Morgunblaðið - 14.12.1961, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.1961, Side 8
8 MORnTjnnr *f)TÐ Fimmtudagur 14. des. 1961 Fyrirhugaðri stækkun Mennta- skólans lokið næsta haust VTÐ fjárlagaumræðurnar í sam- einuðu þingi á þriðjudagskvöld skýrði Gylfi Þ. Gíslason mennta- málaráðherra frá nýjum fyrir- ætlunum um bygging-armál Menntaskólans í Reykjavík. Miklar deilur tafið framkvæmdir. Menntamálaráðherra skýrði frá því, að nú væru 7&0 nemendur í skólanum og færi þeim fjölg- andi. Skólinn hefði fyrir löngu sprengt af sér húsnæðið, enda búinn að vera í þessum sömu húsakynnum í meira en öld. En ástæðan fyrir því, hve lengi dreg izt hefur að gjöra endurbætur, kvað ráðherrann þá, að þegar al- varlega kom til greina fyrir 20 árum að gera átak í þessum efn- um, hófst. mikil deila um, hvern- ig framkvæmdum skyldi hagað. Sumir vildu, að frambúðarhús- næðið yrði þar, sem Menntaskól- inn er núna, en aðrir vildu flytja hann frá þessum sögufróða stað á annan og hafa þá margir staðir komið til greina í ýmsum út- hverfum bæjarins, svo sem í Skerjafirði, Láugarnesi eða Hlíð- unum. Aldrei náðist samkomulag ADAX ADAX er fyrirferðarlítil og lipur til daglegrar notkunar, en mjög öflugur mótor ræður auðveld- lega við þyngri verkefni, enda fylgja eða fást aukalega öll hugs- anleg tæki, svo sem þeytarar, hnoðarar, hakkavél, kökusprauta möndlukvörn, ávaxta- og berja- pressa, grænmetisskeri og raspur, blöndunarglas o. fl. ADAX er sterk, vönduð og falleg og fæst í fjórum litum. 3ja ára ábyrgð. Afborgunarskilmálar Sendum um allt land um. hvernig með málin skyldi fara; forvígismenn skólans, rekt- or og kennarar, og f jölmargir aðr ir, sem létu sér umhugað um skólann, skiptust í tvo fjandsam- lega hópa. svo að aldrei var endanleg ákvörð un tekin í ríkis- stjórninni um málið. — Nú hins vegar fyrir nokkrum dögum náðist samstaða meðal forvígismanna skólans og gerðu þeir einróma ályktun á kennarafundi um byggingarmál- in. Og þótt ríkisstjórnin hafi ekki tekið endanlega ákvörðun um málið, taldi ráðherrann víst, að hún mundi fallast á þau sjón- armið. 8 nýjar kennslustofur. Eins og nú standa sakir, eru 10 kennslustofur í gamla skól- anum, auk þess 2 í svonefndu „Fjósi“. Þá stendur gamalt leik- fimihús á skólalóðiimi svo og bókasafnið íþaka, sem er félags- heimili nemenda. Gert er ráð fyr HEIVTUGASTA HRÆRIVÉLIN 0 Oíxíllx O. KORNERUP-HANSEN Vegleg jólagjöf nytsöm og varanleg Sími 12606 — Suðurgötu 10 ÚTILJÓSASERÍUR LITAÐAR PERUR JÓLATRÉSERÍUR HRINGBAKARAOFNAR VÖFFLUJÁRN BRAUÐRISTAR HRÆRIVÉLAR, 3 tegundir HRAÐSUÐUKATLAR SAUMAVÉLAM ÓTORAR ew /k-A n _ VESTURGÖTU Z - SÍMI 2k330 ir, að „Fjósið" og leikfimihúsið verði rifin. en í stað þess rísi nýtt einnar hæðar hús í svonefndum ,,parion-stíl“, sumpart á menta- skólalóðinni og sumpart á lóð þeirri sem er í eigu Olíufélagsins og liggur austur af Menntaskól- anum upp undir þær lóðir, sem íbúðarhús við Þingholtsstræti standa á. í þessari byggingu er gert