Morgunblaðið - 30.06.1961, Qupperneq 2
2
MORGXJTSBLAÐIÐ
Föstudagur 30. júní 1961
Iðja semur án verkfalls
/* NAIShnútor S* SV SOhnútar H Snjókoma 9 06i *** V Sirúrir R Þrumur ’W&S, V\ !| Ni HHmt É L*Laq» |
M 6 I9SI hl. 6 1 .£000 M l(M
Almennar kauphækkanir og
hlutlaus stjórn sjúkrasjóðs
1 GÆRKVÖLDI undirrituðu samninganefndir Iðju, félags
verksmiðjufólks og Félags íslenzkra iðnrekenda nýjan
kjarasamning. Er samkomulagið gert að áskildu samþykki
félagsfunda. Iðja heldur fund í kvöld kl. 20.30 til þess að
fjalla um samkomulagið, en fundarstaður var óákveðinn
í gærkvöldi. Fundur FÍI verður í Þjóðleikhúskjallaranum
og héfst kl. 3 í dag. Samkomulagið var ekki hirt í gær-
kvöldi, en samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðinu
tókst að afla sér, eru helztu ákvæði þess sem hér segir:
• Samningurinn gildir til 1.
júní 1962 og er uppsegj anlegur
með 1 mánaðar fyrirvara. Verði
honum eigi sagt upp þá, fram-
lengist hann um 6 mánuði í senn
með sama uppsagnarfresti, en
jafnframt hækkar kaupgjald sam
kvsemt ákvæðum samningsins
um 4% —frá og með 1. júní 1962.
• Loks eru í samningnum heim
ildarákvæði til uppsagnar vegna
hækkunar vísitölu framfærslu-
kostnaðar og gengisbreytingar.
Eru þau ákvæði sams konar og
í öðrum samningum, sem gerðir
hafa 'verið að undanförnu.
í gær var A- og SA-átt á fyrir norðan. Á norðurmiðum
, .. . , ... _ var gola eða kaldi og þoka til
’ 6 hafsms. Lægðin fyrir sunnan
skúrir sunnanlands, en þurrt land barst allhratt NNA.
Ákafar deilur á fyrir-
lestri I Háskólanum í gœr
um trjárækt og náttúruvernd
• Karlakaup hækkar nú þegar
um allt frá 11% til 19.6%.
• Kvennakaup hækkar nú þeg
ar um allt frá 14% til 22.6%.
• Verði samningnum ekki sagt
upp 1. júní 1962 hækkar kaup þá
um 4% til viðbótar.
Sátta-
fundir
SÁTTASEMJARAR héldu
fundi í gærkvöldi með
samninganefndum iðnaðar
mannafélaganna og vinnu-
veitcnda, ennfremur samn
inganefnd Vörubílstjórafé-
lagsins Þróttar og vinnu-
veitenda. Hófust fundirnir
kl. 9. Fundi Þróttar og
vinnuveitenda lauk um
miðnætti án þess að sam-
komulag næðist.
Sáttafundinum með iðn-
aðarmönnum og vinnuveit
endum var hins vegar ekki
lokið, þegar blaðið fór í
prentun.
Framh. af bls. 24.
breyzt í aðalatriðum eins og hér
•egir:
1. Tímakaupsmenn fá kauphækk-
un 11%, eins og samið var um
við vinnuveitendur á Akranesi
fyrr í mánuðinum, en engin
greiðsla í styrktarsjóð verka-
manna.
2. Eftirvinnuálag hækkar úr 50%
í 60%, sömuleiðis til samræmis
við áður gerða samninga á
Akranesi.
3. Kaup mánaðarkaupsmanna
hækkar um 12,25%, og er
hækkunin umfram 11% raun-
verulega til leiðréttingar á
fyrri samningsákvæðum.
4. Menn, sem starfað hafa í verk-
smiðjunni eitt ár eða lengur,
skulu teknir á mánaðarkaup.
Fallizt var á þetta ákvæði til
samræmis við kjör verka-
manna innan verksmiðjunnar.
5. Kaup mánaðarkaupsmanna
hækkar um 5% eftir tveggja
ára starf, og er það í samræmi
við tíðkanlegar venjur hjá
öðrum fyrirtækjum, en kemur
fyrst nú til framkvæmda hjá
Sementsverksmiðju ríkisins,
enda ekki svo langt um liðið
síðan hún hóf starfsemi sína.
6. Eftirvinnu- og næturvinnu-
kaup hækkar til samræmis við
það, er að ofan greinir.
7. Hækkun á kaupi verkakvenna
er hin sama og samið var um
á Akranesi áður.
• Vinnuveitendur greiða í
sjúkrasjóð Iðju sem svarar 1% af
útborguðu kaupi fyrir dagvinnu.
Verður sjóðnum varið til að
standa straum af sjúkrakostnaði
iðnverkafólks.
