Morgunblaðið - 30.06.1961, Blaðsíða 23
Föstudagur 30. júní 1961
MORCUNBLAÐ1Ð
23
rezk herskip
Dregur til ti&inda i Persaflóa
á ieið til Kuwait
TEHERAN, fran, 29. júní (Reut-
er). — Grunur leikur á, að til tíð-
inda kunni að draga í furstadæm
inu Kuwait, áður en langt um
líður. Berast fregnir um, að brezk
herskip séu á leiðinni þangað.
Eftirlitsbátar frá frak skutu á
gufubáta frá fran í dag, er þeir
voru að flytja matvæli til Ku-
wait. Þaðan berast jafnframt þær
fregnir, að allmargir menn hafi
særzt alvarlega í átökum, sem
urðu i höfuðborginni Bazaarr í
dag milli þarlendra kaupmanna
og kaupmanna frá írak. Mjög er
óttazt að verið sé að undirbúa
skemmdarverk í Kuwait og nef-
ur hinum fámenna her landsins
— sem telur um þrjú þúsund
manns — verið skipað að vera
viðbúinn hverju sem er.
• Freigátur og flugvélaskip.
Sagt var í Kuwait í dag, að
tvær brezkar freigátur væru
væntanlegar til landsins á morg-
un til þess að verja m.a. olíu-
Ihreinsunarstöðina í Ahmadi. f»eg
ar hefur verið gerð tilraun til
þess að kveikja í stöðinni en hún
imistókst.
Þá segir í fréttum frá Hong
Kong, að brezku freigáturnar
— Sild
Framh. af bls. 1
plönum, i dag á öllum, og nú
í nótt verður hamazt á hverju
plani. Mörg skip bíða afgreiðslu.
Kvenfólki smalað af kappi.
Óhemjumargt fólk er komið
hingað, og þegar litið er niður
á bryggjur, er þar svart eins og
af flugnasveimi. Þó skortir eitt-
hvað enn af stúlkum. Öllu kven
fólki, sem rólfært er og rúm-
lega það, er smalað niður á
plönin til að salta. Segja gár-
ungarnir, að sumar dömumar
hafi ekki sézt árum saman úti
við, enda hafi þær löngu verið
taldar dauðar. Hér er ekki til
svo „háttsett“ frú í bænum, að
hún sé ekki komin í síldina.
Saltað i alla nótt
Hér verður sem sagt saltað af
kappi í alla nótt. í dag hefur
verið ágætis veður á miðunum
og margir fengið síld á sömu
miðum og í nótt, þ. e. milli
Kolbeinseyjargrunns og Rifs-
banka.
Veðrið versnar — mikil áta.
Seinni hluta dags fór veður
heldur að versna, og nú í kvöld
er kominn á austanstormur. Þeg-
ar fór að þyngja, sigldu skipin
flest upp undir Grjótnes, norð-
vestast á Melrakkasléttu og
liggja þar nú í vari. Síldin mun
hafa spillzt eitthvað við að slást
utan í, eftir að fór að hvessa, og
«ná vera, að verðmæti þessarar
fallegu síldar lækki eitthvað. Sjó
menn eru samt alls ókvíðnir, því
að þessi stormur getur ekki var-
að lengi, og mikil áta er í sjón-
um.
/Eglr finnur enn síld —
netamenn svefnvana.
Ægir hélt áfram að finna sild
& þessu svæði í dag, en hætti leit
inni undir kvöld vegna austan-
Bnerpustormsins.
Mikið er um það, að nætur
rifni, og hafa netamenn ekki und
an við að bæta netarifrildin. Ef-
ast ég um, að þeir nái tveggja
tíma svefni á sólarhring.
17 sklp yfir 1000 mál
og tunnur.
