Morgunblaðið - 08.04.1961, Síða 15

Morgunblaðið - 08.04.1961, Síða 15
Laugardagur 8. aprH 19611] MORGVNBLAÐ1D 15 Jón Gíslason frá Stórufellsóxl, minningarorð í DAG fer fram á Akranesi út- iör háaldraðs bónda og fræði- tmanns, Jóns Gíslasonar, sem iengi var kenndur við Stóru- íellsöxl í Skilmannahreppi en ft>ar bjó hann búi sínu nokkuð á 'fjórða áratug. Við fráfall Jóns Gíslasonar er horfinn úr röðum bændastéttar lands vors einn ft>eirra manna, sem um síðustu laldamót hófu upp merkj fram- fara og umbóta í atvinnuháttum 'og félagslífi í landinu. En um Iþær mundir eru fyrstu fram- farasporin stígin sem nokkuð Ikvað að og varanleg verða með þjóðinni. Viðbrögð aldamótakyn- tlóðarinnar á íslandi, trú henn- ®r á framtíð lands og þjóðar, fórnarlund og hugsjónakraftur, Ihefir markað djúp spor í þjóð- lífi voru. í þeirri vakningu, sem þá fór um landið, eru fólgnar rætur þeirra miklu og hraðstígu framfara sem orðið hafa í landi voru á þessari öld. Þjóð vor stendur því í mikilli þakkar- Bkuld við þá kynslóð er þessum Btraumhvörfum olli. Jón Gíslason var fæddur í Btórabotni í Hvalfjarðarstrandar Ihreppi 14. júlí 1870. Voru for- leldrar hans Gísli Gíslason bóndi !þar og fræðimaður og kona hans 'Jórunn Magnúsdóttir. Ólst Jón J>ar upp í stórum systkinahóp. IStóribotn er landkostajörð, en Var á þeim tima erfið til nytja, því aðallandkostir jarðarinnar, Ibæði til slægna og beitar, voru Itil heiða. Það lætur því að lík- lim að þau Stórabotnssystkinin ihafi snemma orðið að taka hend- Snni til við heyskap og fjárgæzlu log öflun búsforða handa hinu fjölmenna heimili. Við þessar að- Istæður óx þeim systkinum dug- lur og viljaþrek til starfs og at- Ihafna heima og heiman. Ungur ttór Jón Gíslason til sjávar á ver- ttíðum, svo sem þá var títt um sunga menn í sveitum. Hin harða llífsbarátta á þeim tíma krafðist Sþess, að einskis færis væri látið Ófreistað til þess að draga björg 5 bú. Stundaði Jón með þessum hætti sjómennsku um langt Iskeið og var hinn ötulasti við Bjósóknina sem öll önnur störf. (Dvaldist Jón með foreldrum sín- um í Stórabotni til þrítugsald- lurs. En aldamótaárið verða fþáttaskil í lífi hans. Þá hóf hann Bjálfur búskap á Stórufellsöxl í ISkilmannahreppi. Fluttúst for- eldrar hans með honum að IStórufellsöxl og þau af systkin- Um hans er eigi voru áður að Iheiman farin. Hafði Gísli faðir Jóns verið leiguliði í Stóra- Ibotni. Fyrstu búskaparár Jóns 6 Stórufellsöxl hafði hann bygg- 5ngu á þeirri jörð en keypti hana ter frá leið. * Aður en Jón kvæntist var Imóðir hans fyrir búi hjá honum »g síðar Elísa hálfsystir hans. *Var bún af fyrra hjónabandi Jórunnar móður Jóns, en hún Var áður gift Bjarna Helgasyni, bónda í Stóra-botni og voru auk Elísu synir hennar frá því hjóna- Ibandi bændahöfðingjarnir Bjarni hreppstjóri í Geitabergi og Svein björn bóndi í Efsta-Bæ. Jón Gíslason hóf brátt, eftir 'komu sína að Stórufellsöxl, um- bætur á jörðinni. Sléttaði hann túnið og græddi út. Byggði íbúðarhús úr steini og öll pen- ingshús reisti hann frá grunni. Jón Gíslason var greindur maður eins og hann átti kyn til. Hann hafði traust minni og varðveitti þar mikinn fróðleik er hann hafði numið af lestri bóka og frásögn föður síns, sem var hinn mesti fræðasjór. Minn ist sá sem þessar línur ritar, ánægjulegra stunda, er hann ásamt fleiri gangnamönnum, sem gistu á Stórufellsöxl nóttina áður en gengið var til leitar í Aura- fjalli, er þeir sátu við fótskör þessa háaldraða sagnaþuls og hlýddu hugfangnir á fjölþætta frásögn hans. Jóni Gíslasyni voru brátt falin mannaforráð í félagsmálum sveit ar sinnar. Hann