ráð fyrir, að verði 7 kennslu stofur, þar af 4 rúmgóðar sér- kennsíustofur fyrir efnafræði, eðl isfræði, náttúrufræði og „húman ísk“ fræði, en á þeim hefur ver- ið mikil þörf. í tengslum við þessa byggingu verði önnur bygg ing reist út við Bókhlöðustíginn þar sem hvort tveggja verði í senn, Ieikfimihús og samkomusal ur, en í kjallara fatageymslur og snyrtiherbergi. Þá yrði sú kennslustofa, sem nú er notuð sem fatageymsla og er algjörlega ófullnægjandi sem slík, á ný tek- in til kennslu. Til viðbótar þeim 11 kennslustofum sem þá yrðu í gamla skólanum, kæmu með þessu móti 8 nýjar. en 2 missast við það, að ,,Fjósið“ verður rifið. Eins og fyrr getur. verður hið nýja leikfimihús útbúið þannig, að það verður jafnframt hinn raunverulegi samkomustaður nemenda og ekki þarf þá lengur að nota hinn sögufræga stað, Há- tíðarsal Menntaskólans, fyrir samkomur og dansleiki. Með þessu móti ætti skólinn að geta hýst um 1000 nemendur, miðað við að tvísett verði í all- flestar kennslustofurnar, og gert er ráð fyrir, að þessi stækkun muni duga Menntaskólanum næstu 4—5 árin a.m.k., eða jafn lengi og reiknað er með, að Menntaskólinn gamli verður not hæfur sem skólahúsnæði. Tilbúhui næsta haust. Áætlað er, að þessar fram- kvæmdir muni kosta 10—11 millj. króna, en í byggingarsjóði Menntaskólans eru 7—8 millj. króna, svo að ásamt framlagi á fjárlögum fyrir 1962 til Mennta- skólans, sem nemur 2 millj. kr„ þá mun það fé fara langt með að duga. Enn fremur gat ráðherr- ann þess. að húsameistarar hafa fullvissað sig um, að hægt muni að Ijúka þessum framkvæmdum á einu sumri, sé undirbúningur þeirra hafinn nógu snemma vors eða seint vetrar. Því megi ætla, að hin nýju húsakynni Mennta- skólans verði öll tilbúin næsta haust, en með því móti má hik- laust telja, að vel sé séð fyrir húsnæðisþörf Menntaskólans a. m.k. um 4—5 ára skeið. Loks gat ráðherrann þess, að með þessu væri ekki nóg að gert, jafnframt yrði að hefja undirbún ing að byggingu nýs Mennta- skóla. En með því að hefjast handa þegar í stað í því skyni, niegi gera ráð fyrir, að hinn nýi skóli verði tilbúinn til notkunar eftir 6—8 ár, en þá má tvímæla- laust telja. að þörf verði fyrir annan menntaskóla. Borghildur Ragnarsdóttir f DAG er til moldar borin Borg- hildur Bagnarsdóttir, Bárugötu 40, dóttir hjónanna Magnhildar Magnúsdóttur og Ragnars Pét- urssonar, Bannveigarstöðum, Álftafirði. Borghildur var fædd 25. marz 1934, hún var gift Olfer Jean Jensen, rafvirkja héðan úr Reykjavík. Við Borghilduí', eða Bodda, eins og hún var alltaf köMuð er- um báðar úr sömu sveit og höf- um því þekkst frá barnæsku, þó að kynning okkar hæfist aðal- lega eftir að við urðum viunu- Af.s. „Cullfoss 44 fer frá Reykjavík mánudaginn 18. des. kl. 5 síðd. til Akureyrar. Skipið hefur viðkomu á Isafirði og Siglufirði vegna farþega. H.f. Eimskipafélag Islands Afgreiðsla Afgreiðslumaður eða kona óskast eftir áramótin, febr./marz. í karimannafataverzlun. — Til greina getur