Morgunblaðið - 24.03.1961, Page 24

Morgunblaðið - 24.03.1961, Page 24
íþróttir Sjá bls. 22 Alþingi Sjá bls. 8. Föstudagur 24. marz 1961 Danir þurfa handritin til frekari rannsókna / — segir Politiken Kaupmannahöfn, 23. marz. Einkaskeyti frá Páli Jónssyni. UNDIR fyrirsðgninni Nálg- ast samkomulag um handrit- in, segir Kaupmannahafnar- blaðið Politiken í dag: Kunn- ugt er að núverandi ríkis- stjórn vill mjög gjarnan ná endanlegu samkomulagi í málinu. Eftir því sem vitað er ríkir hjá stjórninni sú skoðun að íslandi beri að minnsta kosti að fá hluta handritanna. Heyrzt hefur að það gæti orðið til að efla norræna samstöðu ef afhend- ingin færi til dæmis fram í sambandi við 50 ára afmæli Háskóla íslands í sumar. ÖFI.TIG MÓTMÆLI Það er ekki rétt að ríkisstjórn- in muni fljótlega leggja fram frumvarp um afhendingu. Málið er enn í athugun og ýmsir aðilar, Bjórinn úr nefndl GÍSLI Jónsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á fundi neðri deild ar Alþingis í gær. Minnti hann á, að i febrúar sl. hefði frv. Péturs Sigurðssonar um breytingar á áfengislögunum ásamt breytingar tillögum sínum við frv. verið vís- að til allsherjarnefndar. Fór hann þess á leit, að forseti hlut- aðist til um, að nefndin skilaði áliti um frv. og breytingartillögur sínar. Einar Ingimundarson formaður allsherjarnefndar kvaddi sér hljóðs að lokinni ræðu Gísla og upplýsti, að nefndin mundi taka málið fyrir á fundi annaðhvort á föstudag eða laugardag, en óvíst væri, hvort hún mundi þá gefa út álit sitt um það. Gísli Jónsson kvaddi sér aftur hljóðs og lagði áherzlu á, að nefndin skilaði áliti. Frumsýning í kvöld SUMARLEIKHÚSIÐ frumsýnir í kvöld í Austurbæjarbíói nýjan ís- lenzkan gleðileik með söngvum og tilbrigðum, — Allra meina bót — eftir þá „Patrek og Pál“. Lögin eru eftir Jón Múla Árna- son, en hann var sem kunnugt er höfundur ásamt bróður sínum að leiknum Delerium Bubonis, og samdi lögin er þar voru leikin og sungin og eru enn í miklum vin- sældum. Með aðalhlutverk í þessum nýja gleðileik fara þau Brynjólf- ur Jóhannesson, Kristín Anna Þórarinsdóttir, Steindór Hjör- leifsson, Árni Tryggvason, Gísli Halldórsson og Karl Guðmunds- son, og er Gísli Halldórsson jafn- framt leikstjóri. Fimm manna hljómsveit leikur með sýningunni og er hún undir stjórn trompet- leikarans Jóns Sigurðssonar. þeirra á meðal vísindamenn, hafa borið fram svo öflug mótmæli gégn tillögunni að möguleikar á samþykkt hennar hafa minnkað. Jörgensen kennslumálaráðherra mun sennilega brátt taka málið aftur upp á rikisstjórnarfundi, en þar hefur það ekki verið til um- ræðu í meira en mánuð. SKRAUTEINTÖK Politiken birtir á öðrum stað langa grein undir fyrirsögninni Helgidómur íslands miðstöð rann sókna vorra. í grein þessari er rakin saga handritanna og þýð- ing þeirra fyrir þekkingu á sögu Norðurlandanna. f greininni er bent á það að Danir þurfi enn á handritunum að halda til áfram- halijandi rannsókna. Fremstu vísindamenn Dana vilja afhenda íslendingum nokkur skrautein- tök úr safninu, sem eru vel til þess fallin að vera sýningargripir á söfnum, en halda sjálfir öðrum hluta safnsins, sem geymir upp- lýsingar er yfirstandandi rann- sóknir eru að reyna að draga fram í dagsljósið. Á íslandi eru ekki sömu mögu- leikar og hjálpargögn og í Dan mörku til að halda þessum rann- sóknum áfram, segir Politiken. HÁSKÓLINN Á SAFNIÐ Annað Kaupmannahafnarblað, Dagens Nyheder, skrifar einnig um handritin í dag. Þar segir að Jörgensen ráðherra virðist nú ákveðinn í að Ijúka stjórnmála- ferii sínum með því að afhenda öll handritin, og að