Morgunblaðið - 08.02.1962, Side 22

Morgunblaðið - 08.02.1962, Side 22
i>g <-l£s MORGL' NBL4ÐIÐ ■Pimmtudagur 8. febr. 1962 5 landsleikir í knattspyrnu 4 verða í Reykjavik, á írlandi einn tSLENZKIR knattspyrnu- men leika 5 landsleiki á þessu sumri. Eru það 4 leik- ir, sem fram fara hér heima og einn fer fram erlendis — það er leikur gegn írum. — Af þessum 5 leikjum eru 4 leikir A-landsliðsins, en B- landslið leikur einn leik, gegn Færeyingum. it ísland — Noregur Stjórn Knattspyrnusambands- ins ræddi við fréttamenn í gær og sagðist svo frá um landsleik- ina. ísland mætir Noregi í lands- leik sem fram fer í Reykjavík 9. júlí n.k. Norðmennirnir hafa fengizt til að leika einn aukaleik og fer hann fram 11. júlí. Norð- mennirnir dveljast hér í 5 daga. ★ Tveir leikir við íra í ágúst og september fara fram tveir landsleikir við fra. Verður annar hér heima en hinn í ír- landi. Leikir þessir eru liðir í Evrópukeppni landsliðs (keppni um ,,þjóðabikarinn“). Báðir verða að fara fram í haust þar sem fyrstu umferð verður að vera lokið fyrir 1. apríl 1962. Verið er að semja u-m fyrirkomu lag leikjanna, mótsdaga o. s. frv. írar vilja að fslendingar leiki fyrst ytra, en ísland á rétt á heimaleik fyrst, þar sem ísland var dregið á undan er dráttur fór fram. frarnir munu tefla fram sínu atvinnumannaliði og hefur KSÍ Hljóp fyrír pubbu og mömmu WELLINGTON, 7. febrúar. — Hinn nýkjömi heimsmjethafi Peter Snell hljóp í dag „sýn ingarhilaup“ á móti í Welling ton. Peter ætlaði ekki að taka þátt í keppninni, heldur hvíl- ast. En foreldrar hans voru komnir til mótsins, himinlif andi yfir fyrri árangri sonar síns. Þau höfðu aldrei fyrr séð Peter í keppni og höfðu nú farið 450 km vegalengd til að komast til Wellington þar sem mótið var. Og Peter brást þeim ekki. Hann breytti ætlun sinni, tók þátt í hlaupinu og sigraði með miklum yfirburðum á 1.49.9 mín í 800 m. Hann tók þetta sem æfingu og blés eíkki úr nös að hlaupimu loknu. En pabbi hans og mamima voru himinlifandi og stolt. Aðgöngumiðar að Evrópubikarnum KSÍ hefur borizt bréf frá Evrópu sambandinu í knattspyrnu þar sem tilkynnt er að KSÍ geti pant- að miða að úrslitaleik Evrópu- bikarkeppninnar sem háður verð ur í Amsterdam 2. maí n.k. Biður KSÍ þá er þar yrðu á ferð og hefðu hug á að sjá leikinn að panta sem fyrst því lokafrestur til pöntunar er 15. febrúar. Miðar á völlinn kosta 3—15 hollenzkar florinur eða um 36—180 kr. eftir gæðum. því þegar skrifað St. Mirren og falað leyfi fyrir Þórólf Beok að leika í ísl. liðinu. Svar er ókomið Og bréfaskriftir standa yfir milli íra og fslendinga. fslendingar og írar hafa áður mætzt bæði hér heima og í Dubl- in. írar unnu báða þá leiki með 1 marks mun. En þá tefldu þeir ekki fram sínu bezta liði. Marg- ir atvinnumanna þeirra starfa í Englandi og þeim munu frar nú tefla fram. En einn síðasti lands- leikur fra var gegn Tékkum og þá unnu Tékkar með 7—1 — léku sér eins og köttur að mús að frum. -fc íslan.d — Hollenzku Antillueyjar Þá er ákveðinn landsleikur milli íslands og Hollenzku- Antillueyja. Verður hann í Reykjavík 16. sept. Þetta lið er