Morgunblaðið - 30.06.1961, Síða 24
IÞRÓTTIR
Sjá bls. 22
143. tbl. — Föstudagur 30. júní 1961
Dr. Fitch harmi
lostinn eftir slysið
Norska skipið Garm flytur hann til
Akureyrar i dag
í DAG kemur norska eftir-
litsskipið Garm til Akureyr-
ar frá Jan Mayen með dr.
John Fitch foringja brezka
rannsóknaleiðangursins, sem
lenti í hrapallegu slysi þar
um síðustu helgi.
Þar hvolfdi báti með 6 leið
angursmönnum innanborðs
við vesturströnd Jan Mayen.
'Allir drukknuðu nema dr.
Fitch sem kemur hingað til
lands í dag. Með skipinu eru
einnig flutt lík eins skóla-
piltsins sem drukknaði, 24
eða 25 ára að aldri. Brezka
sendiráðið mun gera ráð-
stafanir til að láta flytja lík-
ið út til Englands.
Mbl. átti stutt viðtal við
skipherrann á Garm í gær-
dag. Hlustunarskilyrði voru
slæm, en skipherrann sagði
að líkamleg líðan dr. Fitch
væri góð eftir atvikum. Þó
væri hann nokkuð kalinn á
báðum fótum. Sálarástand
þessa vesalings manns er lak
ara. Hann er sem niðurbrot-
inn maður eftir þetta hrylli-
lega slys er varð í leiðangri
sem hann stjórnaði sjálfur.
í>að þykir ganga kraftaverki
næst hvernig dr. Fitch bjargað
ist sjálfur af hinum sökkvandi
bát. Synti gegnum úfinn og ís-
kaldaft sjó að landi, klöngraðist
upp klettabelti og kemst loks við
illan leik að bækistöð Norðmanna
við Jan Mayen.
Það var að skilja á skipherran
um á Garm, að skipið sjálft hefði
ekki tekið þátt í neinni leit, en
það hefði verið við Jan Mayen
og er það sigldi frá eynni um
miðnætti aðfaranótt fimmtudags
Framh. á bls. 23.
Æfing á óperunni Bíta eftir Donizetti. — Guðmundur Guðjónsson, F. Weisshappel, Þuríður
Pálsdóttir, Guðmundur Jónsson og Borgar Garðarsson.
Héraösmót Sjálfstæöismanna
víðsvegar um land í sumar
Tvær óperur verða fluttar
Héraðsmót Sjálfstæðismanna 2
í SUMAR efna Sjálfstæðismenn
til héraðsmóta víðsvegar um land
<S ið. Er ákveðið að halda 26 hér-
aðsmót á tímabilinu frá 8. júlí
til 10. september.
Á samkomum þessum munu
forustumenn Sjálfstæðisflokks-
1 Dagsbrúnartund-
urinn í gœrkvöldi:
Kommúnislar í
Lúr somon
FJÖLMENNUR fundur Dags-'
brúnar samþykktí samkomu-
iagið við vinnuveitendur í gær
kvöldi í Gamla Bíó. Margir
kvöddu sér hljóðs og voru
flestir andsnúnir samningn-
um. Formaður Dagsbrúnar
sk-oraði mjög á fundarmenn
að samþykkja samningana.
Fram kom tillaga frá framá-
-nönnum kommúnista um að
hafna styrktarsjóðnum, en fá
heldur 2% kauphækkun í
staðinn. Þessi tillaga var síð-
an dregin til baka, en önnur
tiilaga frá sömu aðilum kom
fram um að hafna með öllu
aðild vinnuveitenda að styrkt
arsjóðnum. Formaður Dags-
brúnar lýsti því þá yfir, að
þetta mál væri ekki á dag-
skrá fundarins og var tillagan
aldrei borin undir atkvæði.
