Morgunblaðið - 30.06.1961, Síða 1
24 síður
143. tbl. — Föstudagur 30. júní 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Samningar undirritaðir. Á myndunum sjást Kjartan Xhors og Ingvar Vilhjálmsson og Halldór Björnsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Eðvarð Sigurðsson.
Dagsbrúnarverkfallinu lokið:
Samið um hlutiausa sjóðsstjdrn
Þessu samkomulagi var hægt að
ná fyrir 2—3 vikuni
U M kl. hálf fjögur í gærdag undirituðu samninganefndir
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Vinnuveitendasam-
bands íslands nýjan kjarasamning. Hafði síðasti sáttafund-
ur þessara aðila staðið í nær heilan sólarhring samfleytt
með nokkrum hléum.
Það atriði, sem samkomulagsumleitanir höfðu lengst
strandað á, skipun stjórnar styrktarsjóðs Dagsbrúnar, var
leyst þannig, að Dagsbrún og Vinnuveitendasambandið
nefna hvort um sig 3 aðalmenn í stjórn sjóðsins og 2 vara-
menn. Endurskoðendur sjóðsins verða 2, 1 skipaður af
hvorum aðila.
Er sérstaklega tekið fram í samningunum, að fé sjóðs-
Ins skuli varið til að standast straum af veikindum verka-
manna og sjúkrakostnaði. Einnig er ákvæði um það, að'
þess skuli ávallt gætt, að ráðstöfun á fé sjóðsins fari eigi
í bága við tilgang hans og verkefni. — Er þannig tryggi-
lega frá því gengið, að um misnotkun sjóðsins getur ekki
orðið að ræða.
Önnur helztu atriði samningsins eru þau, að allt kaup
hækkar nú þegar um 10%, og verði honum ekki sagt upp
1. júní 1962 hækkar kaup um 4% til viðbótar, svo að alls
verður bein kauphækkun 14% á einu ári. Þá greiðist eftir-
vinna með 60% álagi á dagvinnu og orlofsfé verður 6% af
öllu kaupi.
Að öllum fríðindum meðtöldum jafngildir útgjaldaaukn-
fng atvinnuveganna vegna samningsins þannig 18% kaup-
hækkun, sem sundurliðast þannig: 10% kauphækkun nú
þegar, 4% kauphækkun 1. júní 1962, 1% greiðist í styrktar-
sjóð, breyting á eftirvinnukaupi nemur 2% kauphækkun
og hækkun orlofsfjár er talin jafngilda 1% kauphækkun.
í einu veigamiklu atriði er um verulegt frávik að ræða
frá samningi þeim, sem SÍS hafði áður gert við Dagsbrún.
í SÍS-samningnum er gert ráð fyrir, að ætíð, þegar unnið
er utanbæjar og verkamönnum er ekki ekið heim til mál-
tíða, skuli vinnuveitandi greiða fæðiskostnað. Samkvæmt
samningi Vinnuveitendasambandsins og Dagsbrúnar skulu
verkamenn hins vegar aðeins fá frítt fæði eða dagpeninga
fyrir fæðiskostnaði, þegar þeir eru sérstaklega sendir til
vinnu utanbæjar. Er þetta ákvæði í samræmi við samn-
inga ýmissa iðnaðarmannafélaga, og afar þýðingarmikið í
tilfellum eins og t. d. við Sogsvirkjunina.
Loks má nefna, að þar sem það á við, að dómi aðila,
er ákvæðisvinna heimil eftir nánara samkomulagi.
í nánari atriðum er samning-
urinn sem hér segir:
ic Allt kaup hækkar nú þeg-
ar um 10%.
Á Þegar Dagsbrúnarmenn eru
sendir til vinnu utanbæjar og
þeim er ekki ekið heim á mál-
tíðum og (eða) að kvöldi, skulu
þeir fá frítt fæði eða dagpen-
inga fyrir fæðiskostnaði.
Eftirvinna greiðist með 60%
álagí og nætur- og helgidaga-
vinna með 100% álagi á dag-
vinnukaup.
★ Þar sem það á við, að dómi
stjórnar Dagsbrúnar og vinnu-
veitenda, er ákvæðisvinna heim-
il eftir nánara samkomulagi
aðila.
Á Lágmark orlofs skal vera 18
virkir dagar. Orlofsfé skal vera
6% af öllu kaupi.
ÍC Þar sem vinnuveitandi krefst
sérstaks vinnufatnaðar, leggur
Framhald á bls. 3.
Saltsíldar-
verðið
í gær tókust samningar milli
Fél. síldarsaltenda á Norður-
og~ Austurlandi og Landsamb.
ísl. útvegsmanna um verð á
fersksíld til söltunar norðan-
lands og austan í sumar. Hið
umsamda verð er 195 kr. fyr-
ir uppmælda tunnu, 120 lítra,
og 263 kr. fyrir uppsaltaða
tunnu, þrjú lög í hring.
Geysimikil síld barst á land
70 þúsund tunnur á hálfum
oðrum sólarhring — Síldin
20% feit - öll í salt
GEYSIMIKIÐ magn af feitri
og góðri síld barst á land í
fyrrinótt og gær. Frá því kl.
8 á miðvikudagsmorgun til
kl. 12 í gærkvöldi munu alls
um 70 þúsund tunnur síld-
ar hafa komið á land. Síld-
in er um 20% feit. — Hún
veiddist aðallega milli Kol-
beinseyjar og Rifsbanka, en
smáslatti á Strandagrunns-
miðum. Mikil vinna er nú í
síldarhöfnunum norðanlands,
einkum Siglufirði.
Mest til Siglufjarðar
SIGLUFIRÐI, 29. júní.
Frá því kl. 8 í gærmorgun til
jafnlengdar í morgun komu eða
tilkynntu komu sína alls 82
skip með samtals 52.290 mál og
tunnur. Frá því kl. 8 í morg-
un til kl. 10 í kvöld komu eða
tilkynntu komu sína 35 skip með
17—18 þúsund tunnur, svo að
alls nemur aflinn á þessum
tíma um 70 þúsund tunnum og
málum. Mestallt af þessu magni
hefur borizt hingað til Siglu-
fjarðar, en annars skiptist afl-
inn á marga staði, Raufarhöfn,
Húsavík og Eyjafjarðarhafnir.
Feit síld — kjölsaltað úr
bátunum
Öll hefur síldin farið í salt
að heita má, enda er hún stór
og falleg, um 20% feit. Fjöldi
bóta hefur komið með fullfermi,
og slík eru gæði sildarinnar, að
„kjölsaltað" er upp úr hverjum
báti, en svo komast sjómenn að
orði, þegar hver branda er hirt
úr skipinu og söltuð.
í nótt var saltað á mörgum
Frh. á bls. 23
Æ’orsæiisráðh. Finn-
lands biðst iausnar
\
Helsinki, 29. júní. — (Reuter) ibeðizt lausnar frá embætti
FORSÆTISRÁÐHERRA forsætisráðherra. Lagði hann
Finnlands, V. J. Sukselainen,' lausnarbeiðnina fyrir Kekk-
sem í gær var dæmdur frá onen, forseta landsins, í dag.
starfi aðalforstjóra lífeyris- Ekki var í dag látið neitt uppi
sjóðs finnska ríkisins, hefur j Framh. á bls. 23.