gegndi þar um langt skeið oddvitastörfum og var sýslunefndarmaður. Við þeim störfum tók síðar af hon- um Gísli bróðir hans er þá hafði reist bú í Litla-Lambhaga. Jón Gíslason var mjög vinsæll mað- ur, gestrisinn og greiðasamur og vildi af alhug hvers manns vandræði leysa. Á síðustu búskaparárum Jóns Gíslasonar sótti á hann sjón- depra, sem ágerðist er tímar liðu og olli því að hann varð að láta af búskap. Fluttist hann þá á Akranes og dvaldi þar til dauða- dags. Síðar fékk hann, með augnauppskurði, bót ráðna á sjóndeprunni, og gat þá, meðan heilsa entist gengið til starfa og hafið aftur bóklestur og var hon um sem eðlilegt er, hvortveggja kærkomið, því aldrei hafði hon- um, meðan sjónin var heil, fallið verk úr hendi og fróðleiksþorsti hans seiddi hug hans án afláts að nýjum lindum á sviði sögu og sagna. Jón Gíslason var kvænt- ur ágætri konu, Guðríði Stef- ánsdóttur hreppstjóra Bjarna- sonar á Hólanesi og konu hans Kristjönu Teitsdóttur. Eignuðust þau tvær dætur: Kristjönu, gift Sigurði Gunnarssyni fisksala og eiga þau fjögur börn. og Þórunni, gift Sigurjóni Jónssyni vélstjóra, sem einnig eiga fjögur börn. Eru dætur þeirra Jóns og Guðríðar búsettar á Akranesi. Jón Gíslason andaðist 30. marz sl. Kveð ég svo þennan tryggða- vin minn og samstarfsmann á mörgum sviðum um langt árabil hinztu kveðju með innilegu þakk læti, fyrir staðfasta tryggð og vináttu. Pétur Ottesen. stúlkur GAUTABORG í marz. — Sjö íslenzkar blómarósir hafa í: vetur dvalizt á lýðskólanum íj Kungálv skammt fyrir utanj Gautaborg. Skólanum lýkur um miðjan apríl og þá munu nokkrar stúlknanna halda heim meðan aðrar dveljastj hér í sumar við vinnu, — allar vilja þær fá sér nýj-j an kjól og kannske skó, en peningaráðin eru heldur bág-j borin. Á skólanum eru milli 50 og 60 nemendur frá öllum Norð-j urlöndunum auk Tékkóslóva-j kíu og Bandaríkjanna. I vet- ur áskotnaðist skólanum 800j þús. sænskar krónur í arf, frá búnaðarverkfræðingnumj Albert Ekman, sem lézt íj vetur. Erfðaskráin kveður svo á að nota eigi rentumar till námsstyrkja handa nemend- upphæð, sem nota skal á um frá Danmörku, Finnlandi, sama hátt og hina áður- íslandi og Svíþjóð. Mun þetta nefndu. samsvara um það bil 45.000 Skólastjóri í Kungalv er sænskur krónum á ári, svo Sture Altvall, sem lætur sér að um stóra upphæð er að mjög annt um hina íslenzku ræða, þegar miðað er við nem nemendur sína. endafjöldann. Sömuleiðis arf- Á myndinni eru talið frá leiddi Albert Ekman lýð- vinstri: Sigrún Gísladóttir, skólann í Sigtuna að sömu Reykjavík; Brynja Hlíðar, Reykjavík, Sigurborg Jóns- dóttir, Vestm.eyjum; Erna Stefáns, Reykjavík; Emilía Júlíusdóttir, Akranesi; Guð- finna Valgarðsdóttir, Akra- nesi, og Þorbjörg Ásmimds- dóttir, Reykjavík. — Ljósm. Lexmart Carlén. — Fréttaritari. Barnaheimili áfram í Tjarnarborg Á F U N D I bæjarstjórnar í fyrradag greindi borgar- stjóri, Geir Hallgrímsson, frá áformum um að halda áfram rekstri barnaheimilis- ins í Tjarnarborg, þar sem í vetur hefur verið leikskóli og föndur fyrir rúmlcga 100 börn. f ræðu sinni um málið sagði Sumkeppni um miiuiismeiki f TILEFNI 50 ára afmælis Hafn arfjarðarkaupstaðar, ákvað bæj arstjórn kaupstaðarins, að reisa táknrænt verk hafnfirzkri sjó- mannastétt til heiðurs. í þessu skyni var ákyeðið að efna til hugmyndaamkeppni meðal is- lenzkra listamanna með skilyrð- um, er sérstök dómnefnd setti. Við það skyldi miðað, að verkið yrði staðsett í garði sunnan Þjóð kirkjunnar og neðan væntanlegs ráðhúss, og garðurinn skipulagð- ur með sérstöku tilliti til þess. Með auglýsingum í fyrravor var leitað eftir