Morgunblaðið - 30.06.1961, Side 11
Föstudagur 30. júnl 1961
MORGIJTSBLAÐIÐ
11
var nú karl í lagi, og vissi
hvernig hann átti að vinna.
— Hyggstu vinna lengi enn?
— Nei, ætli það. Ég held þó
áfram í a. m. k. eitt sumar
ennþá.
H3k „Búnar að salta í alla
nótt“
Við yfirgefum síldarplönin,
og göngum eftir Suðurgötunni
en þaðan sér yfir margar sölt-
unarstöðvar. Þar er enn ys og
þys, en víða er söltun lokið
þann daginn. Á götunni rek-
umst við á tvær blómarósir,
sem skáima vígalegar í gulum
olíusvuntunum með hnífa og
saltdiska í hendi. Þær ætla
greinilega að salta meira í
dag.
Ungfrúrnar heita Rosemarie
Vilhjálmsdóttir og Margrét
Magnúsdóttir, báðar frá Siglu
firði. Rosemarie segist vinna
í ullarverksmiðjunni Framtíð-
inni á Frakkastíg í Reykjavík,
en Margrét kveðst vera heima
sæta á Siglufirði.
— Búnar að salta lengi?
spyrjum við.
— í alla nótt og í morgun.
hann. — Þegar ég byrjaði að
salta fékk ég 30 aura fyrir
heiltunnuna og 15 aura fyrir
hálftunnu. Ég byrjaði að salta
hjá Norðmönnum hér á Siglu-
firði. Ég fór einn daginn nið-
ur á bryggju, eins og krakkar
gerðu, til þess að salta. Ég
'byrjaði á því að salta í heil-
tunnu, en stærðin á manni var
nú ekki meiri en svo, að ég
náði ekki niður á botn tunn-
unnar og stakkst á hausinn Of-
an í. Ég gleymi því aldrei að
þá hleypur Torfi í Bakkavík
framhjá, kallar á verkstjórann
og segir, þessi mikli síldar-
maður, að ég yrði að fá að
salta í hálftunnur, og það fékk
ég.
— Hvað aðhefstu á vet-
urna?
— Ég fæst við smíðar á
milli síidarvertíða, segir Jó-
hann, og má nú ekki vera að
því að sinna forvitnum blaða-
manninum meira í bili.
>íss „Mikið fjör . . .“
Og ekki má gleyma bless-
uðum síldarstúlkunum. Um
þær hefur mikið verið kveðið
og sungið, og það, sem bezt
hefur verið um þær sagt í
bundnu máli og óbundnu, er
ekki öfmælt, eða a. m. k. varð
ekki annað séð á þessum sól-
skinsdegi á Siglufirði.
Á Ásgeirsstöð hittum við
eina blómarósina, Kristínu
Auðunsdóttur frá Selfossi, þar
sem hún saltar af miklum
móð.
— Hvernig gengur? "<■-
— Búin að salta fjórar tunn
ur í dag, og er að klára þá
fimmtu. Annars er þetta ekk-
ert að marka, ég er búin að
vera svo stutt í þessu. Þetta
inu gamla. Ég man ekki ár-
talið, en ég mun hafa verið
um þrítugt þá. Ég hefi síðan
verið beykir og alltaf á Siglu-
firðL
— í hverju er starfið nú
fólgið?
— Eg stafset, set botna í
tunnur og ýmislegt fleira.
— Er þetta erfitt starf?
— Nei, ég fer mér hægt.
Við vorum að koma frá því
að hvíla okkur.
Aðspurð segir Rosemarie að
hún hafi saltað í rúmlega 50
tunnur til þessa, en Rose-
marie í 31 tunnu.
— Þið hafið saltað áður,
innfæddir Siglfirðingarnir?
— Jú, við höfum gripið í
það áður!
Ólafur Ragnars
— Byrjað fyrr.
er fyrsti dagurinn.
— Hefurðu saltað síld áður?
— Nei.
— Gaman?
— Mikið fjör. Ekki til
betra!
— Hvað fæst fyrir tunnuna?
— 30 krónur.
— Hvað ertu lengi með
tunnuna?
— Ég veit það eiginlega
ekki, og ég vil a. m. k. ekki
láta skrifa um það.
— Ætlarðu að vera lengi
á Siglufirði.
— Hálfan mánuð. Ég er í
sumarfríi, en vinn annars hjá
Prentsmiðju Suðurlands á Sel
fossi við bókband o. fl.
— Þurfti^kki að kenna þér
að leggja síldina í tunnurnar?
— Ég kunni þetta eiginlega
áður en ég kom. Þetta er eng-
inn vandi, segir Kristín, tekur
nú til við að salta í tunnuna
á nýjan leik Og gefur með því
til kynna að viðtalið sé á enda.