skipað þeldökkum mönnum og verður hið fyrsta sem hér hefur leikið. Um styrkleika þeirra verður lítið sagt. Þeir hafa tekið þátt i undanrásum heims- meistarakeppni. En hingað koma þeir við á leið frá Evrópu til Ameríku. Dagana á undan leikn um hér leika þeir landsleik við Hollendinga og Dani. Þeir leika aðeins einn leik vegna áfram- halds ferðar þeirra. it ísland B — Færeyjar Loks koma svo Færeyingar hingað og keppa við B-landslið íslendinga. Þetta er heimboð vegna utanferðar B-liðs okkar 1959, en þá vann ísl. liðið A-lið Færeyja með 5—2. Þessi leikur verður 3. ágúst. Framhald á bls. 23. !R vann með — og sigraði í afmælismóti ÍSÍ i körfuknattleik ÍR-ingar fóru með sigur af-A- hólmi í hátíðahöldum körfu- knattleiks manna í tilefni af af- mæli ÍSÍ. Sigur þeirra var að visu mjög naumur — varð ekki tryg’gður fyrr en í leikslok að Þorsteinn Hallgrímsson breytti stigatölunni 14—15 i 16—15. Mót- berjarnir voru Ármenningar og var þessi leikur eins spennandi og íþróttakeppni getur orðið. Undanúrslit. if Undanrásir. í mótsbyrjun flutti Bogi Þor- steinsson formaður Körfuknatt- leikssambandsins ávarp og minntist ÍSÍ og körfuknattleiks- íþróttarinnar. Síðan hófst útsláttarkeppni fé- laganna Fyrst mættust Stúdentar og Körfuknattleiksfélag Reykja- víkur. Sá leikur var harla ójafn og höfðu KFR-menn alla yfir- burði og sigruðu með 26 stigum gegn 12. Næst mættust leikmenn IKF og KR-ingar. í þessum leik urðu mikil átök og jöfn. Hinir ungu leikmenn IKF komu mjög á ó- vart og svo virtist sem KR-ing- ar hefðu sízt búizt við mikilli getu af þeim. KR hafði foryst- una í byrjun leiksins en smám saman tókst IKF mönnum, ung- um en á köflum fallega leikandi, að vinna upp bilið — og ná frum kvæðinu. Baráttan varð æsispenn andi er KR jafnaði aftur 15—15 en betri yfirvegun í leik færði IKF-piltunum sigurinn 19—16. Fyrst í undanúrslitum komu svo ÍR og Ármann í spilið. Ár- mann mœtti næst sigurvegurum í fyrsta leiknum, KFR. Það varð álíka burst sem KFR fékk nú og þeir fengu notið í fyrsta leikn- um. Ármann hafði öll tök í leikn- um og vann yfirburðasigur 19—9. Næst mættust ÍR og IKF. Þar mættu IKF-menn ofjarli sínum og ÍR vann auðsóttan sigur 24— 12. IKF gaf þó ekki þennan leik keppnislaust og stóðu sig með mikilli prýði framan af, og veittu harða keppni. ★ Úrslit • ÍR-ingar komu strax aftur á leikvanginn og mættu nú Ár- manni í úrslitum. Það kann að hafa haft einhver áhrif fyrir ÍR- inga að leika tvo leiki í röð. En þeir náðu samt frumkvæðinu fljótt og komust í 8—4. í hálf- leik stóð 13—9 fyrir ÍR. En þá upphófst spenningurinn. Ármenningum tókst að minnka bilið verulega og er allmjög var á leikinn liðið að komast yfir 15—14 eftir laglega skoraða körfu með langsendingu fram. Hófst nú mjög spennandi keppni liðanna og nokkur harka komst í leikinn hvorugt liðið skoraði. Þar kom að ÍR voru dæmd víta- köst fyrir gróf brot. Þorsteinn Hallgrímsson tók vxtin og skor- aði úr báðum köstxxnum. Sýndi það mikið öryggi hans á slíkri örlagastund leiksins. Og vitaköst- marki in færðu ÍR sigur í leiknum — og mótinu Sigur ÍR er verðskuldaður. Ekki er vafi á að ÍR og Ar- mann eiga beztu lið landsins nú og þessi keppni milli þeirra var Norðmaður og Walesbúi dæma leiki Islendinga EINS og sagt er frá á öðr- um stað leika íslendingar og írar tvo landsleiki og eru þeir liður í keppninni um „þjóðabikarinn". Ákveð ið var xxm leið og dregið var urn það hvaða lönd léku samaii, hvaða dómarar yrðu á leiknum Leik íslands og írlands hér heima dæmir Norðmaður, en leikinn úti dæmir dómari frá Wales. 