Morgunblaðið - 30.08.1962, Qupperneq 23
Fimmtudagur 30. ágúst 1962
MOFcrn\Br.4ÐiÐ
23
Framkoma Rússa móðgun
v/ð afvopnunarráöstefnuna
— 3-6000 eint.
Framh af bls. 10
hafa um forstöðumannsem-
Ibættið — og eru tv-eir af beim
í fremstu röð vísindamanna
í íslenzkum fræðurn — líður
varla á löngu á þessu hausti
unz em-bættið verður veitt og
hægt að spyrja þann prófess
ur, sem í því situr þá, hvernig
starfsemi verður hagað fyrstu
missiri unz handritin sjálf
koma.
Mest af fræðiritum
á ensku
— Svo við snúum okkur aft
ur að Háskóiabókasafninu, á
hvaða tunguúTalum er bóka-
öflun safnsins mest?
— Síðari árin lang mest á
ensku, nema í lagadeild eru
Norðurlandaritin algengust í
fyrirrúmi. í hugvísindagrein-
um er stöðugt eitthvað keypt
frá Norðurlöndum, en lítið í
raunvísindum. Annars er far
ið að birta megnið af raunvís
indaritum Norðurlanda á
ensku, sumt á býzku. Á svið-
um verkfræðideildar er síð-
irstu árin sinnt þýzkum ritum
nærri jafnt og enskum. Og
germönsk fræði, kristin mót
mælendafræði, lifeðlisfræði
og flestar náttúruvisindagrein
ar eru engu síður á þýzku en
ensku 1 safninu.
— Er notkunin mikil á safn
inu og hverjir nota það?
— Borið saman við notkun
hæjarbókasafns er notkunin
litil, en sambærileg við Lands
ibókasafn. Stúdentar, sem eru
að semja námsritgerðir, þurfa
margvíslegar tegundir bóka
og eigi síður háskólakennar-
ar og aðrir fræðimenn, sem
oft þurfa margar tugi rita
við höndina hverju sinni.
Nokkrir prófessoranna þurfa
að jafnaði marga hlaða af bók
um í hverri viku, en hjá öðr-
um byggist kennslan meir á
hinuih föstu námsbókum. Lest
arsalur hefur 40 sæti, en í
marga vetur hefur bað oft
borið við, að stúdentar hafa
orðið frá að hverfa sökum
þrengsla og enn fleiri sparað
sér ómakið að gæta hvort
nokkurt sæti væri laust þar
inni. E.t.v. væri í bessu sam
bandi rétt að losa fólk við þá
hugmynd, er stundum virðist
gæta, að þetta safn sé öllum
lokað nema háskólamönnum.
Hver sem er má koma og leita
sér safnbðka. í lestrarsal eru
nokkur þúsund bindi og fjöl-
breytiiegs efnis, en ekki hægt
að lána þær út nema stöku
sinnum. Hvort sem safngest-
ir eru stúdentar eða eigi, geta
þeir, sem kynna sig og erindi
sín fyrir safnverði, fengið að-
gang að bókageymslum og
leiðsögn að rata gegnum
spjaldskrá.
Við tefjum Björn ekki leng
ur þökkum honum fyrir upp
lýsingarnar og kveðjum.
Genf, 29. ágúst — (NTB) —
Sovézki fulltrúinn á afvopnunar
ráðstefnunni í Genf, Vasilij Kuzn
etsov, lýsti í dag stúð'ningi sín-
um við mexíkanska tillögu þess
efnis, að stórveldin kæmu sér
(NTB) — Kennedy Banda-
ríkjaforseti hélt í dag fund
með fréttamönnum. Ræddi
hann m. a. bann við tilraun-
um með kjamorkuvopn,
væntanlegan utanríkisráð-
herrafund Vesturveldanna,
útnefningu atvinnumálaráð-
herra Bandaríkjanna, Art-
hurs Goldberg, í embætti
hæstaréttardómara og Kúbu.
Mótmælti forsetinn því ein-
dregið að Bandaríkin liyggð-
ust gera innrás á eyjuna.
