætur
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við
andlát og jarðarför móður minnar
RANNVEIGAR SVERRISDÓTTUR
Sérstaklega vil ég þakka Thorvaldsensfélaginu sem
heiðraði minningu hennar með að kosta útför hennar.
Hulda Þórðardóttir.