Morgunblaðið - 20.09.1962, Síða 6
6
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmtuaagur 20. sept. 1962
Aukin fræðsla um
varnir gegn slys-
um af rafmagni
FÉLAG eftirlitsmanna með raf-
orkuvirkjun hélt þriðja aðalfund
sinn að Laugarvatni dagana 8.
og 9. þ. m. Fundinn sátu félags-
menn víðsvegar að af landinu
auk nokkurra gesta. Á fundinum
ræddi Guðrnundur Marteinsson,
rafmagnseftirlitsstjóri um reglu-
gerðarmál og Þórður Runólfsson
öryggismáiastjóri, flutti erindi
um öryggismál.
Formaður félagsins Friðþjófur
Hraundal vai endurkjörinn og
með honum í aðalstjórn þeir
Stefán Þorsteinsson frá Rafv.
Hafnarfjarðar, Gísli Guðmunds-
son frá Rafv. Miðneshrepps,
Stefán Karlsson frá Rafv. Reykja
víkur og Guðmundur Jónsson
frá Rafmagnsveitum ríkisins.
í varastjórn félagsins urðu
nokkur rmnnaskipti. í>á var á
fundinum kosin sérstök fræðslu-
nefnd og fræðslustjóri Óskar M.
Hallgrímsscn frá Rafmagnseftir
liti ríkisins. En eins og að undan-
förnu hyggst félagið leggja höfuð
áherzlu á fræðslu- og öryggis-
starfið.
Þá var íyrir áeggjan öryggis-
málastjóra og almennan áhuga
félagsmanna á fundinum, stjóm
félagsins falið að kanna þörf og
athuga möguleika á því að
stofnað yrði landssamband
þeirra manna sem vinna við al-
mennt öryggiseftirlit.
Að loknutn fundarstörfum á
Laugarvatni var haldið að Búr-
felli og skoðað þar fyrirhugað
virkjunarsvæði. Á heimleiðinni
var staldrað við á Selfossi og
notið þar fyrirgreiðslu Rafveitu-
stjórans Hjalta Þorvarðarsonar.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
yfir varnaðar- og fræðslustarfi
Slysavarnafélags Islands og
gerði svohljóðandi ályktun:
Þriðji aðalfundur F.E.R. hald-
inn að Laugarvatni dagana 8. og
Stofnað fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfclaganna í IM-ls.
STOFNFUNDUR fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Norður- f
fsafjarðarsýslu var haldinn í fé-
lagsheimilinu í Bolungarvík,
miðvikudaginn 8. þ.m. kl. 9 e.h.
Á fundinum voru mættir 24
kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisfé-
laganna í sýslunni.
Sigurður Bjarnason, ritstjóri,
setti fundinn og skýrði frá und-
irbúningi hans. Fundarstjóri var
kjörinn Guðm. B. Jónsson, vél-
smiður, Bolungarvík og fundar-
ritari Stefán Björnsson, skrif-
stofumaður, Hnífsdal.
Fundurinn hófst síðan með
því að Þorvaldur Garðar Kristj-
ánsson, framkvæmdastjóri Sjálf
stæðisflokksins, flutti ræðu um
starfsemi flokksins og skýrði
hlutverk fulltrúaráðsins og
lagði fram frumvarp að lögum
fyrir fulltrúaráðið, sem síðan
var samþykkt.
Stjórn fulltrúaráðsins skipa:
Baldur Bjarnason, bóndi, Vigur,
formaður, Friðrik Sigurbjörns-
son, lögreglustjóri, Bolungarvík,
frú Halldóra Helgadóttir, Bol-
ungarvík, Sigurður Sveins Guð-
mundsson, Hnífsdal, Börkur
Ákason, framkvæmdastjóri,
Súðavík, Páll Aðalsteinsson,
skólastjóri, Reykjanesi, Finnur
Th. Jónsson, bókari, Bolungar-
vík, Þórður Sigurðsson, verk-
stjóri, Hnífsdal og Kjartan Jóns-
son, bóndi, Eyrardal. Á fundin
um voru og kosnir fulltrúar í
kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi.
Þá talaði á fundinum hinn ný-
kjörni formaður, Baldur Bjarna
son og ræddi um hlutverk full
trúaráðsins og þýðingu þess fyr-
ir flokksstarfið í sýslunni. Enn-
fremur tók til máls Guðm. B.
