Morgunblaðið - 30.06.1961, Síða 5
Föstudagur 30. júní 1961
MORGUIVBLAÐIÐ
5
MENN 06
= MLEFN/=
Við fréttum um daginn, að
forseti Hæstaréttar Texas-rík
is væri staddur hér í bænum,
leituðum hann uppi og röbbuð
um við hann stundarkorn.
Við bjuggumst auðvitað við
að hitta sólbrenndan náunga
með barðabreiðan hatt, sex
tommu vindil í munnvikinu og
spora á fótum. Einungis það
fyrsta reyndist rétt. Robert W.
Calvert, en svo heitir forset-
inn, er einkar vingjarnlegur
og þægilegur í viðmóti, —
eins og reyndar fiestir Banda-
ríkjamenn — og skemmtilegur
viðræðu. Hann hóf rabbið með
því að gera gys að þeim hug-
myndum, sem margir gera sér
um Texasbúa, en þó kvaðst
hann verða að viðurkenna
sem sannur föðurlandsvinur,
að leiðinlegt væri, að Texas
skuli ekki lengur vera stærsta
ríki Bandaríkjanna, eftir að
Alaska bættist í hópinn. Hins
vegar kvað hann Texasbúa
hafa tfekið þessu karlmann-
lega eins og jafnan, þegar
voveiflega hluti bæri að hönd-
um. — Menn mættu ekki
gleyma því, sagði Calvert
hæstaréttarforseti, að Texas
er meira og fleira en ein alls
herjar olíudælustöð. Það væri
víðáttumikið og sérkennilegt
land, fjölbreytilegt um lands
lag, atvinnuhætti og menn-
ingu. Síðan 1870 hefði íbúa-
talan tífaldazt, stokkið úr 800
þús. upp í 8 millj. Á árunum
frá 1940 til 1950 fjölgaði íbú-
um t.d. 20.2%. Þjóðfélagið hef
ur ekki við að sníða stofnun-
um sínum stakka, því að þeir
verða jafnhraðan of þröngir.
Fátt þola Bandaríkjamenn
verr en það, þegar þeim finnst
að sér þrengt, svo að alltaf er
verið að stækka og fjölga og
auka og bæta alla hluti. I*ess
vegna einkennist þjóðlífið af
hraða og atorku.
Við spurðum Mr. Calvert,
hvernig stæði á ferðum hans
hér. Hann kvaðst vera að
koma frá Finnlandi, en félag
Finna, sem áhuga hafa á
bandarískum málefnum, bauð
honum þangað á árshátíð sina.
Hefði það verið hin vegleg-
asta hátíð og staðið í tvo daga.
Þeir hefðu nú tekið upp þann
sið að heiðra eitt ákveðið riki
á hverri árshátið, og hefði Tex
as orðið fyrir valinu í fyrsta
skipti — að sjálfsögðu. Var
Calvert dómforseta síðan boð
ið sem fulltúra ríkis síns. Áð-
ur en hann Iagði af stað í för-
ina, hitti hánn frú Allport
vestur í Washington, en hún
starfaði um tíma í bandaríska
sendiráðinu hér í Reykjavík.
Hafði hún sagt honum, að
hann yrði að hinkra við á ís-
landi, fyrst hann ætti leið
þar um á heimleiðinni. Bar
hún landi og þjóð svo vel sög
una, að hann ákvað að vera
hér um kyrrt nokkra daga, og
sæi hann sannarlega ekki eft
ir því. Hér hefði hann séð
margt nýtt og kynnzt ýmsu.
Hann hefði hitt marga íslenzka
lagamenn, prófessora, dómara
o. fl. Rektor Háskóla íslands,
próf. Ármann Snævarr, hefði
aðallega greitt götu sína hér.
Við fórum nú að spyrja Mr
Calvert um réttarfar og lög-
gæzlu í Texas. Kvað hann þau
mál öll afarflókin, enda fór
það svo, að innan skamms
jrugluðum við öllu saman,
„city courts“, „justice of the
peace courts“, „county coiurts“
„district courts“, courts of civ
il appeals“, courts of criminal
appeals“ og „supreme court“.
Um dómsvið allra þessara
dómstóla gilda nákvæmar
reglur. Kvað hann það ein-
kenna löggjöf Texas yfirleitt,
hve nákvæm hún væri, allt út
í einstök smáatriði. Stjórnar-
skrá Texas mun líka hin
Iengsta í heimi, eitthvað um
50 þús. orð. okkur virtist af
öllu, að réttur borgaranna
væri mjög vel tryggður með
þessiu fjölþætta dómstólakerfi,
enda mun sú hafa verið ætlun
hinna vísu löggjafa.