Stjórn sjóðsins verður skipuð
3 mönnum, 1 frá hvorum aðila og
oddamaður verður tilnefndur
eftir samkomulagi þeirra. Náist
ekki samkomulag tilnefnir borgar
dómarinn í Reykjavík oddamann.
Endurskoðendur sjóðsins verða
2, 1 frá hvorum aðila.
Þá er heimilt að lána úr sjóðn-
um til byggingar félagsheimilis
Iðju.
• Orlof þeirra, sem unnið hafa
í 10 ár eða lengur lengist, og get-
ur orðið allt að 4 vikum.
• Eftirvinna verður áfram gr.
með 50% álagi á dagvinnu og
nætur- og helgidagavinna með
100% álagi.
• Vinnuveitandi sér um þvott
á vinnufatnaði, þar sem sérstak-
uf vinnufatnaður er áskilinn.
Einkaleyfi í Viðey
SJÓSTANGAVEIÐIN, félag það,
sem gerir út sjóstangaveiðibát-
inn Nóa, hefur fengið einkaleyfi
til þess að setja fólk á land í
Viðey. Eigandi eyjarinnar hefur
selt félaginu þennan rétt í allt
sumar og er áætlað að fara með
fólk í skemmtisiglingu á Nóa um
helgar og virka daga, þegar veð-
urskilyrði eru góð. Verður þá
komið við í Viðey.
Höfuðkröfur verkalýsdeildar-
innar á Akranesi í upphafi vinnu
deilunnar við Sementsverk-
smiðju ríkisins voru þessar:
1. Sett skyldu í samning ákvæði
um hámarkshraða pökkunar-
vélar, 1900 sekkir á klst., og
lágmarkstölu stúfningarmanna
í skipalestum, en hraði pökk-
unarvélar skyldi lækkaður enn
meir í samræmi við kröfur
verkamanna og trúnaðarmanns
eftir aðstæðum.
2. Við hver vaktaskipti skyldi
greiða a. m. k. 14 klst. sam-
kvæmt næturvinnutaxta.
3. Ekki skyldi forráðamönnum
Sementsverksmiðjunnar heim-
ilt að flytja menn til í starfi,
nema með samþykki viðkom-
andi starfsmanns.
4. Kaup við útskipun sements
skyldi hækka um kr. 5,13 pr.
klst. umfram Ofannefnd 11%.
5. Gerðir skyldu 3 eða 5 sjálf-
stæðir samningar við Verka-
lýðsfélag Akraness.
Fylgt var mjög fast eftir kröf-
um þessum nær óslitið frá upp-
hafi samningsviðræðna til síð-
asta dags, Og í upphafi var því
jafnvel. lýst yfir, að viðræður
væru gagnslausar, nema fallizt
væri á kröfur þessar, einkum þá,
er um getur í 5. lið.
Við endalok samningsgerðar-
innar var fallið frá öllum þessum
kröfum.
29. júní 1961.
Ásgeir Pétursson
formaður stjórnar
Sementsverksmiðju ríkisins
Jón E. Vestdal
forstjóri
I GÆRKVÖLDI flutti Mr. Ric-
hard H. Pough, form. banda-
rísku náttúruverndarsamtak-
anna, erindi í Háskólanum á
vegum Hins ísl. náttúrufræðifé-
Ipgs og Náttúruvemdarráðs ís-
lands og fjallaði fyrirlesturinn
um náttúruvernd í Bandaríkjun-
um. Skýrði hann frá verndar-
svæðum þeim, sem Bandaríkja-
menn hafa komið upp víðs veg-
ar um Ameríku til að halda ó-
spilltri allri náttúru og gróðri.
Eru verndarsvæði þessi í öllum
gróðurbeltum Ameríku. Til skýr
ingar sýndi hann myndir af ýms
um gróðri í sínu rétta umhverfi.
Drap hann á merkileg atriði og
sagði frá reynslu, sem orðið
hefði í Bandaríkjunum á þessu
sviði.
Skógrækt
Að fyrirlestrinum loknum var
mönnum boðið að bera fram
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning um að hinn 28.
júní hefði forseti íslands skipað
Loga Einarsson, fulltrúa í dóms-
Og kirkjumálaráðuneytinu, yfir-
sakadómara í Reykjavík frá 1.
júnx 1961 að telja.
Logi Einarsson er 43ja ára að
aldri, fæddur í Reykjavík 16. okt.
1917, sonur hjónanna Sigríðar
Þorláksdóttur (kaupmanns í
Reykjavík, Johnsons) og Einars
hæstaréttardómara Arnórssonar
(Jónssonar bónda á Minna-Mos-
felli 1 Grímsnesi). Hann lauk
spurningar varðandi hann. Reis
þá upp Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri og vék að um-
mælum Mr. Poughs í einu dag-
blaði bæjarins, þar sem haldið
hefði verið fram að barnalegt
væri að sóa tugmilljónum króna
til skógræktar í þeirri von að
eftir hálfa eða heila öld verði
landið þakið nytjaskógi, og
sagt að skógur hentaði ekki ís-
lenzkum staðháttum, að öðrum
kosti væri hann hér sjálfkrafa.
