Morgunblaðið - 05.01.1963, Side 20
HIBYLARRYÐI HF
Hallapmúla alml 38177
LUMAJERUÓSGJAFlt
3. tbl. — Laugardagur 5. janúar 1963
■UIII'lMim i [.........i . Jimi|liUÍitJ|l!!L-M - - ■ - J J JjJ J ■
Á FIMMTA tímanuin í gær
kam upp eldur í verkfæra-
skúr, sem stendur við Austur-
gerði á Kársnesi. Stóð skúrinn
í ljósum loguim von bráðar.
Slökkviliðið í Reykjavík kom
á staðinn, en skömmu áður
en það kam á vettvang komu
menn frá Rafveitunni af til-
viljun á staðinn og klipptu á
rafstrenginn að skúrnum,
þannig að slökkviliðið gat
gengið hreint til verks við
slökkvistarfið. Skúrinn gjör-
eyðilagðist og allt sem í hon-
um var. Myndin sýnir slökkvi
liðið sprauta á eldinn.
(Ljósm. Sv. f>.).
Urriöavatn rannsakaö
næsta sumar
EINS og Morgunblaðið skýrði
frá í gær hefur fundizt 25 stiga
heitt vatn á botni Urriðavatns á
HéraðL
Jónas Fétursson, alþingismað-
ur, fékk Jón Jónsson, jarðfræð-
ing hjá jarðhitadeild Raforku-
málaskrifstofunnar, til að
Áframhaldandi ískönn-
unarflug Fl i Grænlandi
UM sl. áramót voru tvö ár liðin
frá því Flugfélag Islands tók að
sér ískönnunarflug við Græn-
land með flugvél og áhöfn stað-
settri í Narssarssuaq.
ískönnunarflugið hefir frá
byrjun verið framkvæmt á veg-
Lítil síldveiði
SÍLDVEIÐI var fremur léleg í
fyrrinótt enda fá skip á miðun-
um og veður óhagstætt lengi vel.
Til Reykjavikur komu aðeins 5
bátar í gær með 2950 tunnur.
Síldin veiddist einkum 30 milur
V®V af Garðskaga, svo og eitt-
hvað við Eldey.
Er Mbl. vissi síðast til í gær-
kvöldi voru skipin á svipuðum
slóðum, voru lítið farin að reyna
að kasta, og ekki var vitað um
árangur þeirra fáu, sem reynt
höfðu. Veður var gott, en þó
ekki svo slæmt að ekki væri
hægt að athafna sig á miðunum.
Sjónvarpsviðtal
Kennedys
Upplýsingaþjónusta Bandaríkj-
anna gengst fyrir sýningu á kvik-
mynd, sem gerð var eftir sjón-
varpsviðtali Kennedys Banda-
rikjaforseta fyrir skemmstu. Verð
ur sýningin í Nýja biói í dag
(laugardag) og hefst kl. 3.
I viðtali þessu gerir Kennedy
forseti grein fyrir því merkasta,
sem gerzt hefur í bandarískum
stjórnmálum undanfarin tvö ár,
eða síðan hann tók við forseta-
embættinu, auk þess sem hann
ræðir þar nokkuð um framtíð-
arhorfur.
Sýningin er opin öllunr. almenn
ingi meðan húsrúm leyfir og að-
gangur ókeypis.
um Konunglega Grænlandsverzl-
unarinnar og hinn 21. des. sl. var
í Kaupmannahöfn undirritaður
samningur milli hennar og Flug-
félags íslands um áframhaldandi
ískönnunarflug og staðsetningu
flugvélar og áhafnar í Græn-
landi.
Skymasterflugvélin „Sólfaxi"
ihefir frá öndverðu sinnt þessu
verkefni og er sérstaklega búin
mjög fullkominni ratsjá og leit-
artækjum.
Auk ískönnunarflugsins, ann-
ast flugvélin önnur verkefni, svo
sem leit að skipum og bátum ef
óhöpp ber að höndum, og flutn-
inga milli Grænlands og íslands.
Ms. Lagar-
foss siglir á
hafnarbakk-
ann á
Flateyri
FLATEYRI, 4. jan.: — Ms. Lag
arfoss kom hingað í gærkvöldi
tii þess að taka freðfisk, en
svo illa vildd til, þegar skipið
var að leggja að hafnarbakk-
anum, að það sigldi á hann með
þeim afleiðingum, að hornið á
hafnarbakkanum stórskemmdist.
Skemimdirnar eru ekki fullrann-
sakaðar enn, en þær eru taldar
allmiklar. Hornskúffurnar rifn-
uðu og lögðust út, þannig að mik
il rauf myndast inn í hornið.
Stefnið á skipinu skemmdist
ekki mjög mikið. Þó kom gat á
það og opnaðist inn í forpikk-
inn. Skipið fór héðan kl. 3 í nótt
áleiðis til ísafjarðar. — Kristján j
skreppa austur í fyrrakvöld og
gera hitamælingar í vökum,
sem voru á ísi lögðu vatninu.
Mbl. ræddi við Jón Jónsson,
jarðfræðing, í gær og spurðist
fyrir um þessar hitamælingar.
