Morgunblaðið - 31.08.1961, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.08.1961, Blaðsíða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. ágöst 1961 ....- ""*............ AUSTUR í Persíu boðaði | Zaraþústra spekingur þá trú, f§ að manneölið væri skipt í || tvær náttúrur, góða og illa. || Nú hefur það komið í ljós, ;i| að góði hrafninn frá Úifars- felli, sem talið var að um- : hverfzt hefði og hlotið jn ik- leg málagjöld uppi í Mosfells || sveit á mánudaginn, er tveir hrafnar, góður og annar held:|| ur verri, svo ekki sé meira §§ sagt. Hrafninn frá Úlfarsfelli !if- ir góðu lífi á Ásulandi við || Reynisvatn. Á Úlfarsfelli hafði hrafninn fundið hvöt" " hjá sér til þess að aðstoða við málun á rakstrarvél og feng- Sjö stúdentar hljóta 30 þús. kr. styrki í 5 ár í FJÁRLÖGUM fyrir árið 1961, 14. gr. A. II. er svo fyrir mælt, að af fé því, sem ætlað er til styrkt ar íslenzkum námsmönnum, skuli gert ráð fyrir sjö 30 þúsund kr. styrkjum til allt að fimm ára náms erlendis eða við Háskóla ís lands. Skulu styrkir þessir veitt ir nýstúdentum, sem sýnt hafa sérstaka hæfileika til náms — Þessi mynd var tekin af góða krumma í gær upp við Reynisvatn. (Ljósm. Mbl. KM) hjólbarðinn á hlaðinu á Ásu- lundi. Það þóttu heldur en ekki gleðitíðindi á Úlfarsfelli, þeg ar fréttist um góða heilsu Innir hrafninn: Aldrei meir kk ið rauðan blett á vænginn. Það stendur heima við hrafn- inn á Ásulandi. Hann hefur þrifizt þar ágætlega í næst- um tvær vikur og er farinn að segja já, já. Hann hefur gamnað sér við börnin og leikið við hvem sinn fingur, sagði frúin á Ásulandi. Við sjáum mikið eftir honum. Börnin á Úlfarsfelli koma að sækja hann á morgun. Hrafninn ,sem gerði usl- ann í Reykjahverfinu er hins vegar dauður og grafinn, eins og skýrt var frá í blaðinu í gær. En hvaðan kom hann? Uppruni annars hvors hrafnsins liggur ljós fyrir. I vor stálu strákar einum hrafnsunga í hreiðrinu við Hafrahlíðarhornið. Sigurður Ólason lögfræðingur fann hrafninn ófleygan við bú- stað sinn og þau hjónin færðu honum daglega mat upp í hlíðina. Svo kom benzínverkfallið og krummi fór illa út úr því, eins og svo margir aðrir. Ekki var hægt að fara daglega upp að Hafravatni og fóðra fuglinn, og svo hvarf hann. Dauði hrafninn sagði hins vegar ekki sitt síðasta orð á mánudag. Þegar framkalla átti filmuna af honum og banamanni hans í gær, þá varð framkallarinn of sterk- ur og lá við að myndin færi út um þúfur. Þegar brjóta átti söguna af hrekkjabrögð- um hans inn á síðuna, þá hrundi letrið í gólfið. Og þegar mynda átti góða krumma í gær, þá sprakk krumma. íbúar Reykjahverf- isins varpa hins vegar önd- inni léttar, þegar hinn spillti frændi góðakrumma er kom- inn undir græna torfu. Grafskrift okkar yfir hon- um er úr ljóðmæli Poe í þýðingu Einars Ben.: Eg var hryggur i þann tíma, og þó lá mér við að kíma, er ég krumma kæki leit, svo kringilegir voru þeir ... J. R. Menntamálaráði fslands er falið að úthluta styrkjunum. Hinn 6. júlí s.l. auglýsti Mennta málaráð eftir umsóknum um fyrr greinda styrki. Umsóknarfrestur var til 10. ágúst. Alls bárust 18 umsóknir. Hugðust umsækjend! ur leggja stund á eftirtaldar náms greinar (aðalnámsgreinar einar taldar): Fimm ætluðu að nema verkfræði, fjórir læknisfræði, —■ tveir hagfræði og einn hverja eftirtalinna greina: dýralækning ar, eðlisfræði, ensku, norrænu, sálarfræði, stærðfræði og tann- lækningar. Menntamálaráð hefur lokið út hlutun styrkja þessara. Eftirtaldir stúdentar hlutu I ár fimm ára styrki: Guömundur Sigurðsson stúdent úr Menntaskólanum á Akureyri, til náms í læknisfræði. Guðrún Agnarsdóttir, stúdent úr Verzlunarskóla íslands, til náms í læknisfræði. Gunnar Benediktsson, stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík til náms í rafmagnsverkfræði og stærðfræði. Gunnar Karlsson, stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni, til náms í sálarfræði og þjóð- félagsfræði. Þorgeir Pálsson, stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík, til náms í flugvélaverkfræði. Þorsteinn Gylfason, stúdent úr Mermtaskólanum í Reykjavík, til náms í hagfræði. Þórir Jónsson, stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, til náms í norrænu. Þess skal getið, að