Morgunblaðið - 26.04.1962, Qupperneq 6
6
MOKGUI\nr íflro
Ffinmfuclagur 26. april 1962
Strandamenn
og rækjuveiðar
HINN 5 pjrn. ritar Guðjón Guð-
mundsson á Ingólfsfirði smágrein
í Morgunblaðið undir fyrirsögn-
inni „Á að eyðileggja rækjusvæð-
ið á Ófeigsfirði“. Eitt höfuð um-
ræðuefni Guðjóns er þar, eins og
í viðtali hans við Tímann s.l.
laugardag, skip mitt Kristján og
rækjuvarpa hans, sem Guðjón
virðist hafa fengið ofnæmi fyrir.
Orsökin fyrir þessum hávaða
Guðjóns nú. er, sú, að 6 bátum
frá ísafjarðardjúpi, þar á meðal
Kristjáni, var fyrir noklkrum
dögum veitt leyfi til rækjuveiða
á Ingólfsíjarðarmiðum í um hálf
an mánuð, en Guðjón vill hafa
einkarétt fyrir fjölskyldubát sinn
til veiðanna. Þennan einkarétt
fékk ha.in um tveggja mánaða
skeið í vetur, sennilega m. a.
á þeim forsendum, að þeir
Strandamenr. gætu nýtt rækju-
afla sinn sjálfír og sett yrði upp
rækjuverksmiðja á Ingólfsfirði,
sem auðvitað hefur ekki verið
gert við þessi mjög lítt reyndu
mið. Það sem fjölskyldubétur
Guðjóns hefur- veitt í vetur síðan
hann fékk einkaréttinn hefur
ýmist veríð sent með strandferða
skipum til ísafjarðar eða Hólma-
víkur. Sumu af því, sem sent
hefur verið til ísafjarðar hefur
verið fleygt, vegna þess að rækj-
an var gömul Og óhæf til vinnslu.
Á Hólmavík hefur rækjan verið
heilfryst í skelinni, en það er
lítt seljanleg vara. Þannig hafa
Ingólfsfjarðarmenn nýtt rækj-
una, þetta hefur m. a. leitt til
þess, að öðrum var nú veitt leyfi
til veiðanna.
í viðtali í Tímanum s.l. laugar
dag var haft eftir herra fiski-
fræðingi Ingvari Hallgrímssyni
um veitingu þessara veiðileyfa:
„Taldi hann. að það gæti ekki
spillt fyrir einum né neinum,
þvert á móti fengist með þessum
hætti nokkur reynsla á, hve
mikill rækjustofninn væri á
Ingólfsfirði, því að ef hann þyldi
ekki veiði 5—6 báta í há'lfan mán
uð, væri fjarstæða að setja á
stocfn rækjuiðnað í Ingólfsfirði".
Þannig hafa viðkomandi yfir-
völd, sem um veitingu slíkra
Listi Sjálfstæðis-
manna á Flateyri
veiðileyfa fjalla, ekki haft að
engu „vísindalegt eftirlit fiski-
fræðinga", ens og Gnðjón Guð-
mundsson fuliyrðir í grein sinni,
um það oera ummæli fiskifræð-
ingsins, sem vitnað er til hér að
framan, bezt vitni.
Varðandi m/s Kristján Og
rækjuvörpu hans, þá hefi ég gert
hann út síðan í desember í vetur
til þess að leita rækju fyrir norð-
ur- og vesturlandL Því miður
hafa þessar tilraunir ekki borið
árangur ennþá, en ekkert er
rækjuiðnaði hér á landi nauðsyn-
legra en fundið verði úthafs-
rækjumið. Til þess að létta undir
útgerðinni við þessar tilraunir
var skipið á rækjuveiðum á
Ingölfsfjarðarmiðum í tvær vik-
ur í vetur þangað til þeim var
lokað fyrir öðrum en Stranda-
mönnum, og nú hefir Kristján
Og 5 aðrir bátar frá Djúpi leyfi
til veiða þarna til loka þessa
mánaðar.
