Morgunblaðið - 31.08.1961, Síða 10

Morgunblaðið - 31.08.1961, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. ágúst 1961 Í>AÐ ER fagurt og búsaeldarlegt um að litast í Skaftártungunni, sveitinni, sem liggur milli Hólms ór Og Eldvatnsins. Tungufljót lið ast eftir sveitinni miðri, — baggja vegna lágir bungumyndaðir ásar með mýrasundum og dældum á milli. í hlíðunum er kjarr með fjðlbreyttum gróðri. Framundir ihæðunum standa reisulegir bæ- ir, sem brosa mót bjartri sól. Já, sannarlega er þetta búsældarleg sveit með góðu beitilandi og gild um bændum. Efnamenn í Tung unni, bæði leikir og lærðir. En þetta er kannske óþarfur Heimsókn í Sknftárdol formáli. f þetta sinn ætla ég ekki að koma á neinn bæ í Skaftár- tungu. Ferðinni er heitið annað. Við ætlum að koma að Skaftár dal, yzta bænum á Síðu. Við beygjum út af þjóðvegin- um austan við Tungufljótsbrúna og ökum upp Búlandsveg, fram með Eldvatninu, framhjá Hvammi Og Búlandi. Við hittum Gíála bónda, þar sem hann er með fólki sínu að hamast í að taka saman sílgræna töðuna og setja hana í bólstra. En við tefj um þau ekki. Það er svo skúra- legt. Hann getur vel komið á. • Brúargerð á stórvatni. Skaftá aðskilur Síðu og Skaft ártungu. Þar er hún nefnd Skaft árdalsvatn. Hér er í smíðum mik ið og nauðsynlegt mannivirki, brú argerð undir verkstjórn Valmund ar Björnssonar frá Svínadal, hins kunna og dugmikla brúarsmiðs okkar Vestur-Skaftfellinga. Það er mikið lán fyrir okkar vatna- ríka hérað að eiga slíkan mann. Við brúarstæðið fellur áin í tveimur frekar mjóum álum. Milli þeirra er allbreiður rimi af Eldhrauninu, úfnu Og karga- þýfðu, vöxnu gráum mosa. Yfir vestari álinn er brúinn fullgerð. Það eru tveir menn að leggja á hana slitgólfið. Yfir austari álinn er farið í kláf. Aldrei höfðum við notað slíkt farartæki fyrr. Það er gaman að svífa yfir fyssandi strenginn í ánni, og það er eng inn hræddur, því allir geta treyst öruggum útbúnaði Valmundar og manna hans. Það er lokið við að steypa stöplana á báðum bökkunum. Á eystri bakkanum eru brúarsmið imir í óðaönn að reisa háan turn úr sverum trjám. Það á að nota hann, þegar brúin verður dregin yfir ána í heilu lagi og komið fyr ir á stöplunum. Þessi brú var áður á þjóðveginum á Tungu- fljóti. Nú er verið að ryðhreinsa hana og mála, svo að hún sómi sér vel í hinu nýja sæti. • Eldflóðið eins og vatn í leysingu Enginn mun koma svo á þessar slóðir að honum verði ekki hugsað til Skaftárelda. Hér erum við eiginlega á miðju leiksviðinu í þeim stórkostlegu náttúruham- förum. — Það er gott að lofa síra Jóni Steingrímssyni að lýsa því, sem hér gerðist 12. júní 1783: Þá var sunnangola og heiðríkja. — „Kom nú eldflóðið fram úr Skaft árgljúfri með ógna framrás, brestum, undirgangi og skruðn- ingum, svo þá eldurinn datt ofan í vatnskvikumar eða rennsli, urðu svo harðir smellir, sem mörg um fallstykkjum væri senn af hleypt!