rikisstjórnin virðist óska eftir endanlegri lausn málsns. En, segir blað'5, háskólinn á handritin og er því ekki hægt að afhenda þau meðan þeir vísindamenn, sem daglega vinna með þau, standa gegn af- hendingu. Ríkisstjórnin ætti ekki að vinna að algjörri afhendingu, heldur athuga fyrri tillögu um afhendingu á hluta úr safninu. Hjálmurinn bjarg- aði manninum LAUST fyrlr miðnætti í fyrrinótt varð óvenjulegt um ferðaslys á Suðurlandsbraut- inni, við gatnamót Langholts vegar. Komu þar við sögu tveir bílar og mótorhjól, svo og maður sem sat það. Annar bílanna ætlaði að aka af Langholtsveginum inn á Suð- urlandsbrautína og niður í bæ. — Hinn (Jeppinn) var að koma að austan og ætlaði að aka inn á Langholtsveginn. Eftir Suður- landsbrautinni, á leið upp í Sel- ásbyggðina kom maður á bíf- hjóli, Jósep Sigurðsson, Selási 22. Svo virtist sem ökumenn bíl- anna hafi ekki tekið eftir bif- hjólinu. Ökumaður þess var rétt kominn að bílunum þegar jepp- inn skyndilega beygði þvert í veg fyrir hann, er bíllinn ætlaði inn á Langholtsveginn. Tók Jósep það ráð að reyna að reyna að smjúga í lítið bil milli bílanna, ef verða mætti að hon um tækist að koma í veg fyrir slys. En árekstur var óumflýj- anlegur og mótorhjólið skemmdi Hin nýju lög um Útvegsbank ann miða að því að samræma lög gjöfina um hann öðrum lögum um viðskiptabankana, og þá sér staklegahinum nýju lögum um Landsbankann. Frumvörpin um Londsbankunn og Útvegsbankann somþykkt Á fundi efri deildar Alþingis í gær voru frumvörp ríkisstjórn arinnar um Landsbanka íslands og Útvegsbanka íslands afgreidd sem lög frá Alþingi. — Frv. um Seðlabanka íslands var þar einn ig til 3. umræðu, en þar sem deildin gerði breytingar á frv. frá því, sem neðri deild- gerði ráð fyrir, þarf það að ganga til 1. umr. í viðbót í neðri deild. Frv. um Landsbankann var lagt fram samtímis frv. um Seðla banka íslands, og er gert ráð fyr ir, að þessar tvær stofnanir starfi óháðar hvor annarri. í sjálfu frv. um Landsbankann eru nýmæli, en í þvi eru einkum þau atriði, sem voru í gömlu lögunum og vöruðu starfsemi hans sem við skiptabanka. jeppann dálítið og fólksbílinn eitthvað en minna. Við árekst- urinn kastaðist Jósep af hjól- inu. Sagði sjónarvottur, rann- sóknarlögreglunni í gær, að full yrða mætti að Jósep hefði stór- slasast, ef hann hefði ekki verið með örygeishjálm á höfði, svo slæm hafði byltan verið. Við áreksturinn kviknaði í mótorhjólinu. Þeir sem fyrstir komu að, báru Jósep út af ak- brautinni af ótta við að spreng- ing yrði í benzíngeymi mótor- hjólsins, sem þó ekki varð. Meiðsli Jóseps voru þau helzt að hann tognaði og marðist. Verkakonur í Keflavík boða verkfall KEFLAVÍK, 23. marz: Verka kvennafélagið í Keflavík hef ur boðað til verkfalls, sem á að hefjast aðfaranótt nk. sunnudags, hafi samningar ekki takizt fyrir þann tima- Þrír sáttafundir hafa verið haldnir í Keflavík, en þeir báru ekkj árangur, og var deil unni vísað til sáttasemjara. Hélt hann fund með samninga nefndum s.I. miðvikudagskv. Stóð sá fundur frá kl. 21 til kl. 23,30 en árangur varð eng | inn. J Sáttasemiari hefur boðað til i næsta fundar kl. 2 á laugar-l dag. —Helgi S. í Tók sundpróf - og féll í sióinn Akureyri, 23. marz. SÍÐDEGIS i dag voru nokkrir drengir að leika sér um borð I bátum, sem liggj.a hér í höfninni. Þá vildi svo til, að einn drengj- anna, Pétur Pétursson, 12 ána gamall, féll milli bryggju og eins bátsins. Félagar hans drógu hann fljótlega upp úr sjónum, en ein- hver hafði gert lögreglunni að- vart, og var hún komin á vett- vang, er Pétur var kominn í land. Lögregluþjónninn, sem