Morgunblaðið - 21.12.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.12.1962, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLÁÐIÐ Föstudagur 21. des. 1962 ER SKYRTA H I N N A VANDI.Á T U SÖLUSTAÐIR Kaupfélögin, SÍS Austurstru ti. Gefjun-Iðunn Kirkjustræti konurnar — Erlendar bækur Framhald af bls. 3. urinn. >á verður opið til mið- næittiiS. — Á aðfangadagistnorgun verður salan þó líklega mest. Þannig hefur það alltaf ver- ið. — Ástæðan er sú, að þeir sem hafa gleymt að kaupa handa einhverjum eða þeir, sem eru í vanda með að velja jólagjafir, enda þá í bóka- búðunum. — Þeir eru ótrúlega margir sem kaupa bækur vegna þess að þeir eru í vandræðum með að veija jólagjafir. Bók er hins vegar alltaf góð gjöf. Lítil sala í ljóðabokum — Flestir eru forvitnir að vita hverjar verði metsölu- bækurnar núna. Enn er of snemmt að slá nokkru föstu um það. Áberandi er hins vegar að bækurnar „Syndin er lævis,“ eftir Jónas Árna- son, og „Líf að loknu þessu“, eftir Jónas Þorbergisson, selj- ast mest. — Ein tegund bóka selst lítið nú orðið. Það eru ljóða- bækurnar. Sala er svo til eng. in á þeim. Sá hJ/uti bók- menntanna hefur alveg dott- ið niður. — Fyrir ca. 5 til 10 árum komu út fyrir hver jód ljóða- bækur, sem ágæt sala var í. Ljóðskáldin i dag virðast ekki nó eins til fólksina og áður var. Nóg að gera í Ólafsfirði. hér á firðinum og má þá segja að oft sé kallfæri í land. Stund- um sækjum við þó út og vestur móts við Hvanndalabjörg, Héð- insfjörð og Siglufjörð eða aust- ur undir Gjögra. — Og veiðarfærin? — Flestir róa með handfæri vor og sumar, en síðari hluta september breytist þetta og þá fara flestir að róa með línu. Ég ræ nú venjulega með línu. — Já, Sigursveinn. Ég hefi veitt því athygli að þó þú sért einn á sjónum og kunnir því vel, þá ert þú alls ekki einn við línustampana og virðist engu síð- ur kunna því vel. Og ekki skal ég neita því að það hafði tölu- verð áhrif á mig og nokkurt að- dráttarafl, þetta fólk, sem hópast hér í kringum línustampana þína. — Fólk? — Ja, ég meinti nú kvenfólk. — Já, vinur minn, konurnar, þær eru alveg dásamlegar. — Er eitthvað leyndardóms- fullt við þessa kvenhylli þína, Sigursveinn? — Leyndardómsfullt? Nei, það er meiningin ekkert leyndar- dómsfullt við hana, eða ekki finnst mér það. sjálfum, — en strönd, í Sandgerði, Keflavík og víðar, en ég held þó að be-1 sé að vera á trillu, sérstaklega þeg- ar maður fer að eldast. Eg hefi átt trillu í 34 ár, og það síðasta, sem ég hefi hugsað mér að eiga, er trilla. Þó ég geti þá ekki róið henni sjálfur þá get ég haft hana til að horfa á og við það glatt mitt gamla auga. — Hve mörgum trillum er ró- ið að staðaldri hér frá Ólafsfirði? — Milli 20 og 30. —• Hvernig er svo með höfn- ina hér? Eruð þið öruggir með bátana og jafn réttháir stærri skipum? — Við höfum hvergi öryggi. Komi stór bátur, þá er fyrst hann, svo við. Við getum næstum sagt eins og Gvendur smEili: „Hvar má ég vera? Hvar má ég standa?“ Við hugsum gott til þeirra hafnarbóta, sem hér er verið að gera, en vildum þó gjarnan að við ÖlafsfirðÍKgar hefðum sjálfir meira að segja um framkvæmd þeirra mála. — Hvernig er það, Sigur- sveinn, hefur þú ekki haft áhuga fyrir öðrum veiðiskap en þeim, sem þú hefur getað sótt í djúp hafsins? — Ja, mestan veiðiskap minn hefi ég nú til sjóvar sótt, en ég hefi átt byssu, og fyrir þeirri byssu hefur stundum fallið blöðruselur, þegar vaðan kemur hér inn á vorin. Og hér áður fyrr, þegar fátækt var mikil, þá get ég ekki neitað því að ein- stöku sinnum hafi fallið fyrir henni fugl af andaættinni. Já — mikið var súpan góð. — Að lokum þetta, Sigur- sveinn. Þú hefur látið í ljósí, að trú þín á æðri ósýnileg máttar- völd, væri styrkur þinn í stríði við storma og stórsjó. En hver er þá hinn sýnilegi styrkur þinn í lífsbaráttunni? — Konan mín, vinur minn. — Konan mín r eini styrkur minn í landi, en þó trúi ég því, að ef trú mín á guð brestur, þá séu mér allar leiðir lokaðar. í Ijósum bjarma rísandi dags hillir