Morgunblaðið - 05.01.1963, Side 11
Laugardagur 5. janúar 1963
MORGVNBLAÐIÐ
11
í GÆR var opnað útibú frá
Borgarbókasafni Reykjavíkur,
að Sólheimum 27. Bókasafnið
er í nýjum og björtum húsa-
kynnum og eru þar 9000 bæk-
ur, þar af 3500 í barnadeild.
Bókasafnið lánar út bækur
bæði fuUorðinna og barna,
en auk þess er þar lesstofa.
Safnið verður opið fyrst um
sinn frá 4—7 alla virka daga
nema laugardaga, á mánudög-
um verður fullorðinsdeildin
opin tU kl. 9 um kvöldið.
Ðorgarstjórinn í Reykjavík,
Geir HallgTÍmsson, Ihélt stuttá
ræðu við opnun bókasafnsins.
Hann 'hóf mál sitt með þvi, að
nærri 40 ár væru nú liðin síð-
y'xt:.;:
Þegar bókasafnið í Sóllieimum 27 var opnað almenningi ki. 5 í gær, komu á vettvang milli 60 og 70 manns úr hverfinu, ungir sem
fullorðnir. Myndin er úr barnadeild safnsins. Það var hamagangur í öskjunni fyrstu mínúturnar eftir að opnað var, því allir vildu
verða fyrstir að ná í skemmtilegustu bækurnar. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Bókasafn tekur til
starfa í Sdlheimum
fermetra húsnæði, en flytur
nú í 215 fermetra húsnæði.
Jafnframt þwí hefur bókakost-
ur þess verið mjög aukinn.
Að síðustu ræddi Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, um
Borgarbókasafn Reykjavíkur
og hlutverk þess í borgarfél-
aginu. Hann kvað merkasta
áfanga þess þegar það fékk
Þingholtsstræti 29a til afnota.
Síðar hefði verið stofnað úti-
bú í Hólmgarði og nú þetta.
Bókaeign félagsins væri nú
um 83 þúsund bindi óg árið
1962 námu útlán 216 þúsund-
um. Hlutverk þess væri að
sjá æskulýð borgarinnar, svo
og öllum íbúum, fyrir hollum
tómstundum við lestur ís-
lenzkra bóka og veita þeim
almennan fróðleik. Þvá væri
mikilvægt að bókasafnið starf
aði á breiðum grundvelli.
Sigurjón Símonarson (t.v.) varð fljótastur að velja sér bækur.
Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri (yzt til hægri), sýnir Geir Hallgrimssyni, borgarstjóra, og frú
Auði Auðuns, forseta borgarstjórnar, bókasafnið.
an Borgarbókasafnið, eða Al-
þýðubókaSafnið eins og það
var nefnt í upphafi, tók til
starfa.
Borgarstjóri sagði, að bygg-
ingarframkvæmdir þessa úti-
bús hefðu verið hafnar árið
1961 og þeim lokið í október
s.l., nema skipulagning safns-
ins að innan. Gunnar Hansson
hefði teiknað húsið, verkið
verið boðið út í einni heild og
falið lægstbjóðanda, Bygging-
arfélaginu Brú. Byggingar-
bostnaður allur hefði numið
1860 þús. kr. Allar framkvæmd
ir hefðu verið unnar undir
umsjá byggingardeildar borg-
arverkfræðings. Flutti borgar-
stjóri öllum þeim, sem að verk
inu störfuðu, þakkir sínar.
Bókasafnið að Sólheimum
27 er ætlað ibúum í nærliggj-
andi hvarfum, í Vogunum,
Heimunum og Kleppsholti ,en
á þessu svæði búa um 12000
manns. Útibúið sem stofnsett
var 1948 var áður til húsa
í Efstasundi 26 í aðeins 1S
Þær heita: „Ferðin til Marz“ og „Ævintýradalurinn“. Við hlið
hans stendur bróðir hans, Guðmundur, 7 ára, bókarlaus, enda
ekki orðinn fluglæs og verður að láta^ér nægja að skoða mynd-
irnar í bókum bróður síns.
Kínverjar safna
Hði í Tíbet
Nýju Delhi, 4. jan. (AP).
