Morgunblaðið - 21.12.1962, Side 3

Morgunblaðið - 21.12.1962, Side 3
Föstudagur 21. des. 1962 MORGUNBLAÐIÐ 3 Kauptíð frá jbv/ í septemberbyrjun Mo rgu nbl aðsmenn lögðu leið sína í þrjár verzlanir í Reytkjavik í vikubyrjun til að forvitnast um, hvernig sal an gengur fyrir jólin. Fyrist var farið í fataverzl- unina Andersen & Lauth að Laugavegi 39. Verzlunarstjór- inn þar er ungur maður, Ragn ar Guðmundsson, sem svaraði spurningum blaðaimannsins góðtfúslega. — Eru margir, sem kaupa föt fyrir jólin? — Stórir hópar fólks kaupa föt aðeins fyrir hátíðirnar. Marga sjáum við aldrei nema síðustu dagana fyrir jól, því miður. Við getum ekki veitt viðskiptavininum eins góða þjónustu, þegar þannig er í pottinn búið. — Er meira verzlað nú en fyrir jólin í fyrra? — I>að hefur verið anzi mikið verzlað undanfarið, ekki sízt þá daga, sem lengur hefur verið opið. Fólk virð- ist hafa meiri peningaráð en í fyrra. Það sýnir haustsai- an — það hefur verið kaup- tíð frá því í septemberbyrj- Fólk vill það bezta — Hvað um vöruval? — Fólk kaupir nú yfirleitt dýrari vörur en áður. Það er áberandi. Fólk vill fá það bezta, hvað sem það kostar og þetta á ekki sízt við um föt. Meira er orðið hugsað um gæðin en áður var. Vöru- úrvalið er nú meira en nokkru sinni fyrr og er það að þakka auknu innflutningsfrelisi. Famir að verzla heima — Er ekki alltaf mikið smyglað af fatnaði til lands- ins? — Við höfum orðið varir við, að fóilk kaupir ekki eins mikið af fötum erlendis og áður var. Þetta á einkum við karimannafatnað. Farmenn koma órðið oft til okkar, en það var ekki mikið um það áður fyrr. — Hiverju viltu svo beina til fólks, sem á eftir að gera jólainnkaupin? — Ja, — þeir, sem eru í fatahugleiðingum, ættu að gefa okkur tíma til að veita þá þjónustu, sem við megn- um, með því að koma eins snemma og hægt er, sagði Ragnar Guðmundsson. Steinarr Guðjónsson, verzlunarstjóri, í bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar. Erlendar bækur æ meir til jólagjafa AÐ LOKUM var litið inn í bókaverzlun Snsebjamar Jónssonar að Hafnarstræti 9. og spjallað við Steinar Guð- jónsson, verzlunarstjóra. Steinar sagði m.a.: — Mikið er selt af bókum nú eins og fyrir jólin undan- farin ár. Bækur hafa hækkað nofckuð, en samt bendir allt tól að salan verði heldur meiri en í fyrra. — Ekki er gefið út minna en fyrir síðustu jól. Bókatitd- arnir nú eru heldur fleiri en þá. — Vöruúrval almennt hefur aukizt mjög, en bækur eru, þegar alit kernur til alls, til- tölulega ódýrari en margt annað. Örugglega er hægt að finna bók, sem fell- ur í smekk hvers sem vera skal. — Sala á erlendum bókum fer stöðugt vaxandi til jóla- gjafa. Það eru einkum fræði- bækur fyrir menntamenn og námsfóik. Erlendar listaverka bækur seljast adltaf vel fyr- ir jólin, svo og erlendar met- sölubækur. Mikil sala á aðfangadags- morgun — Bókasalan er jöfn þessa dagana, en laugardagurinn verður einna mestó sölludag- Framhald á bls. 20. Ragnar Guðmundsson, Andcrson & Lauth, aðstoðar viðskiptavin við að máta jólafötin. Eldra fólkið kaupir líka létt húsgögn í húsgagnaverzluninni „Hús búnaður" að Laugavegi 26 er ung kona verzlunarstjóri. Hún heitir Margrét Jómsdótt- ir. Hún sagði, að salan hafi verið mjög góð í haust. Fólk kaupi yfirleitt ekki húsgögn síðustu dagana fyrir jól, enda sé slik fjárfestimg skipulögð í tima. „Afborgunarskilmá'larnir auðvelda fólki mjög að kaupa sér húsgögn", sagði Margrét, „þótt það sé erfitt fyrir kaupmennina sjálfa.“ „Við höfum það sem ófrá- vlkjamlega reglu, að láta borga fjórðung upphæðarinn- ar út og afganginn á einu ári,“ sagði verzlunarstjórinn, „en undantekningar höfum við þó ef um námsmenn er að ræða, sem vinna aðeins hluta úr ári.“ Að sögn Margrétar hefur „Húsbúnaður h.f.“ haft góða reynslu af afborgunarkerfinu. Fólk borgi yfirleitt alltaf og virðist mjög heiðarlegt í þess um viðskiptum, enda hafi fyr irtækið ekki orðið fyrir nein um áföllum vegna vanskila. SmekKurinn að breytast „Það er enginn vafi á því, að smekkur fólks er að breyt ast á húsgognum. Það tekur tíma og gerist smátt og smátt Áberandi er, hvað eldra fólk tekur mikið orðið af léttum húsgögmum“ sagði Margrét. Ástæðuna fyrdr þessu taldi hún, að fjölmargt eldra fólk flytzt í nýtízku íbúðir og það sjái, að slík húsakynni krefj- ist oftast léttra og nýrra hús- gagna. Fjárráð svipuð „Mér virðast fjárráð fólfcs vera svipuð og verið hefur“, sagði Margrét „annars er svo erfitt að segja mokkuð um það En alla vega er verzlunin lífleg." Þá benti hún Morgunblaðls- mönnunum á, að fleira en húsgögn fengjust í Húsbún- aði, t.d. listmunir úr kera- mik og málverk. „Við erum núna að fá ítalska dúka úr hörefni, sem eru óvenju faliegur og sagði verzlunarstjórinn, „það er ekki rmargt sem frúrnar vildu heldur fá að gjöf, það er ég viss um“. Loks tók Margrét Jónsdóbt ir fram, að heppilegast vœri fyrir fólk að koma tímanlega til að verzla og ailt starfs- fódk Húsbúnaðar myndi fús- lega veita alla þá aðstoð sem það gæti. 0 Margrét Jónsdóttir, Ilúsbúnaði sófasett. við nýtizku ísienzkt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.