Morgunblaðið - 31.08.1961, Page 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmfuaagur 31. agöst 1961
Keflavík
Óska eftir 3ja herb. íbúð
strax eða 1. okt. Tilboð
sendist afgr. Mbl. í Kefla-
vík fyrir 10. sept., rherkt:
„1568“.
Keflavík — Suðurnes
Skoda 440 tíl“sölu og sýnis
að Vallargötu 9, Keflavík.
Sími 1648.
Háskólastúdent
óskar eftir 2ja herbergja
íbúð frá 1. okt. Algjör
reglusemi áskilin. Fyrir-
framgreiðsla, ef óskað er.
Uppl. í síma 10272 í dag.
Borðstofuskápur
Notaður borðstofuskápur,
dökkur óskast. Uppl. í
síma 23112.
Reglusaman mann
vantar lítið herbergi ásamt
aðgang að geymsluplássi.
Tilboð leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir 5/9, merkt: —
„Reglusamur — 5962“.
Rólegt
og reglusamt fólk, vantar
mjög tilfinnanlega 1—2
herb. og eldhús sem fyrst.
Uppl. í síma 35497.
Rauðamöl
Seljum mjög góða rauða-
möl. Ennfremur vikurgjall,
gróft og fínt. Sími 50447.
og 50519.
Rauðamöl
og pússningasandur.
Uppl. í síma 35497.”
Kærustupar
óskar eftir 1—2 herbergja
íbúð. Vinna bæði úti. —
Sími 32498.
Atvinna!
Ungan mann vantar vinnu.
Margt kemur til greina. —
Hef meirapróf. Tilboð
merkt: „Reglusamur 5959“
sendist Mbl. fyrir laugard.
Svefnherbergishúsgögn
til sölu, rúm með spring-
dínu og tvö náttborð. Verð
kr. 4.500,00. Afb.skilmálar
koma til greina. Uppl. í
Skaftahlíð 31. — Sími
33755.
Fokheld íbúð óskast
5 herb. og eldhús. Vil láta
stangaveiðibát og 50—100
þús. kr. í pen. í 1. útb. —
Uppl. í síma 33755 í dag
og næstu daga.
Herbergi og eldhús
óskast í Austurbænum fyr-
ir einhleypan, reglusaman
mann. Tilboð sendist Mbl.
fyrir föstudagskv., merkt:
„Austurbær — 5960“.
Reglusöm stúlka
oskar eftir litlu herbergi
og aðgang að síma í Kópa-
vogi, Vesturbænum. Uppl.
í síma 19785.
Óskum eftir .
2 herb. og eldhúsi. Má vera
í kjallara, fynr 1. okt. —
Tilboð sendist afgr. Mbl.,
merkt: 5990“.
í dag er fimmtudagurinn 31. ágúst.
243. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 10:00
Síðdegisflæði kl. 22:42.
Slysavarðstofan er opín allan sólar-
Hringinn. — Læknavörður L.R. (fyrir
vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8.
Síml 15030.
Næturvörður vikuna 26. ág.-2. sept.
er í Lyfjabúðinni Iðunni.
Holtsapótek og Garðsapótek eru
opin alla virka daga kl. 9—7, laugar-
daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Kópavogsapótek er opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl.
9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Simi 23100.
Næturlæknir í Hafnarfirði 26. ág.-
2. sept. er Ólafur Einarsson, sími :
50952
Sigríður Sigurðardóttir frá Eyr
arbakka, nú vistmaður á Elli-
heimilinu Grnud, verður 80 ára
í dag.
Gullbrúðkaup áttu 26. þ. m.
hjónin Steinunn Þorsteinsdóttir
og Ásmundur Jóhannsson, bóndi,
Kverná, Grundarfirðj. Sama dag
voru gefin saman í hjónaband á
Staðastað af séra Þorgrimi Sig-
urðssyni, ungfrú Ólöf Snorradótt
ir, hjúkrunarkona, Kristnesi og
Ásmundur S. Jóhannesson, fulltr.
bæjarfógeta á Akureyri, dóttur
sonur hjónanna á Kverná.
