Morgunblaðið - 13.06.1962, Qupperneq 5
MiSvikudagur 13. júní 1962
MORGUNBLAÐIÐ
5
Læknar fiarveiandi
Esra Pétursson i?m óákveðinn tíma
(Halldór Arinbjarnar).
Guðjón Klemenzson, Njarðvíkum
til 2. júlí. (Arinbjörn Ólafsson, Kefla-
vík).
Halldór Arinbjarnarson fjarverandi
til 14. júní (Árni Björnsson).
Jónas Sveinsson til júlíloka. —
(Kristján Þorvarðsson í júní og Ófeig
ur Ófeigsson í júlí).
Kristján Jóhannesson um óákveðinn
tíma (Ólafur TSinarsson og Halldór
Jóhannsson).
Ófeigur J. Ófeigsson til júníloka
(Jónas Sveinsson í maí og Kristján
l>o?varðsson í júní).
Ragnhildur Ingibergsdóttir til 15.
Júní (Brynjólfur Dagsson).
Tómas A. Jónasson frá 9. maí í 6
Vikur (Björn Þ. í>órðarson).
Þórður Möller frá 12. júní í 4—6
vikur (Gunnar Guðmundsson).
Mbl. a Husavík
! Morgunblaðið hefur verið
selt í sjálfsafgreiðslu á Húsa-
J vík yfir sumarmiánuðina und
anfarin ár og hefur það gef-
izt mjög vel.
Hugmyndin átti umiboðs-
maður blaðsins þar, Sigurð-
ur P. Björnsson, og er af-
greiðslan til húsa að Garðars-
braut 17.
Myndin er af ungri stúlku,
sem var á ferðalagi á Húsa-
vík, þar sem hún er að kaupa
; blaðið í sjálfsafgreiðslunni.
Sjötug er í dag frú Ingibjörg
Haraldsdóttir, Sólvallagötu 28.
Nýlega voru gefin saman í
lijónaband Kolbrún Thorlacíus og
Karl Magnússon. Heimili þeirra
er að Miklubraut 88. (Ljósm.: —
Studio Guðmundar, Garðastr. 8).
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Bára Steins-
dóttir, Tangagötu 10, ísafirði og
Kagnar Johannsson, rafvirkja-
jiemi, Grettisgötu 19. Rvík.
75 ára er í dag Ásgeir H. P.
Hraundal Vinaminni, Stokks-
eyri.
Nýlega opinberuðu trúlofun
eína ungfrú Ragna Gísladóttir
Kelduhivammi 32, Hafnarfirði
og Bryngeir Vattnes Kristjáns-
eon, Þinghólsbraut 23 Kópa-
vogi.
Laugardaginn 2. júnf voru gef
In saman í hjónaband í Laugar-
neskirkju, Hanna Bárðardóttir
(Eskihlíð 14 og Ingvar Ingólfsson
kennari Kjartansgötu 8. Heimili
þeirra er að Eskihlíð 14.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband af próf
essor Jóihanni Hannessyni ungfrú
Anna María Einarsdóttir frá Heið
tirbæ, Þingvallasveit og Kjartan
Gunnarsson frá Svínafelli, Ör-
æfum. Heimili þeirra verður að
Sogavegi 114, Reykjavík,
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband í hjóna-
band í Leeds í Englandi, dipl.
art. Jacqueline Mary Slaughter
(R. E. Slaughter hóteleiganda í
London) og mag. art Jón I. E.
Hannesson (Arnórssonar heitins
verikfræðings) Reynimel 56.
Brúðhjónin eru væntanleg til
Reykjavíkur í ágústmánuði.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Elísabet Eysturoy Lang-
holtsvegi 104 og William Pitt-
man, starfsmaður á Keflavíkur-
flugvelli.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Óskari J. Þor
lálkssyni, Eygló Sigurbjörg Hall
grímsdóttir, Laugavegi 41 a og
Karl Benediktsson, símamaður.
Heimili þeirra er að Birki-
hvarnmi 21, Kópavogi.
