Morgunblaðið - 31.08.1961, Síða 12
12
MORGUl\BLAÐlÐ
Fimmíudagur 31. agúst 1961
Útgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: /Vðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
MIKIL HERNAÐARÞÝÐING ÍSLANDS
1? Y R IR skömmu skýrði^
Morgunblaðið frá grein í
nýútkomnu rússnesku tíma-
riti, þar sem rætt er um
breytingu þá, sem orðið hef-
ur hjá varnarliðinu á íslandi
og síðan segir orðrétt:
„Þetta sýnir hina hernað-
arlega þýðingu íslands, sem
liggur við mikilvægar sam-
gönguleiðir á sjó, sérstaklega
kafbátaleiðir."
Þetta sýnir að Rússar gera
sér enn sem fyrr fulla grein
fyrir hinu hernaðarlega mikil
vægi íslands. Það hjálpar
vafalaust til að minna þá á
þetta eyland, að sjálfur Len-
in benti á mikilvægi íslands
hernaðarlega árið 1920. En
enn er blaðað í skræðum
hans sem kunnugt er.
Rússar eiga nú gífurlegan
kafbátaflota, og kafbátar eru
einmitt taldir meðal skæð-
ustu vopna í dag. Hið rúss-
neska tímarit bendir rétti-
lega á, að lega íslands hefur
við tilkomu kafbátanna orð-
ið þýðingarmeiri hernaðar-
lega en ekki dregið úr henni.
Hinn mikli áhugi, sem Rúss-
ar hafa nú á íslandsmálum,
byggist auðvitað á hinu hern-
aðarlega mikilvægi landsins.
Þess vegna er það, sem þeir
verja geysifjárhæðum til
áróðurs hérlendis, stofna
hverja friðarsamfylkinguna
af annarri með mismunandi
skrautlegum nöfnum, senda
hingað listamenn og áróðurs-
fólk, þar á meðal sjálfan
menntamálaráðherrann, sem
talinn er með valdamestu
einstaklingum í Ráðstjórnar-
ríkjunum og hlynna dyggi-
lega að sérhverjum þeim sak-
leysingja, sem þeim ánetjast.
Kommúnistum er það full-
ljóst, að ísland getur ekki
orðið hlutlaust í hernaðar-
átökum. Þeir leggja megin-
áherzlu á að gera það varn-
arlaust, til að veikja varnar-
kerfi lýðræð'isþjóðanna, en
þó auðvitað fyrst og fremst í
þeim tilgangi að geta sjálfir
á fyrsta degi átaka náð hér
fótfestu og aðstöðu fyrirhinn
mikla kafbátaflota sinn.
Þetta mættu þeir menn
gjarnan hafa hugfast, sem í
sjálfu sér eru andvígir komm
únistísku ofbeldi, en þjóna
þó heimsyfirráðastefnu komm
únismans, ýmist með hlut-
leysi eða með því að láta
beinlínis nota sig í þágu of-
beldisins.
ÞÁTTUR
ÞÓRARINS
CÍÐAR í þessari sömu grein,
^ fagnar hið rússneska blað
yfir stjórnmálaályktun Fram
sóknarflokksins og skrifum
Tímans og segir orðrétt:
„Tíminn, málgagn Fram-
sóknarflokksins, krefst þess,
að aftur verði horfið til þess
ástands, sem var 1949—50,
þegar ísland var meðlimur í
NATO en hafði engan amer-
ískan her.
Þessi ályktun hinnar ráð-
andi deildar annars stærsta
stjórnmálaflokks íslands er
alvarlegt áfall fyrir þá, sem
hlynntir eru dvöl ameríska
hersins.“
Rússar tala þannig opin-
skátt um það, að afstaða
Framsóknarflokksins sé „al-
Varlegt áfall“ fyrir hinar
vestrænu lýðræðisþjóðir. —
Skýrar er ekki hægt að lýsa
hlutverki Framsóknarflokks-
ins á íslandi. Það miðarbein-
línis að því að styrkja að-
stöðu Rússa.
Ekki er því að furfta þótt
Þórarinn Þórarinsson sé í há-
vegum hafður fyrit austan
tjald og títt boðinn í heim-
sóknir þangað. Hann er rétti-
lega talinn dyggasti þjónn
kommúnista, vegna þess að
hlutverk hans er að veikja
samstöðu lýðræðisaflanna á
íslandi og opna kommúnist-
um þannig dyr til áhrifa.
