Morgunblaðið - 05.01.1963, Side 9
Laugardagur 5. janúar 1963
MORCUNBLAÐIÐ
9
Bjarnveig Bjarnadóttir:
urðuleg ritsmíð
ÉG HEFI verið að líta í nofckur
dag’blöð, sem mér gafst ekki
timi til að lesa fyrir jólin. Rakst
ég þá á grein í Vísi um nýju Ás-
grímsbókina eftir herra Njörð
P. Njarðvilk. Er hún hið furðuleg
asta ritsmíð. I>ar segir m.a.
l*á verður að gagnrýna að þess
er hvergi getið hver sá um
myndaval en það er vitanlega
eitt höfuðatriði þessarar bókar“.
(Leturbreyting undirr.)
Mér er ekki kunnugt lam að
það sé venja að auglýsa sér-
staklega nöfn þeirra sem mynd-
ir velja í lisaverkabaekur. Oftast
mun það vera útgefandinn sjálf-
ur í samstarfi við ýmsa sérfræð-
inga, eða málarana, ef þeir eru
á lífi, sem ákveða hvaða myndir
skuli velja til eftirprentunar,
enda slík nafnbirting algjört
aukaatriði. Myndirnar sjálfar
segja til um það, hvort vel eða
illa hefur til tekizt með bókina
og ber útgáfufyrirtækið ábyrgð
á verkinu.
En þar sem unga manninum
þykir slik nafnbirting eitt höfuð
atriði bókarinnar, sem gegnir
raunar mikilli furðu, vil ég gjarn
an gera honum nokkra úrlausn,
en mér er þetta mál dálitið
kunnugt.
Ásgrímur Jónsson var maður
lítillátur. Sjálfbyrgingsskapur,
hroki og yfirlæti var eitur í
beinum hans. Og dómar hans um
sínar eigin myndir voru aldrei
hástemmdir. Myndir þær sem
honum voru sérstaklega hugleikn
ar, taldi hann að væru „nokkúð
laglegar." í>etta voru hans sterk
ustu orð, ef hann var sæmilega
ánægður með listaverk.
Allra síðustu æfiár Ásgríms
barst oft í tal milli hans og
Ragnars Jónssonar bókaútg. í
Helgafelli, útgáfa nýrrar mál-
verkabókar, þar sem sú fyrri er
foriagið gaf út árið 1949 var
uppseld. Ásgrímur fór bá að
hugsa sitt mál. Benti hann á
ýmsar myndir sem honum þóttu
„iaglegar", og til mála gæti kom
ið að prenta eftir, ef af nýrri
útgáfu yrði, bæði myndir sem
voru í eigu hans og annarra,
m.a. nokkrar sem undirrituð
átti. Ekki urðu þó þær myndir
nógu margar í fyrirhugaða bók,
þegar útgáfan var ákveðin eftir
andlát Ásgríms. Valdi þá Ragn-
ar Jónsson myndir til viðbótar,
og er honum áreiðanlega vel
treystandi til slíkra hluta, þar
sem hann er flestum mönnum
kunnugri listverkum Ásgríms
Jónssonar.
Vona ég að herra Njarðvfk
þyki þessar uppiýsingar betri
en engar.
Þá þykir mér rétt að minnast
lítillega á æfiminningar Ásgríms
Jónssonar, sem Tómas Guðmunds
son skáid færði í letur á sinni
tíð.
•rtiit dómbærra manna er það,
að skáldið hafi skrásett þessar
æfiminningar af djúpum skiln-
ingi og listrænni nærfærni. Mó
telja víst, að þessir æfiþættir
verði sígilt verk í bókmenntum
okkar, stílhrein og fögur smíð,
á fáguðu lýsandi máli, er greinir
frá lífsbaráttu, hugmyndum og
listsköpun mikilshæfs listamanns
á fyrri hluta þessarar aldar, sem
fyrstur allra á íslandi gerir mynd
listina að æfistarfi
Þegar í tal berst útgáfa nýrr-
ar máiverkabókar, var einnig
um það rætt að birta með mynd
unum meginþætti úr æfiminning
um Ásgríms, sem Tórnas vinur
hans hafði skráð. Með vitund og
vilja listamannsins var ákveðið
að fella úr kafla og gera smá-
vegis breytingar á textanum, en
í ráði var að þýða hann á ensku
til birtingar í væntanlega bók.
Sá svo prófessor Kenneth Chap-
man um þýðinguna, og er það
fyrst nú í þessari bók, sem æfi-
minningar Ásgrims Jónssonar
birtaist á erlendu máli.
En nú finnur herra NjarðvSk
Ásgrimsbókinni það tiii mikiiiar
foráttu, að hluti af þessari snjöllu
ritsmið prýðir hina fögru bók.
Og ungi maðurinn spyr: „. . .