komið sem verzlunarstjóri síðar. — Umsókn óskast send afgr. Mbl. fyrir 20 þ.m. merkt: „Miðbær — 199“. Borðbúnaður Við flytjum inn þessar fallegu gerðir: H E L G E : Ronosil-eðalstál N I Z Z A Eðalstál V I D A R : Silfurplett, EPNS Nýjar sendingar komnar Síðustu sendingar fyrir jól Silfursmiðir — Úrsmiðir Hðn Glpmuntisson Skar(9ripaverzlun ,Fagur gripur er æ til yndis" félagar. Bodda var góður vinnu- félagi, alltaí glaðvær og -kemmti leg í samstarfi. og ekki síður góð og skemimtileg vinkona utan vinnutímans. Bodda var hjálp- fús og ákaflega trygg og reynd- ist öllum vel, sem hún gat oruið að liði. Hið' snögglega fráfall hennar sló mig ,og okkur öll, sem unnum með henni djúpum harmi. Það er svo erfitt að átta sig á því, þegar samstarfsfólk manns, sem hefur unnið með manni daginn áður, er allt í einu skyndilegia horfið af sviðinu. Bg vil þakka Boddu fyrir allar ánægjustundimar, sem við höf- um átt saman, bæði við vinnu og utan hennar, minninguna um þær mun ég geyma til æviloka, Að síðustu vil ég í nafni vinnu- félaga Boddu votta eftirlifandi eiginmanni hennar, foreldrum hehnar og systkinum dýpstu samúð. Fjóla. Aikvæðngreiðsía um fjórlögin Á FUNDI sameinaðs þings I gær var atkvæðagreiðsla um fjár lagafrumvarpið við 2. umræðu. Atkvæðagreiðslan fór svo í stuttu máli, að breytingartillögur fjár- veitingarnefndar allrar eða meiri lilúta hennar voru samþykktar, en aðrar tillögur ýmist felldar eða tebnar aftur til 3. umræðu. Þá var og samiþykkt að vísa þingsályktunartillöau um gufu- •veitu frá Krísuvík og um kvik- myndun íslenzkra starfshátta til fjárveitingarnefndar, og tillögu um 8 stunda vinnudag verkafólks til allsherjarnefndar. Fjölbreytt jólablað Fálkans JÓLABLAÐ Fálkans er komið út og er það stærra og veglegra en nokkru sinni fyrr. Blaðið er alla 68 síður að stærð með litprent- aðri kápumynd, sem Sigurjón Jóhannsson hefur teiknað. At efni blaðsins má nefna: Jól til sjós eftir Svein Sæmundsson, blaðafulltrúa, Stúlkan frá Sól- heimum, frásögn af harmleik frá 17. öld eftir Sigurð Ólason, lög- fræðing, Sigið í Þjófaholu, greín og myndir af leiðangri, sem fimm ungir piltar fóru á vegum Fálk- ans til þess að kanna fyrstip manna Þjc Alftafirði, — 5 konur, þær Maria Maack, Ragn heiður Hafstein, Elinborg Lárus- dóttir, Gunnfríður Jónsdóttir og Helga Guðbjartsdóttir segja frá erfiðum og minnisstæðum jólum, Jólin heima nefnist frósögn eftir hina kunnu skáldkonu, Sigfrid Boo. Þrjár smásögur eru í blað- inu, ný smásaga eftir Baldar Óskarsson, blaðamanna, smásag- an Bergsveinn Olsen og jómfrú Soffía eftir Johan Falkberget og loks Gráklædda konan eftir Mar- grethe Hold. Fjölmargt annað er í heftinu, svo sem kvennaþáttur með uppskriftum að jólamatnum og jólasælgætinu, barnaþáttur með jólasögu, jólasveinavísu og ýmsum getraunum og þrautum, Dagur Anns skrifar skopþátt um jólin og loks er tveggja síðna jólakrossgáta með þrennum verð launum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.