Kennedy sagði, að hann væri
sammála fulltrúa Rússa á af-
vopnunarráðstefnunni í Genf
um, að æskilegt væri að bann
við kjarnorkuvopnatilraunum
gengi í gildi 1. janúar. Hins veg-
ar lagði forsetinn áherzlu á, að
Bandaríkin myndu ekki semja
um algjört tilraunabann, án
Bíktjóri beðinn að
gefa sig fram
SÍÐASLIBINN mánudag kl. 8,30
var kennslubifreið ekið suður
Bergstaðastræti. Á móts við hús
ið nr. 55 hafði tveimur bifreiðum
verið lagt hvorri gegnt annarri
og gerðu þær þrengsli á götunni.
I þann mund er kennslubifreið
in kom milli hinna kyrrstæðu
bíla, kom stór amerísk fólks-
bifreið akandi á móti henni norð
ur Bergstaðastrætið. Ók hún við
stöðulaust áfram, en nemapdi
kennslubifreiðarinnar beygði til
vinstri og Ienti um leið á ann-
arri hinna kyrrstæðu bifreiða.
Amerísku bifreiðinni var ekið við
stöðulaust á brott. Rannsóknar-
lögreglan biður ökumann hinnar
amerísku bifreiðar að hafa sam
band við sig vegna atviks þessa.
saman um að hætta öllum til-
raunum með kjarnorkuvopn og
Iagði til að það yrði gert 1. jan.
n.k. Fulltrúi Bandaríkjamanna,
Charles Stekle lagði í þessu sam
bandi áherzlu á það, að Vestur-
eftirlits. Kennedy sagði, að
Bandaríkin væri reiðubúin að
hafa samvinnu við alla, sem
æsktu banns við kjarnorkutil-
raunum og minnti á tillögurnar,
sem Bandaríkin lögðu fram á
afvopnunarráðstefnunni í Genf
fyrir skömmu.
★
Kennedy staðfesti, að fundur
utanríkisráðherra Bretlands,
Bandaríkjanna, Frakklands og
V-Þýzkalands yrði haldinn áður
en Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna kæmi saman í sept.
Hann sagði, að fundarstaður
hefði enn ekki verið ákveðinn.
f sambandi við orðróm þann,
sem verið hefur á kreiki um,
að Krúsjeff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, ætlaði að vera
viðstaddur setningu Allsherjar-
þings SÞ, sagði Kennedy, að
hann hefði ekkert nýtt fram að
færa, en sagðist vonast til þess,
að hann fengi tækifæri til að
ræða við Krúsjeff, ef hann
kæmi til New York.
Kennedy skýrði frá því, að
hann hefði skipað atvinnumála-
ráðherra Bandaríkjanna, Arthur
Goldberg, 1 embætti hæstarétt-
ardómara í stað Felix Frankfurt-
er, en hann hefði sótt um lausn
frá embætti sakir heilsubrests.
★
Hvað viðkemur Kúbu sagði
Kennedy, að Bandaríkin hefðu
snúið sér til nokkurra meðlima-
ríkja innan Atlantshafsbanda-
lagsins, þar sem skip undir fán-
um þessara landa hefðu flutt
ýmsar birgðir og tæknimennt-
aða menn frá Sovétríkjunum til
Kúbu. Kennedy sagðist vona, að
bandamenn Bandaríkjanna rann
sökuðu þetta mál niður í kjöl-
inn.
Kennedy vísaði eindregið á
bug þeim ummælum bandarísks
öldungardeildarþingmanns, að
Bandaríkin hyggðu á inhrás á
Kúbu.
veldin gætu ekki samþykkt al-
gert tilraunabann án eftirlits.
Kuznetsov vísaði aftur á bug
í dag tillögum Bandaríkjamanna
og Breta um að annaðhvort yrði
samið um algert bann við tilraun
um með kjarnorkuvopn undir al-
þjóðlegu eftirliti eða samið um
bann við öllum tilraunum nema
neðanjarðar án eftirlits.
-- XXX ---
Brezki fulltrúinn á ráðstefn-
unni Joseph Godber, sagði, að
hann teldi það augljósa móðgun
við ráðstefnuna, að Sovétríkin
vísuðu tillögum þessum á bug,
svo fljótt eftir að þær hefðu verið
bornar fram. Kuznetsov brást
reiður við þessum ummælum og
sagði, að Godber hefði engan
rétt til að fara slíkum orðum um
Sovétríkin.
— Iþróttir
mönnum að velja í stað þeirra,
sem koma munu til með meiri
reynslu.
Dómari var Magnús Pétursson
Stóð hann sig prýðilega, en þó
betur eftir að sólin var hnigin
til viðar. Veður var dásamlega
fagurt og áhorfendur nokkuð
margir. Kormákr
— / fluttningum
Framih af bls. 10
mest nýleg bréfasöfn.