Beykir hjá Gránu
Beykisiðn er hartnær út-
dauð og gleymdur hlutur nú í
dögum, og heyrir því fortíð-
inni til. Enn eru þó nokkrir
hagleiksmenn til, sem lærðu
þessa iðn á sínum tíma og
stunda enn. Elzti beykirinn á
Siglufirði heitir Kristján
Sjöby, 72 ára gamall, og hitt-
»m við hann á einu síldar-
planinu, þar sem hann var við
vinnu sína.
— Hvenær hófstu beykis-
störf, Kristján?
— Það var hjá Gránufélag-
Rosemarie Vilhjálmsdóttir og Margrét Magnúsdóttir ■
og verksmiðjustúlka.
■ heimasæta
— Eru fleiri í ættinni, sem
stunda beykisstörf?
— Runólfur bróðir minn
er beykir hjá Tunnuverksmiðj
unni. Hann hefur verið beykir
alla sina tíð eins Og ég. Pabbi
var danskur beykir í Kaup-
mannahöfn, fluttist síðan hing
að og hjá honum lærði ég.
Hann vann þá hjá Gránu. Það
— Hvar saltið þið?
— Hjá Sunnu, og nú megum
við ekki vera að þessu lengur,
segja blómarósirnar, og eru
roknar af stað fyrr en varir.
30 krónur fyrir tunnuna, hm,
það er ekki að undra þó þeim
liggi á| — h.h.
Geta ekki annað
móttökum
Sendiráð fslands erlendis haftl
tjáð ráðuneytinu að talsverð
brögð séu að því að fólk skrifi
eðá sími og biðji sendiráðin að
taka á móti flugfarþegum á flug
velli.
Nú háttar svö til víða, einkum
í stórborgum, að það getur tekxð
1—2 klst. að komast úr miðbæ
út á flugvöll, og getur slíkt ferða
lag því með bið á flugvelli tekið
3—5 klst. Er augljóst að til þessa
hafa sendiráðin ekki nægiíegt
starfslið. Það eru því tilmæli
þeirra að brýnt verði fyrir ferða
fólki, að ekki er hægt að ætlast
til slíkrar fyrirgreiðslu nema í
sérstökum tilfellum, enda víðast
hvar auðvelt fyrir ferðamenn að
komast inn til borganna með
venjulégu móti.
(Frá utanríkisráðuneytinu)
íslaus siglingaleið
til Grænlands
EITT hinna veglegu íshafsskipa
Lauritzsens skipafélagsins í Kaup
mannahöfn, Kista Dan, kom hing
að til Reykjavíkur í gærkvöldi,
— á ytri höfnina, til að sækja far
þega til Grænlands. Kom skipið
frá Angmagsalik með tæploga 30
farþega og fór þangað aftur, eftir
mjög skamma viðdvöl hér með
yfir 30 farþega.
Skipstjórinn á skipinu hafði
skýrt frá því, að á leiðinni milli
Reykjavíkur og Angmagsalik
væri enginn ís og siglingaleiðin
greiðfær. Á sunnudaginn er svo
íshafsfarið Magga Dan væntan-
legt frá Grænlandi með um 40
farþega. Munu þessi heimskunnu
íshafsför koma hingað og sækja
farþega til Grænlands með
sttuttu millibili nú næstu vikurn
ar.
Greiðasala á
Hellissandi
Stykkishólmi
í MAÍ mánuði sL var á Hellís-
sandi opnuð gisti og greiðasala
í svonefndri Breiðfirðingabúð.
Eru öll thúsakynni hin vistlegustu
og er hægt að taka á móti hóp-
ferðum og öll afgreiðsla á hinum
bezta mælikvarða. Veitingasalur
er mjög rúmgóður og kappkost-
að að veita þes bezta þjónustu.
Ungur dugnaðarmaður rekur
þessa veitingasölu og gistihús.
Vilberg Skarphéðinsson sem þar
ei verzlunarstjórL
Ferðamannastraumur eykst
stöðugt á Hellisand og Snæfells-
nes yfirleitt og er það að vonum
og engir sjá eftir að eyða þar
nokkrum dögum í fögru um-
hverfi.
Er það fagnaðarefni þeim sem
þarna fara um að eiga aðgang að
svona ágætri ferðamannaþjón-
ustu. — Fréttaritari.
Kommúnistar
fölsuðu kosningar
LONDON, 28. júní (Reuter) —
Brezkur dómstóll felldi í dag
þahn úrskurð, að kommúnistar
í brezka rafvirkjasambandinu
hefðu haft ólögleg afskipti af
kosningum til stjórnar í sam-
bandinu árið 1959 og misnotað
aðstöðu sína með ýmsum hætti
síðan.
Fjórtán menn í sambandsstjórn
inni voru kærðir og þeim gefið
að sök að hafa falsað kosningarn
ar. Níu voru sýknaðir af kær-
unni en hinir sagfelldir meðal
annars forseti sambandsins
Frank Foulkes og framkvæmda-
stjórinn Frank Haxell.
Þess er vænzt að dómstóllinn
muni í næstu viku taka ákvörð-
un um, hvort nýjar kosningar
skuli fara fram í sambandinu og
hverjum viðlögum hinir sak-
felldu skuli sæta.