Sá, sem ákærður er, hefur
nálega ávallt rétt til þess að
krefjast kviðdóms. Sé kvið-
dómur saman kvaddur, vilja
hinir föstu dómarar yfirleitt
sem minnst við úrskurði hans
hrófla.
Annað atriði, sem er frá'-
brugðið réttarfari okkar, er
það, að í Texas eru allir dóm
arar frá hinum lægstu til
hinna æðstu kosnir almennum
kosningum. f hæstarétti („sup
reme court“) sitja níu dóm-
arar, forseti (,Chief Justices*)
og 8 meðdómendur („Associ-
ate Justices“). Þeir eru kosnir
til sex ára í senn. Mr. Calvert
hefur verið forseti sl. sex mán
uði, en meðdómari í tíu ár þar
áður. Kjörgengi í hæstaréttar
dómarakosningum hafa allir
lögfræðingar, sem orðnir eru
þrítugir að aldri og hafa feng
izt í tíu ár hið minnsta við
lögfræðileg störf.
Við spurðum Mr. Calvert,
hvort ekki væri hætt við, að
slíkar kosningar yrðu pólitisk
ar, en hann kvað það afar
sjaldgæft. Mjög oft væri að-
eins um einn frambjóðanda
að ræða, óumdeilanlegan hæfi
leikamann, sem næstur stæði
embættinu, en þegar kosið
væri á milli manna, spyrðu
kjósendur eingöngu um hæfni
frambjóðanda. Pólitík skipti (
ekki máli. Þegar hæstaréttar '
dómari félli frá, setti rikis-
stjóri nýjan dómara til bráða-
birgða, en sá dómari væri
nær alltaf kosinn á eftir. Sá,
sem einu sinni er orðinn
hæstaréttardómari, er svo oft
ast endurkjörinn, meðan hon
um endist líf og heilsa.
—★—
Þegar við kvöddumst, spurði
dómforsetinn, hvort við hefð-
um aldrei komið til Texas.
Ljósmyndarinn kvaðst aðetlis
hafa flogið þar yfir á leið til
Kaliforniu.
— Ekki skil ég, hva menn
eru alltaf að gera til Kaliforn-
íu, sagði Mr. Calvert, — þeim
væri nær að koma til . . . .
'
Jvoftleiðir lt.f.: í dag ©r Snorrl Sturlu
son væntanlegur frá N.Y. kl. 06:30. Fer
til Luxemborgar kl. 08:00. Kemur til
baka frá Luxemborg kl. 23.59. Heldur
áfram til N.Y. kl. 01.30. Þorfinnur
Karlsefni er væntanlegur frá N.Y. kl.
06:30 Fer til Osló, Khafnar og Ham-
borgar kl. 10:30. Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá Stafangri og Osló kl.
23:00 Fer til N.Y. kl. 00:30.
Flugfélag íslands h.f.: Skýfaxi fer til
Glasgow og Kaupm.hafnar kl. 08.00
í dag. Kemur aftur til Rvíkur kl. 23:30
í kvöld. Vélin fer til Oslóar, Khafnar
©g Hambdrgar kl. 10:00 í fyrramálið.
Gullfaxi fer til Lundúna kl. 10:00 í
dag. Væntanlegur aftuc til Rvíkur kl.
23:30 í kvöld Fer til Glasgow og Khafn
ar kl. 08:00 í fyrramálið.
Fimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er í Rvík. Dettifoss er á leið til N.Y.
Fjallfoss er í Rvík. Goðafoss er 1
Rvík Gullfoss kom til Khafnar 29. 6.
Lagarfoss er á leið til ísafjarðar.
Reykjafoss fór frá Keflavík 29. 6. til
Hafnarfjarðar. Selfoss er í Rotterdam.
Tröllafoss er í Rvík. Tungufoss er i
Rvík.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: Katla
er í Archangel. Askja er í Khöfn.
Hafskip h.f.: Laxá kemur til Rvíkur
í kvöld.
Jöklar h.f.: Langjökull er í Egersund.
Vatnajökull er á leiö til Antverpen.
