Morgunblaðið - 05.01.1963, Page 10
MORCVNBLÁÐIÐ
Laugardagur 5. Januar 1963
ie
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson,
Sigurður Bjarnason frá Vigur,
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Utbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
VILJA MENN VOLD
FRAMSÓKNAR ?
ar sem þingkosningar eru
nú framundan er ekki ó-
eðlilegt að menn velti því fyr-
ir sér, hvaða þýðingu úrslit
þeirra geti haft á þróun ís-
lenzkra þjóðmála. í þeim
kosningum verða línumar
skýrari en oftast áður, því að
segja má að um tvær megin-
fylkingar sé að ræða, annars
vegar Sjálfstæðisflokkinn og
Alþýðuflokkinn, sem fram-
kvæmt hafa viðreisnarstefn-
unna og báðir hafa lýst því
yfir, að frá henni vilji þeir
éklci hvika. Hins vegar er svo
„þjóðfylking" kommúnista og
Framsóknarmanna, sem ákaft
hælast um yfir ágæti vinstri
etjórnarinnar og ósparir eru
á yfirlýsingar um, að slíku
stjórnarfari vilji þeir koma á
aftur.
Framan af viðreisnartíman-
um töldu stjórnarandstæðing-
ar vænlegt til árangurs að ráð
ast heiftarlega á viðreisnina,
tala um kreppu, samdrátt og
móðuharðindi af manna völd-
um, svo nokkuð sé nefnt. —
Töldu þeir augsýnilega, að
landsmenn vildu ekki sætta
sig við það, að nokkuð yrði
lagt til hliðar af afla þjóðar-
innar til þess að treysta fjár-
hagsgrundvöllinn.
' Nú er hins vegar svo kom-
ið, að Framsóknarmenn eru
teknir að lýsa því yfir, að
ýmislegt gott hafi verið að-
hafzt, þótt þeir telji enn nauð
synlegt að hverfa aftur til
þeirrar úreltu og kostulegu
stjórnarstefnu, sem hér hafði
tildrazt upp á tímum upp-
bótakerfisins og á sér engan
líka í stjómarfari lýðræðis-
ríkja.
Ljóst er samt, að Fram-
sóknarmenn eru nú sem óðast
að gera sér grein fyrir því,
að þjóðin kæri sig ekki um
afturhvarf til þessarar úreltu
stefnu, því að þeir em teknir
að boða það, að þeir séu von-
lausir um starfhæfan meiri-
hluta á Alþingi með komm-
únistum einum og geti þess
vegna ekki framkvæmt þessa
stefnu, þótt þeir ynnu eitt-
hvað á í kosningunum.
Það væri líka sannarlega
furðulegt, ef „þjóðfylkingar-
flokkarnir" yrðu nú valdir til
að fara með forystu lands-
mála, þegar það hvorttveggja
liggur fyrir, að geysimikill
árangur hefur náðst af við-
reisnarstefnunni og eins hitt,
að kommúnistar og Fram-
sóknarmenn boða afturhvarf
til „vinstri stefnu", og hinir
fyrrnefndu að minnsta kosti
hugsa sér að þá yrði engum
vettlingatökum beitt.
URSLITARAÐ
FRAMSÓKNAR
nníminn gerir í gær að um-
-*• ræðuefni þau orð Bjarna
Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins í ára-
mótagrein, að naumast komi
til þess að kommúnistar og
Framsóknarmenn nái í kosn-
ingunum starfhæfum meiri-
hluta. Tekur blaðið upp eina
málsgrein en sleppir úr henni
eftirfarandi orðum:
„Sjálfir segja Framsóknar-
menn, að ekki komi til greina,
að þeir og kommúnistar verði.
nógu sterkir eftir næstu kosn-
ingar til þess að geta stjómað
landinu einir. En til. valdanna
vilja þeir komast, kosti hvað
sem vilL Þess vegna skyldi
enginn taka yfirlýsingar
þeirra nú of alvarlega.“
Það er sannarlega aumlegt
upphaf á kosningabaráttu a.ð
lýsa því yfir, eins og Fram-
sóknarmenn gera, að það sé
skaðlaust að kjósa þá, þeir
muni hvort sem er ekki ná
þeim meirihluta með banda-
mönnum sínum í kommúnista
flokknum, sem nægi til þess
að þessir tveir flokkar geti
komið á aftur þeirri stefnu,
sem þeir báðir berjast fyrir.
