Morgunblaðið - 13.06.1962, Page 12
12
MORGUflBLAÐItí
MiðviTcudagur 13. júní 1%2
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÞJOÐFYLKING“ I
FRAMKVÆMD
17yrir skömmu skýrði Morg-
* unblaðið frá því sam-
kvæmt upplýsingum komm-
únista sjálfra, hver áform
þeirra væru með hinni svo-
kölluðu þjóðfylkingu. Þau
eru nákvæmlega hin sömu
og leiddu til valdaráns í
ríkj um þeim, sem nú eru
nefnd leppríkin, þ.e.a.s. sam-
starf við ístöðulitla og tæki-
færissimiaða lýðræðisflokka,
sem létu leiða sig skref af
skrefi, þar til kommúnistum
hafði tekizt að búa svo um
sig að þeir gátu náð alræðis-
valdi.
Samvinna sú, sem Fram-
sóknarmenn hafa nú eftir
kosningar tekið upp við
kommúnista í borgarstjóm
Reykjavíkur og bæjarstjóm
Húsavíkur, er að vísu lítil-
fjörleg miðað við megin-
áformin um allsherjarþjóð-
fylkingu; en engu að síður
er hún sama eðlis. Hún er
nokkurs konar sýnikennsla í
þjóðfylkingaráformum eða
þá tilraunastarfsemi til að I
átta sig á, hve langt sé hægt
að teyma fylgjendur Fram-
sóknarflokksins.
Þessi nýja samvinna Fram
sóknarmanna við erindreka
heimskommúnismans er ugg-
vænlegri en fyrri samvinna
þessara flolcka, vegna þess
að nú liggur fyrir, svo ekki
verður um deilt, að störf og
stefna „íslenzkra“ kommún-
ista er nákvæmlega hin
sama og flokksbræðra þeirra
erlendis. Þeir hafa með eigin
skýrslum og upplýsingum
undirstrikað, að takmark
þeirra er að koma íslenzku
þjóðinni í viðjar þeirrar ógn-
ar og kúgunar, sem nefnd er
kommúnismi. Þeir hafa lýst
yfir, að þeir geri sér fulla
grein fyrir því, að kommún-
ismi verði ekki framkvæmd-
ur án harðstjómar, en engu
að síður berjast þeir fyrir
þvi að koma honum á.
Upplýst er, að kommúnist-
ar hér á landi njóta ríkulegs
fjárstyrks frá húsbændunum
austan tjalds og eru í raun-
inni aðeins leiguþý heims-
kommúnismans. Nákvæmar
upplýsingar liggja fyrir um
það, hvernig nota eigi sam-
vinnu við Framsóknarflokk-
inn til að gera út af við
einkaframtak, kippa stoðum
undan lýðræðislegu stjórn-
skipulagi og koma kommún-
ismanum síðan á í fyllingu
tímans. Og allar eru aðferð-
imar í samræmi við það
sem annarsstaðar hefur ver-
ið framkvæmt.
Með hliðsjón af þessum
staðreyndum er sannarlega
hryggilegt að lýðræðislegur
flokkur skuli taka upp sam-
starf við þá menn, sem upp-
vísir em orðnir að þjóðsvik-
um. Framsóknarflokkurinn
veitir kommúnistum nú það
skjól, sem þeir þarfnast. Án
aðstoðar Fr amsóknarf lokks-
ins væm þeir einangraðir og
mundu brátt verða lítil og
einskis virt klíka sérvitringa,
svipað og í nágrannaríkjun-
um. En því miður em hér
menn á borð við Eystein
Jónsson og Þórarin Þórar-
insson, sem telja hentara að
hindra þá þróun með því að
veita kommúnistum skjóL
KRISTENSEN OG
ALÞJÖÐASAM-
VINNA
/"''óður gestur, Thorkil Krist
. '^ensen aðalframkvæmdastj.
Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar, hefur sótt ísland
heim. Daninn Thorkil Krist-
ensen er einn af mestu hag-
fræðingum álfunnar og gegn
ir nú einhverju • þýðingar-
mesta starfi í þágu alþjóð-
legrar samvinnu Evrópu-
ríkja.
Vegna þeirrar samvinnu,
sem ríkin í Vestur-Evrópu
hafa átt með sér á sviði
efnahagsmála, hefur hagur
þeirra batnað mjög á síðustu
ámm, svo að segja má að
gjörbylting hafi á einum
áratug orðið í lifnaðarhátt-
um Evrópuþjóða. Fyrstu ár-
in eftir styrjöldina ríkti fá-
tækt og skortur víða í
Evrópu, en nú eru lífskjör
þar að nálgast það bezta,
sem þekkzt hefur í veröld-
inni, þ.e.a.s. lífskjörin í
Bandaríkjunum.