Skipadeild SÍS: Hvassafell fer frá
Grimsby í dag til Onega. Arnarfell
er í Rouen. Jökulfell er í Ölafsvík.
Dísarfell er í Rvík. Litlafell er á leið
til Rvíkur. Helgafell er á leið til Hels-
ingfors. Hamrafell er í Batumi.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína Jódís Norðmann, Eiríks-
götu 31 og Guðmundur Guð-
mundsson, í. Guðmundssonar ráð
herra, HafnarfirðL
Sextugur er í dag Þorsteinn
Steinsson, vélsmíðameistari, Ása
vegi 14, Vestmannaeyjum.
Vegur letingjans er eins og þyrn
gerði, en gata hreinskilinna er brauti
vegur.
Hógvært hjarta er líf líkamans, t
ástriða er eitur í beinum.
Sá, sem elskar aga, elskar þekkin
en sá, sem hatar umvöndun, er heím:
ur.
Orðskviðirnir.
S36 ■
— Uss — þetta gerir ekkert til
Það er bara þessi kjánalega nekt
ardansmær, sem er núna á dag-
skrá í sjónvarpinu.
— Hve margar gráður eru hér
inni?
— 14, herra forstjóri.
— Og úti?
—7, herra forstjóri.
— Opnið þá gluggann maður
og hleypið þessum 7 gráðum inn.
Ýstrubelgurinn: Segðu mér,
Pési minn. Er ég í bláum eða
rauðum inniskóm?
— Kvenfólkið vill ekki giftast
nú orðið.
— Af hverju dregur þú álykt-
un?
— Ég hef spurt svo margar.
A T H U G I Ð
að borið saman "5 útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
D&nskur maður
óskar eftir plássi á skipi,
sem matsveinn. Tilboð
sendist afgr. Mbl., merkt:
„1486“.
Síldarsöltunarstúlkur
vantar til
\
Siglufjarðar og Raufarhafnar
Upplýsingar í síma 34580.
Gunnar Halldórsson
NBD VIII
Hin 8. ráðstefna Norræns byggingardags hefst f
Kaupmannahöfn 18. september n.k. Efnt verður til
hópferðar, ef næg þátttaka fæst. — Allar upplýsing-
ar varðandi ráðstefnuna veitir Byggingaþjónusta A.L
og Gunnlaugur Pálsson, arkitekt. — Tilkynning um
þátttöku þarf að hafa borizt fyrir þann 10. júlí n.k.
Stjórn NBD.
NauBungaruppboB
Vörubifreiðin G-1017, Ford 1941, eign þrotabús
Jóns Kr. Gunnarssonar, verður seld á nauðungar-
uppboði, sem fram fer við lögreglustöðina í Hafn-
arfirði í dag, 30. júní kl. 14. — Einnig verða seldar
7—8 nýjar presenningar. Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Vegna sumarleyfa
verður skrifstofu og afgreiðslu lokað í júlí-mánuði.
Eftirlits og viðgerðamaður fyrir Facit-skrifstofu-
vélar: Sigurður Hafsteinn, sími 3-5989 tekur á móti
véla-pöntunum, sem þurfa að afgreiðast strax.
Facif skrifstofuvélar ; G.M. Björnsson hf.
Skólavörðustíg 25 — Beykjavík
Happdrœtti — ferBalög
Nýtt happdrætti óskar eftir sölufólki til að aka í
söluferðalög út á land í sumar. Hentugt fyrir ung
hjón eða kærustupar. —- Aðeins traust og fullkom-
lega áreiðanlegt fólk kemur til greina. — Þeir, sem
áhuga hafa á þessu, komi í dag í Hafnarstræti 15,
3. hæð milli 4—7 (Skrifstofa Málaskólans Mímis).
Frekari upplýsingar í dag og næstu daga í síma
2-28-65.
Heilsuhœli Náttúrulœkningafélags
Islands, Hveragerði
auglýsir
Tökum á móti sumargestum, veitum nuddlækningar,
leirböð og ýmiss konar ljósböð. Auk þess eru á
staðnum finnsk baðstofa og sundlaug. Læknir hælis-
ins, Högni Björnsson er til viðtals daglega.
Eina hressingahæli landsins, sem framleiðir ein-
ungis 1. flokks jurtafæðu. Lausar máltíðir á mat-
málstímum fyrir ferðafólk. — Pöntunum veitt mót-
taka á skrifstofu hælisins, sími 32, Hveragerði og
16371 Reykjavík.