“ — Þann 16. júlí var sama veðrátta og kom þá „ógnar legur eldgangur fram úr Skaftár gljúfri, að allt gljúfrið sýndist fullt af honum“. Og nú sýndist bóndanum á Skaftárdal ekki leng ur vært á bakka þessarar eld- móðu, og þarf enginn að lá hon um það. Þeir voru „mátavinir“, hann og síra Jén, „og Dað hann mig hjálpa sér að komast þaðan“. Og ekki stendur á síra Jóni frek ar en endrahær. Hann safnar sam an hestum og mönnum, og held ur út yfir heiðar. „Flutti ég hann svo með fólki sínu, stórgripum og öllu því er á hesta varð kom ið, burt þaðan á heimili mitt (Prestsbakka) og hýsti hann í 5 vikur . . . Þá var að sjá milli Árfjalls og Skaftártunguháls- anna eitt logandi bál. . . Eg gekk með samferðamönnum mínum út að gljúfrinu. Var þá eldflóðið á svo höstugri framrás, sem þá rennandi stórvötn eru í ísaleys ingum á vordag. Mitt í eldflóðinu framrunnu og byltust svo stórir klettar og bjarghellur sem stór hvelir væri á sundi, eða því um líkt, allt glóajidi, og nær þeir rák ust á eitthvað hart, sem fyrir varð í framrásinni . . . flaug og tindraði úr þeim svo stórir neist ar og eldglossar hingað og þangað að hræðilegt var á að horfa!“. Þannig lýsir síra Jón þessum mesta hamagangi náttúruaflanna sem um getur í íslandssögu. • „elfar harðstjórn hrundið“. Hraunrennslið fyllti gljúfr ið, og þegar áin kom aftur fram kvíslaðist hún um hraunið, og þar sem hún er brúuð rennur hún í tveim álum eins og fyxr er sagt. Þegar fram dregur slær hún sér meira út og kvíslast þá milli margra hólma, stórra og smárra. Þar var hún farin áður fyrr, með an þjóðleiðin lá út Síðuheiðar út í Skaftártungu áður en vegur inn kom yfir Eldhraunið. Mun þá oft hafa verið slarksamt og erf itt að komast yfir Skaftárdals- vatn, ekki sízt með stóra fjár- rekstra á haustin. Reyndi það mjög á þrek rekstrarmanna, út- sjón þeirra, dugnað og harðfengi. Einn stærsti rekstur, sem yfir Skaftárdalvatn hefur farið er sjálfsagt þegar Árni sýslumaður Gíslason flutti frá Klaustri suður í Krýsuvík 1880. Þá átti hann 1300 fjár og var hæsti framtelj- andi lausafjártíundar á landinu. Hin síðari ár hafa ekki aðrir þurft að fara yfir Skaftárdalsvatn en Skaftárdalsbændur og þeirra fólk. Hefur þeim aldrei hlekkzt. þar á, þótt oft hafi þurft að tefla á tæpt vað. — Eg efast um að þeir hafi nokkru sinni misst þar kind. Síðan trukkarnir og jepparnir og önnur svaðilfarar-tól komu til sögunnar hefur vatnið oft verið farið á bíl. Og „nú er loksins elfar harðstjórn hrundið, hennar einvald föstum skorðum bundið“. • Ný hús ungrar kynslóðar Eftir fárra mínútna gang frá vatninu erum við komin heim að Skaftárdal. Gamall, vinalegur burstabær stendur í miðju, stóru túni þar sem dökkgræn háin bær ist í landnorðan golunni. En þar sveit. Hér búa hjónin Þorbjörg Jónsdóttir frá Skál og Kristján Pálsson frá Jórvíkuhryggjum i Álftaveri. Og synir þeirra ætla að búa í nýju húsunum, Böðvar er kvæntur Guðlaugu Þorbergsdótt ur frá Hraunbæ, Oddsteinn er kvæntur Sigurrós Gunnarsdóttur frá Borgarfelli. Það var árið 1918, sem þau Þor* björg og Kristján hófu búskap á Skaftárdal. Það er eins og allir vita, stórmerkilegt ár. Árið, sem heimsófriðnum fyrri lauk, árið, sem fsland varð fullvalda ríki, árið, sem spanska veikin geisaði. En engan af þessum atburðum þarf að nefna í sambandi við bú- skap hinna ungu hjóna á Skaftár