Morgunblaðið - 08.02.1962, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 8 f<=>hr. 1962
MOKClJl\RL 4ÐIÐ
11
65 ára 1 dag
Fridjón Sigurdsson, sýsiu-
skrifari, Hólmavík
EIN N af traustustu borgurum
Hólmavíkurkauptúns, Friðjón
Sigurðsson, sýsluskrifari á í
dag 65 ára afmæli. — Hann er
fæddur í Vopnafirði 8. febrúar
1897. Foreldrar hans voru Sig-
urður H. ÞorsteinssOn, búfræð-
ingur, og kona hans, Kristjana
Jónsdóttir, sem ættuð var úr
Reykjavík.
Friðjón fluttist tveggja ára
gamall með foreldrum sínum til
Akureyrar og átti þar heimili
til 12 ára aldurs. >á fluttist
hann til ísafjarðar. Þar hóf
hann verzlunarstörf 15 ára
gamall, hjá Jóhanni Þorsteins-
syni kaupmanni, og vann hann
við fyrirtæki hans í 25 ár, þar
af 7 ár við Riis-verzlun á
Hólmavík, þar sem hann gegndi
verzlunarstjórastörfum. — Árið
1929 fluttist Friðjón alfarinn
til Hólmavíkur. Eins og áður er
sagt annaðist hann verzlun þar
fyrstu árin, en árið 1938 réðist
hann sem sýsluskrifari til sýslu-
manns Strandamanna og hefur
gegnt þar fulltrúastarfi síðan.
Hann hefur jafnframt gegnt
mörgum trún'aðarstörfum fyrir
byggðarlag sitt, m.a. átt sæti í
hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps,
stjórn sjúkrahússins, skóla-
inefnd og hafnamefnd. Hrepp-
stjóri hefur hann einnig verið.
Friðjón Sigurðsson er ágæt-
lega gefinn maður. Hann er
mjög vel starfhæfur og stund-
ar öll sín störf af hinni mestu
reglusemi og ábyrgðartilfinn-
ingu. Er óhætt að segja að
hann njóti trausts og vinsælda
meðal allra þeirra, er honum
kynnast. Hann er prúðmenni
hið mesta í framkomu og hinn
bezti drengur í hvívetna. Þegar
hann fluttist frá Isafirði sakn-
aði hans stór hópur vina og
kunningja. Á Hólmavík og úti
um sveitir Strandasýslu ávann
hann sér einnig fljótt trausts
og vinsældir.
Friðjón Sigurðsson kvæntist
árið 1927 norskri konu, Berit
Larsen, hjúkrunarkonu frá
Tana í Norður-Noregi, ágætri
og dugandi húsmóður. Hafa
þau eignazt sex börn og eru
fimm þeirra á lífi. Þau eru:
Ragnhild, sem er búsett á
Hólmavík, gift Þórhalli Hall-
dórssyni, Sigríður, búsett í Nor-
egi, gift Terje Johannessen,
Laura, búsett í Noregi, gift Jóni
Döving, Ásta, búsett í Kópavogi,
gift Erlingi Guðmundssyni, og
Austfirðingamót
verður haldið í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 10.
febrúar kl 7.
Dagskrá:
1. Mótið sett
2. Borðhald (Þorrablótsmatur)
3. Ómar Ragnarsson, skemmtir
4. B 1 N G Ó !
5. Densað til kl. 3.
Aðgöngumiðar að borðhaldinu verða afhentir í
Sjálfstæðishúsinu kl. 5—7, í dag og á morgun.
Verð kr. 120,—.
Borð tekin frá um leið. — Sími 12339.
Stjórnin
Veiðijorð á IMorðurlandi
til sölu, landrými mikið. Byggingar úr steini, —
Góð ræktunarskilyrði. Skipti á íbúð koma til greia.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl.
Laufásvegi 2, — Sími 19960
Kristján, sem ennþá dvelst í
foreldrahúsum. Eina dóttur,
Svanfríði, misstu þau hjón,
rúmlega tvítuga að aldri. Hafa
þau alið upp dóttur hennar,
sem nú er 10 ára gömul.
Heimili Friðjóns Sigurðssonar
og frú Berit á Hólmavík er
hlýtt og aðlaðandi. Þangað er
gott að koma. Þar rikir gest-
risni og höfðingsskapur.
Vinir og kunningjar Friðjóns
Sigurðssonar flytja honum beztu
heillaóskir með 65 ára afmælið,
um leið og þeir óska honum og
fjölskyldu hans gæfu og gengis
í framtíðinni.
S. Bj.
""“""'grANit
SÍIOflRVOG 20 /Kt
_ SÍMÍ 36177
leqsíeinaK oq
J plötUK ö
ÖTSALA
Fyrir karlmenn:
Skyrtur frá kr. 99,—
Krepsokkar kr. 30,—
Bolir (stutt erma) 15,-
Minervaskyrtur 200,—
Fyrir konur:
Blússur frá kr. 95,—
Peysur írá kr. 68,—
Vatteraðir jakkar 275,
Hálsklútar 40,—
Bómullarsokkar 15,—
Fyrir börn: — Náttföt kr. 45,—. Stuttar
dregjabuxur kr. 12.—.
Útsalan bættir eftir nokkra daga
Notið tækifærið og gerið ódýr innkaup
AUSTURSTRÆTI
S I M I »1116-1117
Höfum fyiírliggjandi okkar landsþekktu
vörulyftur
ómissandi fyrir vörugeymsluhús, frystihús, enn-
fremur fermingar og affermingar á bifreiðum o. fL
Hlutafél. Harnar
VERIÐ VAIMDLÁT
VELJIÐ
FORD
Consul 315 bifreiðir
fyrirliggjandi
U M B O Ð I Ð
Kr. Kristjánsson h.f,
Suðurlandsbraut 2
Sími 35300
Happdrœtii
Háskóla íslands
Á laugardag verður dregið í 2. flokki
1.000 vinningar að fjárhæð 1.840.000 krónur.
Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja
. fl. 1 á 200.000 kr
1 . 100.000
20 - 10.000
86 - 5.000
890 . í.eoo
Aukavinningar:
2 á 10.000 kr. —
1.000
200.000 kr.
100,000 —
200.000 —
430.000 —
890.000 —
— 20.000 —
1.840.000 kr.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
I