Morgunblaðið - 08.02.1962, Síða 17
Fimmtjdagur 8. febr. 1962
MOKCVIVBLAÐIÐ
17
Nauðsynlegt að hækka
lán búnaðarsjóðanna
Frá umræðum á Alþingi
Á FUNDI sameinaðs þings í
gær var tekin fyrir þingsálykt-
unartillaga Páls Þorsteinssonar
og fleiri Framsóknarmanna um
ihækkun lána úr byggingarsjóði
sveitabæja og spunnust út af
íhenni töluverðar umræður, sem
ekki tókst að ljúka, áður en
venjulegur fundartími deildar-
innar rann út
( Páli Þorsteinsson (F) gerði
jgrein fyrir tillögunni, en hún
fjallar um að ríkisstjórnin hlut-
ist til um, að veitt verði mun
Ihærri lán úr byggingarsj óði
sveitabæja til íbúðarhúsa í sveit-
um en nú er gert og jafnframt
verði sjóðnum séð fyrir nægi-
legu fjármagni til útlána. Gat
hann þess m.a., að tilgangurinn
rneð starfsemi byggingarsjóðs
sveitabæja sé að gera bændum
ifcleift að reisa ný íbúðarhús á
ábýlisjörðum sínum án þess að
jþurfa að stofna til lausaskulda,
sem yrðu bændum lítt viðráðan-
legar og búskapnum til mikils
hnekkis Sú hækkun, sem orðið
hefur á byggingarlánum sé alls
kostar ófullnægjandi, ef tekið er
tillit til hinna stórkostlegu verð-
hækkana að undanförnu. Lán úr
hyggingarsjóði nemi nú í reynd
ilOO þús. kr. eða um 20—30% af
hyggingarkostnaði, en í lögunum
sé heimild um að veita lán allt
að 75% af byggingarkostnaði.
Ný löggjöf í undirbúningi.
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra sagði m.a., að ævinlega
hefði verið þörf á að lána meira
með góðum kjörum en gert hefði
verið, það væri rétt, að bænd-
tir hefðu safnað lausaskuldum
vegna þess, að þeir hefðu fengið
of lítið út á framkvæmdir og
jþví væri rökrétt að hækka hin
hagstæðu lán. Með þessu sé ekki
sagt, að þetta stafi af viljaleysi
til þess að veita þessi lán, held-
ur þvi, hve erfitt er að afla fjár
í þessu skyni. Það sé kunnugt, að
sjóðir Búnaðarbankans séu illa
staddir, sem stafar af því að
jþeim voru útveguð erlend lán,
sem þeir þyrftu
að bera gengis-
áhættuna af.
Af þessum sök
um hefðu þeir
orðið fyrir mikl
um töpum á und
anförnum árum
og væru nú í
greiðsluþrotum.
En að því væri
nú unnið innan ríkisstjórnarinn-
«r að koma fótunum undir þessa
sjóði, svo að þeir geti starfað
með eðlilegum hætti. Hækka
Iþurfi útlán úr sjóðunum og að
því beri að stefna. Kvaðst ráð-
herrann ekki efast um, að P. Þ.
hefði viljað stefna að þessu sama
marki. Þó hefðu lán úr sjóðnum
verið óbreytt, eftir þá 55%
hækkun sem varð á yfirfærslu-
gjaldi 1958, og leiddi hún mikl-
ar verðhækkanir af sér, m. a.
hækkun á byggingarkostnaði,
sem stafaði af því, hve erfitt
var að afla fjár í því skyni. —
Lánsupphæðin hefði þó hækkað,
eftir að núverandi ríkisstjórn
tók við, fyrst um 15 þús. kr.
í 90 þús kr. og um síðustu ára-
mót um 10 þús. kr. í 100 þús. kr.
Hún næmi þó enn ekki nema um
25—30% af byggingarkostnaði
og þyrfti því enn að hækka. —
Kvaðst hann vongóður um, að
ný löggjöf, sem er í undirbún-
ingi hjá ríkisstjórninni, komi fót
unum undir búnaðarsjóðina og
geri þeim kleyft að inna sitt hlut
verk af hendi.
Eysteinn Jónsson (F) sagði m.
a., að landbúnaðarráðherra hefði
sagt, að sjóðir Búnaðarbankans
væru illa leiknir vegna erlendra
lána handa sjóðunum og meiri
þörf hefði verið
og væri á hærri
lánum. — Ekki
skorti vilja til
að greiða úr
lánsfjárþörfinni
en erfitt að afla
fjár í því skyni.
