Morgunblaðið - 05.01.1963, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 5. Janúar 1963
„Ný fiskveiðilögsaga
og heimastjórnarlög"
segír Hákon Djurhuus, nýkjörínn lögma&ur
Færeyja, í viðtali við Morgunblaðið í gær
MORGUNBLAÐIÐ ræddi
í gær við nýja lögmanninn
í Færeyjum, Hakon Djur-
huss, og innti hann nokkuð
eftir stefnu landsstjórnar-
innar, sem þá hafði verið
mynduð, bæði hvað við-
víkur stefnu hennar til
dönsku stjómarinnar, fisk-
veiðilandhelgi, flugsam-
gangna til Færeyja o. fl.
Hvað vilduð þér segja um
stefnu stjómarinnar með til-
liti til samskipta hennar við
dönsku stjórnina?
„Þetta er stjórn, sem mynd-
uð er af þjóðernisflokkum,
svo að það er ljóst, að það
mun eiga sér stað breyting,
hvað snertir heimastjórnar-
lögin. A hvern hátt, er ekki
endanlega ákveðið. Hins veg-
ar munum við krefjast aukins
réttar til að sinna sjálfir mál-
um okkar út á við“.
l>á kannske einnig með til-
liti til fiskveiða og samninga
við Breta?
„Já, að sjálfsögðu. Við er-
um sammála um stækkun
fiskveiðilögsögunnar í 12 míl-
ur, eins og þið íslendingar
hafið gert“.
Svo við víkjum nú aftur að
samskiptum við Dani, teljið
þér þá, að e.t.v. megi búast
við gerbreyttri afstöðu í þeirn
efnum?
„Það er kannske ekki tíma-
bsert að segja of mikið um það
nú, en óhætt er að fullyrða,
að það megi búast við meiri
athafnasemi í þeim efnum, en
verið hefur undanfarin ár“.
Okkur skilst hér á íslandi,
að radarstöð NATO hafi verið
mikið til umræðu 1 Færeyjum
að undanförnu?
„Já, það er alveg rétt, og
við erum langt frá því að
vera ánægðir með það, hve
margir — hvað eigum við að
kalla þá — tæknifræðingar
— hafa verið hér að undan-
förnu“.
Hefur ekki staðið deila um
það, hver bera eigi kostnaðinn
af veginum milli Þórshafnar
Og radarstöðvarinnar?
„Jú, en það vandamál er
leyst. Vegurinn verður fram-
vegis opinn allri umferð. Þá
hefur einnig verið komizt að
samkomulagi um það, hver
bera eigi kostnaðinn af við-
haldi hans. Danir munu gera
það. Við höfum ekkert beint
samband við NATO, það fer
allt um hendur Dana“.
Má búast við nýskipan á
sviði efnahagsmála, er nýja
stjórnin tekur til starfa?
„Það er margt, sem við
höfum í huga, en þó kannske
eitt, öðru fremur. Við vildum
gjarnan vinna meira af hrá-
efni okkar úr sjónum sjálfir.
í stað þess að senda það ó-
unnið úr landi“.
Það vandamál er líka til 'á
íslandi.
„Já, en þó hvergi nærri í
sama mæli og hjá okkur hér
í Færeyjum".
Segið mér, er nokkuð nýtt
að frétta af flugsamgöngum
við Færeyjar?
„Það vandamál er enn ó-
leyst, en við vonum. að þær
komist á— og það voru ein-
mitt umræðurnar um flug-
samgöngumar við ísland,
sem komu skrið á það mál“.
Gestur Guðmundsson og Guðrún Kristinsdóttir undirleikari.
Kona brennist
á sjóðandi feiti
Akureyri 4. jan.
í HÁDEGINU í gær varð það
slys að Lundarbrekku í Bárðar-
dal að húsfreyja þar, Hjördís
Kristjánsdóttir, hrasaði er hún
var að steikja kleinur í potti.
Slettist sjóðandi feitin yfir Hjör-
dísi og brenndist hún í andliti,
á herðum, svo og á höndum og
fótum.
— Ný stjórn
Framhald af bls. 1.
Ins. Sá hinn fjórði er Framfara-
flokkurínn.
