Morgunblaðið - 13.06.1962, Síða 10
10
MORGUNBLAÐltr
MiðvikúdagUr 13. júní 1962
Hjá Marteini
Kælon kjólaefni
nýkomið.
Einlit kjólaefni
margir litir.
Sundbolir
nýtt úrval.
MARTEIHI
NILFISK
verndar gólíteppin -
>ví að nægilegt sogafl og af-
burða teppasogstykki DJÚP-
HREINSA teppin og marg-
falda þannig endingu þeirra.
NILFISK ber af í einu og öllu:
ir meira sogafl — stillanlegt
hljóður gangur
it tvöfalt fleiri (10) og betri
sogstykki, hjólagrind og
áhaldahilla fylgja, auk
venjulegra fylgihluta
ÍT bónkústur, hárþurrka,
sprauta, fatabursti o. fl.
fæst aukalega
ÍC 100% hreinleg tæming:
pappírspoki eða málmfata
ic dæmalaus ending — ábyrgð
ir fullkomna varahluta- og
viðgerðaþjónustu önnumst
við
NILFISK
bónvélar
eins og
NILFISK
ryksugur:
afburða
verkfæri í
sérflokki.
Góðir greiísluskilmálar.
Sendum um allt land.
O IVII X
O. KORNERUP HANSEN
Sími 12606 - Suðurgötu 10
Friedrich Wolff er 385 lestir að stærð og getur borið allt að 725 farþega. Að þessu
sinni voru aðeins 16 manns um borð. „Það er engum að treysta,“ sagði einn flótta-
mannanna, „og þess vegna vorum við ekki fleiri.
,Það var engu að tapa'
Sagt fra flótta 14 ungra A-þjóðverja til
V-Berlínar í skemmtiferðaskipi
KLUKKAN 5 að morgni föstu
dagsins sl. lagði skemmti-
ferðaskipið Friedrich Wolff,
hið fullkomnasta, sem yfir-
völdin í A-Berlín hafa yfir
ir voru neðanþilja.
Er skipið kom að árbakk-
anum vestan megin hljóp fólk
ið í land, í 2ja og 3ja manna
hópum, undir stöðungri skot-
Jutta, stúlkan, sem flúði með 5 mánaða gamalt ungbarn
og þjónn skipsins, Dieter, við komuna til flóttamanna-
búðanna í Marienfeldt í Vestur-Berlín. Eftirnöfn voru
ekki gefin upp.
að ráða, frá bryggju á ánni
Spree, þar sem hún rennur
um a-þýzkt yfirráðasvæði.
Ferðinni var heitið á þann
stað á ánni, sem skilur að
Austur og V-Berlín. Niðri í
skipinu lágu bundnir, í öl-
vimu, skipstjórinn og vél-
stjórinn, dyggir' meðlimir a-
þýzka kommúnistaflokksins.
Aðrir um borð voru 14 tals-
ins, þar á meðal 5 mánaða
gamalt barn. Fólkið var að
flýja til V.-Berlinar, frá ógn-
ar- og einræðisstjórn komm-
únista.
Nokkrum mínútum eftir að
skipið lagði f-rá bryggju mætti
því Vopos bátur (a-þýzk lög-
regla), og innti eftir ferðum.
Kokkur skipsins, sem reynd-
ist vera sá, sem lagt hafði á
ráðin um> flóttann, Joerg
Lindner, 22 ára gamall, skýrði
lögreglunni svo frá, að áhöfn
in væri að fara með skipið til
viSgerðar.
Sú skýring var tekin góð
og gild, en jafnframt lagt svo
fyrir, að skipið yrði að halda
sig réttu megin á ánni, og
gefa lögboðin merki til eftir-
litsmanna í landi.
Skömmu síðar gaf skipið
merki um, að það myndi
beygja til hægri — eins og
gert hefði verið ef allt hefði
verið með felldu. En um lcið
var skipinu snúið hratt til
vinstri, og sett á fulla ferð.