tillögum, en þar sem árangur þótti ónógur, er nú enn efnt til ofangreindrar hug- myndasamkeppni. Hún er ekki bundin við styttu eða högg- mynd, heldur koma allar tillög- ur til greina. Væntanlegir þátttakendur skulu skila líkani að tillögum sínum ásamt greinargerð um fullnaðarframkvæmd verksins. Tillögumar skulu auðkenndar dulnefni, en nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi. Allar tillögur skulu hafa borizt dóm- nefndinni á skrifstofu bæjarverk fræðings Hafnarfjarðar fyrir 1. des. 1961. Dómnefnd er heimilt að veita verðlaun, samtals kr. 50 þús., er skiptast þannig: 1. verðlaun kr. 30 þús., 2. verðl. 15 þús. og 3. verðlaun 5 þús. kr. Dómnefnd skipa: Bjöm Th. Björnsson, formaður, Eiríkur Smith listmálari, Friðjón Sig- urðsson mælingamaður, Valgarð Thoroddsen rafveitustjóri, allir tilnefndir af bæjarstjóm og bæj arráði Hafnarfjarðar. Ennfrem- ur Friðrik Á. Hjörleifsson, til- nefndur af sjómannadagsráði Hafnarfjarðar. Allar nánari upplýsingar, ásamt skipulagsuppdrætti ofan- nefnds svæðis má fá á skrif- stofu bæjarverkfræðings í Hafn arfirði. Sé þess óskað, mun skrif stofan senda mönnum þessi gögn í pósti. Cizenga fellst á v/ð- rœður ANTOINE Gizenga, forsætisráð- herra Stanleyville stjómarinnar í Kongó, hefur fallizt á að eiga viðræður við fulltrúa stjómar- innar í Leopoldville, að því er tilkynnt var í Leopoldville í dag. Gizenga kveðst enn vera alger- lega andvígur myndun ríkjasam bands í Kongó, en fellst þó á viðræður. Hann óskar eftir, stð þær fari fram í Stanleyville eða í einhverri annarri borg nærri landamærum Oriental-héraðs. Geir Hallgrímsson, borgarstjóri m.a., að eins og bæjarfulltrúum væri kunnugt, hefði verið gert ráð fyrir því, að þegar byggingu barnaheimilis- ins Hagaborg yrði lokið og það tekið í notkun, yrði barnaheimilið í Tjarnarborg lagt niður. Þar sem hins vegar Gehefði komið í ljós, að þrátt J fyrir það, að í Hagaborg hefði í vetur verið rek ið dagheimili fyrir 88 börn í 4 deildum hefðu 105 börn sótt leik skóla og föndur í 4 deildum í Tjarnarborg. Væri nauðsynlegt að halda áfram slíkri starf- semi. Hefði því verið athug- að, hverju þyrfti að kosta til við gerðar á Tjarnarborg umfram eðlilegt viðhald, svo að slík starf semi gæti haldið þar áfram, og sá kostnaður áætlaður um 100 þús. kr. Sagðist Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, hafa talið eðlilegt að barnaheimili yrðu áfram rekin á báðum stöðunum fyrst um sinn. Lýsti bæjarstjórn sig fylgjandi þeirri ákvörðun. Úr ýmsum áftum Framh. af bls. 12. Rússarnir nokkra nemendur til að stofna félagssamtök hinna ýmsu þjóða. Somali- mennirnir, sem eru að eðlis- fari sjálfstæðir og voru leið- ir á að vera nefndir Abyss- iníumenn, neituðu flestir að vera með. Loks kom að þvi að þeim Somalimönnum, sem áttu fjöl skyldur og atvinnu heima, var nóg boðið. En þá komust þeir að því að það var erfið- ara að komast frá Moskvu en til. Þeim var hótað, óskum þeirra mætt með lygum og þeim var vísað úr einum stað í annan. Ahmed var heppinn. Eftir tveggja mánaða bið fékk hann bréf að heiman þar sem stóð að móðir hans væri veik og menntamáláráðuneytið af- henti honum farseðil heim. (The Sunday Times). Árshátíð verður í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og hefst með borð- haldi kl. 19,30. Heiðursgestur: A. J. BERTELSEN — 85 ára 17. apríl — iR-ingamir Svavar Gests og Ómar Ragnarsson sjá um skemmtiatriðin. Upplýsingar og aðgöngukort hjá formanni félagsins, Smiðjustíg 4, símar 10634 og 10777 til hádegis I dag — síðan við innganginn. — Dökk föt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.