— Og ekkert merkilegt kom
ið í Ijós í sjálfu safninu við
flutningana?
— Nei, þetta er allt skrásett
og prentuð skrá til, svo þar
kemur lítið á óvart.
— Ætli enn sé mikið til af
handritum, sem þá gætu glat-
azt alveg?
— Það er slæðingur af hand
ritum út um land, og þau
geta verið i hættu. En maður
veit bara ekki hvar á að leita
þeirra. Sumir sem eiga eitt-
hvað slikt 1 fórum sínum,
halda líka að þetta sé stór
fjársjóður þó svo sé ekki og
vilja selja það fyrir mikið fé.
í nýj.. salnum eru 5 vinnu
básar. 1—2 bása nota starfs-
menn safnsins sjálfir er þeir
vinna að lagfæringum á hand
ritum o.fl. Hinum er úthlutað
til þeirra sem vinna að þannig
verkefnum að þeir þurfa að
hafa mikið í kringum sig.
Að lokum litum við inn í
eldtrausta klefann, sem stend
ur auður og bíður þess að varð
veita Árnasafn til bráðabirgða
ef á liggur, en ekki er vitað
hvenær til hans þarf að grípa
— Við setjum kannski eitt-
hvað hér inn á meðan, sagði
Finnur.
Skip frá NATO-ríkjum
flytji ekki fyrir Rússa
sagði Kennedy Bandarikjaforseti á
fundi með fréttamönnum i Washington
WASHINGTON, 29. ágúst.
Skothríð í Aigeirsborg
— Akureyri
Framhald af bls. 13.
blíðu að staðaldri norður við ís<
haf, né gullregns úr gráum skýj-
um. En hins væntum við öll, að
sá lífsmeiður, sem hér festir ræt
ur, dafni vel, verði langlífur i
landinu. En öllu öðru fremur
væntum við þess, að hugsun
mannsins verði hrein og djarf-
mannleg. Það er hún, sem er upp
haf ^llra athafna, allra fram-
kvæmda. Það er hún, sem skapar
bæinn, markar svip hans og sál.
Það er hún, sem gefur sögunni
líf.
Um leið og Akureyrarbær kveð
ur liðna öld og fagnar annarri
nýrri, þakkar hann gömlum íbú-
um, konum og körlum, mannkosti
þeirra og vel unnin störf og fel-
ur sjálfan sig, land og þjóð, for-
sjón Guðs og vaxandi æsku“.
Þá sungu karlakórarnir og
blandaður kór undir stjórn Ás-
kels Jónssonar við undirleik Guð
mundar Jóhannssonar.
Þessu næst flutti Guðmundur
Frímann skáld ávarp í ljóði.
Þá fluttu ávörp gestir bæjar-
stjórnarinnar, forseti íslands, for
sætisráðherra og fulltrúar vina-
bæja Akureyrar á Norðurlönd-
um, sem komnir voru frá Ála-
sundi í Noregi, Vesturási í Sví-
þjóð, Lahti í Finnlandi og Rand-
ers í Danmörku. Ræður forseta
íslands og försætisráðherra birt-
ast á öðrum stað í blaðinu.
Klukkan 16.00 var opnuð sögu-
sýning í Gagnfræðaskólanum.
Er það yfirlit í tölum, línuritum
og myndum um þróun bæjarins,
atvinnuhætti og byggingar au.k
margs fleira. Bragi Sigurjónsson
’bæjarfulltrúi flutti ávarp og opn-
aði sýninguna en að því loknu
lýsti Sverrir Pálsson form. sýn-
ingarnefndar sýningunni. Sýning
in er í 10 stofum á tveimur hæð-
um skólans.
Vígsla hins nýja elliheimilis á
Akureyri fór fram kl. 9.15 í morg
un Þetta er mikil bygging og
mun verða tekin í notkun inn-
an tíðar. Bæjarstjóri Magnús E.
Guðjónsson flutti ræðu og skýrði
nokkuð frá tildrögum að bygg-
ingu þessa heimilis. Þá tók til
máls Ingibjörg Halldórsdóttir og
að lokum talaði Jón H. Þorvalds-
son form. byggingarnefndar. Við
þessa athöfn var forseti íslands
og þeir gestir bæjarstjórnar sem
þá voru komnir til Akureyrar.