Jónsson og ræddi ýmis viðhorf
í flokksstarfseminni í Vestfjarða
kjördæmi.
Að lokum flutti Sigurður
Bjarnason, ritstjóri, ræðu, þar
sem hann vék að hagsmunamál-
um byggðarlagsins og flokks-
starfseminni og hvatti fundar-
menn til öflugrar baráttu um
9. september 1962 gerir svofellda
ályktun og beinir þeim tilmælum
sínum til viðkomandi aðila.
Að aukin verði svo sem fært
þykir, og líklegt til ávinnings,
fræðsla fyrir almenning um varn
ir gegn slysum og tjóni af völd-
um rafmagns. Fundurinn fagnar
því fræðslu- og varnaðarstarfi
sem Slysavarnafélag íslands hef-
ir beitt sér fyrir og væntir fram-
halds á því starfi. Félagið heitir
stuðningi sínum, eftir því sem
það hefur tök á, við þá aðila
sem að þessum málum vinna.
Félag eftirlitsmanna
með raforkuvirkjun.
Flutti látinn
sjómann
Akureyri 15. septemiber.
SNEMMA í morgun kom hingað
brezki togarinn Karthum frá
Grimsby. Flutti hann í land lát-
inn starfsmann í vél og hafði
maðurinn látist um borð. Líkið
var kistulagt hér en síðan mun
togarinn flytja það til Englands,
þar sem krufning mun fara fram.
Nk. laugardag
verður miðnæt-
ursýning á
Rekkjunni í
Austurbæjar-
bíói og hefst
sýningin kl.
’ W 11,30 um kvöld-
Þessi sýning
verður á veg-
§| jwWnj unt Félags is-
rÍöBTlÉlBÍ® lenzkra leikara
J og rennur allur
ágóði af sýning-
unni í styrktar-
i—iggisijia '1 sjóði félagsins.
» Rekkjan hefur
ÆmæMMMMZíífÁmÆM 1 ný verið sýnd
85 sinnum hér á
landi og er ó-
hætt að full-
-.ISÍÍ yrða að fá leik-
rit hafa orðið
vinsælli. Leik-
urinn hefur ver-
jg sýníjur í
sumar í flestum
samkomuhúsum
landsins við á-
gæta aðsókn. Þetta verður síðasta sýning leiksins. — Myndin er af
Gunnari Eyjólfssyni og Herdísi Þorvaldsdóttur í hlutverkum sínum.
Umræður um ráh-
bús í borgarstjórn
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja-
víkur hinn 6. sept. sl. svaraði
Gunnlaugur Pétursson borgar-
ritari nokkrum fyrirspurnum
frá Birni Guðmundssyni (F) um
ráðhúsbyggingu. Kom enn einu
sinni í ljós við þær umræður,
sem um þetta mál spunnust á
fundinum, hve gjörsamlega á-
hugalausir framsóknarmenn eru
um allt, er viðkemur málefnum
Reykjavíkur. Virtust borgarfull-
trúar Framsóknarflokksins alls
ófróðir um gang þessa máls, þó
að ekki séu nema örfálir mánuðir
síðan Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri gerði ítarlega grein fyrir
því í borgarstjóm.
Þeirri spurningu Björns Guð-
mundssonar, hvað liði undirbún-
ingi að byggingu rá&hússins,
svaraði borgarritari með því að
minna á þær upplýsingar borgar
stjóra á borgarstjórnarfundi 1.
marz sl., að allar vonir steeðu
til þess, að hægt yrði að leggja
fyrir borgarstjórn fullgerðar
teikningar að fyrirhuguðu ráð-
húsi fyrir lok þessa árs. Spurn-
ingu BG um það, hvort nokkur
breyting væri fyrirhuguð um
staðarval hússins, svaraði borgar
ritari neitandi og vísaði í því
sambandi til ályktunar borgar-
stjórnar frá 16. apríl 1959. „Hvað
er búið að greiða mikið í kostn-
að við undirbúning byggingar-
innar?“ var ein spurning BG.