Þingmannafjöldi stjómar- og
stjórnarandstöðuflokka á Lög-
þingi er nú sem hér segir (í svig-
um eldri tölur):
Stjórnarflokkar:
Þjóðveldisflokkur ....... 6 (7)
Fólkaflokkur ............ 6 (5)
Sjálfstjórnarflokkur .... 2 (2)
Stjórnarandstaða:
Jafnaðarmenn ............ 8 (8)
Sambandsflokkur ......... 6 (7)
Framfaraflokkur ......... 1 (1)
Þjóðernisflokkarnir hafa fram
til þessa barizt fyrir aðskilnaði
við Dani, og hafa undanfarið átt
sér stað miklar viðræður milli
þeirra allra um stjómarmyndun.
í gær var talið, áð þeir hefðu
komið sér saman um stefnuskrá,
og þá var eina deilumálið, hver
verða skyldi lögmaður.
Það mál leystist í dag, eins og
áður segir, en þannig, að Fram
faraflokkurinn tók ekki þátt í
myndun landsstjórnarinnar.
Kaupa stálbát
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Snæ-
fugl hf. á Reyðarfirði, sem á
samnefnt skip, hefur fyrir
skömmu lokið samningagerð
um smíði á 230 tonna stálbáti í
Noregi. Verður báturinn að öllu
leyti eftir ströngustu kröfum
um fiskibáta og skal hann af-
hendast Snæfugli hf. í maímán-
uði 1964.
Þóroddur Jónasson, héraðs-
læknir að Breiðumýri kom brátt
á vettvang og bjó um bmnasár
Hjördísar og jafnframt kom
sjúkrabíll frá Akureyri á stað-
inn og flutti hana í Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Var bíll-
inn kominn þangað með hina
slösuðu konu um fimmleytið í
gær.
Liðan Hjördísar í dag var
mjög sæmileg eftir atvikum, en
hún hefur hlotið allmikil bmna-
sár. — St. E. Sig.
SÞ, New York, 4. jan.
(AP)
VALERIAN Zorin, sem ver-
ið hefur aðalfulltrúi Sovét-
rikjanna hjá SÞ, hefur látið
af embætti. Hélt hann i dag
frá New York með farþega-
skipinu Queen Mary til Sout-
harr.pton, en þaðan fer hann
til Moskvu. Við embættinu
tekur Nikolai T. Fedomeko.
Bæði Zorin og Fedorneko eru
aðst.utanríkisráðherrar Sovét-
ríkjanna.
Ungur tenórsöngv-
ari heldur tónleika
GESTUR Guðmundsson, tenór-
söngvari, heldur söngskemmtun
i Gamla bíói í Reykjavík nk.
sunnudag kl. 3 síðdegis. Undir-
leik annast Guðrún Kristinsdótt-
ir, píanóleikari.
Á söngskránni eru 14 lög eftir
innlend og erlend tónskáld,
Franz Schubert, J. Massenet,
Verdi, Puccini, Donizetti, Emil
Thoroddsen, Eyþór Stefánsson
og Pál ísólfsson.
Myndin: Gestur og Guðrún á
æfingu fyrir söngskemmtunina.
Eldur við olíu-
tank á Akranesi
Akranesi 4. jan.
ÚTLIT er fyrir að skemmdar-
verk hafi átt að fremja við
mjólkurstöðvarhúsið við Esju-
braut 2 hér í bæ. Kl. hálf tólf í
dag logaði jörðin umhverfis olíu-
ta'nk mjólkurstöðvarinnar. Þegar
að var kömið fréttist að strákar
hefðu kveikt í sorptunnum
skammt frá, grafið holur í jarð-
veginn, sem er gegnblautur af
olíu umhverfis tankinn, tekið
logandi drasl úr tunnunum og
hent i holurnar. Ekki var nær-
tækt vatn í augnablikinu en bor-
inn var að sandur í fötum til þess
að slökkva eldinn — Oddur.
FRA fundi kjararáðs BSRB,
samninganefndar fjármálaráð
herra og sáttasemjara í gær.
Kjararáð situr vinstra megin
borðsins en samninganefnd
fjármálaráðherra til hægri.
Talið frá vinstri: Haraldur
Steinþórsson, Teitur Þorieifs-
son, Magnús Þ. Torfason, Inga
Jóhannesdóttir, Guðjón B.
Baldvinss., Kristján Thoriaci-
us, form. kjararáðs, Torfi
Hjartarson, sáttasemjari, Sig-
tryggur Klemenzson, formað-
ur samninganefndar f jármála-
ráðherra, Gunnlaugur E.