Samningurinn var síðan
borinn undir atkvæði og sam-
þykktur með öllum þorra at-
kvæða. Þegar leitað var mót-
atkvæða komu um 40 hendur
á loft. Var þá hrópað úr ræðu-
stólnum: Eru ekki allir sam-
mála? Tíndust þessar hendur
þá niður. Að lokum lét Eð-
vard Sigurðsson hrópa húrra
fyrir Dagsbrún og hét því
að verða búinn að koma at-
vinnurekendum úr stjórn
sjóðsins innan tveggja ára.
Æfing á óperunni La Serva Padrona eftir Pergolesi. — Ásgeir Beinteinsson, Sigurveig Hjalte-
steð, Kristinn Hallsson og Þorgils Axelsson. (Ljósm. Mbl.: Markús)
Kauphækkun í Sementsverk-
smiðjunni í samræmi við áður
gerða Akranessamninga
Yfirlýsing frá stjórnarformanni og
forstjóra Sementsverksmiðjunnar
ÞJÓÐVILJINN skýrir frá því á
forsiðu blaðsins í gær, að stjórn
Sementsverksmiðju ríkisins hafi
hafnað aðild að Vinnuveitenda-
sambandi íslands.
Hér er ekki rétt með farið.
Hið sanna um mál þetta er að
verksmiðjustjórnin hefur ein-
mitt samþykkt að ganga í Vinnu-
veitendasambandið. Ekki var
ætlunin að skýra opinberlega frá
þessu strax og hefur mál þetta
verið trúnaðarmál Sementsverk-
smiðjunnar.
Þar sem mál þetta hefur nú
verið rætt opinberlega, svo og
samningar þeir, sem gerðir hafa
verið við verkalýðsfélag Akra-
ness, þykir rétt að taka fram eft-
irfarandi. Á fundi verksmiðju-
stjórnarinnar hinn 20. maí sl.
flutti formaður tillögu um að
Sementsverksmiðja ríkisins gerð-
ist aðili að Vinnuveitendasam-
bandi íslands. Við atkvæða-
greiðslu hlaut tillagan tvö at-
kvæði, þeirra formanns og Pét-
urs Ottesen, sem sendi skriflegt
atkvæði á fundinn, en hann ligg-
ur í sjúkrahúsi. Gegn tillögunni
greiddu þeir atkvæði, Ingi R.
Helgason og Helgi Þorsteinsson.
Einn stjórnarmanna, Guðmund-
ur Sveinbjörnsson, kvaðst ekki
að svo komnu máli vera reiðu-
búinn til þess að taka afstöðu til
málsins og óskaði eftir frestun
þess. Var sá frestur veittur með
samhljóða atkvæðum stjórnar-
manna, og átti Guðmundur að til-
kynna formanni afstöðu sína síð-
ar. Þetta hefur hann gert Og til-
kynnti samþykki sitt. Hinsvegar
óskaði hann þess að ekki yrði
gengið frá aðild verksmiðjunn-
ar, fyrr en fyrirsjáanlegri vinnu
deilu væri lokið. í samræmi við
þetta, verður nú gengið frá aðild
verksmiðjunnar að Vinnuveit-
endasambandinu á næstunni.
Vmnuveitendur
samþykktu
STJÓRN Vinnuveitenda
sambands íslands hélt
fund í gærdag til þess að
fjalla um samkomulagið
við Dagsbrún. Samkomu-
lagið var samþykkt.
Með samningum þeim milli
Sementsverksmiðju ríkisins og
Verkalýðsfélags Akraness, sem
undirritaðir voru á Akranesi 28.
þ.m., hafa kjör verkamanna
Frh. á bls. 2
ins mæta að venju og verðuf
síðar skýrt frá ræðiumönnum á
hverjum stað.
Þá verður á hverju héraðsmóti
flutt ópera. Verður ýmist óperan
Rita eftir Donizetti eða óperan
La Serva Padrona eftir Pergol-
esi. Er nú unnið kappsamlega að
æfingum á þessum óperum undir
stjórn F. Weisshappel og Ásgeira
Beinteinssonar, píanóleikara.