En ekki er síður ástæða til
að leiða hugann að því, eins
og Bjami Benediktsson gerir
í áramótagrein sinni, hvernig
ástatt yrði, ef Framsóknar-
menn hefðu stöðvunarvald á
Alþingi, því að:
„Hverjir em þeir, sem trúa,
að það yrði til bóta á stjórn-
arfari, að þvílíkir tækifæris-
sinnar réðu úrslitum?“
1 gær segir Tíminn, að und-
ir þeim kringumstæðum, að
núverandi stjómarflokkar
hefðu ekki starfhæfan meiri
hluta að kosningum loknum
og heldur ekki Framsóknar-
menn og kommúnistar, þá
mundi niðurstaðan verða sú,
að Framsóknarflokurinn
mundi „knýja fram uppbygg-
ingar- og framfarastefnuna á
ný“.
Nú er það yfirlýst stefna
allra þingmanna stjórnar-
flokkanna að hvika ekki frá
viðreisninni. Stöðvunarvald
Framsóknarflokksins gæti því
ekki þýtt það, að hann kæmi
á ný á uppbótakerfinu, held-
ur mimdi af því leiða al-
gjöran glundroða og stjórn-
leysi.
Aðstaða Framsóknarflokks-
ins í kosningabaráttunni er
því síður en svo nokkuð
Friðsöm
áramót í
Keflavík
ÁRAMÓTIN í Keflavík fóru
friðsamlega og fallega fram, í
fegursta veðri. Margar brenn
ur voru í kringum bæinn og
stóðu unglingar fyrir þeim og
höfðu safnað brenni til þeirra
á undanfömum dögum. Miklu
af flugeldum var skotið og
skrautijós ljómuðu víða. Eng-
ar stærri eða hættulegar
sprengjur voru sprengdar og
engin slys eða árekstrar urðu.
— Stór jólatré voru víða um
bæinn og útiskreytingar tals-
vert miklar, og símatuminn
skrautlýstur Ijómaði hátt yfir
— engir hrekkir eða skemmd
arverk vom höfð í frammi við
skreytingar, sem úti voru. —
Dansleikir vom í samkomuhús
unum og fóra þeir friðsamlega
og fallega fram og kom þar til
engra átaka.
Myndina, sem Heimir Stígs
tók, sýnir Hafnargötuna um
áramótin. — hsj.
Skóli fyrir eldri kynslóðina
BUIÐ er að stofna nýjan há-
skóla í bænuim Palm Beach í
ílori'dafylki 1 Bandaríkjuruum,
og er hlutverk hans haria ný-
stárlegt. Þessi menntastofnun,
sem heitir „Nýi Háskólinn í
Palm Beaoh“, á sem sé að kenna
eldæi kynslóðinni að efila þek'k-
ingu sína í nútíma þjóðfélagd.
Háskólinn, var opnaður í sept-
ember s.l. og hefur þegar náð
geysilegum vinsældum. í ailflest
um námsgreinum getur skólinn
ekki bætt við sig fleiri nemend-
um, og er því í ráði að efla
starfsemina til mikilla muna.
Þótt furðulegt megi virðast hef-
ur skólinn ekkert skólahús tii
umráða og inntökuskiiyrði eru
engin. Allir geta fengið „inn-
göngu“, meðan nægir kennarar
fást tii að annast kennsluna og
mögulegt er að útvega húsnæði.
glæsileg, þótt hann berjist á
þeim forsendum, að hann
ætli sér einungis að ná stöðv-
unarvaldi á Alþingi, en ekki
meirihluta með kommúnist-
um. —
AUÐVELT
AÐ SVARA
í" kosningunum í sumar þurfa
*■ kjósendur að gera upp við
sig svör við nokkrum spum-
ingum, sem ekki ætti að reyn
ast þeim erfitt.