En þess verði að
gæta, að á þeim
árum, sem ráð-
herrann hafi átt
við, hafi allt fjármagn í landinu
verið haft í umferð og gengið
eins langt í því og menn töldu
fært, að Seðlabankinn endur-
keypti afurðalán. Til þess hafi
meira segja verið gripið að fá
fjármagn að láni erlendis til við-
bótar og þar á meðal handa land
búnaðinum í gegnum sjóði Bún-
arbankans. — Þetta kalli land-
búnaðarráðherra nánast hneyksli.
— Kannski hann hafi viljað lána
bændunum í erlendum gjaldeyri
Og láta bændur endurgreiða lán-
in eins og þau nú væru orðin, eða
kannski hann hafi ekki viljað
taka þessi erlendu lán, eða
kannski á hann við, að það hefði
átt að taka eitthvert annað fé og
hvaða fé þá, spurði þingmaður-
inn. — Sagði hann enn fremur,
að enginn gæti sagt, að á undan-
förnum árum hefði ekki verið
tjaldað öilu sem til var og allt
fé verið fullkomlega í umferð.
— Nú hins vegar væri búið að
að taka verulegan hluta af fjár-
magnsmynduninni úr umferð og
festa í Seðlabankanum, en bæði
sé eðlilegt og heilbrigt að spari-
fjáraukninginn sé lánuð út. —
Það séu því möguleikar til að
leysa lánsfjárþörfina, ef menn
vilja.
Hlutur sjóðanna ekki réttur.
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra kvaddi sér aftur hljóðs
og sagði m.a., að hann byggist
ekki við að þurfa að taka það
fram, að hann vildi ekki lána
bændum rr.eð gengisáhættu og
teldi, að landbúnaðurinn hefði
ekki fengið of mikið af lánum.
Benti hann á, að hefði E.J., sem
var fjármálaráðherra, er sjóðir
Búnaðarbankans fengu hin er-
lendu lán, tekið lánin í nafni
ríkissjóðs og síðan endurlánað
Búnaðarbankanum þau í íslenzk-
um krónum, þá væri ekki um
það að ræða núna, að botninn
væri úr Ræktunarsjóði og Bygg-
ingarsjóði sveitabæja. Hann
hefði td. ekkert um það hugsað,
að rétta hlut sjóðahna, er 55%
hækkun á yfirfærslugjaldi var
lögfest 1958 og sjóðirnir sköð-
uðust um marga tugi millj. kr.
af þeim sökum, þótt hann hins
vegar léti flokksbræður sína
flytja frumvarp um 160 millj. kr.
gengistap. í því skyni að rétta
sjóðina við nú, vegna þess að
hann er ekki í ríkisstjórn. En
það var vitanlega höfuðskylda
fjármálaráðherra að stuðla að
því að búnaðarsjóðirnir fengju
sem mest innlent fé til ráðstöfun
ar eins og núverandi ríkisatj. hef
ur gert um tveggja ára skeið, og
ef það dugði ekki að útvega þá
erlend lán í nafni ríkisstjórnar-
innar, eins og áður er sagt, eða
haga því svo til, að aðrir atvinnu
vegir, sem gengisáhættuna gátu
borið, notuðu erlendu lánin.
Arfur vinstri stjórnarinnar.
