Morgunblaðið - 08.02.1962, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.02.1962, Qupperneq 1
24 síður Síðari áfangi skattalagabreytinganna tryggir atvinnurekstrinum hóflega skattlagningu í nýrri heildarloggfof eru einnig nýmæli til hags- bóta einstaklingum I GÆR var lagt frum á Al- þingi stjórnarfrumvarp um tekjuskatt og eignarskatt. — Eru þar felld inn í nýja heildarlöggjöf um skattamál ákvæði þau um einstaklings- skatta, sem áður höfðu ver- ið samþykkt, en jafnframt er með löggjöf þessari efnt það fyrirheit að skapa atvinnu- rekstrinum í landinu heil- brigð starfsskilyrði. Helztu nýmæli laganna eru þessi: Vr Tekjuskattur félaga lækk ar úr 25% í 20%. Heimilt er að endurmeta eldri eignir og hefja afskrift- ir af réttu verðmæti. -&• Heimilt er að gefa út jöfnunarhlutabréf vegna al- mennra verðhækkana. Greiða má 10% arð skatt frjálst af hlutafé eða stofnfé í stað 8%. Tap fyrirtækja má færa milli 5 ára. Gjafir til menningar- mála, líknarstarfsemi og kirkjufélaga verði frádrátt- arhæfar. Kostnaður við öflun bóka, tímarita og áhalda til vísindalegra og sérfræðilegra starfa sé frádráttarhæfur. Námsskuldir verði frá- dráttarhæfar. Skattfrjáls hámarkseign hækkar úr 30 þús. kr. í 100 þús. kr. ■^r Húsgögn og persónulegir munir séu ekki taldir til skattskyldra eigna. Þá eru gerðar víðtækar breytingar á skattstjórn. — Undirskattanefndir og yfir- skattanefndir verði afnumd- ar, en skattstjórar skipaðir í stórum skattaumdæmum. Þá verði skipaður sérstakur ríkisskattastjóri, sem verði formaður ríkisskattanefndar. Málflutningur fari fram fyr- ir ríkisskattanefnd og úr- skurðir hennar skulu rök- studdir. Gert er ráð fyrir að hin nýju lög gildi við skattlagn- ingu fyrir síðasta ár. Viðunandi skattheimta I greinargerðinni fyrir frum- varpinu, er að því vikið, að stefnt sé að því að tryggja at- vinnurekstrinum í landinu, ekki síður en einstaklingum, hóflega skattaálagningu. Tillit hefur ver ið tekið til nauðsynjar atvinnu- veganna að geta safnað sjóðum til öruggs rekstrar og endur- nýjunar. Þá hefur sköttum ver- ið létt af lægri tekjum og á ýmsan hátt reynt að taka sann- Framhald á bls. 8. Skelfilegt námuslys i Þýzkalandi’ 123 menn létust og 85 særðust — er sprenging varð í Lutsen- th.J námunum í Vólkingen Saarbrúcken, V-Þýzkalandi, 7. febrúar. — (AP) — • í MORGUN varS í Þýzkalandi eitt mesta náma- slys, sem orðið hefur þar í landi um langt skeið. — Sprenging varð í Luisenthal- námunum í Völkingen, skammt frá Saarbriicken. § Síðustu fréttir herma, að 123 menn hafi beðið bana og að minnsta kosti 85 særzt meira eða minna. 0 Nærri fimm hundruð námaverkamenn voru að vinnu niðri í námunni, sem hefur þótt einhver hin örugg asta að öllum úthúnaði í Þýzkalandi — en er síðast fréttist voru enn hátt í hundrað manns lokaðir þar niðri. —. Slysið varð um fimm-leytið í morgun (ísl. tími). Vaxð þá mikil sprenging í námugöngum og eldur brauzt út. Tvenn göng, sem lágu á 500 metra dýpi gereyðilögðust við sprengingu og eldurinn breiddist örskjótt út. Brunalið kom þegar á vett- vang víðs vegar að, en margar klukkustundir liðu, áður en tókst að slökkva eldinn að fullu. Björgunarstarfið var miklum erfiðleikum bundið, því að víða hrimdi úr öðrum göngum og stíflaði þau á mörgum stöðum. Hjálpfúsar hendur hvaðanæva að Öllum verzlunum og skrifstof- um var lokað í Saarbrúcken, svo að starfsfólkið gæti tekið þátt í björgunarstarfinu. Bandarískir hermenn, er hafa æfingastöð í nágrenninu, voru þegar sendir á vettvang með 14 sjúkrabif- reiðar og fjöldamörg súrefnis- tæki. Einnig komu aðstoðar- menn frá námahéraðinu Merle- bach í Frakklandi og sjúkra- bifreiðar frá öllum nærliggj- andi þýzkum bæjum. Þyrlur voru notaðar til þess að flytja í sjúkrahús þá, sem mest voru særðir. Ættingjar og vinir námaverka manna hópuðust að námimni og biðu þar í allan dag, kvíðnir og örvæntingarfullir. Meðal þeirra, sem lokuðust niðri í námunni, voru margir ungir piltar, sem voru þar að læra námastörf. — Fulltrúar yfirvaldanna fylgdust vandlega með björgunarstarfinu. Útvarpsstöðin í Saarbrúcken af- lýsti skemmtidagskrám og á öll- um opinberum byggingum blöktu fánar í hólfa stöng. Þetta slys er meðal hinna Framhald á bls. 2. Verðirnir gleymdu íöngunum Katmandu, Nepal, 7. febrúar. — (AP) — ÓTTINN mikli, sem greip um sig í Austurlöndum vegna væntanlegs dóms- dags á mánudag sl. olli því meðal annars, að tveir menn voru drepnir í Nepal og 75 menn, sem verið höfðu í fangelsi, ganga nú lausir og liðugir. Fangaverðir í borginni Palpa í Vestur-Nepal voru svo önnum kafnir við að undirbúa ferð sína á fund himnaföðurins, að þeir gleymdu föngunum — sem gripu tækifærið og struku úr fangelsinu. Á flóttan- um voru tveir fanganna skotnir, nærri þrjátíu náð- ust aftur en samkvæmt nýjustu fregnum frá Palpa leika hinir lausum hala. ÞESSA mynd frá námaslysinu í Þýzkalandi fékk Morgunblað ið símsenda í gærkveldi. Hún sýnir hvar aðstandendur' námuverkamannanna bíða 'þögulir meðan slökkviliðs- menn og björgunarmenn berj ast við að ná þeim úr eldin- um í nálmunni. Á námuklukkunni sést, að myndin hefur verið tekin kl. 10:15 eftir þýzkum tíma. Krúsjeff í orlofi Moskvu, 7. febrúar (NTB—Reuter) TASS-fréttastofan tilkynnti í dag, að Krúsjeff forsætisráð- herra sé um þessar mundir f orlofi við Svartahafið. Réttorhöld vegno töku „Santu Marín“ Lissabon, 7. febrúar. — (AP) 1 DAG hófust í Lissabon réttar- höld í máli mannanna, sem komu við sögu í „Santa Maria“- málinu svonefnda, þ.e.a.s. þeirra Henrique Galvao og 23 félaga hans. Allir hinir ákærðu eru fjar- verandi — en ákærurnar eru fyrir morð, rán, morðtilraunir og morðhótanir. Fjörutíu vitni verða leidd í málinu, en aðal- vitnið er skipstjóri Santa Maria, Simœs Maia, sem lýsti þvífyrir réttinum í dag hvemig hann hefði verið neyddur til þess að gefa stjórn skipsins í hendur uppreisnarmönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.