Morgunblaðið - 29.10.1961, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.10.1961, Blaðsíða 13
r/ Sunnudagur 29. okt. 1961 M O R G V 'N BXjH Ð l Ð 13 Samhngur '' Andstseðingar Sjálfstæðisflokks Sns höfðu lengi hlakkað til þess, að Ólafur Thors léti af forystu Sjálfstæðisflokksins. Þeir töldu ívist, að það væru einungis yfir- Iburðahsefileikar Ólafs, sem héldi tflokknum saman. Árum sarnan Ihafa þeir breitt út um allt land ffurðusagnir af valdastreitu og 'óvináttu innan flokksins. Svo mæla börn sem vilja. Allir þeir, sem skil kunnu á vissu hinsvegar, að þetta var bláber ímyndun og óskhy.ggja öfundarmanna flokks- Sns, svo sem rækilega staðfestist iá Landsfundinum um síðustu helgi. Fundur þessi var betur sóttur en nokkur annar. Þar voru menn úr öllum byggðum landsins, ung- ir og gamlir, karlar og koníir úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Ei.tt meginverkefni fundarins var að setja flokknum nýjar starfs- reglur, þ. á m. ákvað fundurinn. að formaður og varaformaður skyldu kosnir sérstaklega á Landsfundi sjálfum, auk fimm miðstjórnarmanna en tveir skyldu valdir af flokksráði. Kosn Frá setningu Landsfundar Sjálfstæðisflokksins. REYKJAVÍKURBRÉF eftirtektarverðari sem hann ger- ir sig beran að henni fáum dög- um eftir að hann var kjörinn formaður þingflokks AXþýðu- bandalagsins. Laugaid, 28. okt Formennska Vegna samfylkingartilraunanna hefur ekki þótt henta að þeir félagar hyrfu sjálfir úr landi á fyrstu dögum Alþingis til þess að sitja „flokksþingið". * Þeir muna, að Mokvuferðir hafa stundum vakið óþægilega at- hygli á þjónustusemi þeirra við valdhafana austur þar. Ekki án allrar sómatilfinningar Margir minnast enn myndar- innar af Einari Olgeirssyni, þá- verandi forseta neðri deildar Al- þingis, þar sem hann sat meðal æðstu valdamanna hins alþjóð- lega kommúnisma á byltingar- afmælinu í Kreml 7. nóv. 1957. Hannibal Valdimarsson, þóver- andi ráðherra í ríkisstjórn ís- lands, hljópst sömu erinda brott af Alþingi, þótt honum væri feng inn óveglegri sess þegar austur kom en Einari. Enda má Hanni- bal eiga það, hvort sem það er bonum til lofs eða lasts, að hann er sjálfur ekki visvitandi komm- únisti, heldur einungis verkfæri í þeirra höndum. Flokksþjónust- an er honum ekki eins í blóð borin og félögum hans. Því svar- aði hann óhugsað spurningu Morgunblaðsins á dögunum og sagði: ,-Ég er algerlega andvígur slíku tiltæki. Ég hef annars ekk- ert meira um málið að segja, svona pá stáende fod.“ ingarnar fóru fram sl. sunnudag með þeim hætti, að meðal hinna mörg hundruð fundarmanna, er viðstaddir voru. var útbýtt kjör- seðlum og kaus síðan hver og einn, án þess. að nokkur tillaga eða uppástunga um, hvem kjósa ekyldi. kæmi fram. Þegar at- kvæði voru talin, lýsti kosning formanns og varaformanns slík- um einhug, að einstæður er á jafnfjölmennum fundi. Flokkn- um er vissulega mikil eftirsjá eð Ólafi Thors úr formannssessi. En samhugur flokksmanna, sem ætíð var Ólafi ómetanlegur styrkur, helzt og mun halda á- tfram að verða höfuðstoð flokks- ins. Mikið áunnizt - Stcfnan staðfest Þessi einhugur lýsti sér í öll- um störfum fundarins. Auðvifeið voru ekki allir