5 Gúðmundur Þorst. ÍR og Birg/ ir kljást. Lárus horfir á enl Þorst. Hallgrímsson bíður aðj baki. (Ljósm. Sveinn Þormóðss.)( mjög jöfn og spennandi. Ár- mannsliðið er í framför en ÍR- liðið heldur sínum styrk og nýt- xxr meiri reynslu og skemmti- legri tilþrif sjást vart en hj'á þeim Þorsteini, Hólmsteini og Guðmundi. Leikurinn er tilvilj- anakenndari hjá Ármenningum en Birgir ber þar hæst svo og Davíð. Ingó f hringinn Á M O R G U N mætast þeir í hnefaleikakeppni Inge mar Johannsson fyrrum heims- meistari og brezki þungavigtar- kappinn Joe Bygraves. Keppnin fer fram í Gautaborg og verður 10 lotur. Blaðamenn spurðu Bygraves að því í dag, hvort hann teldi Ingi mar í jafn góðri þjálfun og þá er hann vann heimsmeistaratitil sinn. Bygraves svaraði og glotti leikurinn á morgun svarar þeirri spumingu". Deilt um 4,882 stangarstökkið ALLMIKLAR deilur eru nú upp risnar vegxia afreks Bandaríkja- mannsins John Uelses í stangar- stökki, en hann stökk innanhúss s.l. laugardag 4.882 m. Er það hæsta stangarstökk sem stokkið hefur verið, en verður ekki stað- Jest sem heimsmet þar sem það n > fpM~inri' r r**n — - - • • - Sömu brautir — en engir titlar Heimsmeistarmótinu í alpa greinum skíðaiþrótta var af- lýst, en allt var tilbúið fyrir mótið, þó A-Þjóðverjar fengju ekki vegabréfsáritun til Frakk landis og skíðasambandið yrði að aflýsa mótinu af þeim sök En mót verður haldið þar eigi að síður og verða allir beztu skíðamenn heims meðal þátttakenda. Keppt verður í þeim sömu brautum og heims meistarakeppnin skyldi fara fram í og starfsmenn flestir þeir sömu. Aðeins skortir á að heimsmeistaratitlar fylgja ekki verðlaunapeningunum. Mótið hefst 10. febiúar með undankeppni í svigi karia og síðan verður daglega keppt til 18. febrúar en þá iýkur mótinu með bruni karia. — Dagskráin er hin sama og upp haflega var ákveðin. er sett inni. Uelses notaði nýja gerð stanga, sem framleiddar eru úr „fieberg- lass“ eða trefljagleri. Telja menn að stöng úr slíku efni sé mjög hagstæð þeim er stekkur Og gefi honum aukna hæð með þeirri sveiflu og spennu sem stöngin tekur. Talsmaður alþjóða frjálsíþrótta sambandsins sagði, að ef hér hefði verið um utanhússafrek að ræða og afrekið sem slíkt komið til kasta alþjóðasambandsins til staðfestingar sem met, þá hefði málið ekki fengið afgreiðslu fyrr en rannsókn væri lokið. Næsta þing alþjóðasambands- ins myndi taka þetta mál til með ferðar og myndi toekninefnd sam bandsins hafa rannsakað þessa gerð stanga fyrir þann tíma. Meðan yrðu sambönd hvers lands að ákveða sjálf hvort þau tækju gild met sett með slíkum stön-g- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.