Rækjubotnvarpa Kristjáns er
venjuleg dönsk varpa, sams kon-
ar og 95% af danska rækju-
veiðiflotanum notar. Herra fiski-
fræðingur Aðalsteinn Sigurðsson
var í vetur um tíma um borð í
Kristjáni við rækjuleit.“Hann
skoðaði þá Og mældi umrædda
nótt, Og sýndu þær mælingar, að
riðill vörpunnar er nokkru
stærri, en almennt er í rækju-
vörpum hér. og er það auðvitað
höfuðatriðið, því eftir því sem
riðillinn er stærri, veiðir varpan
minna af ungviði rækjunnar.
Mér vitanlega hafði Aðalsteinn
ekkert við nótma að athuga. Hins
vegar er þessi varpa stærri en
notuð er á 10—20 tonna bátum,
eins og gefur að skilja þar sem
þessi bátur er 90 tönn.
Guðjón Guðmundsson virðist
hafa fengið slíkt ofnæmi fyrir
Kristjáni og vörpu hans, að hann
staglast sifellt á stórri vörpu ög
stórum báti. Það er áreiðanlega
ekki til íramdráttar þeirri hug-
mynd Strandamanna við að
koma sér upp rækjuiðnaði og sett
verði upp rækjuverksmiðja til að
hagnýta rækjuna við Strandir, að
þeir hafi Guðjón Guðmundsson
fyrir framámann sinn. Það fyrsta
sem þarf að gera, er að sanna
að þarna á Ströndum séu haldgóð
rækjumið En þetta skilja Ing-
ólfsfjarðarmenn ekki.
Björgvin Bjarnason.
Listi Sjálfstæðis-
manna á Seyðis-
firði
Listi Sjálfstæðismanna á Seyð
isfirði hefur verið ákveðinn. —
Listinn er þannig skipaður:
Pétur Blöndal, iðnrekandi
Sveinn Guðmundsson, frkvstj.
Stefán Jóhannsson vélfræðingur
Hörður Jónsson, verkamaður
Guðmundur Gislason, bankarit-
ari
Þorbjörn Arnoldsson, verkam.
Theodór Blöndal, bankastjóri
Svavar Karlsson, varðstjóri
Júlíus Brynjólfsson, bifreiðastj.
Trausti Magnússon, stýrimaður
Carl Nielsen, skrifstofumaður
Einar Sigurjónsson, verzlunarm.
Hafsteinn Steindórsson, verkam.
Hávarður Helgason, stjómaður
Einar Sveinsson, vélvirki
Gestur Jóhannsson, fulltrúi
Erlendur Bjömsson, bæjarfógeti
• London, 25. apríl (NAB)
Brezika kappaksturshetjan Stirl-
ing Moss var enn meðvitundar-
laus í dag eftir slysið á mánu-
dag þegár Lotus-bifreið hans valt
á Goödwood kappakstursbraut-
inni. Læknar telja þó að Moss
sé á batavegi.
Listi Sjálfstæðis-
manna á Eyrar-
bakka
SJÖ EFSTIJ menn á lista Sjálf-
stæðismanna í hreppsnefndar-
kosningum á Eyrarbakka eru:
Hörður Thorarensen, sjómaður,
Túnprýði
Óskar Ma'gnússon, kennari,
Hjallatúni
Bjami Jóhannsson, skipstjóri,
Einarshöfn
Gunnar Olsen, bifreiðastjóri,
Smáratúni
Ingibjörg Pálsdóttir, húsfreyja,
Skjaldbreið
Sigurður Kristjánsson, hreppstj.
Búðarstíg
Guðjón Guðmundsson, sjómaður
Steinskoti
• Buenos Aires, 25. apríl NAB
Mörgum skrifstofuim Peronista
var lokað í dag og fjöádi Peron-
ista og kommúnista handtekinn
í Argentínu. Er þetta í framihaldi
af tilskipun Guido forseta frá í
gær um ógildingu allra kosninga
á þessu án. Flestar munu hand-
tökurnar hafa verið í borginni
Gordoba.