sammála um öll aukaatriði. Menn settu hiklaust íram skoðanir sínar. gerðu grein tfyrir sérsjónarmiðum og gagn- irýndu það, er þeir töldu betur mega fara. Svo hlýtur ætíð að vera, þar sem frjálsir menn hitt- ast ag Landsfundir Sjálfstæðis- manna eru einmitt vettvangur opinskárra umræðna um þjóð- mnálin. En í meginefnum kom öllum saman. Allir fögnuðu sigri réttlætis bg lýðræðis með kjördæmabreyt ingunni, sigri felenzku þjóðar- innar í landhelgisdeilunni og sigri vináttu og bræðraþels í lausn handritamálsins. Menn gerðu sér grein fyrir, að |>ótt mikið hefði áunnizt í efna- hagsmálunum væri þar enn við imikinn vanda að etja. Fundurinn benti á ýms ráð til lausnar hon- tun og var á einu máli um. að gegn nýjum skemmdarverkum yrði að snúast af fullri festu. Hann minnti á hið gamla kjörorð tflokksins: Stétt með stétt, og að vinnulöggjöfina bæri að endur- skoða með þau sannindi í huga. Fundurinn lýsti samþykki sínu við samningu 5 ára efnahags- áætlunarinnar og afstöðu ríkis- stjórnarinnar til Efnahagsbanda- lags Evrópu. Hann hvatti til tframleiðsluaukningar og bætts vinnufyrirkomulags, sem leitt igæti til lifskjarabóta, og stofn- unar nýrra atvinnugreina, svo sem stóriðju, eftir atvikum með aðild erlends fjármagns, ef tryggilega væri um búið. Þá ítrekaði fundurinn sam- þyk ktir fyrri Landsfunda um endurbætur skattalöggjafar og nauðsyn á jafnvægi uppbygging- ar atvinnuvega um allt land, um aðstoð til þeirxa landshluta og atvinnugreina, sem illa eru stadd ar um sinn. Að lokum hét fundurinn á landsmenn að búa landið sem bezt í hendur komandi kynslóða, halda vörð um frelsi þjóðarinnar og sjálfstæði einstaklinganna, svo að æskulýðurinn geti neytt hæfileika sinna og þekkingar til blessunar íslandi um alla fram- tíð. Traustar varnir Ætla hefði mátt, að eftir allan undirróður hinna svokölluðu ,.hernámsandstæðinga“, þar sem þeir hafa flaggað með nöfnum manna úr öllum flokkum, mundi einhver rödd láta í sér heyra á svo fjölmennum fundi til að draga í efa nauðsyn á vörnum landsins. Enginn varð þó til þess. Enda er sannleikurinn sá, að jafnvel þeir, sem um skeið voru efasamir í þessum efnum, hafa nú sannfærzt um, að öruggar varnir eru ekki síður lífsnauðsyn íslendingum en öðrum frjálsum þjóðum. Af þeim sökum þótti sumum sem flokkurinn hefði að undanförnu verið of afskipta- lítill í þessum efnum og ekki snúizt nógu hart gegn blygðun- arlausum áróðri og óhemju fjár- austri útsendara Moskvuvalds- ins, sem farið hafa um landið í gervi „hernámsandstæðinga". Lengi má um það deila, hvernig bregðast eigi við þvílíkum óheil- indum. Sterkast er, þegar stað- reyndirnar sjálfar tala, og eftir síðustu atburði getur engum ó- blinduðum manni dulizt. að traustar varnir eru nú aðalsjálf- stæðismál okkar kynslóðar á ís- landi. Helsprengja Sovétstjórnar- innar Samkomulag var um, að Lands fundurinn skyldi ekki að þessu sinni gera samþykktir í sérstök- um málum, heldur takmarka sig við samþykkt starfsreglna fyrir flokkinn og almenna stjórnmála- ályktun. Eitt var þó það mál, sem allir fundarmenn voru sam- mála um, að þeir yrðu að láta uppi skoðun sína á. Það var for- dæming á helsprengjum