Þeir þurfa svara því, hvort
þeir vilja áframhaldandi upp-
byggingu og traustan fjárhag,
eða nýja skuldaóreiðu. Þeir
þurfa að svara því, hvort þeir
Maðurinn, sem á beiðurinn af
stofnun Nýja Háskólans, heitir
Dr. Ludid M. Spivey, en hann
hefur verið skólastjóri Floriida
Southern College í 32 ár sam-
fleytt þar til hann lét af störfum
og fluttist til Palm Beach árið
1957. Hann var ekki undir það
búinn að setjast í helgan stein
fyrir elli sakir, og ákvað því að
stofna skóla fyrir jafnaldra sína,
sem líkt var komið á með.
Samkvæmt Dr. Spivey eru
um 16 milljónir manns búsettir
í Bandaríkjunum um þessar
mundir, sem eru sextíu og fimm
ára eða eldri. Allur þorri þessa
flólks hefur hug á að auka þekk
ingu sína í samræmi við breyt-
ingar og hraða nútímans, en
það er eitt af hlutverkum Nýja
Háskólans að örva áhuga þessa
fól'ks á aukinni þekkingu.
borð við það, sem gerist með-
al nágrannaþj óðanna, eða það
kerfi, sem dregur úr kjara-
bótum. Þeir þurfa að svara
því, hvort þeir vilji áfram
stjórnarfar athafnafrelsis eða
ofstjómar ríkisvaldsins. Þeir
þurfa að svara því, hvort þeir
vilji stjórnarfar, sem geri
stöðugt fleiri einstaklinga
efnahagslega sjálfstæða, eða
stjórnarfar fjárhagslegs for-
ræðis pólitíkusa.
Þessar spumingar og marg-
ar fleiri munu vakna, og
frjálshuga menn munu svara
þeim öllum á einn veg, að þeir
vilji frjálslynda og lýðræðis-
sinnaða stefnu mikilla fram-
fara, eins og aðrar lýðræðis-
Þegar Dr. Spivey hafði kallað
saman nefnd manna til að fjalla
um stofnun skólans, var það
höfuðivandamálið, hvar kennsl-
an skyldi fara fram. Var vanda
málið borið undir ýmsa húseig-
endur, sem höfðu yfir rúmlegu
húsnæði að ráða; svo og presta
og gistilhúsaeigendur. Árangur-
inn af þessum umleitunum var
mklu betri en búizt hafðd verið
við, og var þegar unnt áð hefja
kennsluna á einkaheimilum, mót-
tökusölum kirknanna og 1 gisti-
húsuim.
Kennarar skólans eru flestir
prófessorar, sem fengið hafa
lausn frá embætti. Eru sumir
þeirra ráðnir upp á kaup, en
aðrir starfa sem sjálfboðaliðar
og fer þetta að sjálfsöigðu eftir
efnum og ástæðum. Þannig var
t.d. ritstjóri blaðsins „Saturday
Review“ beðinn um að flytja
bókmenntafyrirlestur við skól-
ann, meðan hann dvaldist í Palm
Beaoh í tveggja vikna orlofi.
Meðal kennslugreina, sem
kenndar eru við skólann eru
rússneska, spænska, franska,
enskar bóikmenntir, saga, niú-
tíma heimspeki, sálfræði þjóð-
félagsfræði, listir og trúbragða-
heimspeki. Námskostnaður er
mjöig stillt í hóf og kostar t.d.
tólf vikna námskeið í heimspeki
John Deweys aðeins tuttugu og
fjóra dali, en dýrustu námskeið-
in kosta hundrað dali. Er þessi
kostnaður mjög lágur miðað við
aðra einikaskóla þar vestra.
Enn sem komið er eru engar
einkunnir gefnar, og engin próf,
er skeri úr um námshæfni nem-
endanna. öll aðaláherzla er lögð
á kennsluna, en eina innitöku-
skilyrðið er áhuginn á nómi og
löngunin ti'l að efla þekkingu
sína.
Eftir LYNN POOLE
The Joihns Hopkins University,
vilja stöðugt bætt lífskjör á
þjóðir.
i