Briem, Jón Þorsteinsson og
Jón E. Þorláksson.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Sdmnlnganefndir hofn frfáls-
ar hendur til 1. febrúar
— Róttækar kröfur
Framhald af bls. 1.
bækur verði færeyskar, og
færeysk menning og mennt-
un verði efld í hvívetna, m.a.
með vísi að færeyskum há-
skóla, þar sem lögð verði á-
herzla á færeyska tungu, bók-
menntir og sögu.
í stuttu samtali Erlends Pat
urssonar við Morgunblaðið i
gærkvöldi, sagði hann: „Þjóð-
veldisflokkurinn er sterkasta
aflið í hinni nýju landsstjórn,
þó Hakon Djurhuus sé úr
Fólkaflokknum. Ég vil taka
fram“, sagði Erlendur enn-
fremur, „að aðalatriðið í
efnahagsmálasamþykkt lands-
stjórnarflokkanna nýju, er
viðreisnar- og uppbyggingar-
stefna. Við leggjum áherzlu á
þá „struktur“-breytingu, að
við hættum að selja fisk ein-
ungis sem óunnið hráefni, en
vinnum hann heima í Fær-
eyjum og eflum innlendan
fiskiðnað, og tryggjum verka
fólki og sjómönnum bætt
kjör með aukinni framleiðslu
og betri nýtingu aflans, en
hingað til hefur verið unnt.
Undanfarið hefur borið á því,
að sjómennimir hafi viljað
fara í land, en nú verður
reynt að stemma stigu við
þeirri óheillaþróun".
„Hyggst hin nýja lands-
stjórn slíta öllu sambandi við
Dani?“ spurði fréttamaður
Morgunblaðsins.
„Nei,“ svaraði Erlendur,
„það er ekki á stefnuskránni,
Nú skulum við fara varlega.
Hin nýja stefnuskrá, eða
krafa, er samkomulag milli
allra landsstjórnarflokkanna.
Við Þjóðveldismenn erum hin
ir einu af þessum flokkum,
sem vilja algeran skilnað við
Dani og stofna lýðveldi á Fær
eyjum. Hinir flokkamir þrír
eru ekki skilnaðarflokkar,
þeir eru allir sjálfsstjórnar-
floklkkar, þeir vilja einungis
meira frelsi í samskiptum við
Dani. Þess má að lokum geta“,
sagði Erlendur, „að hin nýja
landsstjórn er á móti her-
skyldu Færeyinga og her-
stöðvum í landinu".
KL. 4 í gær boðaði sáttasemjari
ríkisins, Torfi Hjartarson, kjara-
ráð Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja og samninganefnd fjár-
málaráðherra á sinn fund, en nú
um áramótin átti málið að ganga
til sáttasemjara, ef samkomulag
hefði ekki náðst með samninga-
nefndunum. Ef samkomulag næst
ekki á fundum með sáttasemjara
fyrir mánaðarlokin febrúar-
marz, gengur málið til kjara-
dóms, sem á að fella dóm sinn
fyrir 1. júlí í sumar.
Á fundinum í gær fóru samn-
inganefndirnar fram á að þeim
yrðu veittar frjálsar hendur til
þess að halda samningafundi án
þess að sáttasemjari sæti þá
fundi til 1. febrúar, en ef samn-
ingar hefðu ekki tekizt þá, skyldi
sáttasemjari taka málið að sér.
Varð sáttasemjari við þeirri ósk.
Akranesbátar
sprenp;ja nætur
Akranesi 4. jan.
í NÓTT voru þeir að veiða 9
sjómílur SV af Eldey og hrepptu
slæmt sjóveður á ANA. Sprengdu
margir nætur sínar. Fimm bátar
héðan fengu samtals 2.700 tunn-
ur af síld, Sigrún, Náttfari og
Haraldur 600 hver, Sigurvon 500,
Keilir náði 400 tunnum úr
sprunginni nót, en nótin sprakk
hjá Sigurði Og síldin synti öll á
brott. Síldin er misjöfn að stærð
og gæðum. — Oddur.
Calcutta, Indlandi,
4. jan. (AP)
38 MANNS fórust í járnbraut-
arslysi á Indlandi í dag. Slys-
ið varð með þeim hætti að
flutningalest ók með fullum
hraða á farþegalest, sem stóð
kyrr