Laugardaginn 26. ágúst opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Ásta
Gunnarsdóttir, Laugateig 16 og
Magnús Guðmundsson, Langholts
vegi 187.
Þann 26. þ.m. voru gefin sam
an í hjónaband af séra Árelíusi
Níelssyni, ungfrú Stella Berglind
Hálfdánardóttir og Viðar Guð-
mundsson, múrari. Heimili þeirra
er að Heiðvangi vð Sogaveg.
Flugfélag fslands h.f.: Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til Glasgow og Khafnar
kl. 08:00 í dag. Kemur aftur til Rvíkur
kl. 22:30 1 kvöld. Fer til Glasgow og
Khafnar í fyrramálið kl. 08:00. Skýfaxi
fer til Lundúna kl. 10:00 1 fyrramálið.
Innanlandsflug: I dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (3 ferðir), Egils
staða, ísafjarðar, Kópaskers, Vestm.
eyja (2 ferðir og Þórshafnar. Á morg
un til Akureyrar (3 ferðir), Egilsstaða,
Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, isafj.,
Kirkjubæjarklausturs og Vestm.eyja
(2 ferðir).
Loftleiðir h.f.: 1. september er Snorri
Sturluson væntanl. frá NY kl. 06:30.
Fer til Luxemborgar kl. 08:00 Kemur
til baka kl. 24:00 Fer til NY kl. 01:30.
Þorfinnur karlsefni er væntanlegur frá
NY kl. 09:00 Fer til Osló, Khafnar og
Hamborgar kl. 10:30. Eiríkur rauði er
væntanlegur frá NY kl. 12:00 Fer til
Luxemborgar kl. 13:30. Kemur tilbaka
frá Luxemborg laugardagsmorgun kl.
04:00. Heldur áfram til NY kl. 05:30.
Leifur Eiríksson er væntanlegur frá
Stafangri og Osló kl. 23:00 Fer til NY
kl. 00:30.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Archangel. Askja fer frá
Leningrad í kvöld til íslands.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er í Dublin. Dettifoss er á leið til Vest
mannaeyja og NY. Fjallfoss er á leið
til Vestm.eyja Akraness og Keflavíkur.
Goðafoss er á leið til Hull. Gullfoss er
í Rvík. Lagarfoss er á leið til Rvíkur
Reykjafoss er á leið til Rvíkur. Sel-
foss er á leið til Rvíkur Tröllafoss er
í Rvík. Tungufoss er á leið til Húsa
víkur og Siglufjarðar.
Jöklar h.f.: Langjökull fór frá Þórs
höfn til Gautaborgar 29. ágúst. Vatna
jökull er á leið til Grimsby.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá
Khöfn i kvöld til Gautaborgar t>g
Kristiansand. Esja er á Austfjörðum
á norðurleið. Herjólfur fer frá Vestm.
eyjum kl. 22:00 1 kvöld til Rvíkur.
Skjaldbreið fer frá Rvík á morgun
vestur um land til Akureyrar. Herðu
breið er á Austfjörðum á suðurleið.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík.
Arnarfell er í Archangelsk. Jökulfell
lestar á Norðurlandshöfnum. Dísarfell
losar á Norðurlandshöfnum. Litlafell
losar á Skagafjarðarhöfnum. Helgafell
er á leið til Riga. Hamrafell fór 23.
þ.m. til Batumi.
MENN 06
= MALEFNI=
FYRIR SKÖMMU birtist grein
í Kanadablaðinu The Globe
and Mail Overseas um Walter
Jacöbson Líndal, dómara og
rithöfund, sem er fæddur á ís
landi, en býr nú í Manitoba.
Greinin birtist í þætti, sem
nefnist Gallery of Canadians
og er þar skýrt frá æviatriðum
merkra Kanadabúa. Walter
Jacobson Líndal gegnir nú
dómaraembætti, en auk þess
hefur hann skrifað nokkrar
bækur.
Walter Jacobson Líndal
í greininni um hann segir m.
a.: Walter Jacobson Líndal,
sem nú er dómari í Manitoba
er fæddur á íslandi, en faðir
hans fluttist til Kanada í leit
að betri lífskjörum.