Þessi 17 skip voru með 1000
mál og tunnur eða meira:
Víðir IX. (1800) Haraldur
'(1700), Auðunn GK (1600), Ólatf
ur Magnússon KE (1600), Pétur
Sigurðsson (1550), Guðmundur
Þórðarson RE (1300), Sæþór
„Yarmouth“ og „Llandaff" hafi
skyndilega haldið frá Hong Kong
í dag og að því er sagt var, hald-
ið til Singapore. Ekki hefur feng
izt staðfest, hvort þær eigi síðan
að fara til Kuwait. Flugvélaskip-
ið „Victorious", sem átti að fara
til Hong Kong hefur sömuleiðis
fengið skipun um að halda til
Singapore. Annað flugvélaskip
„Bulwark" er á fyrirfram áætl
aðri ferð um Persaflóa.
í London sagði talsmaður
brezka flótamálaráðuneytisins, að
Bretar fylgdust nákvæmlega með
framvindu mála í Persaflóa, en
annars vildi hann ekkert um mál
ið segja.
Óstaðtfestar fregnir frá Kuwait
herma, að hermenn séu .komnir
þangað frá Saudi Arabíu, og hafi
þeir tekið sér stöðu á landamær-
um Kuwaits og íraks, sem nú
hefur verið lokað. Ekki er vitað
hversu fjölmennt lið þetta er.
Ennfremur segir, að hermenn frá
Jórdaníu séu væntanl. til lands
ins á morgun. Hinn fámenni her
Kuwait hefur fengið skipun um
að vera við öllu búin. Loks skýr
ir stjórnarblaðið A1 Ahran í
Kairo svo frá í dag, að tvö her-
fylki í írak hafi lagt síðdegis í
gær af stað til landamæranna.
(1300), Eldey (1200), Sigurður
Bjarnason EA (1200), Heiðrún
(1150), Baldur EA (1100), Snæ-
fell (1100) og 1000 tunnur höfðu
Ársæll Sigurðsson, Gylfi EA,
Helgi Helgason, Reynir AK og
Víðir SU.
M.s. Helgafell lestar hér síld-
ina, sem fékkst fyrst og fer til
Finnlands. — Guðjón.
Mikið saltað á Ólafsvík.
ÓLAFSFIRBI, 29. júní. — f gær-
kvöldi haíði verið saltað hér á
stöðvunum svo sem hér greinir:
Auðbjörg: 2200 tn. Jökull: 1750
og Stígandi: 1150. Þá höfðu 850
tunnur farið í frystingu.
Síðan í gærkvöldi og þangað
til kl. 9 í kvöld hafa eftirtalin
skip komið með síld: Guðrún
Þorkellsdóttir (750), Ólafur Bekk
ur (700), Sigurður Bjarriason
(1200), Víðir II. (1800), Guðbjörg
ÓF (650) Hafþór (250) og Björg
Eskifirði (700). Sæþór er á leið
til lands rétt ókominn með 1300
tunnur.
Nú vinna við síldarsöltun u.þ.
b. —160 súlkur. — J. Á.
Síldarsöltun í Dalvík.
Mikið er komi ðaf aðkomufólki
til Dalvíkur, enda veitti ekki af
því síðasta jsólarhringinn þá
barst mjög mikið magn af síld
þangað. Baldur kom með 1100 tn,
Tálknfirðingur með 900 Bjarmi
og Eldborg með 700 hvort, Árni
Geir með 550 og Júlíus Björns-
son með 200.
Hættir á
Litla Hrauni
HELGI VIGFÚSSON, fangavörð
ur og framkvæmdastjóri á Litla
Hrauni hefur nýlega beðizt lausn
ar frá starfi sínu.
— Iþróttir
Framh. af bls. 22
ust miðherjinn Nielsen og hægri
innherji Leo Nielsen vera beztu
menn liðsins auk markvarðarins,
sem oft varði af öryggi og verður
ekki sakaður um mörkin. Vörnin
er lakari hluti liðsins.
í KR-liðinu voru þeir Þórólfur
og Garðar Árnason menn dags-
ins og Heimir stóð sig vel í mark-
inu.
Rúnar Guðmannsson lék með
KR sem miðframvörður og rödd
heyrðist meðal áhorfenda sem
sagði: „Hann er mikið betri í
þessari peysu!“ — B.Þ.
• Átök í höfuðborg Kuwait.
