Morgunblaðið - 12.08.1962, Blaðsíða 15
Sunnudagur 12. ágúst 1962
MORGVNÉLAÐIÐ
15
Bðrn
þekkja
hann
NÝLEGA eignaðist Oharlie
Chaplin, sem er 74 ára gamall,
tíunda barn sitt, og þau hjón-
in, hann og Oona O’Neil, sit
áttunda. Þau búa með allan
hópinn í 18. aldar villu með
40 hektara garði í kring ná-
lægt Vevey í Sviss.
En í þessum stóra garði,
Paradís krakkanna, er þó
einn bannstaður. Þau mega
ekki leika sér nálægt svölun-
um þar sem palbbi þeirra vinn
ur. Ohaplin er mikill reglu-
maður í daglegu lífi. í marz-
mánuði flytur hann vinnustað
sinn úr bókaherberginu og út
á svalirnar, þar sem hann sit-
sem rithöfund, ekki leikara
ur oft vafinn í teppi, því
kuldagjóstur getur fengið
hann til að hörfa inn eftir
það. Á þessum stað setti hann
fyrir tæpum mánuði punktinn
aftan við minningar sínar, er
hann byrjaði að skrifa fyrir
6 árum. Þetta er þriggja binda
verk, 1031 vélrituð síða, sem
hann hefur lesið einkaritara
sínum fyrir. Þetta hefur ekki
alltaf gengið sérlega hljóðlega
fyrir sig. Chaplin getur ekki
setið kyrr við vinnu sína,
hann gengur um, jafnvel hleyp
ur, og hvað lítið sem er fer í
taugarnar á honum. Hann rýk-
ur upp við hvert smáhljóð og
verður ósanngjarn, en nokkr-
um mínútum seinna biður
hann svo afsökunar, þó ekki
takizt alltaf að graeða sárin á
stundum. Og hann þolir aldrei
nein mótmæli. Yfir hverri ósk
hans vakir Oona, sem giftist
þesum manni sem er 36 árum
eldri en hún, fyrir nærri 20
árum. Hver ósk hans er upp-
fyllt, jafnvel áður en hann
lætur hana í ljós. Hann þolir
illa gust, hitaofn er alltaf nær
tækur, stigarnir þreyta hann,
Oona hefur látið setja lyftu í
húsið, honum leiðist sjónvarp,
það er alveg bannað á heimil-
inu og þó Oona dái börn sín,
bannar hún þeim að koma
með fleiri en 1 leikfélaga
beim í einu, þar sem Chaplin
er illa við hávaða.
Þau hjónin lifa ákaflega lát-
lausu lífi. Litlu krakkarnir
búa sér með barnfóstrum sín-
um og tala saman frönsku,
sem foreldrarnir skilja varla.
Eldri krakkarnir einir sitja
til borðs með foreldrunum.
Þau vita að faðir þeirra er
frægur og eru stolt af honum,
en þáu fengu ekki að sjá
kvikmyndirnar hans fyrr .en
eftir þrábeiðni. Hjónin búa
á annarri hæð en börnin. — j
Oona hefur íbúð á fyrstu hæð,
þar sem hún situr löngum og
saumar, skrifar bréf eða les,
og Chaplin hefur sérstakt
herbergi og bað. Gestir koma
sjaldan. Kl. 9 á kvöldin fer
Oona venjulega að 'hátta, en
Ghaplin fer að vinna í her-
bergi sínu. Elzta dóttirin er
við balletnám í London og
hinir krakkarnir eru að byrja
að fara í burtu í skóla, en
næstum á hverju ári bætist í
hópinn, og sá yngsti er
Christofer.
Douglas-Dakota
lendir
á Patreksfirði
Patreksfirði, 10. ágúst.
f GÆR lenti á flugbrautinni hér
í firðinum 20 manna Douglaa-
Dakota-flugvél, og er það 1
fyrsta skipti, sem svo stór flug-
vél lendir þar. Flugbrautin er á
Sandodda milli Hvalskers og
Sauðlauksdals og er nú orðin
600 metra löng. Með flugvélinni
voru Ingólfur Jónsson, flugmála
ráðherra, Agnar Koefod-aHnsen,
flugmálastjóri, Örn O. Johnson,
frkvstj. Flugfélags íslands, og
Hilmar Sigurðsson, fltr. hjá F.f.
Voru þeir að athuga hér aðstæð-
ur, og hvort ekki væri hægt að
lengja brautina. Mun þeim hafa
litizt vel á aðstæður hér.
— Tr.
---------------- j
Hafnar-
framkvæmdir
á Patreksfirði ;
Patreksfirði, 10. ágúst.
DÝPKUNARSKIPIÐ Grettir hef
ur unnið hér um hálfs mánaðar
skeið að dýpkunarframkvæmd-
um í höfninni, sem eru til mik-
illa bóta. Skipið hélt sl. mið-
vikudag til ólafsvíkur og verður
þar í viku, en kemur síðan hing-
að. Einnig hefur verið unnið að
hafnarbótum með krana frá
landi.
Hér hefur verið blæjalogn
dag eftir dag. Dragnótabátarnir
hafa fengið fremur tregan afla,
en veiði er að glæðast á línu.
— Tr.
Færeyjar
raímagnsh andverkfœri
Flugfélag íslands efnir til skemmliferðar til Fær-
eyja dagana 17.—21. ágúst, ef næg þátttaka fæst.
Flogið verður frá Reykjavik föstudaginn 17. ágúst
kl. 10:00 og lent á Sörvágsflugvelli. Farþegum verð-
ur séð fyrir bátsferð til Tórshavn og gistingu á góðu
hóteli þar. Heim verður haldið þriðjudaginn 21.
ágúst kl. 16:00.
Nánari upplýsingar veitir söluskrifstofa okkar,
Lækjargötu 4, eða ferðaskrifstofurnar.
Frá Samvinnuskólanum Bifröst
Kennara vantar að Samvinnuskólanum á komandi
hausti. Aðalkennslugreinar: — Bókfærsla, vélrit-
un og vörufræði. — Laun samkvæmt 7. flokki launa-
laga ríkisins. Umsóknir sendist skólastjóra Sam-
vinnuskólans Bifröst fyrir 1. sept. næst komandi.
Samvinnuskólinn Bifröst.
t^sölustaðir
b./ggingavörur h.f.
Laugavegt 178, sími 35697.
J.B. PÉTURSSON
BllKKSMIÐJA • STALTUNNUGERÐ
JÁRNVÖRUVER2LUN
Ægisgótu 4, simi 15300.