Kl. 17.45 hófst hátíðafundur
bæjarstjómar Akureyrar. Var
fundurinn haldinn í samkomu-
húsi bæjarins. Á dagskrá þessa
fundar voru fjögur mál: 1. Sam-
þykkt um stjórn Akureyrar, en
með henni er numin úr gildi
samþykkt um stjórn bæjarmála
frá 1946. 2. Reglugerð fyrir Elli-
heimili Akureyrar. 3. Tillaga um
stofnun Menningarsjóðs Akur-
eyrarbæjar. 4. Tillaga um að
efna til hugmyndasamkeppni um
skipulag miðbæjar Akureyrar.
Samkeppnin verður miðuð við
þátttöku íslendinga. Á fundi þess
um bárust Akureyrarbæ fjöl-
margar gjafir, þ. á m. frá Lands-
’banka fslands 250 þús. kr. til
menningarsjóðsins, frá KEA
barst gjöf að upphæð 100 þús.
kr. og Reykjavíkurbær gaf af-
steypu af höggmyndinni ,,Systur“
eftir Ásmund Sveinsson.
Ben Khedda skorar á deiluaðila, að hefja
undírbúning kosnsnga hið bráðasta
ALSÍR, 29. ágúst (NTB) _
f dag var barizt í hverfum
Serkja í Algeirsborg, en þar
lenti saman stuðningsmönn-
um Btjórnarnefndar Ben
Bella og mönnum úr 4.
■væðishernum í Alsír. Óvíst
er um manntjón, en talið að
24 hafi særzt,
Ben Khcdda, forsætlsráð-
herra serknesku útlaga-
Btjórnariiuiar, sendi deiluað-
ilum í Algeirsborg bréf í
dag, þar sem hann skorar á
þá að varðveita friðinn í
landinu, svo hægt verði að
láta kosningar fara fram
innan skamms.
★
í bréfum sínum til deiluaðila
leggur Ben Khedda til, að skip-
uð verði nefnd, sem stuðnings-
menn beggja ættu aðild að. —
Eigi nefndin að vinna að undir-
búningi kosninga í landinu, sem
Ben Khedda leggur til að haldn-
ar verði 9. september. Enn-
fremur leggur hann til, að strax
þegar ný stjórn taki við völd-
um verði skipting hersins eftir
svæðum afnumin.
Ben Khedda sagðist leggja
fram þessar tillögur til þess að
reyna að afstýra borgararstyrj-
öld, sem nú væri yfirvofandi í
landinu.
★
Bardagarnir í Algeirsborg,
sem hóiust i hverfum Serkja,
breiddust út til annarra borgar-
hverfa í dag og í kvöld setti lög-
reglan í borginni á útgöngu-
bann til þess að reyna að koma
í veg fyrir frekari óeirðir.
Talið er að bardagarnir í dag
hafi hafizt, er herstjórar 4.
svæðishersins ætluðu að hand-
taka nokkra stuðningsmenn
Ben Bella, en fregnir herma að
í gærkvöldi hafi herstjórarnir
látið taka höndum að minnsta
kosti 50 stuðningsmenn hans.
Herstjórarnir hafa hins vegar
gefið út yfirlýsingu þess efnis,
að það hafi verið leiguhermenn
Mohammed Khider, aðalritara
stjórnarnefndarinnar, sem hafi
átt sökina á óeirðunum. Segja
þeir að Khider hafi fyrirskipað
hermönnum þessum að taka til
fanga fjóra yfirmenn 4. svæðis-
hersins.
Margskonar gjafir bárust Ak-
ureyrarbæ frá vinabæjum kaup-
staðarins á Norðurlöndum og
nágrannabæjunum á Norður-
landi, svo sem málverk, styttur
og fleira.
Þá bárust fjölmargar heilía-
óskir í skeytum víðsvegar að,
m. a. frá sendiherrum erlendra
ríkja.
í kvöld verður útlhátíð á Ráð-
hússtorgi og verður þar margt
til skemmtunar, leikur lúðra-
sveitar, kórsöngur, kvæða- og
leikflutningur, danssýningar, tví-
söngvar og kvartettsöngvar, gam
anvísnasöngur og flugeldasýning.
Dansað verður fram eftir nóttu
meðan nokkur maður stendur
uppi enda stendur í dagskrá að
dagskrárlok verði eftir aðstæð-
i um.