5. júní sl. voru gefin saman í
hjónaband af séra Jakobi Jóns-
syni, Stella E. K. Kristjánsdóttir
og Hreinn Pálsson prentari. Heim
ili þeirra er að Grundarstíg 8.
Uro hátíðina voru gefin saman
í hjónaband af séra Árelíusi Ní
elssyni, Dóra Sigmundsdóttir,
hjúkrunarkona og Gunnar Kr.
Gunnarsson, símamaður. Heimili
þeirra er að Nesvegi 7.
Ennfremur Guðrún Magnús-
dóttir og Matthías Ástþórsson,
teiknari, Víðihvammi 15.
Flugíélag tslands h.f. Millilandaflug:
Skýfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Vænt-
anlég aftur til Keykjavíkur kl. 23.00
í kvöld. Hrímfaxi fer til Glasgow
og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í fyrra
málið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Hellu, Hornafjarðar og Vest-
mannaeyja (2 ferðir). Á morgun er
áætlað að fljúga ti.l Akureyrar C3
ferðir), Egilsstaða, Isafjarðar, Kópa-
skers, Vestmannaeyja (2 ferðir) og
Þórshafnar.
Loftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er
væntanlegur frá NY kl. 05.00 fer til
Osló, Helsingfors kl. 06:30. Væntanl.
aftur kl. 24.00 fer til NY kl-. 01.30.
Leifur Eiríksson væntanl. frá NY
kl. 06.00 fer til Gautaborgar Kaup-
mannahafnar og Stafangurs kl. 07.30.
Væntanl. aftur kl. 23.00 fer til NY.
00.30.
Eimsikipaf élag Beykjavíkur h.f.:
Katla kom til Siglufjarðar í morgun.
Askja er I Riga.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er
væntanleg til Kaupmannahafnar ár-
degis í dag. Esja fer frá Rvík í dag.
Herjólfur er í Rvík. Þyrill er á Aust-
fjörðum. Skjaldbreið fór frá Rvík í
gærkvöldi vestur um land til ísafj.
Herðubreið fer frá Vestm.eyjum síð-
degis i dag til Rvíkur.
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
foss fer frá NY 15 júní til Rvíkur.
Dettifoss fór frá Hull 11 þm. til
Rvíkur. Fjallfoss kom til Rvíkur 9
þm. frá Hull. Goðafoss fór frá Rvík.
6 þm. til Rotterdam og Hamborgar.
Gullfoss fór frá Leith 11. þ.m. til
Reykjavikur. Lagarfoss er í Rvík.
Reykjafoss kom til Rvíkur 11. 6. frá
Akureyri. Selfoss fer frá Keflavík
10 þm. tll Dublin og NY. Trölla-
foss fór frá Kotka 11 þm. til Gauta-
borgar og Rvíkur. Tungufoss fór frá
Hull 10 þm. til Álborg og Gauta-
borgar. Laxá fór frá Hull 8 þm. væn-t-
anleg til Hafnarfj arðar um miðnætti
12. þ.m.
Skoppar frár á skörum ísa
og í skógarlundum.
Um hann gripið ýmsum mundum.
Upp að honum dregið stundum.
— Dufgus.
Svar á bls. 23.
■sf 'iw1
Fyrir skömmu kom Detti-
foss til Charleston-hafnar 1
South-Carolina í Bandaríkj-
unum. Er þetta í fyrsta skipti
svo vitað sé, sem skip kemur
til hafnar í Gharleston undir
íslenzikum fána, en þangað
koma árlega um 1600 skip.
Sérstaka athygli vakti það, að
skipið lestaði stærsta farm af
frystum alifuglum, sem flutt
ur hefur verið frá þessari
höfn.
Grein um komu skipsins
birtist ásamt þessari mynd í '
„Charleston Evening Post“, en
á henni eru skipstjórinn Ey- ,
jólfur Þorvaldsson og for- '
stjóri Viðskiptadeildar Banda-
ríkjanna í Oharleston, Paul
Queltebaum.
