Morgunblaðið - 08.02.1962, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 8. febr. 1962
Togari strandar
á Vestfjörðum
ísafirði og Bolungrarvík, 7.
felwúar — Um kl. 18:30 í kvöld
strandaði brezkur togari út af
Óshólavita við Bolungarvík. Tog
arinn heitir Northern Queen GY
124 frá Grimsby og var hann á
leið inn til ísafjarðar með mann,
sem þurfti að komast heim til
Englands með flugvél á laugar-
daginn vegna veikinda konu sinn
ar. Um kl. átta í kvöld tókst tog
aranum að komast á flot af eig
in rammleik. Veður var allsæmi-
legt, en þó nokkur suðaustan
strekkingur.
Togaraimerm vorni komnir í
björgunarveati, þótt akki hefði
verið komið að því að bjö«rgiun af
sjó eða landi yrði reynd.
Haft var samband við togar-
arm um loftskeytastöðina á ísa-
firði. ÓSkaði hann eftir því að
Dansarar frá út-
löndum í
My Fair Lady
f KVÖLD earu væntainlegir til
landsins dansarar, sem dansa
eiga í söngleiknuim „My Fair
Lady“, er hann verður færður
upp í Þjóðleikhúsiniu, en íslenzk
ir dansarar eru ekki fyrir hendi
hér heima. Meðal þeirra sem
koma, er þó einm íslendingur, Jón
Valgieir, sam verið hefur í Kaup
mannahöfn í vetur. Þá eru 3 frá
Danmörku, einn frá Sviþjóð, einn
frá Edinborg og einn frá Þýzka'
landi, og eru þetta allt þjálfaðir
dansarar.
bátur yrði sendur með mann frá
Bolungarvík til viðræðna við
skipstjórann og voru gerðar ráð
stafanir til þess. Kom þó ekki til
þess, þar eð togarinn losnaði áð
ur. — Þá mun togarinn hafa beð
ið um hafnsögumann frá Xsa-
firði og fór Guðmundiur Guð-
mundsson hafnsögumaður um
borð og mun hann hafa leið-
beimt togaranum inn á Xsafjörð
þar sem hann liggur nú. Verður
kafari sendur niður á morgun til
þess að kanna hvort skipið hefur
orðið fyrir skermmdum, en stór
grýtt var þar sem það tók niðri.
Stórtjón af bruna
a5 Vegamótum
Verzlun Kaupfélags Stykkishólms brann
GLAÐIR kommúnistar —
tæknifræðingar frá Rússlandi
og lepprikjunum — njóta lífs-
ins við sundlaug hótels í Hav-
ana. Bandaríski blaðamaður-
inn Carl Migdail, sem nýkom- “
inn er úr ellefu daga ferða-
iagi um. Kúbu, ritaði grein í
síðasta hefti U.S. News World
and Report um ástandið á
Kúbu í dag, og birtist á bls.
10 úrdrá.ttur úr frásögn hans.
STYKKISHÓLMI, 7. febrúar. —1
Um fjögurleytið í dag kom upp
eldur í verzlunarhúsi Kaupfélags
Stykkishólms að Vegamótum,
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi.
Brunnju allar vörur verzlunarinn-
ar og tjónið metið á hundruð
þúsunda króna. Er talið, að ef
ekki hefði orðið svo að segja
strax vart við eldinn eða veður-
skilyrði verið óhagstæð, hefðu
veitingastofa og íbúðarhús, áföst
verzluninoii, einnig brunnið.
Verzlunarstjóri að Vegamótum
í’er
örnólfur Örnólfsson, og hafði
hann nýlega gengið inn í íbúðar-
húsið, en húsaskipan er þannig
að segja má að hér sé um þrjár
samliggjandi byggingar að ræða.
Austast er íbúðarhúsið, í miðju
veitingastofa en verzlunin vest-
ast
Bílstjóri kom að
Er konu örnólfs varð gengið inn
i veitingastofuna fannst henni
reykjarlykt leggja frá verzlun-
inni. Gerði hún manni sínum að-
Eivlnd Johnson hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs
i
Stokkhólmi, 7. febrúar —
NTB.
í DAG var bókmenntaverð-
launum Norðurlandaráðs út-
hlutað í fyrsta sinn og hlaut
þau sænski rithöfundurinn
Eivind Johnson, fyrir skáld-
sögiuna „Hans nádes tid“.