Svaraði borgarritari þessari
spurningu með því að vísa til
borgarreikningsins fyrir árið
1961, er samþykktur var í borg-
arstjórn fyrir rúmum tveim
mánuðum, þar sem það kemur
fram, að undirbúningskostnaður
að byggingu ráðhúss hafi 31.
des sl. numið kr. 2.170.872.07.
Síðan hafa verið greiddar alls
kr. 180.500.00.
Tillögu, sem BG bar fram um,
að undirbúningi að ráðhúsbygg-
ingunni yrði hraðað og þegar
hafizt handa um framikvæmdir
að undirbúningi loknum var vís
að til umsagnar ráðhúsnefndar.
Vientiane, 15. sept. AP.
Skýrt hefur verið frá því, að
Bandaríkjamenn hafi hafið brott
flutning hernaðarsérfræðinga
sinna frá Laos. Er það í anda
samkomulags þess, er gert var
um Laos á dögunum. Allir slíkir
sérfræðingar eiga að vera á brott
ekki síðar en 7. okt.
• Tvöfaldar akreinar
á þjóðvegum
Ferðafólk hefur veitt því at-
hygli að sumstaðar á þjóðveg-
unum hefur nú verið gengið
í að breikka vegi á blind'horn-
um og blindihæðum og mynda
tvær akreinar með því að
skipta veginum með gulmál-
uðum steinum, sem sjást vel.
Er geysimikið öryggi í því að
bílar séu ekki allt í einu hvor
andspænis öðrum, kannsiki á
nokkurri ferð og ekkert svig-
rúm til að víkja.
Ég veitti þessu fyrst athygli
á Vestfjarðaveginum. Þar ligg-
ur vegurinn víða utan í hæð-
um og sést nær ekkert út fyr-
ir múlana, fyrr en alveg er
komið í beygjuna, og eins er
víða á heiðunum mikið af
dældum og hólum, sem ekið
er upp á og ekki sést fyrr en á
háhæðinni. Ef tvær bifreiðar séu ekki nægilega vel hvor á
mætast þannig á háhæð eða sinni vegabrún, nema þeim sé
yzt í múla, án' þess að vita hvor afmarkað rúm á veginum.
af annarri, er nætt við að þær Síðan Vestfjarðavegurinn nyi
jT'v
kom, hefi ég veitt þessu athygli
víðar, t.d. á veginum fyrir Hafn
arfjall. Krýsuvíkurveginum að
mig minnir, og víðar.
Eins virðist talsvert öryggi í
gulu stöngunum, sem víða hef-
ur verið komið fyrir á vega-
brúnum utan í brekkum. Þær
sjást í myrkri og eru góð að-
vörun. En sjálfsagt er erfitt að
halda þeim við á vetrum, þeg-
ar snjóplógar ýta í skafla út
af vegunum.
• Hvað er átt við?
Bóndakona skrifar:
Það fer að verða þreytandi
að hlusta dag eftir dag á út-
varpstilkynningar frá „hernáms
andstæðingum“. Hvað á þetta
nafn eiginlega að þýða? —
Hvað á fólkið við? Veit það
ekki að hér er ekkert hernám?
Man það ekki svo langt, að
þegar við vildum gerast aðilar
að Atlantshafsbandalaginu, þá
hefðum við, eins og aðrar þjóð-
ir, átt að leggja til menn í
herdeild til styrktar því? En
auðvitað kveinkuðum við okk-
ur við því, svo fámennir sem
við íslendingar erum. Þá feng-
um við undanþágu með því
skilyrði að lána þennan skika
af landinu, svo að fámennt her-
lið gæti setið þar. Og við urð-
um víst öll þessari lausn máls-
ins fegin. — Þetta eru samn-
ingar, en ekki hernám, og það
ættu allir að vita. Þessir föður-
landsvinir (!) geta þessvegna
með góðri samvizku haétt að
plampa með kommúnistum
þessar Keflavíkurgönigur. En
ef þeir hefðu bolmagn til að
flæma Bandaríkjamenn af
Keflavíkurflugvelli, þá er eins
víst að Rússinn kæmi þar óboð-
inn og samningalaust. >á fengju
hernámsandstæðingar að vita
hvað það er að vera hernum-
inn, og þyrftu ekki lengur að
glíma við skugigann sinn.