Grímsey við hafsbrún. Ein nótt við yzta haf hefur vikið fyrir valdi ljóssins. Hlýtt handtak Gunnihildar og Sigursveins vermir mig öllum veigum betur, þegar ég rölti upp Hornbrekkiuveginn til þeirra heimkynna, hvar mér hefur ver- ið búinn staður, þessa stuttu, en lærdómríku og ánægjulegu sumardvöl í Ólafsfirði. Þorsteinn Matthíasson. Gunnhildur. þó má ég til með að segja það, að margar mest virtu frúrnar hér í bænum, þær sem aldrei koma til annarra, þær koma til mín og hjálpa mér. Þær vita að Sigur- sveinn Árnason er orðinn gam- all, en langár þó til að lifa lífinu. Þeirra kvenlegi næmleiki finnur þetta og því koma þær til mín. — Gamall, já, hvað ertu gam- all, Sigursveinn? — Fimmtíu og níu ára vinur- inn. — Fimmtíu og níu ára! Það er enginn aldur. Ekki hefur þú nú alla þína starfsævi róið á trillubát. — Nei Ég hefi verið véla- maður á ýmsum stærri bátum og auk þess landformaður á Skaga- FYRIR skömmu birtist í Morg- unblaðinu yfirlitsgrein um Ólafs fjörð. Var þá skýrt frá ýmsu, sem snerti kaupstaðinn, upp- byggingu hans og sögu. í sumar dvaldist ég í Ólafsfirði rúma tvo mánuði og átti þess kost að kynnast að nokkru hög- um og háttum þess fólks er þar býr. Meðal þeirra em ég þar kynnt- ist, voru hjónin Sigursveinn Árnason og Gunnhildur kona hans. Og nú hverf ég aftur um nokkurra vikna skeið, sit í stof- unni hjá þeim hjónum og uni lífinu vel. Sigursveinn hefur yljað sál mína með vermandi „Já vinur minn, eru alveg dásamlegar" veigum, og kaffið hennar Gunn- hildar svíkur engan. Ég hefi aldrei reynt að afsaka þá eigind mína að vera veikur íyxir þessa heims lystisemdum, ekki síst þegar hægt er að njóta þeirra í jafngóðum félagsskap. En ég er líka forvitinn. — Allt það, sem ég veit um Sigursvein er það, að hann stundar .róðra á trillubát, sem heitir Hannes, Og hann rær feinn. — Þetta að róa einn — Ég hefi heyrt menn hér hafa orð á því að slíkt ætti að banna, og ég inni Sigursvein eft- ir skoðun hans á því máli. „Nei, vinur minn, þetta á alls ekki að banna — Þetta er engin vogun elskan. Miklu meiri vogun að hafa með sér mann, sem kannske ekki vill hlýða — Það er „mein- ingin“ vogun. Og svo er annað. — Ykkur sýnist ég vera einn á bát, þegar ég fer hérna út úr höfninni, en ég er alls ekki einn, guð er með mér, og sá, sem guð er með, er aldrei einn. Athug- aðu það, vinur minn. Það skiptir „meiningin" ekki máli hve marg ir við erum um borð, sé guð ekki með okkur, þá erum við einir. Margir trillubátaeigendur hér eru eldri menn, sem stundað hafa sjó meginhluta ævi sinnar, en eru nú hættir að fylgja yngri mönnunum til sjósóknar á stærri bátum. Á efri árum er þetta þeirra stundagaman — jafn- framt því sem það gefur gott lifibrauð. Ég fæ ekki séð hverj- um væri hagur í að amast við þessu. Auðvitað er sjálfsagt að ungu mennirnir hugsi hærra Og fari á stærri bátana, læri sj.- mennsku og siglingafræði, og eignist þann metnað að verða dugandi menn með fjölþætta þekkingu. — Þú sagðir áðan, Sigursveinn, að þessir einmenningsróðrar gæfu gott lifibrauð. Mundi það ekki skapa aukið öryggi og svipaðan aflahlut, þó tveir eða þrír væru um einn trillubát. — Ja, sjáðu til vinurinn. Ég hefi látið útbúa fyrir mig drátt- arkarl í sambandi við vélina í bátnum, og eins og ég sagði þér áðan. Hann vinnur sitt verk án þess að mögla nokkuð, ég þarf „meiningin" ekki að eiga í nein- Sigursveinn og um illdeilum við hann og hann heimtar engan hlut af mér. — Og hver verður svo afla- hluturinn, Sigursveinn? — Það getur nú verið mjög misjafnt eftir aflabrögðum og veðráttu, alltaf þó betra en að vinna í landi. í sumar hefur þetta gengið ágætlega, lítill kostnaður á rekstrinum. Hann Eggert minn á Víði II. og aðrir þeir, sem hér leggja síld á land í Ólafsfirði hafa ekki verið dýrir á beituna, og vélarner í trillu- bátunum okkar eru ekki eyðslu- frekar. —• Sækið þið svo langt á haf út svona einir saman? — Nei, ekki verður það nú sagt. Við höfum oft ágætan afla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.