NEHRU forsætisráðherra skýrði
frá þvi í dag á fundi með for-
nstumönnum Congressflokksins í
Nýju Delhi, að kínverskir komm
únistar væru að draga saman
mikið lið í Tíbet, við landamæri
Indlands. „En ég get ekki sagt
hver tilgangur þeirra er,“ sagði
forsætisráðlierrann.
Að fundinum loknum ræddi
talsmaður flokksins við frétta-
menn. Sagði hann að Nehru
hefði skýrt frá því að Kínverjar
héldu nú uppi víðtækum áróðri
gegn Indlandi, og eyddu til þess
hundruðum milljóna króna. Eru
þeir að reyna að skapa hatur á
Indverjum meðal þjóða, sem
ávallt hafa verið Tndlandi vin-
veittar, að sögn Nehrus.
Talsmaðurinn sagði að Nehru
hafi ekki viljað láta neitt uppi
um viðræðurnar við stjórn
Pakistan í Rawalpindi í síðustu
viku um Kashmir annað en það,
að þeim hafi lokið í vinsemd og
hefjist að nýju hinn 16. þ.m.
Einnig neitaði Nehru að ræða
tillögur þær, er samþykktar voru
á ráðstefnu sex „hlutlausra“
ríkja í Colombo á Ceylon um
lausn landamæradeilunnar við
Kínverja. Tillögur þessar hafa
verið lagðar fyrir stjórnir
beggja deiluaðila. Forsætisráð-
herra Ceylon, frú Sirimavo
Bandaranaike, er nú í Peking að
ræða þær við Chou En-lai for-
sætisráðherra, en er væntanleg
til Nýju Delhi 10. þ.m. Tveimur
dögum seinna er væntanlegur
til Indlands fulltrúi stjórnar
Arabiska sambandslýðveldisins,
Ali Sabri, og mun hann einnig
ræða við Nehru um hugsanlega
lausn á deilunni við Kínverja.
Blvelta við Laxá
í Leirársveit
UM SEXLEYTIÐ í gær gerðist
það skammt sunnan Laxár í Leir
ársveit að fólksbíll frá Akranesi
valt og að heita gjöreyðilagðist,
en tveir menn sem í honum voru
sluppu að heita ómeiddir.
ökumaðurinn mun hafa misst
vald á bílnum, sem fór á hvolf
utan við veginn. Bíllinn er af
gerðinni Fiat 1800.
Nýárskveðjur til
*
forseta Islands
MEÐAL fjölda árnaðaróska, sem
forseta íslands bárust á nýjárs-
dag, voru kveðjur frá þessum
þjóðhöfðingjum:
Urho Kekkonen, forseta Finn-
lands, Ólafi V Noregskonungi,
Friðrik IX Danakonungi, Gústaf
VI Adolf Svíakonungi, Breshnev
forseta Sovétríkjanna og Krús-
jeff forsætisráðherra, dr. Hein-
rich Liibke, forseta Sambands-
lýðveldisins Þýzkalands, Eamon
De Valera, forseta Irlands,
Charles de Gaulle, forseta Frakk
lands, Francisco Franco, rikisleið
toga Spánar, Antonio Segni, for-
seta Ítalíu, dr. Osvaldo Dortices
Torrade, forseta Kúbu, dr. Adolf
Scharf, forseta Austurríkis, Jozip
Broz Tito, forseta Júgóslavíu,
Mohammed Reza Pahlavi, keis-
ara íran.
Þá bárust heillaóskir frá er-
lendum sendiherrum, sendiherr-
um íslands og ræðismönnum og
ýmsum öðrum.
Áramótamóttaka forseta fslands
Forseti Islands hafði venju
samkvæmt móttöku í Alþingis-
húsinu á nýársdag.
Meðal gesta voru ríkisstjórn-
in, fulltrúar erlendra ríkja, ýms-
ir embættismenn og fleiri.
(Frá skrifstofu forseta íslands)
London, 4. jan. (AP)
HEWLETT Johnson dómpróf-
astur í Canterburg (Rauðl
dómprófasturinn) hefur sagt
af sér dómprófastsembættinu,
sem hann hefur gegnt frá
1931. Hann er nú 88 ára, en
sagði í dag, að þótt hann léti
af embætti sem dómprófast-
ur, ætlaði hann ekki að hætta
afskiptum af stjórnmálunv