Morgunblaðið - 05.01.1963, Page 1
20 síður
50. árgangur
3. tbl. — Laugardagur 5. janúar 1963
Prentsmiðja Morguitblaðsins
SÞ sækja að síðasta
o\rrSrl Acf cri r».cra r rwcr alcTíxmmrl'n nrprl
virki Tshombes
Aðstoðar framkvæmdarstjóri
SÞ kominn til Kongó
Washington og Leopoldville,
4. jan. (AP-NTB)
HEBSVEITIR Sameinuðu þjóð
anna í Katanga héldu áfram
sókn sinni gegn her Tshombes
í dag. í frétt frá Salisbury í Suð-
ur Rhodesiu segir að komið hafi
til bardaga á leiðinni frá Jadot-
ville til Kolwesi.
Tshombe forseti er í Kolwesi,
sem er síðasta virki Katanga-
hersins. Belgískar fréttir herma
að hann sé reiðubúinn að taka
upp samninga við SÞ, en sjáif-
ur sagði hann í viðtali við frétta
ritara AF í dag að ef hann ekki
næði samkomulagi við SÞ, mundi
her hans berjast til síðasta manns
Bandaríkjastjórn skoraði í dag
á Tshombe að fallast á tillögur
U Thants framkvæmdastjóra um
sameiningu Katanga og Kongó,
sem Tshombe hefur áður fallizt
á sjáifur.
Dr. Ralph Bunche, aðstoðar
framkvæmdastjóri SÞ var vænt-
anlegur til Leopoldville í kvöld
til að ræða við fulltrúa samtak-
anna þar um áframhald aðgerða
í Katanga.
í yfirlýsingu bandarísku stjórn
arinnar segir að Tshombe beri
þunga ábyrgð, ef hann láti verða
af hótun sinni um að eyðileggja
iðnfyrirtæki í Katanga. Bf svo
færi, skapaði hann sjálfum sér
auknar óvinsældir og torveld-
aði friðsamlega lausn mála í
Kongó. Skorar Bandaríkjastjórn
á Tsihiombe að koma í veg fyrir
Róttækar kröfur
nýrrar landstjórn-
ar í Færeyjum
eyðileggingar og skemmdarverk
láta af aðskilnaðarstefnu sinni,
heimila SÞ að ferðast að viid
um héraðið, að taka upp sam-
vinnu um framkvæmd tillagna
U Thants um sameiningu Kat-
anga og Kongó, og vísa erlendum
málajiiðum úr landi.
TSHOMBE f KOLWESI
Tshombe kom til Kolwesi eftir
að her SÞ hrakti Katangaherinn
úr borginni Jadotville, án þess
að til beinna átaka kæmi þar.
Segja talsmenn SÞ að sóknin tii
Kolwesi verði stöðvuð þegar
sveitix samtakanna hafa komið
sér vel fyrir. En í dag kom til
bardaga á þjóðveginum frá Jad-
otville til Kolwesi, að því er
útvarpið í Salisbury sagði. Sam-
kvsémt fréttinni sprengdi Kat-
angaherinn tvær brýr á undan-
haidimu, og var önnur þeirra 32
kílómetra frá Jadotville.
TVÆR KONUR
Þegar sveitir SÞ tóku Jadot-
ville í gær voru tvær belgiskar
konur skotnar til bana. Talsmað
ur SÞ sagði í dag að U Thant
hafi sent Pul-Henry Spaak ut-
anrikisiáðherra samúðailkveðju
sina vegna þessa atviks. Orsök-
in var sú að þegar sveitir SÞ
nálguðust borgina, komu tvær
bifreiðir akandi á fullri ferð á
móti þeim. í stað þess að hlýða
stöðvunarmerkjum framvarða
SÞ-hersins, hélt fyrri bifreiðin
áfram. Seinni bifreiðin virtist
ætla að nerna staðar en þegar
hún kom að framvörðunum jók
ökumaðurinn hraðann. Skaut þá
einn framvarðanna á bifreiðina
ipeð ofangreindum afleiðingum.
Ilya Ehrenburg. Myndina
teiknaði Pablo Picasso í
Varsjá 1948.
svara ásökunum í Pravda.
„Ég ætla ekki að koma af
stað ritdeilum til hagsbóta
fyrir blöðin“, sagði hann við
fréttamenn á flugvellinum í
London í kvöld.