íslendingar hafa verið að-
ilar að þessu alþjóðasam-
starfi og notið af því marg-
háttaðs hagræðis. Lengi
höfðu stjómarvöld hér þó
ekki kjark til að gera svip-
aðar ráðstafanir og nágranna
þjóðimar til þess að hraða
efnahagsþróuninni. Þess
vegna höfum við dregizt aft-
ur úr og lífskjör ekki batnað
hér til jafns við það, sem er
í nágrannalöndunum.
Að undanfömu höfum við
í vaxandi mæli tekið þátt í
þessu samstarfi og gert nauð
synlegar viðreisnarráðstafan
ir til að geta verið fullgildir
NÝLEGA fóru hinar árlegu
Epsom Derby-veðreiðar fram
í Englandi. Voru þær nú haldn
ar í 183. sinn. Hesturinn, sem
vann veðreiðarnar að þessu
sinni heitir Larkspur og er
eigandi hans bandarískur, en
knapinn var Ástralíubúi. Sig-
ur hans kom mjög á óvart og
fengu þeir, sem á hann veðj-
uðu 22 á móti einum.
Á meðan á veðreiðunum
stóð lentu hestarnir í þvögu
aðilar í þeirri starfsemi, sem
miðar að því að útrýma höft
um og hverskyns þvingun-
um, og bæta á þann veg lífs-
kjörin.
Hér verður ekki rakinn sá
mikli árangur, sem þegar
hefur náðst af viðreinsnar-
stefnu íslendinga, en hins
ber að minnast að í dag er
útilokað fyrir smáþjóð eins
og íslendinga að ætla að
einangra sig frá umheimin-
um. Við verðum að taka
pátt í því mikilvæga starfi,
sem unnið er, og þess vegna
fögnum við komu Thorkil
Kristensens og samstarfi við
stofnun hans.
og sjö þeirra duttu. Er þetta
einsdæmi í sögu Derby-veð-
reiðanna. Hefur því verið
kennt um að hestum, sem ekki
voru þjálfaðir til slíkra kapp-
reiða, hafi verið heimiluð
þátttaka og þeir hafi flækzt
fyrir hinum,
Einn hesturinn, sem datt,
fótbrotnaði og varð að lóga
honum.
Efi'i myndin er frá
Derby-veðreiðunum, en sú
SILDVEIÐAR
UNDIRBÚNAR
CJjómenn og útgerðarmenn
^eru nú sem óðast að búast
til síldveiða fyrir Norður-
landi, og er áhuginn svipað-
ar og áður. Þó að síldveiði
sé nú stunduð svo til allan
ársins hring, hefur síldar-
vertíðin Norðanlands þó sér-
stöðu og landsmenn allir
fylgjast ætíð af meiri áhuga
með henni en öðrum veiðum.
Enn hafa ekki náðst samn-
ingar milli útvegsmanna og
sjómanna um kjörin á sum-
arsíldveiðunum. Útgerðar-
menn telja að óhjákvæmi-
neðri er frá Ooks-veðreiðun- f
um, sem einnig eru haldnar
í Epsom Svo lítill munur var
á hestinum, sem sigraði þar
og þeim sem varð annar, að
dómararnir urðu að dæma
eftir myndinni. Hestinum, sem
er nær. Monade, var dæmd-
ur sigur, því að flipi hans
snertu strenginn, en flipi hins
sem heitir West Side Story
eins og söngleikurinn frægi er
aðeins hársbreidd frá honum. ,
legt sé að sjómenn taki
meiri þátt í kostnaði við hin
nýju og fullkomnu tæki, sem
nú eru notuð við síldveiðar,
því að hagur útgerðarinnar
batni lítið hversu mikið sem
aflað sé.
Aðilar ræða nú þessl
vandamál, gera sína útreikn-
inga og áætlanir, og í
lengstu lög verður að vænta
þess að þeir komist að heil-
brigðu og sanngjömu sam-
komulagi, án þess að til
nokkurrar stöðvunar komi,
því að þjóðin má ekkert
tækifæri missa til að afla
fjár til hinna margháttuðu
framkvæmda, sem ýmist
standa yfir eða eru á næsta
leiti.
Frá Ooks-veðreiðunum. Sigurvegarinn, Monade, nær.