Jón sagði, að rannsóknirnar á
vatninu væru á algeru frum-
stigi, en hitinn hefði verið
mældur í þrem vökum. Þar væri
5 metra dýpi. Ekki væri hægt að
segja um, hvort fundizt hefðu
heitustu staðirnir í vatninu,
enda komið rökkur og öll að-
staða til kannana erfið.
I einni vökinni kom upp mikið
gas og kraumaði í henni að sögn
Jóns, sem telur líklegt, að þar sé
ölkelda, enda fannst enginn hiti
þar. Farið verður austur að Urr-
iðavatni næsta sumar til að
halda þar frumrannsóknum
áfram.
Jón Jónsson sagði, að enginn
hiti væri í nágrenni Urriðavatns
svo vitað væri um, en með við-
námsmælingum mætti finna,
hvort hitinn í jörðu þarna væri
nægjanlegur til að koma upp t.d.
hitaveitu fyrir hið vaxandi þorp
við Lagarfljótsbrú og ef til vill
fyrir Egilsstaðaþorp.
Hann benti á, að við fyrstu
mælingar í Áshildarholtsvatni í
Skagafirði hefði mælzt þar 35
stiga hiti og á vatninu hefði ver-
ið vitað um hættulegar vakir frá
ómunatíð. Nú hefði Sauðárkrók-
ur mjög góða hitaveitu frá Ás-
hildarholtsvatni, eftir að borað
var þar.
Moskvu, 4. jan. (AP)
KRÚSJEFF forsætisráðherra
fer á næstunni til Austur-
Berlínar. Verður hann for-
seti rússnesku sendinefndar-
innar á ársþingi austur-þýzka
kon-.-núnistaflokksins, sem
hefst 15. þ.m.
Drukknaði
við bryggiu
Reyðarfirði, 4. jan.
UM hádegisbilið í dag fannst lík
Hreins Ágústssonar, sem saknað
hefur verið síðan á nýársdags-
morgun. Fann froskmaður af
varðskipinu Albert Hrein við
bryggjuna eftir skamma leit.
Hreinn var aðeins þrítugur að
aldri, ókvæntur, og lætur eftir
sig móður á Reyðarfirði.
Hreinn hafði ráðið sig sem vél-
stjóra á bát hér á Reyðarfirði í
vetur.
Að gamlárskvöldsfagnaði lokn-
um hér á staðnum fór Hreinn á-
samt fleira fólki um borð í ms.
Helgafell, sem hingað kom á
gamlárskvöld. Sást hann síðast
um borð í skipinu milli kl. 8—10
á nýársdagsmorgun.
Lýst var eftir Hreini í útvarpi
en það bar ekki árangur.
í gær var hafizt handa að
slæða hér í höfninni en sú leit
bar ekki árangur. í morgun kom
hér varðskipið Albert, sem hefur
froskmann um borð. Hóf hann
að kafa í höfninni og fann
Hrein eftir skamma leit.
Ekki er vitað hvernig slys
þetta hefur borið að höndum.
— A. Þ.
Áframhaldandi
vetrarríki í Evrópu
London, 4. jan. (AF-NTB)
ÁFRAMHALDANDI kuldar
eru víðast hvar i Evrópu, og
valda þeir, á’samt þoku, miklum
umferðatruflunum og slysum.
I Suður Englandi komst hitinn
í dag yfir frostmark, og er tal-
in mikil hætta á flóðum á þess-
um svæðum. Þoka og glerhálka
er víða, og erfitt fyrir þyrlur
að annast nauðsynlega matvæla-
flutninga til innilokaðra sveita-
héraða.
í fjallahéruðum Austurríkis
kom hláka í dag, sem getur vald
ið skriðuföllum, en í nærliggj-
andi héruðum er enn sama vetr-
arharkan. ÖH flugumferð liggur
niðri um flugvellina tvo við
Milano vegna þoku, en í Róm
og á Suður ítaliu er komið vor-
veður.
Sums staðar í Frakklandi hef-
ur veður skánað, en í norður-
héruðunum snjóaði enn í dag.
Verkfræðingar hersins unnu að
því í dag að ryðja veg í nánd
við Calais til sveitaþorps, setm
hefur verið aigjörlega einangrað
í rúma viku.
Áframihaldandi frost var á
Spáni, með snjókomu og slyddu
Um 80% appelsínu og sítróniu
uppskerunnar í Levante-héraðinu
á Spáni eyðilagðist í frostununo.
Washington, 4. jan.(AP)
ARTHUR H. Dean, aðalfull-
trúi Bandaríkjanna á afvopn-
unarráðstefnunni í Genf, hef-
ur beðizt lausnar úr embætti.
Hyggst hann taka upp að nýju
störf við lögfræðiskrifstofu
sína í New York.
f GÆR var unnið að því
að gera við hafnarbakkann |||
undan gömlu vöruskemmu |§|
Eimskips en þar haf ði eitt |:||
skúffujárnið, sem heldur hafn ||f
arbakkanum saman tærzt, og
varð að reka annað niður að
innanverðu við eldra skúffu-
járnið þannig að ekiki tæiki
að síga úr uppfyllingunni við
flóð og fjöru. Myndin sýnir
krana lyfta 3 tonna slaghamri
sem notaður var til þess að
reka niður nýja járnið.
(Ljósm. Sv. Þ.)