Um leið tóku a-þýzkir lög-
reglumenn að skjóta á skip-
ið úr vélbyssum. Skotið var
frá varðturnum, bryggju,
brú og eftirlitsbát. Alls nr.unu
hafa verið skotið um 200 skot-
um á næstu augnablikum.
Mennirnir í stýrihúsinu höfðu
reist nokkrar stálplötur, sér
til hlífðar gegn skothríð. Aðr
hríð a-þýzku lögreglunnar,
sem ekki vílaði sér fyrir að
skjóta yfir í vesturhluta borg
arinnar. För eftir kúlnahrið-
ina fundust á íbúðarbygging-
um um 200 m. frá árbakkan-
um. Allir komust þó heilu og
höldnu í skjól.
V.-þýzka lögreglan svaraði
skothríðinni, með 10 skotum.,
þá hætti skothríðin austan
frá.
Þiað fólk, sem flúð% var
flest á aldrinum 20—30 ára.
8 þeirra voru af áhöfn báts-
ins, en auk þeirra 5 konur
og ungbarn það, sem áður er
getið.
Þjónn skipsins skýrði svo
frá, að flóttinn hefði verið í
undirbúningi undanfarnar
vikur. Nóttina fyrir flóttann
höfðu tveir vélfræðingar kom
ið til að framkvæma viðgerð
á vélum skipsins. Eítt hið
fyrsta, sem þeir spurðu um,
er þeir komu um borð, var
hvort möguleiki væri til þess
að flýja.
Þá þótti áhafnarmeðlimum
sem tími væri kominn til þess
að láta til skarar skríða. Var
ákveðið, þá um kvöldið, að
efna tiil drykkjuveizlu, og
reyna að fá skipstjórann og
vélamanninn til þess að
drekka frá sér ráð og rænu.
Þeir voru báðir dyggir komm
únistar og ekki líklegir til
þess að samþykkja að skipið
yrði notað til undankomu.
Á skömmum tíma hafði tek
izt að fá þá til að drekka
langt á áðra flösku af koní-
aki, eina kampavínsflösku og
nokkra bjóra.
Síðan tóku áhafnarmeðlim
irnir yfirir.ínnina tvo, sem
voru heldur illa á sig komnir,
bundu þá og komu fyrir niðri
í skipinu. Nokkru seinna fór
skipstjórinn að brjótast um
og æpa, og var þá ekki annað
ráð vænna en slá þá félaga í
höfuðið, til þess að ópin
heyrðust ekki í land.
Er allt var búið undir flótt-
ann, hljóp einn skipverjanna
í land, náði í konurnar og
smábarnið. Enginn tók nein-
ar eigur með sér, og allt sem
konan, Jutta M. (eftimafn
ekki gefið upp) 17 ára, tók
með af eigum sínum var
nokkrar „bleyjur" á ung-
barnið.
„Við voru öll mjög spennt“,
sagði þjónninn að lokum við
fréttamenn „en við höfðun?
engu að tapa. Lífið í A-Berhn
er eins og í fangabúðum.
Þrír af austur-þýzku flottamönnunum. Myndin var tekin
skömmu eftir að þeir voru komnir til Vestur-Berlínar,
eftir flóttann í Friedrich Wolff.
SlilVIAR- íM
JAKKIIMIM D£
Jörgen Hansen
Simi 13299.
TÓKÍÓ
eða
EGILSSTAÐIR
1 síðustu viku seldum við m.a.
‘farmiða til Tókíó, Narssars-
suak og Egilsstaða.
Við erum alla daga reiðu-
búnir að veita viðskiptavinum
okkar J>á beztu ferðaiþj ónustu,
sem völ er á, hvert svo sem
ferðinni er heitið.
Seljum farseðla um allan
heim fyrir íslenzkar krónur.
Ekkert þjónustugjald.
FBRBABKRIFaTOPAN
Sími 17600.
Ingólfsstræti — gegnt
Gamla Bíói.
F élagslíf
Knattspymufélagið Valur
Kmattspyrnudeild
3. flokkur,
Fundur verður eftir æfinguna
í kvöld. Mætið allir.
Þjálfarar.