umsóknum allra fyrrgreindra stúdenta fylgdu mjög eindregin meðmæli skólastjóra og kennara. Norrænn bókafundur OSLÓ, 24. ágúst — (NTB) — Norrænn akademískur bókafund ur hefst hér í Osló á föstudag og mun standa til sunnudags. Hin mikla grózka í starfsemi há skólanna á Norðurlöndum gerir vaxandi kröfur til bókaútgáfu og — verzlunar á þeirra sviði. Það eru einkum vandamál spunnin af þessum toga, sem rædd verða á fundinum. Þar á meðal mun verða fjallað um möguleikana á sameiginlegri útgáfu norrænna bóka, sem notaðar eru við há- skólakennslu; svo og hugsanlega samvinnu um innflutning og út- vegun á vörum í þarfir stúd- enta. Fundinn sitja alls 30 fulltrúar frá Danmörku, Finnlandi, ís- landi, Noregi og Svíþjóð. — Samkvæmt upplýsingum, er Mbl. hefur aflað sér hér, tekur Njörður P. Njarðvík, stud. mag. þátt jl störfum fundarins af hálfu Stúdentaráðs Háskóla ís- land3. • Kiljanskvöld í sumar hafa öðru hverju borist okkur til eyrna auglýs- ingar um Kiljanskvöld — í Ólafsvík, á Sauðárkróki á Vopnafirði og víðar. Ég hugs- aði ætíð með mér að þegar sýningar þessar bærust til Reykjavíkur þá ætlaði ég að fara. Svo á laugardag, þegar önnur sýning var auglýst um kvöldið, var mér sagt að ekki gæti orðið framhald á sýning- unum, vegna þess að Lárus Pálsson væri að fara í sjúkra hús á mánudag og flokkurinn mundi aðeins hafa eina sýn- ingu í viðbót á sunnudags- kvöld austur á Flúðum. Ég var svo heppinn að fá miða á laugardagssýninguna í Iðnó, og þurfti því ekki að elta flokkinn austur í Hreppa. Ég átti von á skemmtilegri stund, en sýningin tók þó langt fram því sem ég hafði búizt við. Þetta Kiljanskvöld er í meðförum þeirra Helgu Valtýsdóttur, Lárusar Pálsson ar, Haraldar Björnssonar og Rúriks Haraldssonar að mín- um dómi, afar ánægjuleg sýn- ing. Fyrri helmingur sýningar- innar er úr Paradísarheimt og eru persónurnar stórskemmti- legar í meðfönim leikaranna — ekki síður en á síðum bók- arinnar, Steinar Steinsson í Hlíðum undir Steinahlíðum sem aldrei sagði já eða nei, Steina dóttir hans, sem ekki vissi glöggt hvernig hún var orðin þunguð, prangarinn og kvennabósinn Björn á Leir- um, sýslumaðurinn með hug- sjónirnar, Þjóðrekur morm- óna-biskup með boðskap sinn um förina yfir eyðimörkina og biðillinn, frá næsta bæ, er eygði möguleika á jarðnæði fyrir það eitt að segjast hafa lagt konu upp á kistu frammi í búri. Ef þessar persónur eiga ekki með tímanum éftir að verða álíka kunnar og vinsæl- ar og Bogesen, Ásta Sóllilja, heimasætan á Fæti jmdir Fótafæti og fleiri skemmti- legar Kiljanspersónur, sem allir þekkja, þá er ég illa svik- inn, • Þrjár sögupersónur Næst á sýningunni komu þrjár sögupersónur: Todda trunta úr Sölku Völku vitn- aði á sinni Hjálpræðishers- samkomu (Helga Valtýsdótt- ir), Gudmundsen kaupmaður (Haraldur Björnsson) úr Brekkukotsannál hélt sína stórkostlegu ræðu til heiðurs söngvaranum sem var búinn að bera hróður landsins út um víða veröld, og Pétur þrí« hross (Rúrik Haraldsson) lýsti fyrir Ljósvíkingnumi hugsjónum sínum um flugmál og trúmál. • Nýr Jón Hreggviðsson Ég hafði orðið fyrir von- brigðum, þegar ég sá að síð- asti hluti Kiljanskvöldsins voru þættir úr íslandsklukk. unni, þar eð það hefur áður verið flutt hér. En þetta reynd ist vera alveg ný sýning. Eitt atriðið, Breiðafjarðarsenan, þar sem þau eru, Snæ- fríður íslandssól og Árni Magnússon, hefur ekki verið fyrr á sviði. Og hin atriðin. sem tekin voru, í alveg nýj- um búningi. Það var gaman að sjá hve ólíkur Jón Hregg- viðsson í meðförum Lárusar var Jóni Brynjólfs Jóhannes- sonar. í meðförum Lárusar var hann glæpamaðurinn svarti, en Brynjólfs gráskeggj aði ásótti bóndinn frá Rein .— hvor öðrum sannari og skemmtilegri, þó þeir séu svona ólíkir. Aðrar gamal- kunnar persónur svo sem danska frúin voru • einnig komnar í ný og skemmtileg gerfi. Ég varð ákaflega hrifinn af þessari sýningu, og heyrðist aðrir sem ég talaði við einnig vera það. Skaði að sýningar skuli þuría að falla niður. AS vísu hefur Lárus fengið frest hjá læknum sínum, svo hann geti leikið á einni sýningu enn — í kvöld — en Kiljans- kvöldið er þess virði að fleiri sjái það en komast á eina sýningu í viðbót í Iðnó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.