Sumarbústaður eða 1 herb. austan fjaUs óskast til leigu sem fyrst um mánaðartima. Tilboð sendist Mbl. fyrir 16. þ. m. Merkt: „Góð umgengni — 288“. Ódýr skrúðgarðaúðun Látið sénfræðing annast verkið. Rétt lyf á hverjum stað. Meinlaus úðun. Mein- dýra illgresiseyðing. Guðmundur örn Árnason, skógarverkfr. Símí 50682.
Reg'Iusöm hjón 60 ára, óska eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst. Til mála getur komið húshjálp. — Tilb., merkt. „Bindini — 7294“ sendist Mbl. Húsgögn Vegna flutninga er til sölu góður sófi, 2 djúpir stólar, dívan, eldhússborð og koll ar, innskotsborð o. fl. — Mjög ódýrt á Grettisgötu 71, 3. hæð.
Keflavík — Njarðvík Bandarísk hjón vantar 2ja—3ja herb. íbúð, með húsgögnum, sem fyrst. — Uppl. í síma 6145, Kefla- víkurflugvelli. Til leigu 3ja herb. íbúð við Lauga veginn. Laus strax. Hentug fyrir léttan iðnað eða skrif stofur. Uppl. í síma 19090 eða 14951.
Ódýr bíll Til sölu Plymouth ’40 með nýjum mótor, spindillbolt- um og hemlum,, — einnig öll dekk ný. Uppl. í siímum 19125 og 20139. Skipstjórar Vanur matsveinn óskar eftir síldarplássi á góðu skipi í sumar. Reglusamur. Uppl. í síma 23369 eftir kl. 6 á kvöldin.
íbúð óskast sem fyrst, 2—3 herbergi. Tvennt í heimili. Fyrir- framgreiðsla. Uppl. í síma 18847 næstu daga kl. 4—8. Timbur Notað timbur til sölu — einnig Vauxhall bílamótor með kúplingu og gírkassa. Uppl. í síma 1582, Kefla- vík
Sumarúðun skrúðgarða Tekið við pöntun í 17425 og 20884. Ágúst Eiríksson, garðyrk j uf ræðingur. Húseigendur Nýbyggingar og breyting-. ar á skrúðgörðum, hellu- lagning o. fl. Uppl. í síma 24634 og 19598.
Skipstjórar Útgerðarmenn! Vanur mat- sveinn óskar eftir góðu síldarplássi í sumar. Uppl. í síma 32274. Aukavinna Ungur maður með Verzl- unarmenntun og bílpróf óskar eftir aukavinnu. — Uppl. í síma 13537.
6 herb. einbýlishús til leigu nú þegar. Árs- fyrirframgreiðsla. Uppl. í síma 36773 eftir kL 7 á kvöldin. Willys jeppi ’46 árg. af Willys jeppa til sýnis og sölu Efstasundi 63. Uppl. í síma 35113, milli 7—10 e. h.
Bílskúr (stærð 2,50x4,75 m.) — til sölu. Uppl. á Norður- braut 22, Hafnarfirði. Tækifæriskaup Hilman ’47 í glæsilegu standi til sölu, Akurgerði 4. Sími 35784.
2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu, helzt í Laugarneshv-arfd. Uppl. í síma 35079. Vil kaupa Volkswagen „Station“ árg. ’59—’62. Uppl. í síma 1730, Keflavík.
Hjálp — Hjálp Vantar íbúð strax, 2—3 herb. og eldhús. Eldrd hjón með 1 barn. Sími 36794. Kaupakona óskast í Borgarfj.sýslu. — Mætti hafa með sér 1 barn. Uppl. í síma 16937.
Sölufurn
á góðum stað í bænum til sölu. — Uppl. gefur
ÖRN CLAUSEN
Bankastræti 12 (ekki í síma)
TIL SÖLU
3ja herb. íbúðarhæð
í IMorðurmyri
íbúðin er laus nú þegar og verið að enda við að máfla
hana.
JMýja Fasteignasalan
Bankastrætí 7 — Sími 24300
og kl. 7.30—8,30 e-h. sími 18546