Fyrir nokkrum árum ritaði
Líndal, dómari bók um íslend
ingana í Saskatchewan, hvern
ig þeir hjálpuðu til að nema
nýtt land og veita menning-
unni út á auðnirnar. Með lýs
ingunni á' því hvemig fslend
ingar búsettu sig þarna og
löguðu sig eftir hinu nýja um-
hverfi segir Líndal sína eig
in sögu.
Árið 1887, sama ár og Líndal
dómari fæddist, ákvað faðir
hans að flytjast til Kanada.
Fjölskyldan settist svo að í hér
inu Lögberg í Saskatchew
an, 1890, en það hérað var
mjög afskekkt og einangrað.
Þarna ólst Lindal upp, en
1908 fluttist hann til Hóla
skammt frá Leslie.
Hann vissi að menntun var
leiðin til frama, svo hann fór
að vinna við sögunarmyllu og
við fiskveiðar og kostaði þann-
ig nám sitt við menntaskóla í
Winnepeg. Hann reyndist prýð
is námsmaður og útskrifaðist
með mjög góðan vitnisburð
1911. Þá ákvað hann að leggja
stund á lögfræði við Saskatche
wan háskóla og útskrifaðist
þaðan 1914. Hann hóf þó ekki
lögmennskuferil sinn strax, en
lét skrá sig í herinn og tók
þátt í fyrri heimsstyrjöldinni,
þar sem hann særðist og lá á
sjúkrahúsi í Kanada í nokkur
ár. 1919 varð hann hæstaréttar
lögmaður í Manitoba og við
dómarasæti tók hann 1942.
Árið 1940 var bók hans
„Two Ways of Life“, eða
tvennskonar líf, gefin út og
hlaut góða dóma bókmennta-
gagnrýnenda. Líndal bar ríki
þar sem stjórnin er öll í hönd-
um eins flokks saman við lýð
ræðið í vestrænum ríkjum og
talaði um hina áframhaldandi
baráttu við að koma á jafn-
vægi milli frelsis einstaklings
ins og valds stjórnenda ríkis
ins.
1946 gaf hann út bækurnar
Skyldur og réttindi íbúa Kan
ada og Hin aukna löghlýðni
okkar. Þar útskýrir hann efnið
„því minni, sem heimurinn
verður þeim mun meiri lög
hlýðni þarf að ríkja“.
Júmbó var auðvitað strax
búinn að gera „hernaðar-
áætlun“, og nú gerði hann
Apaketti grein fyrir, hvað
hann hafði í huga. Til að
byrja með skyldu þeir læð-
ast nær flugmönnunum og
reyna að hlera samtal þeirra.
— Skál, gamli þrjótur!
hrópaði annar þeirra, — og
njóttu þess nú, að við get-
um setið hér í forsælunni í
mestu makindum og skrópað
úr vinnunni í Djelba. Og
blessaður kæfðu þig nú ekki
á þessum osti þínum!
Á þessari sömu stundu —
en langan veg frá vininni —
óku leynilögreglu-meistararn
ir tveir fram á dálitla úlf-
aldalest. — Haha! hrópaði
Úlfur sigri hrósandi, — þar
höfum við þrjótinn! Nú skul-
um við beita allri okkar
slægð og snilli.
— Sanzaðu — í nafni lag-
anna! æpti hann. — Þú ert
tekinn fastur fyrir þjófnað
og árás! Þér er hollast að
afhenda allt þýfið þegar í
stað, eða ég .... — Eruð
þér búnir að fá sólsting, mað
ur minn, eða eruð_þér bara
genginn af göflunum? spurði
Bedúíninn vingjarnlega.
>f >f >f
GEISLI GEIMFARI
>f >f
__ Hvílík smán, hvílík auðmýking, — Það er nokkuð, sem er enn ástæðu til að ætla að stúlkurnar séu
hvílkar áhyggjur! " verra ungfrú Prillwits! Ég hef nú í höndum Ardölu!
— Ardala! Hver er bað?