Þá vék ráðherrann að þeim
ummælum E. J. að fyrr meir hefði
ekki veitt af, að allt fjármagnið
væri í umferð — Benti hann á,
að ástæðan fyrir því, hve spari-
fjáraukningin í landinu var lít-
il á dögum vinstri stjórnarinnar,
hefði verið sú, að almenningur
hafði ekki traust á ríkisstjórn-
inni. — Það hefði hins vegar
breytzt, sparifjáraukningin hef-
ur aukizt í tíð núverandi ríkis-
stjórnar og tekizt hefur að koma
upp verulegum gjaldeyrisvara-
sjóði. E.J. hefur skrifað mikið
um, að 300 millj kr. séu bundnar
í Seðlabankanum. — En þetta fé,
sem er óeytt og alltaf er hægt
að grípa til aukinna útlána í
þágu atvinnuveganna. — Þá
benti ráðherrann á, að aukinn
byggingarkostnaður og hækkað
verðlag sé afleiðing af því, sem
gerðist í tíð vinstri stjórnarinn-
ar og gengisskráningin sem
gerð var 1960, var nauðsynleg
vegna þess að krónan var
fallin, þegar vinstri stjórnin fór
frá. Eysteinn Jónsson minnist
aldrei á, að hækka beri gengi
krónunnar -og engum dettur held
ur í hug, að hann legði til að það
verði hækkað, þótt hann sett-
ist aftur í ríkisstjórn. En það
staðfestir, að gengið sé rétt skráð
að áliti E.J. í dag og er því allt
hjal Framsóknarmanna í aðra
átt úr lausu lofti gripið. —
E.J. þarf ekki að halda það, að
hann geri sig vinsælli hjá bænd-
um með því að grafa undan gengi
krónunnar, eins og gert hefði
verið með hinum óraunhæfu
verkföllum og óraunhæfu kaup-
kröfum á síðasta ári. — Margur
Eins og undanfarin 40 ár seljum og
útvegum vér
byggingavörur allskonar
og verkfœri
í umboössölu’ heildsölu og smásölu
Ludvig Storr & Co.
Laugavegi 15. Símar: 2-40-30 — 1-16-20: 2 línur og 13333
spyr í dag, hvar við værum stadd
ir f járhagslega, ef stefnuleysi
vinstri stjórnarinnar hefði stað-
ið lengur. — Menn viti að nauð-
synlegt var að spyrna við fótum
og rétta af þá skekkju, sem orð-
in var í fjármálum og atvinnu-
málum þjóðarinnar og menn
vita einnig, að sízt er traust að
leita hjá þeim, sem stökkva frá
borði, þegar verst stendur á. —
Sjóðirnir vanmegnugir.
Jóhann Hafstein (S) sagði m.
a., að blandazt hefði inn í um-
ræðurnar, hvernig komið væri
fyrir sjóðum landþúnaðarins og
hve vanmagnugir og gjaldþrota
þeir eru orðnir — Kvað hann nú
unnið að því innan ríkisstjórnar-
innar að koma þeim á heilbrigð-
an grundvöll og kvaðst hann
vona að frá því yrði gengið á
þessu þingi. Þá kvaðst hann
fagna þeirri yfirlýsingu E.J., að
nú sé nóg fé fyrir hendi til að
bjarga gjaldþrota sjóðum land-
búnaðarins frá tíð vinstri stjórn-
arinnar og þá viðurkenningu,
sem í því felist. Með 55% hækk-
un yfirfærslugjaldsins 1958 hefðu
þessir sjóðir orð
ið fyrir gengis-
tapi, sem nam
tugum milljóna
króna, og urðu
þeir með því
vanmegnugir að
leysa það hlut-
verk, sem þeim
var ætlað að
leysa. — Þá
án undandráttar
gera ráðstafanir
til að bjarga sjóðunum, en það
var látið undir höfuð leggjast.
Færði hann síðan rök að því,
að bændur ættu erfiðara með að
bera gengisáhættuna en t.d. báta-
útvegurinn sagðist hann þó ielja,
þegar
þurfti
og
að
að þeir ættu að bera hana a8
einhverju leyti
Þá gat ræðumaður þess, að
margt af þeim erfiðleikum sem
við ættum nú við að stríða staf-
aði af því, að okkur hefði skort
eðlilega yfirstjórn peningamála-
anna og hefðu þeir, er nú sitja í
ríkisstj., áttað sig á þessu og haft
þor til, að gera þjóðinni grein
fyrir því. — Með þessu sagðist
hann ekki fella neina sértaka
sök á hendur E.J. við eigum allir
sök á þessu, sem staðið höfum að
ríkisstjórnufn. — Þegar núver-
ar.di ríkisstjórn tók við, voru
bankarnir komnir í algjör
greiðsluþrot erlendis. — Var þá
Seðlabankanum falið að byggja
upp hæfilegan gjaldeyrisvarasjóð
úr engu og minna en það, þar
sem bankarnir voru búnir að
nota yfirdráttarheimildir sínar til
fulls. — Hafði þá verið gripið
til þess að festa hluta sparifjár-
aukningarinnar til að minnka
eftirspurnina og með því móti
hefði tekizt að koma upp nokk-
uð gildum gjaldeyrisvarasjóði.