Ferðamenn og sjómenn i
Abadan segja að eftirlitsbátar
frá frak hafi skotið á íranska
gufubáta, sem fluttu matvæli og
annan varning til Kuwait. Höfðu
um sjötíu bátar lagt upp frá íran,
í morgun, er kaupmenn frá Basra
héraðinu neituðu að annast þessa
flutninga. í Shatt-Al-Arab ■'rið
mynni fljótanna Tigrís og Efrat
hófu eftirlitsbátarnir skothríð,
en ekki er vitað hvort slys urðu
á mönnum. Hinsvegar höfðu all
margir særzt í Bazaarr í morgun,
er til átaka kom milli kaupmanna
frá Kuwait og írak. Fólk fór hóp
göngur um götur borgarinnar og
bar myndir af furstanum í Ku-
wait og íranskeisara. Lét fólkið
óspart í ljósi andúð á Kassem.
Sagt er, að allmargir menn frá
írak hafi verið handteknir í dag,
er þeir voru að breiða út áróður
og undirbúa skemmdarverk.
• Fundur Arabaráðsins 17. júlí.
Málgagn kommúnistaflokks
Ráðstjórnarríkjanna, Pravda,
ræðir fyrst í dag kröfu íraks til
Kuwait. Ræðir blaðið málið að-
eins lauslega og tekur afstöðu
með hvorugum aðila. Hins
— Sukselainen
Framh. af bls. 1
af hálfu Kekkonens forseta um
lausnarbeiðni Sukselainens, en á
mánudag er boðaður ráðuneytis
fundur með forsetanum og verð
ur þá tekin afstaða til lausnar-
beiðninnar. Ennfremur hefur
Sukselainen skýrt frá þvi, að
hann muni kalla miðstjórn
flokks síns, Bændaflokksins, til
fundar á mánudag.
í lausnarbeiðni forsætisráð-
herrans til Kekkonens forseta seg
ir meðal annars: — Enda þótt ég
geti ekki játað að ég sé sekur um
það afbrot, sem dómstóllinn i
Helsinki hefur dæmt mig fyrir
og þótt sá dómur snerti engan
veginn störf mín sem forsætis-
ráðherra landsins, kunna að líða
margir mánuðir þangað til ég
get náð rétti mínum fyrir hæsta
rétti.
Þar sem ég tel óviðeigandi, að
ég gegni skyldum forsætisráð-
herra þann tíma, óska ég að mega
leggja lausnarbeiðni mína fram
fyrir forseta lýðveldisins“.
Svo sem frá var sagt í gær var
Suksalainen dæmdur til að
greiða fésekt og honum gert að
láta af forstjórastarfi sínu, en
með honum voru dæmdir 16
aðrir stjórnarmeðlimir lífeyris-
sjóðsins. Mál þeirra hefur verið í
rannsókn í meira en ár.
Sukselainen var fæddur árið
1906. Að loknu háskólanámi í
Helsinki gerðist hann fyrst blaða
maður, en síðar kennari í hag
fræði. Árið 1944 varð hann for
maður finnska Bændafl. og
hefur verið það siðan.
Áður en Sukselainen varð for
sætisráðherrað hafði hann gegnt
embættum fjármálaráðherra og
innanríkismálaráðherra. Forseti
finnska þingsins var hann 1956.
— Dr. Fitch
Framh. af bls. 24.
ins, hafði aðeins fundist lík eins
stúdentsins auk flaksins af bátn
um.
Þegar Garm kemur að hafnar
bakkanum á Akureyri mun lík
bíll bíða þar og tak lík stúdents
ins. örðugt verður að koma því
áfram vegna verkfallsins, þar
sem ekki er strax um flugferðir
að ræða.
Eftirlitsskipið Garm óskaði eft
ir að fá að taka olíu er það kæmi
til Akureyrar, en því var þá til-
kynnt að þar væri enga olíu að
fá vegna verkfallsins. Skipið á-
kvað að koma samt til hafnar,
en það mun í leiðinni sækja
norska sjóliða, sem settir voru á
íand í síðustu viku.
vegar segir blaðið, að heims
veldasinnar í Bretlandi og Banda
ríkjunum séu að reyna að hleypa
þar öllu í bál. Tali jafnvel banda
rískir fréttamenn um, að CENTO
bandalagið grípi 1 taumana.