Hafa þeir áhuga á því að kaupa
sömu bókina tvisvar?“
Spurning þessir gegnir mikilli
furðu. Tilefni hennar er útgáfa
Almenna bókafélagsins á æfi-
minningunum fyrir 6 árum, en
í þeirri bók voru prentaðar nokkr
ar litlar svart-hvítar myndir. í
nýju Ásgríimsbókinni eru 2 svart
hvitar myndir og 42 eftirprent-
anir í litum, sumar þeirra með
stærstu myndum, sem prentaðar
hafa verið hérlendis, nó yfir
heila opnu í bókinni, og er prent-
un þeirra talin mikilsverður á-
fangi í þróunarsögu islenzks ligt
iðnaðar, að dómi þeirra sem skyn
bera á. Er því ólíku saman að
jafna, og má af þessum ummæl-
um unga mannsins draga þá á-
lyktun, að honum þyki þessar
42 litmyndir algert aukaatriði.
Annars hefði hann ekki látið
það álit í ljós, að þessar tvær
gjörólíku bækur væru í raun og
veru sama bókin. En að sjálf-
sögðu vita það allir, að það eru
fyrst og fremst listaverk Ás-
gríms Jónssonar, sem gert hafa
hann að stórmerkum syni sinn-
ar þjóðar, og a.ðal markmið þess
arar nýprentuðu Ásgríonsbókar
er einmitt það, að birta eftir-
prentanir af listaverkum hans,
og mætti ætla, að öllum sæmi-
lega greindum mönnum væri það
ljóst, að myndirnar sjálfar eru
aðalkjarni slíkra bóka, sem þess-
arar, og tala þær máli meist-
ara sins skýrt og greiniiega. Og
að því er lesmálið varðar, mundu
hinir vósu telja ómaksins vert,
að lesa snjallt verk og listrænt
oftar en einu sinni.
Að lokum varpar herra Njarð-
vík fram þessari málsgrein:
„.. Hvergi er gerð minnsta til-
raun til þess að analýsera Ás-
grim Jónsson sem listamann.
Framh. á bls. 15.
Frá I. janúar
er öll hleðla og viðgerðir rafgeyma afgreidd
Þverholtsmegin (Þverholt 15 A) en ekki Einholts-
megin eins og áður.
IpxrcvhoHr !5
Kinholt 6
Afgreiðslustarf
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í Verzl. í Mið-
bænum. Tilboð ásamt uppl. um aldur og fyrri störf
sendist blaðinu fyrir þriðjud. merkt: „Areiðanleg
— 3170“.
Verziunarhúsnæöi
óskast til leigu eða kaups. Helzt í Miðbænum.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „3169“.
Sniðskóli
Bergljótar Ólafsdóttir
LAUGARNESVEGI 6 2.
Sniðkennsla, sniðteikningar, máltaka, mátanir.
Flokkur fyrir byrjendur. — Flokkur fyrir sveina
í kjólasaumi, og þær sem hafa lært undirstöðu í að
sníða. — Saumanámskeið.
Námskeiðin hefjast 7.—10. þ.m.
Innritun stendur yfir. Sími 34730.
Tilhoð óskast
í húseignina Skagabraut 43 Akranesi til brottflutn-
ings. Tilboðum sé skilað fyrir 20. janúar 1963 til
Brynjólfs Guðmundssonar Skagabraut 43. Áskilinn
réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
MIÐSTÖÐVARKETILL oskast
Lítið notaður miðstöðvarketill, 4 ferm., ásamt
brennara, stillitækjum og olíugeymi óskast.
Svar í síma 13820.
VANTAR
Stýrimann eða vanan háseta
Uppl. Hótel Skjaldbreið herbergi no. 6.
VILJUM RÁÐA
Tvær ufgieiðslustúlkur
í kjörbúð nú þegar. Tilboð sendist Mbl. sem fyrst
merkt: „Rösk — 3998“.
Stúlkur til aðstoðar í eldhús
óskast strax
Glaumbær
Járnsmiðir
Vélsmiður óskast á nýtt vélaverkstæði frá 1. febr.
næstkomandi. Mjög góð vinnuskilyrði. Aðeins reglu-
samur maður kemur til greina.
Uppl. hjá Bernharði Hannessyni í sima 13273.
STADION-bÍfreÍð
(minni gerð) frá ’58 eða yngri, óskast til kaups.
Mikil útborgun. Tilboð, þar sem getið er: Árgerðar,
heitis, Km.-aksturs, og hugsanlegs söluverðs, leggist
inn á afgr. Mbl. fyrir 12. jan. n.k. merkt:
„Station-bifreið — 3176“.
Jdrnsmiðir — Roísuoumenn
Okkur vantar nú þegar nokkra starfsmenn við
byggingu stálbáta o. fL Góð vinnuskilyrði. Öll
vinna framkvæmd í upphituðu húsnæði.
Talið við verkstjóra sími 34981.
Keilir hf.
HEF OPNAÐ
lækningastofa
AÐ HVERFISGÖTU 5 0.
Viðtalstími mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og
föstudaga frá kl. 18—18:30 og miðvikudaga frá
kl. 14—14:30 sími 17474, (og 18888 Viðtalsbeiðni
milli kl. 11—12 f. h. fyrir aðra en sjúkrasamlags-
sjúklinga).
ÓLAFUR ÓLAFSSON, læknir
Sérgrein: Lyflækningar.