EINS og Morgunblaðið hef-
ur skýrt frá er ákveðið, að
ný bygging verði reist við
Menntaskólann í Reykja-
vík, er standa á í „olíuport- j,
inu“ svokallaða. — Fram-
kvæmdir eru þegar hafnar,
eins og sést á meðfylgjandi
mynd. — Kristinn Ár-
mannsson, rektor Mennta-
skólans, tjáði fréttamanni
Mbl. í gær, að leyfi hefði
fengizt hjá eigendum lóðar
þeirrar, er hin nýja bygg-
ing á að standa á, til að
rífa skúra og undirbúa
bygginguna, en beðið er
eftir mati á lóðinni. Einnig
er að ljúka teikningu hins
nýja skólahúss, en hafizt
verður handa um leið og
henni verður lokið. í hinni
nýju byggingu verða kennslu
stofur fyrir eðlisfræði, efna-
fræði, stærðfræði, náttúru-
fræði og svokallað „húm-
anistískt laboratorium“ eða
stofa fyrir tungumála-
kennslu, sem tilbúnar
verða til notkunar í haust.
Þá verður og komið upp
leikfimihúsi og samkomu-
sal. —
SJÁLFSTÆÐISMENN hafa lagt
fram lista sinn til hreppsnefnd-
arkosninga á Flateyri við Ön-
undarfjörð. Er listinn undirbúinn
og borinn fram af Sjálfstæðisfé-
lagi Önundarfjarðar og er svo
skipaður:
1. Rafn A. Pétursson,
framkvæmdastjóri
2. Jón Gunnar Stefánsson,
viðskiptafræðingur
3. Kristján Guðmundsson,
bakarameistari
4. Sólveig Bjarnadóttir, húsfrú
5. Kristján Hálfdánsson,
skrifstofumaður
6. Björgvin Þórðarson, rafvirki
7. Gunnlaugar Kristjánsson,
verkamaður
8. Aðalsteinn Vilbergsson,
Vélsmiður
9. María Jóhannsdóttir,
póst- og símstjóri
10. Sturla Ebenezerson,
kaupmaður.
• Skemmtilegur
dagskrárliður
Ýmsir hafa minnzt á Kilj-
anskvö!d vökuna í útvarpinu á
annan páskadag við mig
tvo síðustu daga. Það er
greinilegt að hún hefur þótt
mjög góð, vel sett saman, vel
leikin og áheyrileg. Skáldið
og stúlkan hans voru með af-
brigðum skemmtiiega túlkuð
af þeim Lárusi Pálssyni og
Kristbjörgu Kjeld.
En þó fór eitt í tau'garnar
á fólki og það er sennilega
þessvegna, sem svo margir
hafa á þetta minnzt, því oft-
ar heyri ég það sem miður
fer en hitt sem vel er gert.
Og það er þessi ónákvæma
tímaáætlun þessa dagskrár-
liðar, og það þó þjálfaðir út-
varpsmenn ættu í hlut. í dag
skrártilkynningum í dagblöð
unum stóð að þessi liður
skyldi hefjast kl. 8 og ljúka
kl. 10.
• Beið eftir endinum
í 40 mín.
Hlustandi einn. sem er að-
dáandi Kiljans, sagði mér að
hann hefði alls ekki ætlað að
missa ai þessari dagskrá í til-
efni af afmæli skáldsins og
því gert ráð fyrir að hitta
ekki fólk fyrr en kl. 10. Svo
varð kl. 10 og 10.15 og ekki
lauk kvöldvökunni. Hann
stóð tvístígandi fyrir framan
útvarpið 10 mín. í við'bót,
vildi neyra endinn, en varð
svo loks að gefast upp og
vissi ekki af hve miklu hann
hefðf misst. En heimafólk
tjáði honum að kl. 10.40 hefði
dagskrárliðnum loks verið
lokið.
Fleiri höfðu þessa sömu
sögu að segja. Þeir vildu
hlusta og ætluðu að hlusta,
en höfðu ekki gert ráð fyrir
þessum tíma til þess. Og
ferðafólk veit ég um, sem
ætlaði að heyra veðurfregnir
í bíl sínum og stanzaði til
þess úti á vegi. beið í upp
undir hálftíma, áður en það
gafst upp.
Öllum þessum grömu mönn
um, sem ég talaði við, kom
saman um að dagskrárliður-
inn hefði vel verið þess virði
að hafa hann í 2 klst. og 40
mín., en hlustendur hefðu
bara átt að fá að vita það
fyrirfram.