Með hlutverk í óperum þessum
fara óperusöngvararnir Sigur-
veig Hjaltested, Þuríður Pálsdótt
ir, Guðmundur Guðjónsson, Guð
mundur Jónsson og Kristinn
Hallsson. Þá fara með önnur hlut
verk leikararnir Borgar Garðara
son og Þorgils Axelsson. Óperur
þessar verða fluttar á íslenzku.
Héraðsmótin verða á þeim stöð
um sem hér segir:
Nesodda, Dalasýslu, 8. júlí. Vík
V-Skaftafellssýslu, 8. júlí. Sæ-
vangi Strandasýslu, 9. júlí. Hellu
Rangárvallasýslu, 9. júlí. Reyðar
firði, 15. júlí. Vopnafirði 16. júlí.
Mánagarði, Austur-Skaftafells-
sýslu, 29. júlí. Breiðdalsvík, S-
Múlasýslu, 30. júlí. Suðureyri, V-
ísafjarðarsýslni, 5. ágúst. Sauðár
króki, 5. ágúst. Reykjanesi, N-ísa
fjarðarsýslu, 6. ágúst. Laugar-
brekku, V-Húnavatnssýslu, 6.
ágúst. Bíldudal, 19. ágúst. Árnes
sýslu, 19. ágúst. Króksf jarðarnesi
A-Barðastrandarsýslu, 20. ágúst.
Akranesi, 20. ágúst. Dalvík, 26.
ágúst Ólafsfirði, 27. ágúst, Borg
arnesi, 2. sept. Skúlagarði, N-
Þingeyjarsýslu, 2. sept. Breiða-
bliki, Snæfellsnessýslu, 3. sept.
Freyvangi, Eyjafirði, 3. sept. ísa
firði, 9. sept. Siglufirði, 9. sept.
Bolungarvík, 10. sept. Blönduósi
10. sept.
Nánar verður skýrt frá tilhög
un hvers héraðsmóts, áður en
það verður haldið.
Sættír í málum
MEÐ STEFNU útgefinni 20. febr.
1961 höfðaði Ingi R. Helgason hdl.
og framkvæmdarstjóri Sósíalist-
flokksins, mál á bæjarþingi
Reykjavíkur á hendur Morgun-
blaðinu vegna fréttar, er birtist
í blaðinu 12. febrúar s.l. Sátta-
kæra í málinu hafði verið gefin
út 13. febrúar, en þann sama
dag kærði Ingi R. Helgason einn
ig einn af ritstjórum Mbl., Eyjólf
Konráð Jónsson, hdl., fyrir stjórn
Lögmánnafélags íslands.
Ritstjórn Morgunblaðsins vill
fúslega leiðrétta það mishermi i
áminnztri frétt, að Inga R. Helga
syni hafi verið vikið úr fram-
kvæmdarstjórastarfi Sósíalista-
flokksins vegna rannsóknar á
fjárdrætti í flokknum og biður
hann velvirðingar á þeim mis-
tökum.
Er ritstjórn blaðsins ljúft að
lýsa enn yfir og undirstrika, að
hún ber Inga R. Helgasyni ekki
fjárdrátt á brýn.
Bæði þessi mál hafa nú veríð
felld niður og hefir Mbl. fallizt
á að greiða málskostnað í fyrr-
greindu bæjarþingsmáli kr.
6.000.00.
Skemtndarverk j
við Rauðavatn
UNDANFARNAR nætur hef-
ur verið farið í alla skúra í
girtu garðlöndunum uppi við
Rauðavatn. Lásar hafa verið
sprengdir, höggnir eða snúnir
í sundur, hurðir brotnar og
aðrar skemmdir unnar á skúr
unum. Líklegt má telja, að þar
hafi menn í benzínleit verið
á ferð, því að ekki er vitað
til, að neinu hafi verið stolið.
Innbrotsmennirnir hafa geng-
ið hrottalega um og valdið all
miklu tjóni.
/