Ehrenburg sagði að erindi
sitt til London væri að ræða
við ýmsa andans menn frá
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Bjóst hann við að dvelja í
London um vikutíma.
Um leið og hann neitaði að
svara ásökuriunum, sagði Ehr-
enburg: „Laktionov er lista-
maður, og skoðanir hans eru
vel kunnar. Ég ætla ekki að
deila við hann. Ég er sjálfur
gamall blaðamaður ,og ég veit
að ykkur langar alla til að
skrifa um stjórnmálalega
deilu“.
Ehrenburg neitaði einnig
í STEFNUSKRÁ hinnar
nýju færeysku landsstjórn-
ar eru róttækar kröfur um
breytingar á málefnum
Færeyinga og samskiptum
þeirra við Dani. Þar er m.
a. gert ráð fyrir því, að eng
ir alþjóðasamningar um
færeysk málefni séu gerð-
ir nema með samþykkt
Lögþingsins, og færeyskir
þingmenn sitji ekki í
danska þinginu. Hér á eft-
ir fara helztu atriði í samn
ingum landsstjómarflokk-
anna í Færeyjum og stutt
viðtal við Erlend Paturs-
son:
að ekki megi setja nein lög
fyrir Færeyjar, nema sam-
þykki Lögþingsins komi til,
né heldur öðlist alþjóðasamn-
ingar, er varða færeysk mál-
efni, gildi, nema Lögþingið
hafi samþykkt þá,
að í þeim málum, er ein-
ungis varða Færeyinga, skuli
þeir einir hafa rétt til að vera
í samninganefndum, og hafa
með samningagerð að gera við
önnur lönd og alþjóðastofnan-
ir, eins og EBE,
að mál, sem að öðru leyti
snerta Færeyinga, öðlist ekki
gildi nema þeir hafi fulltrúa
viðstadda, þegar þau mál eru
rædd,
að sett verði lög um fær-
eysk borgararéttindi, á þeim
grundvelli, að sá einn geti
öðlazt færeyskan borgararétt,
sem er fæddur af foreldrum,
sem bæði eru fædd i Færeyj-
um. Þau skilyrði verði einnig
sett fyrir færeyskum borgara
réttindum, að viðkomandi
telji sig Færeying og Færeyj-
ar föðurland sitt og tali fær-
eysku,
að færeysk vegabréf verði
gefin út sérstaklega,
að eingöngu verði notuð
færeyska á opinberum vett-
vangi og í opinberum málum,
að einungis verði notaður
færeyskur fáni,
að þeir tveir þingmenn Fær
eyja, sem sæti eiga í danska
þinginu, hverfi þaðan, þannig
að enginn Færeyingur taki
sæti í danska þinginu.
að efnahagslífið verði
byggt upp, og innlendur fisk-
iðnaður efldur í landinu,
að færeyska fiskveiðiland-
helgin verði færð út í 12 sjó-
mílur 23. apríl nk., eins og
samþykkt hefur verið, en að
öðru leyti skuli haldið fast
við fyrri yfirlýsingu Lögþings
ins um að landgrunnið allt
skuli heyra Færeyjum til.
Ennfremur gerir nýja lands-
stjórnin kröfur til þess, að
byggð verði færeysk land-
helgisskip, sem hafi eftirlit
við strendur eyjanna, og öðl-
ist viðurkenningu sem slík,
að allir skólar í Færeyjum
lúti færeyskri stjórn, en hing-
að til hafa þeir verið undir
danskri stjórn. Allar kennslu-
Framhald á bls. 2.
Washington, 4. jan.
(NTB)
BANDARÍSKIR vísindamenn
unnu í dag tvo tæknilega
sigra, sem vakið hafa alheims
athygli. Tókst þeim að koma
tækjum sjónvarpshnattarins
Telstar, sem skotið var upp
s.L sumar, af stað að nýju
eftir 43 daga þögn, og nokkru
seinna einnig tækjum hnatt-
arins Relay, sem skotið var
á loft 13. des., en ekkert hef-
ur heyrzt í fyrr.