Ein af aðferðum Tímans er
sú að líkja stjórnarfari á ís-
landi við ofbeldisverk komm-
únista í Austur-Þýzkalandi
og sérstaklega Austur-Berlín.
Tíminn hefur margsinnis tal-
ið, að stjórnarfar hér á landi
væri svipað og þar austur
frá og þannig viljað leggja
áherzlu á að við þyrftum
ekki að óttast kommúnistisk
yfirráð. Það yrðu ekki mikl-
ar breytingar frá því, sem
nú er.
„SAMÁBYRGÐ
OG GAGN-
KVÆMUR
SKILNINGUR"
¥¥ÉR í blaðinu hefur einnig
** verið greint frá því, að
Framsóknarflokkurinn hafi
sent formann Sambands
ungra Framsóknarmanna og
ritara ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík á þing í
Moskvu, sem haldið var með
kommúnistískum ungmenn-
um víða að úr heiminum. Hin
ir kommúnistísku fyrirsvars-
menn þessa þings lýsa því
sem „fundi friðelskandi
æsku, sem óskar að treysta
samábyrgð sína, bæta gagn-
kvæman skilning og marg-
falda átök sín í þágu glæsts
FYRSTU myndirnar af vetr-
artízkunni bera þess órækt
vitni ,að búizt er við köld-
um vetri í París að þessu
sinnL — Sýningarstúlkurnar
hafa aldrei verið dúðaðar
eins kyrfilega. Ullin í kjólun-
um er í þykkara lagi, yfir-
hafnirnar eru fóðraðar og
bryddaðar skinnum, og þeim
fylgja loðhúfur eða hettur.
Um nýju tízkuna má ann-
ars það segja í stuttu máli,
að kjólfaldurinn hefur síkkað
mn svo sem eina tommu frá
vortízkunni síðustu. Ermarn-
ar hafa og lengst og þrengst
Dragt frá Dior, sem ber öll
einkenni vetrartízkunnar.
Dragtin er laus í mittið og
pilsið keilumyndað — sem
sagt þægileg og ungfrúar-
leg. Athygli skal vakin á
derhúfunni og hálsklútnum,
sem fylgir dragtinni.
sigurs ....“
Framsóknarflokkurinn tek-
ur þannig opinskátt þátt í
því að „treysta samábyrgð
sína“ með heimskommúnism-
anum og sendir fulltrúa sinn
til þess að „bæta gagnkvæm-
an skilning og margfalda á-
tök“ í þágu áforma heims-
kommúnismans.
Það er sannarlega engin
furða, þótt lýðræðússinnaðir
Framsóknarmenn spyrji nú,
hvert sé verið að leiða flokk
þeirra. Því miður er ekki
hægt að gera ráð fyrir að
leiðtogar Framsóknarflokks-
ins séu þeir skynskiptingar,
að þeir geri sér ekki grein
fyrir hættum þeim, sem því
eru samfara að ánetjast
kommúnisma. Af þeim sök-
um virðist augljóst, að ekki
geti annað orðið til bjargar
Framsóknarflokknum en að
hinir óbreyttu flokksmenn
hafi manndóm í sér til að
skipta um forystu og fela
hana mönnum, sem vilja
vinna að framgangi lýðræð-
ishugsjóna en ekki vera á
mála hjá kommúnismanum.
Appelsínugul ullarkápa frá Coma með samlitu kögri á liett-
unni (t.v.) Svart- og hvítyrjóttur tweed-frakki frá Heim (t.h.)
1 ’ Pf |H g
•3 (u vv> '•■,-•■ •••■ • V ■>'
og ná fram á úlnlið. Línan
er næst þvi að vera keilu-
laga. Að öðru leyti gefa með-
fylgjandi myndir mönnum
hugmynd um, hvernig tízkan
veturinn 1961—62 verður.
Hettufrakki frá Dior með
kögri, upplagður klæðnaður
í kaldri og næðingssamri
veðráttu.
3
Þröngur samkvæmlskjóll
frá Dior. Empire-línan
skýtur aftur upp kollinum,
með þeirri breytingu þó,
með barmurinn sýnist flat-
arl. —