ók Pétri heim spurði hann, hvort hann væri syndur. Hann kvaS svo vera, því hann var einmitt að enda við að taka prófið fyrr um daginn. IMorskir togarar fá að veiða upp að 6 míium OSLÓ, 20. marz. (NTB) Harðar deilur hafa staðið í Stórþinginu síðustu daga um landhelgis-mál og fiskveiðilöggjöf að því er snýr að norskum fiskiskipum. Rekast þarna algerlega á hagsmunir gtná bátaeigenda og eigenda togara eða stærri fiskiskipa sem nota botnvörpur og dragnætur. Heim sigraði t GÆRKVÖLDI fór fram hrað keppni í handknattleik að Háloga landi með hátttöku sænska liðs ins Heims. Úrslit urðu bessi: Þróttur — Afture’ding 11:6 Ármann — ÍR 11:7 Vík — KR 9:8 Heim — Þróttur 11:9 Árm. — Vikingur 11:8 Heim — Ármann 14:4 Raístraamur drap kind SIGLUFIRÐI, 23. marz: — Það bar við nýlega hér á Siglufirði, að háspennulína í fjallshlíðinni fyrir sunnan og ofan bæinn slitn aði, og lenti strengurinn niður á þak á fjárhúsi, sem er þarna nálægt. Rafstraumur hljóp í bárujárn hússins og í kind, sem var að drekka vatn í fjárhúsunum. Féll hún þegar dauð niður, en aðrar kindur, sem voru í húsinu, sak aði ekki. Einn maður var viðhgegningar í fjárhúsinu, en til allrar ham- in<?iu náði rafstraumurinn ekki til hans. Gert var við línuna hið bráðasta, og var bví ekki straum 'laust lengi af völdum hennar. —Guðjón. Frnmhaldsaðal- * r r mndur L.I.U. í da^ kl. 2 KL. 2 síðdegis í dag hefst fram- haldsaðalfundur Landssambands ísl. útvegsmanna í Tjarnarkaffi hér í Reykjavík. Eins og kunnugt er, er hér um að ræða aðalfund sambandsins fyrir starfsárið 1959 til 1960. Upp haflega hófst fundurinn 10. nóv. s.l. og stóð þá nokkra daga- Var fundinum þá frestað til 12. des. Þegar fundurinn 12. des. var haldinn voru ekki fengin úrslit um nokkur mikilsverð mál, sem miklu skiptu fyrir útgerð á vetr arvertíð, svo sem fiskverð frá fiskkaupendum og sjómannakjör in, en þá voru lausir samningar sjómannafélaganna um land allt. Ennfremur var rætt um sérstak ar aðgerðir til bættra lánakjara fyrir sjávarútveginn. — Svo sem kunnugt er, ákvað ríkis- stjórnin um s.l. áramót að leita lausnar á þeim málum fyrir milligöngu Stofnlánadeildar sjáv arútvegsins. Eins og fyrr segir hefst þessi annar framhaldsaðalfundur LÍÚ kl. 2 síðdegis í dag, og verða þar kynnt og rædd úrslit þessara mála. Þingmenn hafa verið mjög há værir im þessi mál 1 þingsölum og þingnefndir hafa sundrast i því og komið saman á ný til að reyna málamiðlun. Lokaumræða í Stórþinginu um málið stóð í níu klukkustundir. Álit sem meirihlti stækkaðrair utanríkis- og stjórnlaganefndar hafði lagt fram var samþykkt, en í því felst, að litlir norskir togar ar undir 300 tonnum megi veiða á svæðinu milli 4 og 6 mílur frá grunnlínu, en að stærri norskir togarar verði að fara út fyrir 6 mílna fiskveiðitakmörkin eftir 1. október n.k. Þingmenn Finnmerkur börðust harkalega gegn því að botnvörpu skip fengju að veiða innan 6 mílna markanna og sérstaka á- herzlu lögðu þeir á það að stærrl togurunum yrði vísað út fyrir S milna takmörkin ekki síðar en 1. júlí. | Ráðstefnu Vöhu lýkur í kvöld Ráðstefnu Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta, sem haldin var hér í bænum um s.I. helgi, gat ekki lokið þá eins og áformað hafði verið. Þegar fundarhöldum lauk á sunnudagskvöld var enn óaf- greitt álit einnar nefndar ráð stefnunnar, utanríkisnefndar. Verður álit nefndarinnar tek ið til afgreiðslu á fundi í kvöld. Verður fundurinn hald inn í Tjarnarkaffi (uppi). í Fulltrúar ráðstefnunnar eri’ hvattir til þess að mæta stun'1 víslega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.