Morgunblaðið - 08.04.1961, Blaðsíða 1
24 sfður með Sarn&lesbók
48. árgangur
78. tbl. — Laugardagur 8. apríl 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Brezk stórblöö fordæma togaraverkfallið
í Hull og Grimsby
Hugsanlegt að deilan leysist
um helgina
Ijfc Óbyrlega er nú farið að blása fyrir verkfallsmönnum
í Grimsby og Hull, að því er segir í fréttaskeytum
frá Beuters-fréttastofunni í gær.
3^ Að vísu hélt verkfallið enn áfram í gær og náði orðið
til 30 togara í Hull og 180 fiskiskipa af ýmsum stærð-
um í Grimsby.
En tvö af kunnustu stórblöðum Breta fordæmdu verk-
fallið í dag.
Þau voru Times, mikilsvirtasta blað Breta og Daily
Mirror, stærsta og útbreiddasta blað heims.
Deily Mirror segir í stuttu máli, að verkfallið sé alger-
lega óréttmætt og ábyrgðarlaust.
Þá eru þau umm.æli höfð eftir Mr. Cyril Osborne, íhalds-
þingmanni Grimsby, að líklegt sé að verkfallinu ljúki
um helgina. Osborne, sem var staddur í London sagðist
vera á leiðinni til Grimsby. Þar ætlaði hann að tala
bæði við togaraeigendur og verkfallsmennina sem eru
áhafnir togara og fiskiskipa.
í einkaskeyti frá London segir, að engum manni í Eng-
landi komi til hugar, að verkfallið verði leyst á nokk-
urn hátt á kostnað íslendinga. Engum kemur annað til
hugar, en að samningurinn við ísland muni standa ó-
haggaður eftir og að íslendingar haldi áfram.að landa
fiski í brezkum höfnum.
fjfc- Líklegast er talið að verkfallið verði leyst með einhverj-
um umbótum í kaupi eða aðbúð togarasjómanna.
Tk Háðsglósur við höfnina
í>að var púað í gær af hafn
arbakkanum í Hull á eftir þrem
ur brezkum togurum, sem sigldu
úr höfn til veiða og gerðust
þannig fyrstir til þess að brjóta
verkfallið. Mikill kurr var í
mannfjölda, sem safnazt hafði
saman við höfnina, er skipin
voru að búa sig af stað og
kváðu við háðsglósur og haturs-
óp.
Togaramir sem sigldu úr höfn
voru: „Cape Spartel“, „Lord
Willoughby“ og „Arctic Crusad-
er“. Verkfallsverðir gerðu ekk-
ert til að hindra siglingu skip-
anna, þar sem skipstjórar þeirra
voru ekki félagsbundnir menn.
Samt ríkti mikil óánægja með
þetta hjá togarasjómönnum, en
ekkert var aðhafzt og engu valdi
beitt, enda öflugur lögregluvörð-
ur við höfnina.
■jk 2500 í verkfalli í Grimsby
í Grimsby er verkfallið
miklu víðtækara en í Hull. í
Hull nær verkfallið aðeins til
togara, en í Grimsby til mest
alls fiskiskipaflotans. 1 Grimsby
hafa 2500 sjómenn lagt niður
vinnu og 180 skip eru stöðvuð.
I morgun gerði Grimsby-togar-
inn „Boston Vanguard" aðra til-
raun til að komast á veiðar og
brjóta verkfallið. En þá hlupu
fimm hásetar af toogaranum á
síðustu stundu í land. Eigendur
togarans segja, að þeir muni
ekki gera fleiri tilraunir til að
6igla togaranum.
Hvorki togaraeigendur né fiski
kaupmehn eiga neina aðild að
verkfallinu. — Fiskikaupmenn
segja, að verkfallið muni engin
áhrif hafa á fiskmarkaðinn
næstu 10 daga, því að togararn-
ir halda áfram að koma inn af
fjarlægum miðum. Ástæðan fyr-
ir hinu háa verði sem íslend-
ingarnir fengu fyrir afla sinn
var ekki fiskskortur, heldur hin
frábæru gæði íslenzka fisksins.
Aðvörun til Dana!
Togaraeigendur í Grimsby
segja að í kvöld hafi byrjað við-
ræður við Dennis Welch um
lausn deilunnar.
Framh. á bls. 23.
Rauði flotinn
missti skipherra
Steig á land « Sví-
þjóð og bað um hœli
STOKKIIÓLMUR, 7. apríl (Reut
er). — Lítið skip úr rússneska
flotanum sigldi í nótt inn í
sænska landhelgi, nærri upp í
flæðarmál eyjarinnar Gotlands í
Eystrasalti. í morgunsárinu sáu
menn á ströndinni, að bátur var
settur út og róið í land.
Verkfallið er ein-
göngu kjaradeila
ÞAÐ HEFUR oftsinnis komið í
ljós af fréttum af verkfalli tog
aramanna í Grimsby og Hull,
að landhelgissamningarnir séu
aðeins notaðir sem tylliástæða
fyrir verkfallinu. Annað muni
búa að baki og þá fyrst og
fremst að togarsjómennirnir
vilji nota þetta í almennri-
kjarabaráttu sinni.