Sovét- stjórnarinnar. Fundurinn sam- þykkti, að taka undir „þá for- dæmingu á kjarnorkusprenging- um Sovétríkjanna, sem fregnir berast af hvaðanæva að úr heim- inum og X>endir á þá geigvæn- legu geislunarhættu, sem ís- ienzku þjóðinni og allri heims- byggðinni er búin, ef SovétriKin halda áfram kjarnorkuspreng- ingum sínum og sér í lagi spreng ingum risakjarnorkusprengja, svo sem boðað hefur verið síðar í þessum mánuði. Framtíðarvel- ferð og heilbrigði þjóðarinnar er stofnað í mikla hættu ef spreng- it.gar þessar verða ekki stöðv- aðar. Um leið og landsfundur lýsir ánægju sinni yfir því, að ísland skuli eiga aðild að flutn- ingi tillögu um þetta mál innan vébanda Sameinuðu þjóðanna. mótmælir fundurinn þessu víta- verða atferli Sovétríkjanna. Skorar fundurinn á þingmenn flokksins að beita sér fyrir því, að Alþingi mótmæli kjarnorku- sprengingum Sovétríkjanna, sem geta haft ógnvænlegar afleiðing- ar fyrir framtíð alls mannkyns." í þesum efnum hefur atburða- rásin orðið örari og uggvænlegri en menn óraði fyrir. Sovétstjórn in hefur daufheyrzt við hinum háværu mótmælum hvaðanæva að og lætur sér ekki nægja sprengingar risa kjarnorku- sprengja í lofti, heldur hefur og hafið neðansjávarsprengingar í Norðurhöfum. Með þesu eitrar hún í senn andrúmsloft og sjávar djúp, svo að ófyrirjáanlegar af- leiðingar getur haft, ekki sízt fyrir okkur Íslendinga, sem bú- um á næstu grösum og eigum afkomu okkar að mestu undir jarðargróðri og sjávarafla. Eðli- legt er því, að uggur og gremja fylli nú huga landsfólksins. „Eg óska ekki eftir að svara.64 Andúð almennings á hinu ó- skaplega framferði Sovétstjórn- arinnar hefur lýst sér með marg- vfelegum hætti, svo sem hinum fjölmenna borgarafundi sl. fimmtudag. Einn er þó sá, sem þrátt fyrir gefið tilefni kaus að þegja um skoðun.sína á þessari ósvinnu. Það er Lúðvík Jósefs- son. hinn nýkjörni formaður þingflokks Alþýðubandalagsins. Morgunblaðið spurði hann og ýmsa aðra sl. þriðjudag þessarar spurningar: ' „Hvert er álit yðar á kjarn- orkusprengingum Sovétríkjanna, nú með sérstöku tilliti til á- kvörðunarinnar um að sprengja 50 megatonna sprengju?" Þdfesari einföldu spurningu, sem ætla hefði mátt, að enginn Íslendingur væri í vandræðum með að svara, svaraði Lúðvík svo: „Ég óska ekki eftir að svara þessari spurningu." Þögn Lúðvíks er þeim mun ^ Lúðvíks Menn hafa nokkuð velt fyrir sér ástæðunni til þess, að Einár Olgeirsson var látinn hætta for- mennskunni og Lúðvík taka við af honum. Engin fullnaðarskýr- ing skal að þessu sinni gefin á því fyrirbæri. En af ræðu Lúð- víks við vantraustsumræðurnar á Alþingi var ljóst, að ein af ástæðunum er sú, að kommún- istar telja sér nú lífsnauðsyn að efna til nýrrar vinstri samfylk- ingar og þá ekki sízt við Fram- sóknarmenn. Vegna vaxandi ó- ánægju í röðum Framsóknar yf- ir samfylkingarbrölti foringja floikksins hefur Lúðvík verið tal- inn álitlegri beita á kommúnista króknum en svo gamalreyndur Moskvumaður sem Einar Olgeirs son. Eðlismunur þeirra er þó enginn. Lúðvík er einungfe æfð- ari í að bregða sér í allra kvik- inda líki. Hann reyndist samt þegar við fyrstu prófraunina ekki nógu snar í snúningum. Moskvuhollustan