Nefnd sú, sem valin var til
þess að ákveða hver verð-
launin skyldi hljóta að þessu
sinni, segir í greinargerð
fyrir ákvörðun sinni: „Eivind
Johnson hefur með myndrík-
um þrótti og leyndardómsfull-
um og kaldhæðnislegum stíl
í þessu verki sínu lyft sögu-
legu efni þannig að það end-
urspeglar okkar eigin tíma.“
★
Eivind Johnson kom hing-
að til íslands í ágústmánuði
árið 1958, í tilefni af opn-
un sænskrar bókasýningar,
sem haldin var í Bogasal Þjóð
minjasafnsins. Hann flutti þá
einnig fyrirlestur í Háskólan-
um.
Blaðamaður Morgunblaðs-
ins átti þá viðtal við skáldið
sem sagðist hafa lesið all-
ar Islendingasögurnar í æsku
og síðan fengið mikinn áhuga
á að koma til íslands. „1*0 ég
hafi aldrei komið hingað fyrr,“
sagði skáldið, „finnst mér
ég eiga hér heima. Ég hlakka
til að fara upp í sveit. Lín-
urnar eru svo hreinar og tær-
ar í íslenzkri náttúru.“
Fyrirlestui Eivinds John-
son í Háskólanum, fjall-
aði um hlutskipti skáldsagna
höfundarins. Hann ræddi við
hórf manna til skáldsögunnar
og vandaimál hennar á tuitfeuig
Eivind Johnson
ustu öldinni. Hann rakti hvern
ig fyrri heiimsetyrjöldin hefði
markað tímaimót í skáldsagna
gerð og opnað augu manna
fyrir því regindjúpi þjáninga
og óréttlætis, sem mannkynið
á við að búa. Hann sagði þó
ástæðulaust fyrir rithafunda
að gefa sig óskipta bölsýn-
inni á vald — þeir settu að
segja þann sannleik, sem þeir
hefðu upplifað og ekki draga
neitt undan.
Skáldið ræddi einnig af-
stöðu rithöfunda til eigin
verka og sagði, að öll skáld-
verk væru sjálfslýsingar í viss
um skilningi. Aðeins þeir,
sem hefðu hug til að skyggn-
ast djúpt í sína eigin sál og
horfðust í augu við eigin
reynslu gætu gert sér vonir
um að miðla öðrum einhverju
verðmætu. FullkOmin hrein-
skilni og heiðarleiki væru
aðalsmerki góðs rithöfundar.
★
Eivind Johnson er eitt
mesta núlifandi skáld Svía.
Hann er 61 árs að aldri —
jafngamall öldinni og hefur
látið sig dægurmál hennar
miklu skipta. Árið 1957 var
hann valinn í sænsku akademi
una, — kom þar í stað Nils
AhnJunds, er hann lézt. Hann
hefur verið einn af leiðtogum
félagsins Frjáls menning, og
mjög brýnt menn til baráttu
gegn einræði í hverri mynd,
sem það kann að birtast. Sjálf
ur er Johnson verkamanns-
sonur og hefur orðið að brjót-
ast áfram af eigin rammleik
við erfiðar aðstæður. Hann
stundaði margs konar störf
framan af ævinni, var m. a.
verkamaður og timburfleyt-
ingamaður um nokkurt skeið.
Með vinsælustu verkum hans
eru skáldsögurnar „Strander
nas vall“ og „Drömmar om
rosor och eld“, sem báðar eru
sögulegar. Fjallar hin fyrri um
Odysseif en hin síðari um djöf
ulinn. Eivind Johnson hefur
verið lýst sem fjölbreyttu
skáldi, — „síungu og djörfu".
Dómnefndina skipuðu tíu
menn, tveir frá hverju Norð-
urlandanna. Fulltrúar fslands
í nefndinni eru þeir dr. Stein-
grímur J. Þorsteinsson, próf-
essor og Helgi Sæmundsson
form. Menntamálaráðs. Þeir
eru báðir erlendis. Verðlaunin
eru 50.000 danskar krónur.
vart Og fór hann þá þegar inn í
verzlunina. Þar logaði talsverður
eldur.
