Morgunblaðið - 08.04.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 08.04.1961, Síða 1
24 sfður með Sarn&lesbók 48. árgangur 78. tbl. — Laugardagur 8. apríl 1961 Prentsmiðja Morgunblaðsina Brezk stórblöö fordæma togaraverkfallið í Hull og Grimsby Hugsanlegt að deilan leysist um helgina Ijfc Óbyrlega er nú farið að blása fyrir verkfallsmönnum í Grimsby og Hull, að því er segir í fréttaskeytum frá Beuters-fréttastofunni í gær. 3^ Að vísu hélt verkfallið enn áfram í gær og náði orðið til 30 togara í Hull og 180 fiskiskipa af ýmsum stærð- um í Grimsby. En tvö af kunnustu stórblöðum Breta fordæmdu verk- fallið í dag. Þau voru Times, mikilsvirtasta blað Breta og Daily Mirror, stærsta og útbreiddasta blað heims. Deily Mirror segir í stuttu máli, að verkfallið sé alger- lega óréttmætt og ábyrgðarlaust. Þá eru þau umm.æli höfð eftir Mr. Cyril Osborne, íhalds- þingmanni Grimsby, að líklegt sé að verkfallinu ljúki um helgina. Osborne, sem var staddur í London sagðist vera á leiðinni til Grimsby. Þar ætlaði hann að tala bæði við togaraeigendur og verkfallsmennina sem eru áhafnir togara og fiskiskipa. í einkaskeyti frá London segir, að engum manni í Eng- landi komi til hugar, að verkfallið verði leyst á nokk- urn hátt á kostnað íslendinga. Engum kemur annað til hugar, en að samningurinn við ísland muni standa ó- haggaður eftir og að íslendingar haldi áfram.að landa fiski í brezkum höfnum. fjfc- Líklegast er talið að verkfallið verði leyst með einhverj- um umbótum í kaupi eða aðbúð togarasjómanna. Tk Háðsglósur við höfnina í>að var púað í gær af hafn arbakkanum í Hull á eftir þrem ur brezkum togurum, sem sigldu úr höfn til veiða og gerðust þannig fyrstir til þess að brjóta verkfallið. Mikill kurr var í mannfjölda, sem safnazt hafði saman við höfnina, er skipin voru að búa sig af stað og kváðu við háðsglósur og haturs- óp. Togaramir sem sigldu úr höfn voru: „Cape Spartel“, „Lord Willoughby“ og „Arctic Crusad- er“. Verkfallsverðir gerðu ekk- ert til að hindra siglingu skip- anna, þar sem skipstjórar þeirra voru ekki félagsbundnir menn. Samt ríkti mikil óánægja með þetta hjá togarasjómönnum, en ekkert var aðhafzt og engu valdi beitt, enda öflugur lögregluvörð- ur við höfnina. ■jk 2500 í verkfalli í Grimsby í Grimsby er verkfallið miklu víðtækara en í Hull. í Hull nær verkfallið aðeins til togara, en í Grimsby til mest alls fiskiskipaflotans. 1 Grimsby hafa 2500 sjómenn lagt niður vinnu og 180 skip eru stöðvuð. I morgun gerði Grimsby-togar- inn „Boston Vanguard" aðra til- raun til að komast á veiðar og brjóta verkfallið. En þá hlupu fimm hásetar af toogaranum á síðustu stundu í land. Eigendur togarans segja, að þeir muni ekki gera fleiri tilraunir til að 6igla togaranum. Hvorki togaraeigendur né fiski kaupmehn eiga neina aðild að verkfallinu. — Fiskikaupmenn segja, að verkfallið muni engin áhrif hafa á fiskmarkaðinn næstu 10 daga, því að togararn- ir halda áfram að koma inn af fjarlægum miðum. Ástæðan fyr- ir hinu háa verði sem íslend- ingarnir fengu fyrir afla sinn var ekki fiskskortur, heldur hin frábæru gæði íslenzka fisksins. Aðvörun til Dana! Togaraeigendur í Grimsby segja að í kvöld hafi byrjað við- ræður við Dennis Welch um lausn deilunnar. Framh. á bls. 23. Rauði flotinn missti skipherra Steig á land « Sví- þjóð og bað um hœli STOKKIIÓLMUR, 7. apríl (Reut er). — Lítið skip úr rússneska flotanum sigldi í nótt inn í sænska landhelgi, nærri upp í flæðarmál eyjarinnar Gotlands í Eystrasalti. í morgunsárinu sáu menn á ströndinni, að bátur var settur út og róið í land. Verkfallið er ein- göngu kjaradeila ÞAÐ HEFUR oftsinnis komið í ljós af fréttum af verkfalli tog aramanna í Grimsby og Hull, að landhelgissamningarnir séu aðeins notaðir