dal. Ráðherrann lýsti sjálfstæðinu á Stjórnarráðströppunum, höfð- ingjarnir sömdu Versalafriðinn Og Gísli Sveinsson stöðvaði spönsku veikina við Fúlalæk. En það var annar stórviðburður, sem í bókstaflegum skilningi kom inn fyrir vallargarð unga bóndans á Skaftárdal. Það var Kötlugosið, sem hófst 12. október 1918. Sumarið „fyrir Kötlu“ var’ ó- venjulegt grasleysi. Þó gat Krist ján skafið 25 hesta upp úr hræ- snöggu túninu á Skaftárdal. Það var allur töðufengurinn. Rúma Ungu bændurnir á Skaftárdal — Oddsteinn t.h. og Böðvar t.v. * Skaftárdalsvatni Hjónin á Skaftárdal — Þorbjörg Jónsdóttir og Kristján Pálsson — ásamt dótturdóttur sinni. er engu líkara en dagar þessa bæjar séu senn taldir. Arftakar hans standa þarna hjá honum og láta allmikið yfir sér. Austan við bæinn stendur nýtt, hvítmálað steinhús með rauðu þaki. Fram an við hann er annað hús í bygg ingu, stærðar skúr með snarhöllu þaki og gluggum eins og í tísku búð. Það kemur sér að glerið er tvöfalt og vel er séð fyrir úpphit- un. Þessi hús eru hús framtíð arinnar, — hús ungu kynslóðar innar. Það er líka auðséð á þeim. Þau eru ung Og djarfleg eins Og hún, og hafa brotið allar venjur og allar reglur, sem ríkjandi hafa verið í húsagerð í íslenzkum sveit um í þúsund ár. • 25 hesta töðufengur En sleppum því. Vikjum að fólkinu, sem á heima hér á þessu stórbýli. Það er fólkið, sem setur svip sinn á hvern bæ, hverja 100 hesta reýtti hann saman af útheyi úr heiðinni. Á þetta setti hann kú og 30 kindur. SvO dundi gosið yfir um haustið. Strax á öðrum degi þess — 13. okt. — var jörð orðin svört af sandi um alla Út-Síðu. Tók þá strax fyrir alla beit og hlzt svo allan vetur inn, því hvergi sást á stingandi strá nema þar sem lækir þógu bakka sína í leysingum og norðan kyljan skóf öskuna ofan af hæstu rofum. Næsta sumar voru þykkir sandskaflar á Skaftárdalstúninu og slétt milli allra þúfnana í mýr unum, þar , sem útslægjurnar að allega eru. Þess var því ekki að vænta að heyskapur yrði mikill heima. Þá fór Kristján með fólk sitt inn á Lauffellsmýrar, inn und ir Síðumannaafrétti og heyjaði þar og flutti heyið fram í Eintúna háls. Það er efsti bær á Síðu, sem þá var í byggð. Þar kom hann svo fyrir nokkrum kindurn um vetur inn. Þannig hóf þessi mikli búmað ur búskap sinn á Skaftárdal. En það sannast á honum, að það er „hollari húsbruni en hvalreki á fyrsta ári“. • 1500 hesta heyskapur Þegar við komum að Skaftár dal voru þeir feðgar að hirða, Traktorinn bar sætið heim á heyklónni og blásarinn sópaði þvx inn í hlöðu. Það þarf varla að snerta það hendi frekar en heyið á Oddatúni forðum daga. Nú er allur heyskapur á Skaftárdal tek inn á ræktuðu landi. Túnið er yf ir 30 ha., og mest mun hafa heyj ast um 1500 hestar, en það verð ur nú alltaf sjálfsagt nokkur á- gizkun, síðan hætt var að binda nokkurn bagga, Á Skaftárdal hef ur lengi verið margur fénaður, líklega fleiri en á flestum bæjum öðrum hér um slóðir, þótt ég viti það ekki. Þá var heyfengur inn ekki nema lítið brot af því sem hann er nú. En það var al Framh. á bls. 16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.