Hafði Mr. Pough sagt í nefndu
viðtali að færustu sérfræðinga
þyrfti til að ganga úr skugga um
möguleikana á að rækta skóg
áður en milljónum króna væri
sóað í það. Spurði skógræktar-
stjóri hvaðan maðurinn hefði
þessar upplýsingar, taldi upp
fjölmarga skógfræðinga, sem hér
hefðu verið og kvað hann mundu
hafa fallið í hendur óhlutvandra
manna hér, og þeir menn mundu
Verzlunarskólaprófi 1936, varð
stúdent við Menntaskólann í
Reykjavík 1939 með 1. einkunn
og cand. juris við Háskóla íslands
1944 með mjög hárri fyrstu eink-
unn: hlaut 236 stig. Sama sumar
varð hann fulltrúi hjá sakadóm-
aranum í Reykjavík. 1946—1947
var hann við nám í Svíþjóð og
víðar. Héraðsdómslögmaður varð
hann 1949. 1951 varð hann full-
trúi í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu og hefur aðallega fengizt
við afgreiðslu opinberra mála
síðan. Er óhætt að fullyrða, að
fáir muni hafa jafn alhliða
reynslu í starfi við meðferð opin-
berra mála og Logi Einarsson.
Hefur hann unnið bæði að dóms-
störfum Og ákærustörfum, eins
og að framan greinir.
Logi Einarsson er kvæntur
Oddnýju Gísladóttur, og eiga þau
tvær dætur barna.
Ferðafélagið fer
5 lielgarferðir
NÚ UM helgina efnir Ferðafélag
íslands til 5 helgarferða, lagt af
stað eftir hádegi á laugardag og
komið heim á sunnudagskvöld.
Farið verður í Þjórsárdal, í Húsa
fellsskóg, Landmannalaugar,
Þórsmörk og að Hagavatni. Eru
þetta fyrstu helgaferðir félags-
ins á tvo fyrsttöldu staðina og
einnig að Hagavatni, þar sem
ráðgerðar eru gönguferðir í ná-
grenni vatnsins og jökulsins.
vera í salnum, sem væru upp-
hafsmenn þessa' rógs.
Mr. Pough svaraði, sagðist virða
tilraunir íslendinga til að rækta
skóg, en kvaðst telja að þeir ættu
að fara varlega í hvar þeir plönt-
uðu honum og binda sig meira
við tilraunir á einstökum svæð-
um, áður en þeir dreifðu skógin-
um alls staðar. Og tók hann sem
dæmi plöntun á barrskógi á Þing
völlum, í Dimmuborgum, og við
Mývatn, þar sem það gæti auð-
veldlega ruglað eðlilegum gróðri
og fuglalífi. Þessir staðir væru oí
sérstæðir í veröldinni til að fara
að breyta þeim.
Ókurteisi — sannleikur
Þá reis upp Jakob Eiríksson,
þakkaði fyrir hinn fróðlega fyrir
lestur og flutti kveðjur Halidórs
Pálssonar, ráðunauts og þakklæti
fyrir þau ummæli T nefndu við-
tali um að afkoma þjóðarinnar
byggðist á sauðfénu og örugg fjár
festing lægi í ræktun móa og
mýra, en ekki skýjaborgum.
Urðu nokkrar fleiri orða-
hnippingar milli Hákonar og mr.
Pough. Taldi Hákon Pough hafa
sýnt óháttvísi með slíkum um
mælum, þar sem hann væri gest
ur á íslandi, en mr. Pough kvaðst
vera hér á eigin vegum, og mað
ur mætti aldrei vera svo kurteis
að sannleikurinn væri látinn
víkja.
Eyþór Einarsson þakkaði að
lokum fyrirlesaranum fyrir hönd
Hins íslenzka náttúrufræðifélags
og Náttúruverndarráðs.
Hér í Reykjavík munu nú
enn vera 10 félög í verkfalli,
9 félög iðnaðarmanna og Vöru
bifreiðastjórafélagið Þróttur.
Héldu sáttasemjarar fundi
með samninganefndum þess-
ara félaga allra og vinnuveit-
enda í gærkvöldi. Félögin, sem
enn eru 1 verkfalli,. eru þessi:
Félag járniðnaðarmanna,
Félag blikksmiða,
Múrarafél. Reykjavíkur,
Sveinafél. pípulagningam.,
Félag bifvélavirkja,
Málarafélag Reykjavíkur,
Trésmiðafélag Reykjavíkxir,
Sveinafélag skipasmiða,
Félag ísl. rafvirkja og
Vörubifreiðast.fél. þróttur.
Sementsverk
smiðjan
Logi Einarsson skipað-
ur yfirsakadómari