Þeir Saud konungur í Saudi
Arabíu og Nasser forseti Ara-
bíska Sambtmdslýðveldisins hafa
í gær Og í dag skipzt á skeytum
vegna Kuwait og furstinn þar
hefur einnig símað til Nassers og I
látið í ljósi þá ósk, að hann megi
treysta á stuðning Nassers við
hinn löglega rétt Kuwaits til að
vernda sjálfstæði sitt
I Amman í Jórdaníu átti banda
riski sendiherrann, William Mac
omber, viðræður við forsætisráð
herra landsins Bahjat Talhouni,
um Kuwait. Sagði Talhouni síðar
í dag við fréttamenn, að Jórdaníu
hefði ekki verið boðið að taka
þátt í fundi Arabaráðsins um
Kuwait, sem boðað hefur verið
til 17. júlí n.k., en Jórdanir væru
reiðubúnir að taka þátt í þeim
fundi.
Óstaðfestar fregnir herma að
frak hafi tekið fyrir allar vega-
bréfsáritanir frá landinu alla
næstu viku, vegna hátíðahalda er
þar verða í tilefni af þriggja ára
afmæli lýðveldisins — en sem
kunnugt er gerði Kassem hers-
höfðingi byltingu í írak 14. júlí
1958.
Þá hefur eitt að aðalblöðunum
í írak birt á forsíðu stóra mynd
af skjali, sem blaðið segir sönn-
un á réttmæti kröfu íraks til
Kuwats. Er skjalið undirritað af
héraðstjóra Basra-héraðsins í ír
ak og herforingja frá Bagdad og
það er stílað til Mubarak Assa-
bam fursta, þess, er árið 1899
undirritaði samkomulagið við
Breta um að þeir tækju við
verndargæzlu í Kuwait.
— Þingmenn
Framh. af bls. 18
því að útvega þetta fé og höfðu
þeir tekið vel í það.
Síðan var gengið um Ólafs-
víkurhöfn og kynntu alþingis-
mennirnir sér staðhætti alla og
áætlanir Ólafsvíkinga.
★ Vegagerð
Um daginn var alþingis-
mönnunum boðið inn að Bú-
landshöfða. Þar er nú unnið að
vegagerð og voru tvær öflugar
jarðýtur að verki. Standa von-
ir til að hægt veröi að aka fyr-
ir Búlandshöfða í lok þessa árs.
Þingmennirnir héldu heim
seint á þriðjudagskvöld eftir að
hafa setið kvöldverðarboð hrepps
nefndarinnar.
Stýrimannafélag
íslands
heldur fund 30. júní kl. 17 að Bárugötu
11, uppi, — Félagar fjölmennið.
Stjórnin
ABIGAEL JÓNSDÓTTIR
frá Þingeyri
andaðist í Elliheimilinu að Sólvangi, Hafnarfirði, 28.
þ.m. — Útförin auglýst síðar.
Vandamenn
Faðir minn
ÓLAFUR BÖÐVARSSON
andaðist 24. júní. — Útförin hefur farið fram.
Hafnarfirði, 29. júní 1961.
María E. Ólafsdóttir
Faðir minn
HJÁLMTÝR JÓHANNSSON
Snorrabraut 42
andaðist í Landakotsspítala miðvikudaginn 28. júní
Jóhann Hjálmtýsson
Móðir okkar
GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR
Sólmundarhöfða, Akranesi
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju laugardaginn L
júlí. — Athöfnin hefst með bæn að heimili hennar kL
1,30. — Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast
hennar, er bent á sjúkrahús Akraness.
Synir hinnar látnn
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
FRÚ STEFANfU GfSLADÓTTUR
Hverfisgötu 39
Aðstandendur
Innilega þökkum við öllum þeim, sem sýndu samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför systur okkar
STEFANÍU SIGFÚSDÓTTUR
Sérstaklega þökkum við hjónunum Helgu Eiríksdóttur
og Guðmundi Jónssyni, Starhaga 14 fyrir órofa tryggð
og hjájpsemi við hina látnu.
Jónítna Sigfúsdóttir, Árni Sigfússon