KEMUR VEL AB FA
IZLENSKA FISKINN
Málið er skýrt nokkuð í
einkaskeyti til Mbl. frá Lon-
don í gær:
Það er eftirtakanlegt, segir
I skeytinu, að togaraeigendur
eru ekki mótfallnir fisklöndun
um Islendinga. Þeir lýsa því
meira að segja yfir, að íslend-
ingar hlaupi undir bagga þeg-
ar fiskmarkaðurinn er tregast
ur. íslendingar komi aldrei
með fisk til Bretlands þegar
aðflutningurinn er mestur, að
eins þegar virkileg þörf er
fyrir aflann í Bretlandi.
Islendingar hafa samkvæmt
samningum frá 1956 leyfi til
að landa árlega fiski í Bret-
landi fyrir 1,8 millj. sterlings
pund. Þannig voru löndunum
þeirra takmörk sett og hags-
munir brezkra togaraeigenda
verndaðir.
KJARADEILA
Ef afli brezku togaranna
minnkar þá snertir það fyrst
og mest áhafnir togaranna.
Þess vegna eru það
fyrst og fremst yfirmenn á
togurum og áhafnirnar sem
hefja mótmælaaðgerðir. Nú
vilja þeir fá einhverja sams-
konar tryggingu og togaraeig-
endur fengu 1956 fyrir því að
kaup þeirra og kjör versni
ekki. Um þetta og ekkert ann
að snýst verkfall þeirra og það
verður eingöngu leyst sem
hver önnur kjaradeila. Hvorki
Dennis Welch né neinum öðr
um kemur til hugar að samn
ingnum við ísland verði nú
breytt.
Pólitískur flóttamaður
Skipherrann steig á land, og
lét vísa sér til næsta hreppstjóra.
í fyrstu gekk erfiðlega að skilja
manninn, þar sem hann talaði
rramandi tungumól og kunni að-
eins fáein orð í þýzku. Þó fór
það ekki milli mála, að hann ósk
aði eftir að fá hæli í Svíþjóð sem
pólitískur flóttamaður.
Maðurinn var nú fluttur til
bæjarins Hemse á Suður Gota-
landi og þangað komu fulltrúar
sænsku öryggisþjónustunnar.
Þeir fengu að vita, að skipherr-
ann væri 25 ára gamall, af lit-
háískum ættum og hefði hann nú
tekið ákvörðun að flýja ógnar-
stjórn kommúnismans og kúgun
Framh. á bls. 23.
Þessa viku hefur verið ó- J
venjulega gott skiðafæri og 1
fagurst vetrarveður á Hellis- 4
heiði. Kennarar í mörgum l
skólum bæjarins hafa líka fall
’ ið fyrir þeirri freistingu aff
leyfa krökkunum að skella aft
ur skruddunum í einn dag og
brugðið sér með þá á skíði.
Á fimmtudag var Flengingar-
brekkan ofan við Skíðaskál-
ann í Hveradölum iðandi af
sprækum krökkum. Þar voru
komin börn úr Mýrahúsaskól
anum á Seltjarnarnesi. Og f
dagslok streymdu þau eldrauff
í andliti af sólskininu og alveg
uppgefin í bilana.
Ljósmyndari Mbl., Ól. K.
M., tók þcssa mynd af hluta
af krakkahópnum, ásamt kenn
urunum Pálli Guðmundssyni
og Unni Ágústsdóttur. /
Welch
spáir
lausn
Seint í gærkvöldi barst
Mbl. sú frétt frá Grimsby
að Dennis Welch hefði lýst
því yfir að loknum fundi
með togaraeigendum í borg-
inni, að „það gæti verið að
endanlegu samkomulagi
verði náð í deilunni á morg
un, Iaugardag“. Sagði Welch,
sem nú var óvanalega létt
yfir, að fundurinn með full
trúum togaraeigenda hafi
verið langur og vinsamleg-
ur.
Hefja Júgó-
slavarveiðar
við ísland?
U M sl. mánaðamót skýrði
norska stórblaðið „Aftenpost
en“ frá því — eftir blöðum
í Færeyjum og Belgrad-
blaðinu „Politika“ — að Júgó
slavar séu nú að vinna að
áætlunum um að hefja all-
umfangsmiklar fiskveiðar á
norðanverðu Atlantshafi, —
fyrst og fremst við Færeyj-
ar og ísland og síðar einnig
á Grænlandsmiðum.
Samkvæmt þessum fréttum,
hyggjast Júgóslavar smíða tvö til
þrjú hraðskreið, nýtízku-fiskiskip
með slíkar veiðar fyrir augum,
og ef reynslan af þeim verður
góð, kvað fyrirhugað að smíða
a. m. k. 18 skip á 5 ára tímabili
til veiða á fyrrgreindum miðum
— og reikna þá Júgóslavar með
um 22 þúsund tonna afla á ári,
sem er mun meira en þeir veiða
nú á nálægum miðum.
,.4