Kvað þingmaðurinn spariféð í
sínu fulla gildi og að það hefði
tekið þátt í að byggja upp gjald-
eyrisstöðuna út á við.
Eysteinn Jónsson (F) tók aftur
til máls og taldi m.a., að það
mætti ráða af orðum I.J. og J.H.
að óvíst væri, hvernig með bún-
aðarsjóðina hefði farið, ef Sjálf-
stæðismenn hefðu verið við
stjórn, en þeim væri í lófa lagið
að kippa þessum málum í lag, ef
þeir vildu. — Þá taldi hann ó-
eðlilegt og óhugsandi að halda
300 millj. kr. til lengdar í Seðla-
bankanum og sagði, að það
mundi síður en svo verða til
þess, að gjaldeyrisstaðan út á við
versnaði, þótt fé þessu yrði var-
ið til útlána.
Rannsakoð sé hvort reist
skuli lýsisherzluverksntiðja
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
var frumvarp til fjáraukalaga
fyrir árið 1960 samþykkt við 2.
umræðu og því vísað til 3. um-
ræðu. Þá var og tekin fyrir þings
ályktunarlillaga frá Birni Páls-
syni og fleiri franvsóknarmönai-
um um að athugað verði, hvort
tímabært sé að reisa lýsisherzlu-
verksmiðju.
Erfiðleikum bundið
Björn Pálsson (F) gerði grein
fyrir tillögunni Og gat þess m. a.,
að í lögum frá 1942 standi, að
ríkið reisi verksmiðju til herzlu
síldarlýsis, þegar rannsóknir
sýni, að það sé tímabært. Kvað
hann nauðsynlegt að hafa í huga
í þessu sambandi, að lýsisherzla
er talsverðum erfiðleikum bund
in frá tæknilegu sjónarmiði og
erfitt að fá upplýsingar frá öðr-
um löndum um þær aðferðir, er
bezt henti til þess að gera lýsið
sem útgengilegast. Kunni því að
koma í ljós, að gera þurfi sér-
stakar tilraunir hér, áður en ráð-
izt sé í lýsisherzlu í stórum stíl,
og sé þá mikilsvert, að ekki drag-
izt að hefja slíkar tilraunir.
Einnig kvað hann nauðsynlegt að
leita fyrir sér um markaði ytra,
og þá einkum í Austur-Evrópu,
þar sem minni líkur séu til, að
unnt muni að þrengja sér inn á
markaði í Vestur-Evrópu vegna
einokunar Unilever. Þá beindi
hann því til ríkisstjórnarinnar,
að hún hlutist til um að ná sam-
komulagi við þær þjóðir, sem
framleiða lýsi, um að ekki sé
undirboðið látlaust á heimsmark
aðinum. Vitnaði hann til þess,
að slíku samkomulagi hafi verið
náð við mjölframleiðendur, þar
á meðal Perú.
Afstaða smáþjóðanna batnað
Einar Olgeirsson (K) tók næst-
ur til máls og kvað það ánægju-
legt, að á ný skuli komin fram
tillaga um lýsisherzluverksmiðju,
en hafinn hafi verið undirbúning
ur að slíkri verksmiðju á dögum
nýsköpunarstjórnarinnar. Kvað
hann þetta svið eitt af þeim erfið
ustu til að gerast iðnaðarþjóð á,
m. a. vegna þess, að Unilever
hringurinn hefði einokað allar
iýsisherzluverksmiðjur í Vestur,
Mið og Norður Evrópu og því
bezt að gera sér alveg ljóst, að
við verðum að vera undir það
búin að heyja harða baráttu. Aufc
þess megum við vara okkur mjög
á tækninm, hún sé svo hröð, að
við getum staðið, fyrr en við
vitum af uppi með úrelt tæki, en
þó hafi aðstaða smáþjóðanna í
því efni mjög batnað vegna
tæknihjálpar Sameinuðu þjóð-
anna.
Ekki kvöddu fleiri sér hljóðs
og var samþykkt að vísa tillög-
unni til allsherjarnefndar.
PÍPIR
Svartar og galvaniseraðar
væntanlegar í lok þessa mánaðar
Tökurn við pöntunum
Vinsamlegast endurnýið
eldrí pantanir.
I5ELGI MAGNIJSSON & CO.
Hafnarstræti 19 — Sími 1-31-84