Pravda segir um Ehrenburg:
Hann vill hrinda
listinni b gljúfur
menningarleysis
Moskvu, 4. jan. (AP-NTB)
PRAVDA, málgagn komm-
únista í Sovétríkjunum,
birtir í dag harðar árásir
á rússneska rithöfundinn
Ilya Ehrenburg. Er hann
ásakaður fyrir að hafa
haldið uppi vörnum fyrir
aukningu vestrænna áhrifa
í rússneskri list. Greinina
ritar Alexander Laktionov,
sem er einn af þekktustu
málurum Rússa og að sjálf-
sögðu sósial-realisti. Segir
Laktionov að Ehrenburg sé
að „hrinda list okkar fram
á hengiflugið, þaðan sem
hún getur hæglega hrapað
niður í algjört menningar-
Ieysi“.
Sjálfur fór Ehrenburg í dag
flugleiðis til London. Við kom
una þangað neitaði hann að
að ræða um það þegar hann
sjálfur, Evtúsjenko og fleiri
frjálslyndir listamenn í Sovét
ríkjunum gengu á fund flokks
leiðtoganna í Mosikvu fyrir
nokkru. Fundir þessir voru
boðaðir eftir að fréttir tóku
að berast um eindregna and-
stöðu við baráttu ríkisstjórn-
arinnar til að berja niður það
sem hún nefndi „áhrif undir-
lægjuhugmynda borgarastétt-
arinnar“.
„Fundirnir voru lokaðir,
fréttamenn voru ekki við-
staddir,“ sagði Ebrenburg.
„Þess vegna get ég ekki sagt
ykkur hvað fram fór.“
Ehrenburg vildi ekki segja
hvað hann hefði sjálfur sagt
á fundunum. „Ég skrifa bæk-
ur. Þið getið fundið skoðanir
mínar á listum í bókum mín-
um.“ Ehrenburg var vinsæll
rithöfundur á Stalínstímun-
um. Hann varð málsvari
Framhald á bls. 19.
Ný stjdrn í Færeyjum
3 þjóðernisflokkanna, sem vilja aðskilnað
við Dani, mynda stjórnina — Hákon
Djurhuus er lögmaður
Fré fréttaritara Morgunblaðsins,
Þórshöfn, Færeyjum, 4. janúar.
í DAG var mynduð hér í Fær-
eyjum ný lándsstjórn, um sjö
vikum eftir að gengið var til
kosninga. Að stjórninni eiga
nú aðild þrír þjóðernisflokk-
anna, þ.e. Sjálfstjórnarflokk-
urinn, sem áður var stjómar-
flokkur, og tveir þriggja
flokka, sem áður voru í stjórn
arandstöðu, þ.e. Fólkaflokk-
urinn og Þjóðveldisflokkur-
inn. Framfaraflokkurinn, sem
ekki á fulltrúa í stjórninni,
styður þó stjórnina á Lög-
þingi. Flokkurinn á þar einn
þingmann. Þjóðveldisflokkur-
inn á tvo fulltrúa í lands-
stjóminni, en hinir einn hvor.
Lögmaður verður Hákon A.
Djurhuus úr Fólkaflokknum.
Þeir aðrir, sem í lands-
stjórninni sitja, em Nils Paul-
sen úr Sjálfstjórnarflokknum
og Erlendur Patursson og
Karsten Hoydal úr Þjóðveld-
isflokknum.
Sjá viðtal við H. Djurhuus á
blaðsíðu 2 og viðtal við Erlend
í greininni hér til vinstri.
Tveir þeirra flokka, sem aðild
áttu að fyrri landsstjórn, standa
nú utan hennar, þ.e. Jafnaðar-
menn og Sambandsflokkurinn.
Framfaraflokkurinn, einn fyrr-
verandi stjórnarflokka, er nú ut-
an stjórnar, þótt hann styðji
hana á þingi, eins og áður segir.
Alls sitja nú 29 á Lögþingi
Færeyja. Landsstjórnin nýja nýt-
ur stuðnings 15 þingmanna. Þing
mannafjöldi þeirra flokka, sem
nú mynda stjórn, er sá sami og
var fyrir kosningar, þótt nokkur
breyting hafi orðið innbyrðis.
Kosningaþátttaka, er kosið
var 8. nóvember sl., var allgóð,
eða um 73%. Eftir kosningarnar
sagði Peter Mohr Dam, er þá
gegndi embætti lögmanns, að
hann teldi allgóðar líkur fyrir
því, að Jafnaðarmenn tækju að
sér stjórnarmyndun. Ekkert varð
þó af því, en þeir flokkar, sem
nú hafa myndað landsstjórn,
teljast allir til svonefndra þjóð-
ernisflokka, sem eru fjórir tals-
Framhald á bls. 2.