er honum svo samgróin. að hann gat ebki feng- ið af sér að svara, þegar hann var spurður um, hvort honum líkaði, að andrúmsloftið yfir ís- landi væri eitrað. Úr þessari þögn bætti Lúðvík sízt með vafn ingum sínum á Alþingi. Þar engd fet hann sundur og saman eins og ormur undir ofurþunga almenn- ingsálitsins. Að lokum völdu „línumennirnir“ og þann kost að ,«svara ekki“ heldur sátu hjá við samþykkt Alþingfe um mótmæh' við hið síðasta tilræði Sovét- stjórnarinnar við mannkynið. „Umræður haf nar á flokks|)ingsnu“ Hin sama ósjálfráða þjónustu- semi við Sovétstjórnina lýsti sér í Þjóðviljanum á dögunum, þeg- ar þar birtist á fremstu síðu með stóru letri svofelld fyrirsögn: „Umræður hafnar á flokks- þinginu. Fulltrúar deila hart á Malen- koff og félaga.“ Þjóðviljanum þykir óþarft að greina frá, um hvaða flokksþing hann er að tala. Á sama veg og fjöldi íslendinga eiga við Lands- fund Sjálfstæðfeflokksins, þegar þeir tala um „landsfundinn“, þá á Þjóðviljinn við flokksþing kommúnista í Sovétríkjunum, þegar hann talar um .,flokks- þingið“. Þetta er eðlilegt. Flokkur Lúð- víks Jósefssonar og Einars Ol- geirssonar er aðeins ein deild úr allsherjarflokki kommúnista. — Þetta sýnir, að enn er eftir of- urlítið atf sómatiltfinningu hjá Hannibal. Eða e. t. v. er hann ívið hyggnari en Lúðvík og .,línu mennirnir" og skilur betur, hvað bera má á borð fyrir íslendinga. Tveir sendir austur Leifir ekki atf, því að eftir komu sína frá Tékkóslóvakíu í fyrra lét Kannibal uppi, að kosn- ingafyrirkomulag í löndum aust- an járntjalds væri ólíkt full- komnara en hjá lýðræðfeþjóðum, þ. á m. á íslandi. Kommúnistar treysta Hannibal þó ekki. Þeir telja hann óútreiknanlegan. Á A1 þingi hringsnerfet hann á eftir „línumönnunum“ í kring um hel- sprengjuna en slitnaði þó við þriðja mann aftan úr þeim að lok um. Skiljanlegt er. að kommún- istar kysu Lúðvík sem formann þingflokksins, en settu Hannibal til hliðar. Lúðvík hefur ætíð sýnt óbrigðula Moskvuhollustu, svo sem þegar hann fór til Moskvu rétt eftir setningu land- helgisreglugerðarinnar 1958 tí.1 að sanna heiminum í hverra þjónustu hann væri. Hann hafði og ekki gleymt þjónshlutverki sínu á Genfarráðstefnunni 1960, svo sem alræmt er orðið. Atf fyrrsögðum ástæðum fór enginn höfuðpauranna nú til Moskvu. Engu að síður voru sendir þang- að tveir fulltrúar, þeir Eggert Þorbjamarson og Guðmundur Vigfússon. Er því vel séð fyrir þátttöku íslenzku deildarinnar nú sem fyrr. Hvernig varð hon- um nú við? Eggert Þorbjarnarson mun hafa verið annar þeirra útsend- ara frá íslandi. sem var áheyr- andi ræðunnar miklu, þegar Krúsjeff skýrði 1956 frá glæpum Stalins. Kommúnistar hér hafa í sinn hóp sagt, að Eggert hafi þá orðið svo mikið um, að hann hafi fallið í öngvit og verið lengi að ná sér eftir ógnartíðindin. Ekki fara enn sögur af, hvernig hon- um brá við það framhald glæpa- sögunnar, sem rakið hefur verið á flokksþinginu að þessu sinni. Þar hefur verið frá því skýrt, að hinir æðstu valdamenn, sem til ríkfe komu eftir Stalin, hafi sjálfir tekið þátt í glæpum síns gamla húsbónda, og síðar sjálfir Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.