sem tylliástæða fyrir verkfallinu. Annað muni búa að baki og þá fyrst og fremst að togarsjómennirnir vilji nota þetta í almennri- kjarabaráttu sinni. KEMUR VEL AB FA IZLENSKA FISKINN Málið er skýrt nokkuð í einkaskeyti til Mbl. frá Lon- don í gær: Það er eftirtakanlegt, segir I skeytinu, að togaraeigendur eru ekki mótfallnir fisklöndun um Islendinga. Þeir lýsa því meira að segja yfir, að íslend- ingar hlaupi undir bagga þeg- ar fiskmarkaðurinn er tregast ur. íslendingar komi aldrei með fisk til Bretlands þegar aðflutningurinn er mestur, að eins þegar virkileg þörf er fyrir aflann í Bretlandi. Islendingar hafa samkvæmt samningum frá 1956 leyfi til að landa árlega fiski í Bret- landi fyrir 1,8 millj. sterlings pund. Þannig voru löndunum þeirra takmörk sett og hags- munir brezkra togaraeigenda verndaðir. KJARADEILA Ef afli brezku togaranna minnkar þá snertir það fyrst og mest áhafnir togaranna. Þess vegna eru það fyrst og fremst yfirmenn á togurum og áhafnirnar sem hefja mótmælaaðgerðir. Nú vilja þeir fá einhverja sams- konar tryggingu og togaraeig- endur fengu 1956 fyrir því að kaup þeirra og kjör versni ekki. Um þetta og ekkert ann að snýst verkfall þeirra og það verður eingöngu leyst sem hver önnur kjaradeila. Hvorki Dennis Welch né neinum öðr um kemur til hugar að samn ingnum við ísland verði nú breytt. Pólitískur flóttamaður Skipherrann steig á land, og lét vísa sér til næsta hreppstjóra. í fyrstu gekk erfiðlega að skilja manninn, þar sem hann talaði rramandi tungumól og kunni að- eins fáein orð í þýzku. Þó fór það ekki milli mála, að hann ósk aði eftir að fá hæli í Svíþjóð sem pólitískur flóttamaður. Maðurinn var nú fluttur til bæjarins Hemse á Suður Gota- landi og þangað komu fulltrúar sænsku öryggisþjónustunnar. Þeir fengu að vita, að skipherr- ann væri 25 ára gamall, af lit- háískum ættum og hefði hann nú tekið ákvörðun að flýja ógnar- stjórn kommúnismans og kúgun Framh. á bls. 23. Þessa viku hefur verið ó- J venjulega gott skiðafæri og 1 fagurst vetrarveður á Hellis- 4 heiði. Kennarar í mörgum l skólum bæjarins hafa líka fall ’ ið fyrir þeirri freistingu aff leyfa krökkunum að skella aft ur skruddunum í einn dag og brugðið sér með þá á skíði. Á fimmtudag var Flengingar- brekkan ofan við Skíðaskál- ann í Hveradölum iðandi af sprækum krökkum. Þar voru komin börn úr Mýrahúsaskól anum á Seltjarnarnesi. Og f dagslok streymdu þau eldrauff í andliti af sólskininu og alveg uppgefin í bilana. Ljósmyndari Mbl., Ól. K. M., tók þcssa mynd af hluta af krakkahópnum, ásamt kenn urunum Pálli Guðmundssyni og Unni Ágústsdóttur. / Welch spáir lausn Seint í gærkvöldi barst Mbl. sú frétt frá Grimsby að Dennis Welch hefði lýst því yfir að loknum fundi með togaraeigendum í borg- inni, að „það gæti verið að endanlegu samkomulagi verði náð í deilunni á morg un, Iaugardag“. Sagði Welch, sem nú var óvanalega létt yfir, að fundurinn með full trúum togaraeigenda hafi verið langur og vinsamleg- ur. Hefja Júgó- slavarveiðar við ísland? U M sl. mánaðamót skýrði norska stórblaðið „Aftenpost en“ frá því — eftir blöðum í Færeyjum og Belgrad- blaðinu „Politika“ — að Júgó slavar séu nú að vinna að áætlunum um að hefja all- umfangsmiklar fiskveiðar á norðanverðu Atlantshafi, — fyrst og fremst við Færeyj- ar og ísland og síðar einnig á Grænlandsmiðum. Samkvæmt þessum fréttum, hyggjast Júgóslavar smíða tvö til þrjú hraðskreið, nýtízku-fiskiskip með slíkar veiðar fyrir augum, og ef reynslan af þeim verður góð, kvað fyrirhugað að smíða a. m. k. 18 skip á 5 ára tímabili til veiða á fyrrgreindum miðum — og reikna þá Júgóslavar með um 22 þúsund tonna afla á ári, sem er mun meira en þeir veiða nú á nálægum miðum. ,.4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.