Var strax gert aðvart á nær-
liggjandi bæi, en hinsvegar var
örnólfur svo heppinn, að í þess-
um svifum bar að Gísla Kristjáns
son bifreiðarstjóra. Hafði hann
fyrr um daginn farið með hóp
af unglingum frá Stykkishólmi
á skíði upp í fjöll, en skrapp nið-
ur að Vegamótum á meðan ungl-
ingarnir voru á skíðum. Hjálp-
aði Gísli Örnólfi og fólkinu að
Vegamótum að ausa vatni og
snjó á eldinn, og um leið fór
fólk að drífa að frá nágranna-
bæjum. Tókst að kæfa eldinn, en
þá var mikið brunnið í búðinni.
Telur ver/.lunarstjórinn að allar
vörur verzlunarinnar hafi eyði-
lagzt og skiptir tjónið hundruð-
um þúsunda króna. Ennfremur
telur verzlunarstjórinn að ef elds
ins hefði ckki þegar orðið vart
þá hefði ekki verið unnt að
bjarga veitingastofunni og íbúð-
arhúsinu. Einnig má geta þess
að svo heppilega vildi til að logn
var og hefur það riðið baggamun-
inn að ekki fór verr.
Ekki er vitað um eldsupptök,
en líkur benda til þess að kvikn
að hafi í út frá rafmagni. Réttar-
höld vegna brunans munu fara
fram á morgun, fimmtudag.
— Fréttaritari.
Keflavik
AÐALFUNDUR Sjálfsteeðisfé-
lagsins Mjölnis á Keflavíkurflug-
velli, verður haldimn í Sjálfstæð-
ishúsinu í Keflavík, fknmtudag-
inn 8. þ.m. kl. 20.
Sjálfstæðismenn á Keflavíkur-
flugvelli eru beðnir að fjölmenna
á fundinn.
Kópavogur
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA
í Kópavogi verður hald-
inn í Valhöll við Suðurgötu
í Reykajvík n.k. þriðjudag 13,
þ. m. kl. 8,30 e. h.
Stjórnin.
Sjö ára fangelsi
I GÆR var í sakadómi Reykja-
víkur kveðinn upp dómur í mál-
inu: Ákæruvaldið gegn Húbert
Rósmanni Morthens, en með á-
kæru dags. 29. desember s.l. var
hann ákærður fyrir að berja
eiginkonu sína, Ásbjörgu Har-
aldsdóttur, og misþyrma henni
svo árdegis sunnudaginn 1. októ-
ber 1961 á heimili þeirra, að
hún beið samdægurs bana
Var dómþoli dæmdur í 7 ára
fangelsi fyrir brot gegn 211. gr.
almennra hegningarlaga og gert
að greiða allan sakarkostnað, en
gæzluvarðhaldsvist hans frá 2.
okt. s.l. skal koma refsingu hans
til frádráttar
Sækjandi málsins var Einar B.
Guðmundsson, hæstaréttarlög-
Kjörbingó í
Keflavík
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Keflavík halda kjörbingó íNýja
bíói í kvöld kl. 9. Vinningar eru
meðal annars ísskápur, þvotta-
vél eða sjónvarp. auk fjölda ann-
arra glæsilegra vinninga. f hlé-
inu verður flutt skemmtiatriði.
maður, en verjandi dómþola dr.
Gunnlaugur Þórðarson, héraðs-
dómslögmaður.
— Námuslysið
Frh. af bls. 1.
verstu, sem orðið hafa í Þýzka-
landi — en í þessari sömu
námu varð slys árið 1940 og
létust þá 30 manns. Af og til
hafa komið þar fyrir smáslys
— en náman hefur fengið við-
urkenningu þýzka öryggiseftir-
litsins vegna alls frágangs þar
og öryggisútbúnaðar. Ekki er
vitað, hver var orsök spreng-
ingarinnar í morgun. Mennvoru
nýkomnir til vinnu"— og ekki
allir komnir niður í námum-
ar. Er sprengingin varð hentust
þeir lagnar leiðir sem voru að
leggja af stað niður
Á árunum 1950—1960 létust
267 námaverkamenn af slysum
í Vestur-Þýzkalandi en mesta
slysið, sem þar hefur orðið eftir
heimsstyr j öldina síðari varð í
febrúar 1946, er 402 menn lét-
ust í námaslysi í Bergkamen-
námunum í Ruhr-héraði.